Morgunblaðið - 22.01.1986, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986
27
Leikhópurinn ásamt höfundi.
Þjóðleikhúsið:
„Upphitun“ eftir Birgi
Engilberts frumsýnt 31. jan.
ÞJOÐLEIKHUSIÐ frumsýnir nýtt íslenskt leikrit, „Upphitun“,
eftir Birgi Engilberts föstudaginn 31. janúar nk. Leikstjóri er
Þórhallur Sigurðsson, tónlist eftir Gunnar Þórðarson, ieikmynd
og búninga gerði Sigurjón Jóhannsson, dansar eru eftir Nönnu
Ólafsdóttur og lýsingu annast Páll Ragnarsson.
Með hlutverkin í leiknum fara
Kristbjörg Kjeld, Þóra Friðriks-
dóttir, Sigurveig Jónsdóttir, Helga
E. Jónsdóttir, Tinna Gunnlaugs-
dóttir, Guðrún Þ. Stephensen,
Bryndís Pétursdóttir, Guðrún
Þórðardóttir, ballettdansararnir
Katrín Hall, Helena Jóhannsdótt-
ir, Lára Stefánsdóttir og Sigrún
Guðmundsdóttir auk telpna úr
Listdansskóla Þjóðleikhússins.
Birgir Engilberts nam leik-
myndagerð í Þjóðleikhúsinu á
fyrra helmingi sjöunda áratugar-
ins og hefur gert fjölda leikmynda
við sýningar Þjóðleikhússins.
Einnig hefur hann áður sent frá
sér fimm stutt leikrit og eitt smá-
sagnasafn. Kunnasta leikrit Birg-
is mun vera fyrsta verk hans,
„Loftbólumar", sem Þjóðleikhúsið
sýndi á litla sviðinu í Lindarbæ
árið 1966, og varð Birgir þar með
yngsti höfundur sem Þjóðleik-
húsið hefur sýnt verk eftir. Loft-
bólur urðu síðan fyrsta leikritið
sem tekið var upp í sjónvarpi hér
og var auk þess sýnt á Norður-
löndunum. Onnur leikrit hans eru
Lífsneisti, Sæðissatíran, Ósigur,
Hversdagsdraumur og árið 1982
sendi hann frá sér bókina And-
vökuskýrslumar, sem geymir
þijár sögur.
Þeim sem þekkja fyrri leikrit
Birgis Engilberts mun hugsanlega
koma þetta nýja leikrit, Upphitun,
nokkuð á óvart, segir í frétt frá
Þjóðleikhúsinu, en í þessu verki
er hann hinsvegar á svipuðum
slóðum og í Andvökuskýrslunum
og rær á djúpmið sálarlífsins.
Þama er m.a. fjallað um tímann
og þá fortíð fulla af vonum og
fyrirheitum, sem ekki verður
höndluð á ný, og er það reyndar
stef úr fyrri leikritunum. Þama
er fjallað um manneskjuna, sem
getur ekki hörfað aftur til bemsk-
unnar þegar hún stendur and-
spænis ósigri í lífinu.
í miðju leiksins standa systum-
ar Þórey og Sóley og hefst at-
burðarásin þar sem móðir þeirra
er látin og þær eru komnar ofan
í kjallara gamla hússins tii að
fara í gegn um gleymda og grafna
hluti úr fortíðinni, vinsa heillegt
úr og henda öðru. Og víst er að
kjaliarinn er fullur af dýrindis
drasli, engu hefur verið hent á
þessu heimili. En í þessu dóti öllu
lifir fortíðin, hún gerist áleitin,
kveikir minningar og bregður loks
miskunnarlausri birtu á líf systr-
anna. Sárin ýfast og í ljós kemur
að ómögulegt er að sætta sig við
ósigur.
(Úr fréttatilkynningu.)
Nefnd frá Akureyri hjá iðnaðarráðherra:
Rætt um breytingu á
ver ðj öfnunargj aldi
Akureyri, 20. janúar.
„VIÐ ræddum t.d. um breytingar
eða millifærslu á verðjöfnunar-
gjaldi," sagði Helgi Bergs, bæjar-
sljóri á Akureyri, í samtali við
Morgunblaðið í dag — en nefnd
frá Akureyri, sem sett var á
laggimar til að ræða við iðnaðar-
ráðherra um málefni Hitaveitu
Akureyrar, hitti ráðherra að
máli í Reykjavík í morgun.
Bæjarráð tilnefndi Helga ásamt
bæjarráðsmönnunum Sigurði Jó-
hannessyni og Sigurði J. Sigurðs-
syni í nefndina. Sigurður J. lagði
einmitt til í Bæjarstjóm Akureyrar
á síðasta hausti að athugað yrði
hvort það borgaði sig að selja hlut
Akureyrar í Landsvirkjun og er það
ein þeirra hugmynda sem ræddar
verða.
„Á Akureyri, Akranesi og í Borg-
amesi er innheimt verðjöfnunar-
gjald af rafmagni og þeir peningar
sem þannig fást fara til Rafmagns-
veitna ríkisins og Orkubús Vest-
§arða — og þessar veitur selja síðan
rafmagn til húshitunar á lægri
töxtum en gert er í áðumefndum
bæjum. Margir telja þetta rang-
læti,“ sagði Helgi Bergs í gær.
