Morgunblaðið - 22.01.1986, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986
39
þörfum minnihlutahópa en það er
auðvitað alltaf spurning hvað gera
skuli til að tryggja sem best hag
þeirra og endalaust er hægt að
gera betur.“
Samtalið heldur áfram og
margt rætt, en þegar farið er að
tala um rásina og blaðamennsk-
una segir Gunnar:
„Eg var ákveðinn í því 12 ára
gamall að verða blaðamaður. Sem
smápolli var ég farinn að klippa
fréttir úr blöðum, og raða þeim
upp á nýtt í stílabækur. Fyrstu
alvarlegu sporin mín í blaða-
mennsku voru stigin þegar ég fór
að skrifa í Lesbók Morgunblaðsins
og ég hef líklega verið 19 ára
þegar fyrsta smásagan mín var
þar birt og ljóð eftir mig. Ég vann
í nokkur ár sem blaðamaður en ég
hef aðallega verið í lausamennsku
undanfarin ár og er nýhættur hjá
DV.“
— Nú eru þættimir þínir tveir,
„Listapopp" og „Nú er lág“, afar
ólíkir þættir. Er áhugasvið þitt í
tónlistinni svona víðáttumikið?
„Ég hef vaxandi áhuga á
gámalli dægurtónlist og jassi og
þegar mér bauðst að bæta þætti
við Listapoppið ákvað ég að hafa
það ólíkan þátt og kynna hlust-
endum rásarinnar það sem var á
toppnum fyrr á árum eða 1928,
1936 og svo framvegis. Mér leiðist
líka stimpillinn Gunnar Salvarsson
poppari. Það er eins og að umsjón-
armaður slíks þáttar geri bara
ekkert annað en að hlusta á Wham
ogDuranDuran.
Ég hef gaman af margskonar
tónlist, klassík, óperum, rokki...
Þetta eru bara ailt ólík form og
ég get ekki dregið þetta í dilka í
vonda og góða tónlist. Þáttagerð
mína lít ég á sem hluta af §öl-
miðlastarfí en ég hef verið svo
heppinn að geta þama sameinað
á rásinni bæði áhugamál og auka-
vinnu."
— Attu önnur áhugamál?
„Fullt af þeim. Sonur minn
skipar þar stóran sess og §öl-
skyldan. Ég hef gaman af því að
tefla, fæst við það í smáum stil
að gera auglýsingar, tek mynd-
ir . . . “
Og hér látum við staðar num-
ið...
Höfundur
Þyrnifuglanna
Colleen McCullough sem ritaði
skáldsöguna „Þymifuglamir" hefur
nú sent frá sér nýja bók, „The
Passion ofDr. Christian". Þetta er
framtíðarskáldsaga, gerist árið
2032. Milljónir manna hafa flúið
upp í fjöllin frá bæjum því von er
á nýrri ísöld. Það er einn maður sem
fólkið bindur vonir við að geti hjálp-
að þeim og það er dr. Christian ...
EVROPIfffllMSÍMNG ^
ROCKYIV
d
ROCKY FER TIL MOSKVU TIL AO KEPPA
' HNEFAUEIKUM. VIO í KREML HÖLBUM
ÞAfl HÁTÍÐLEGT 00 BJÓÐUM FRUMSÝNINBARGESTUM
Á NÝJAN VÍGVÖLL EFTIR SÝNINGU, (Á ÞEIM
VÍGVELLI ÞARF EXKIEINU SINNI AO SLÁST
UM VEITINGARNAR) ÞAR VERBA Á
« BOÐSTÖLNUM KOKKTEILAR 06 KRffSINGAR;
_»ASAMT JAZZ-BOX UPPÁKOMU SEM DANSSTÓDÍÓ
SOLEYJAR HEFUR SAMIÐ SERSTAKLEGA FYRIR
ÞESSA EVRÓPUFRUMSÝNINGU.
Forsala aðgöngumjfta er i Kmrt H ld. 17.00 í dag^
W í BwUöBinni. | / '0:
CZD
<• N ... -WVTV,
;A v fH >0331**1
•>*. ' V. ■vfejáafhl