Morgunblaðið - 23.02.1986, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. FEBRUAR1986
Börnin drukku mjólkina með áfergju.
ajg;. -f '' . í
Selfoss:
Ahersla lögð á að
böm drekki mjólk
MorgunblaöJö/Sig. Jóns.
Mjólkin er ofsa góð! Birgir Aðalbjarnarson og Edda Ósk Gísladótt-
ir voru mjög ánægð með það að fá mjólk í leikskólanum.
Selfossi, 19. febrúar.
FRÁ ÞVÍ um áramót hafa börn á dagvistarstofnunum
á Selfossi fengið mjólk að drekka með nestinu sem
þau hafa með sér að heiman. Þessi ráðstöfun var
tekin upp í kjölfar fundar með foreldrum þar sem
vakin var athygli á nauðsyn þess að börn neyttu
næringarríkrar fæðu.
Mjólkumeysla bamanna hefur fallið í góðan jarðveg
og em foreldrar jafnt sem bömin sjálf ánægðir með þetta
fyrirkomulag. Fóstmnar á dagvistarstofnununum sögðust
hafa tekið eftir því að dryklqarföng bamanna, sem þau
höfðu með sér, hefðu breyst yfír í að vera svaladrykkir.
„Mjólkin er mun næringarríkari og betri drykkur fyrir
bömin," sögðu fóstmmar og ennfremur að svo virtist sem
fólk hefði ekki hugsað út í þetta atriði með næringargildi
nestisins.
A dagvistarstofnununum er fyrirkomulagið þannig að
foreldrar greiða 120 krónur í mjólkurgjald á mánuði.
í kjölfar þess að byija að drekka mjólk hafa bömin
unnið verkefni um mjólkina, farið í fjós, og skoðað Mjólk-
urbú Flóamanna.
Foreldra- og kennarafélag bamaskólans hefur sam-
þykkt að taka upp sama hátt og er á dagvistarstofnunum
og bjóða bömunum upp á mjólk í skólanum.
Á bændafundi í Njálsbúð sl. mánudag, 17. febrúar,
var mikill áhugi fyrir því að auka neyslu skólabama á
mjólk og mjólkurvörum.
— Sig. Jóns.
Pjakkaferð er sumargjöf fjölskyldurmar
FERÐASKFUFSTÖFAN
POLAR/S VW
Bankastræti 8 — Simar: 28622 -15340 XXlv^
i,a‘. 1' / ;
fyi ímiitimtA
Meðan mamma og pabbi flatmaga í sólinni tekur
pjakkaklúbburinn á Mallorca til starfa. Barnafarar-
stjórinn leiðir pjakkana á krabbaveiðar, í dýragarðinn og
reistir verða glæsilegustu sandkastalar strandarinnar.
Það er margt brallað í pjakkaklúbbnum enda eru hótel-
garðarnir á Mallorca hrein paradís fyrir börn sem full-
orðna. Hótelaðstaðan á Mallorca er einhver sú besta
sem hægt er að hugsa sér á sólarlöndum og kjörin
fyrir barnafjölskyldur.
Heiðurspjakkaferðirnar eru þrjár og brottfaradagarnir
eru 21/6, 8/7 og 9/9. 25 fyrstu fjölskyldurnar, 4ra
manna eða stærri fá frítt fyrir einn pjakk á aldrinum
2—11 ára, í tveim fyrri ferðunum. í pjakkaferðinni
9. sept. fá 25 fyrstu fjölskyldurnar, 3ja manna eða
stærri, frítt fyrir einn pjakk á aldrinum 2—7ára.