Á fundi ráðherra og nefndarinnar
FYRIRTÆKIÐ ADDA-vinnu-
kerfi gengst fyrir námskeiði
fyrir stjómendur fyrirtækja um
mannaforráð og vinnukerfi nk.
laugardag og sunnudag frá 9-17.
Fjallað verður um hvemig hvetja
megi starfsfólk og þátttakendum
em kynntar ýmsar aðferðir til
að hafa áhrif á hegðun fólks.
Þá verður meðal annars rætt um
markaðssetningu og hvernig
var einnig rætt um niðurfellingu
söluskatts og verðjöfnunargjalds á
rafmagni á dælur sem dæla vatni
en þegar hafa nefnd gjöld verið
felld af rafmagni á varmadælur.
nota megi þessar aðferðir til að
flýta þvi að ná settu marki.
Leiðbeinandi verður Guðríður
Adda Ragnarsdóttir tilraunasál-
fræðingur. Hún hefur verið ráðgef-
andi við starfsmannastjómun og
kennt atferlisgreiningu við Háskóla
íslands og við háskólann í Exeter
í Englandi, þar sem hún jafnframt
stundaði rannsóknir á vinnustýr-
andi launakerfum.
ADDA-vinnukerfi:
Námskeið um manna-
forráð og vinnukerfi
Flugstöð á Reykjavíkurflugvelli:
Fyrsta skóflustung-
an tekin að ári liðnu?
„EF MÁLIN þróast áfram án óvæntra tafa, má búast við að fyrsta
skóflustungan fyrir flugstöð á Reykjavíkurflugvelli verði tekin ein-
hvem tíma á útmánuðum næsta árs,“ svaraði Birgir Guðjónsson,
deildarstjóri í samgönguráðuneytinu, og formaður byggingaraefnd-
ar, þeirri spumingu, hvenær vænta mætti að framkvæmdir hæfust
við flugstöðvarbyggingu í Reykjavík. Eins og skýrt hefur verið frá
í Morgunblaðinu var deiliskipulag flugvallarsvæðisins í Reykjavík
samþykkt á borgarstjóraarfundi í síðustu viku. í því er meðal annars
gert ráð fyrir byggingu flugstöðvar.
Að sögn Birgis Guðjónssonar líkindum tekið upp við Qárlagagerð
vinnur nefnd undir forsæti Birgis
ísleifs Gunnarssonar alþingismanns
að athugun á fjármögnunarleiðum
fyrir flugstöðvarbygginguna. Birgir
sagði að niðurstaða nefndarinnar
ætti að liggja fyrir á næstu mánuð-
um og síðan yrði málið að öllum
á Alþingi í haust. Aætlaður kostn-
aður við gerð flugstöðvarinnar er
235 milljónir króna. Þar af er talið
að röskar 118 milljónir fari til sjálfr-
ar byggingarinnar, en rúmar 96
milljónir í vegagerð og brautarlagn-
Bæjarsljórn Hafnarfjarðar:
Mótmælir tollgæzlu
frá Reykjavík
„Um síðustu áramót ákvað fjár-
málaráðuneytið að fela tollgæsl-
unni í Reykjavík að sjá um hluta
af tollafgreiðslu og tolleftirliti í
Hafnarfirði, sem starfsmenn
bæjarfógetans i Hafnarfirði hafa
séð um í áratugi.
Bæjaryfirvöld telja að breytingar
þessar séu alls óþarfar og af þeim
hljótist mikið óhagræði. Að þessu
tilefni hafa hafnarstjóm og bæjar-
stjóm samþykkt ályktanir.
Bæjarstjóm samþykkti eftirfar-
andi ályktun á fundi 14. janúar sl.:
„Bæjarstjóm Hafnarfjarðar
ítrekar mótmæli hafnarstjómar
Hafnarfjarðar við þeim breytingum
á tollafgreiðslu og tolleftirliti með
skipum og flutningum um Hafnar-
fjarðarhöfn, sem tilkynnt em í bréfi
fjármálaráðuneytis til bæjarfóget-
ans í Hafnafirði frá 20. des. 1985.
Bæjarstjóm bendir á að Hafnar-
fjörður er ein af aðaltollhöfnum
landsins og hvað vöramagn og
umfang snertir er hún önnur
stærsta höfnin. Um áratuga skeið
hefur verið $ Hafnarfirði alhliða
tollþjónusta, sem hefur fengið orð
fyrir góða og fljóta þjónustu. Hið
nýja fyrirkomulag að færa þessi
verkefni til Reykjavíkur virðist ekki
hafa annað í för með sér en að
afgreiðsla verði tafsamari og kostn-
aðarsamari og getur auk þess valdið
Hafnarfjarðarhöfn röskun og tekju-
tapi. Þá valda breytingar sem þess-
ar mikilli röskun hjá ýmsum þjón-
ustugreinum, sem tengjast í at-
vinnulegu tilliti starfsemi hafnar-
innar.“
120 atvinnu-
lausir um ára-
mót á Akureyri
Akureyri, 20. janúar.
UM áramótin vora 120 manns
skráðir atvinnulausir á Akureyri,
90 karlar og 30 konur. í desember
vora skráðir 1.895 heilir atvinnu-
leysisdagar sem svarar til þess að
86 hafi verið atvinnulausir allan
mánuðinn. Gefin vora út í desember
158 atvinnuleysisbótavottorð með
samtals 1.280 heilum bótadögum.
Ný sending
tekin upp í dag
Qlísm