Morgunblaðið - 22.01.1986, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986
Utsendarar á friðar-
hreyfingu kvenna
London, 20. janúar. AP.
VIKURITIÐ Jane’s Defence, sem
fjallar um hemaðar- og öryggis-
mál, hélt því fram í dag, að
konur, sem væm þjálfaðar sem
útsendarar af Sovétmönnum,
hefðu komizt inn í búðir friðar-
hreyfingar kvenna við Green-
ham Common, um 80 km fyrir
vestan London.
Blaðið hefur frétt sína m.a. eftir
sovézkum flóttamönnum og fleiri
heimildum. Heldur það því fram,
Noregur;
að 3—6 sovétþjálfaðir útsendarar
frá ríkjum Varsjárbandalagsins en
einnig frá löndum Vestur-Evrópu,
þar á meðal Bretlandi, væru „alltaf
til staðar", síðan býrjað var að koma
stýriflaugunum upp við Greenham
Common árið 1983.
Sovézka sendiráðið í Bretlandi
hefur mótmælt þessu alfarið og
haldið því fram, að markmiðið með
þessu væri að hvetja til andúðar á
Sovétríkjunum.
Islamabad, 21. janúar. AP.
SOVÉZKAR herþotur vörpuðu
sprengjum á borgir og þorp í
ýmsum hlutum Afganistans fyrir
skömmu og ollu þar miklu mann-
tjóni. Var það gert í hefndar-
skyni fyrir hernaðaraðgerðir
skæruliða.
Þannig gerðu sovézkar flugvélar
loftárásir á borgimar Charikar í
Parwan-héraðinu og borgina Ku-
histan í Kapisa-héraðinu í norður-
hluta Afganistan. Er það haft eftir
einni áreiðanlegri heimild, að gerðar
hafi verið „margar" loftárásir á
þessar tvær borgir dagana 10,—13.
janúar, þar sem um 100 óbreyttir
borgarar voru drepnir.
Þá berast einnig fregnir af því,
að sovézkar flugvélar hafi gert
loftárásir á svæðið fyrir sunnan
Ghazni-héraðið í suðurhluta lands-
ins, eftir að skæruliðar gerðu mikla
árás á bílalest afganska hersins 5.
janúar sl.
Kandahar, sem eitt sinn var
næststærsta borg Afganistans,
hefur hvað eftir annað orðið fyrir
loftárásum að undanfömu. Hafa
Rússar lagt á það mikið kapp að
reka skæruliða á burt þaðan, en
þeim hefur tekizt að halda þar
nokkrum hluta borgarinnar.
Presthus formaður
Hægriflokksins?
Osló, 21. janúar. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins.
Hægriflokksmenn hafa átt í
nokkrum vandræðum með að
vinna nýjan formann en líklega
eru þau mái nú að leysast.
Margt bendir til, að Rolf Prest-
hus, fjármálaráðherra, sé til-
búinn tU að taka við formanns-
stöðunni nú í vor af Erling
Norvik, sem notið hefur mikilla
vinsælda í embættinu.
Rolf Presthus hefur þótt standa
sig mjög vel sem ijármálaráðherra
og vitað er, að Káre Willoch, for-
sætisráðherra, vill helst ekki sjá
á eftir honum úr því embætti. Það
þykir hins vegar ekki á einn mann
leggjandi að vera hvort tveggja í
senn formaður Hægriflokksins og
fjármálaráðherra og því er það
hugsanleg lausn, að Presthus fái
„léttara" ráðherraembætti. Þess
má geta, að formenn hinna stjóm-
arflokkanna tveggja, Kristilega
þjóðarflokksins og Miðflokksins,
era ráðherrar.
• »• #»• 1 • Ai'/oinittiiiynu
Æfareiðir fiskimenn
Sjómannasamtökin í New Bedford í Massachusetts í Bandaríkjunum efndu til verkfalls meðal félags-
manna sinna fyrir nokkrum dögum til að knýja á um betri laun. Ekki eru þó allir fiskimenn á
staðnum í verkalýðsfélaginu og hafa þeir róið hvað sem verkfallinu líður. Félagsbundnu sjómenn-
irnir hafa tekið því illa og reynt að koma í veg fyrir að aflinn sé boðinn upp. Hér má sjá þá
nokkra senda fiskkaupendum tóninn.
Afganistan;
Fjöldi manns drepinn í
loftárásum Sovétmanna
„Dreymandinn er fallinn
— en draumurinn lifir“
Minningardagurinn um Martin Luther King hátíðlegur haldinn
AtlaJita. Georgiu, 21. janúar. AP.
MINNINGARDAGUR um friðar-
leiðtogann og mannréttinda-
frömuðinn Martin Luther King,
sem myrtur var í Memphis i
Tennessee árið 1968, var hátíð-
legur haldinn í Bandarikjunum
i gær, mánudag. Farið var í
kröfugöngur, bænagjörðir
haldnar, kirkjuklukkum hringt,
ræður fluttar og heitstrengingar
itrekaðar um áframhald mann-
réttinda- og friðarbaráttu
Kings. Tilfinningar fólks krist-
ölluðust í orðum bandariska
þingmannsins Ronalds Dellums,
sem sagði: „Dreymandinn er
fallinn - en draumurinn lifir.“
Um 15.000 manns fóru í kröfu-
göngu um götur Atlanta eftir
þriggja klukkustunda langa minn-
ingarguðsþjónustu í Ebenzarkirkj-
unni, þar sem King þjónaði. Aður
hafði Dexter, sonur hans, lagt
blómsveig á gröf foður síns og
forseti Samtaka kristinna kirkju-
deilda í Suðurríkjunum, séra Jós-
eph Lowery, minnst stofnanda og
fyrrverandi leiðtoga samtakanna í
predikun sinni við guðsþjónustuna.
Hann bað menn halda áfram starfi
Kings og vinna að jafnrétti kyn-
þáttanna.
„í nafni Martins Luthers Kings
bið ég þess, að við hverfum ekki
frá stefnu hans,“ sagði Lowery í
ræðu sinni. „Til þess erum við
komin allt of langt áleiðis, höfum
lagt allt of hart að okkur, farið í
of margar kröfugöngur, beðið of
heitt, grátið of beiskt, fórnað of
miklu af blóði og dáið of ung.“
Þessi mynd var tekin á fundi, sem Martin Luther King efndi til
við Lincoln-minnismerkið í Washington i ágúst 1963. Fundur
þessi varð hinn fjölmennasti, sem haldinn hefur verið í Bandaríkj-
unum. Um 250 þúsund manns söfnuðust þá saman og hlýddu á
King flytja frægustu ræðu sína: „Ég á mér draum“.
í Bandaríkjunum
Séra Lowery gekk til kirkjunnar
ásamt George Bush varaforseta,
Desmond Tutu, biskupi frá Suður-
Afríku, Edward Kennedy öldunga-
deildarþingmanni, Andrew Young,
borgarstjóra I Atlanta, og ijöl-
skyldu Kings.
„Það kann að vera, að dreym-
andinn hafl fallið, en draumurinn
lifir," sagði bandaríski þingmaður-
inn Ronald Dellums við minningar-
athöfn um King í Olympia í Was-
hington-ríki.
í San Francisco fögnuðu um 60
þúsund manns Dianne Feinstein
borgarstjóra ákaflega, er hún sagði
í ræðu, að draumar Kings hefðu
þá fyrst ræst, er „svartur banda-
ríkjamaður sest í Hvita húsið".
í Kennedy-menningarmiðstöð-
inni í Washington var haldinn hluti
af mikilli tónlistarhátíð, sem þrjár
borgir stóðu fyrir í minningu Kings.
Samkomunni stjómaði Stewie
Wonder, sem barist hefur fýrir
því í sjö ár, að afmælisdagur Kings
yrði hátiðlegur haldinn. Þar kom
fram margt frægra tónlistar-
manna, m.a. Bob Dylan og Peter,
Paul og Mary, og söng Stewie
Wonder ásamt þeim mótmælasöng
Dylans, „Blowing in the Wind“.
Aðalritari Sameinuðu þjóðanna,
Janvier Perez de Cuellar, tilkynnti
í gær, að framvegis yrði afmælis-
dagur Martins Luthers Kings frí-
dagur hjá samtökunum. Fóru full-
trúar 51 Afríkuríkis fram á, að svo
yrði gert.
Veður
Lægst Hæst
Akureyri 0 snjókoma
Amsterdam 6 8 skýjað
Aþena 6 14 heiðskirt
Barcelona 13 þokum.
Berlin 4 8 skýjað
Briíssel 8 skýjað
Chicago +3 2 skýjað
Dublin 4 7 skýjað
Feneyjar 6 skýjað
Frankfurt 1 8 skýjað
Genf 1 9 heiðskírt
Helsinki 4-23 +17 heiðskírt
Hong Kong 17 20 heiðskírt
Jerúsalem 4 10 heiðskírt
Kaupmannah. 0 3 skýjað
Las Palmas vantar
Lissabon 10 14 rigning
London 7 9 skýjað
Los Angeles 15 20 heiðskírt
Lúxemborg 4 skýjað
Malaga 13 skýjað
Mallorca Vantar
Miami 17 24 skýjað
Montreal 1 2 rigning
Moskva +2 1 snjókoma
NewYork 3 7 heiðskirt
Osló 4-10 +9 skýjað
Paris 4 10 heiðskirt
Peking 4-10 0 heiðskfrt
Reykjavik +6 skýjað
Rfóde Janeiro 22 33 skýjað
Rómaborg 10 13 skýjað
Stokkhólmur +5 +1 snjókoma
Sydney 21 26 heiðskírt
Tókýó 4 8 skýjað
Vinarborg 6 9 skýjað
Þórshöfn 3 rigning