Morgunblaðið - 11.03.1986, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 11.03.1986, Qupperneq 1
64 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 57. tbl. 72. árg.____________________________________ÞRIÐJIJDAGUR ll.MARZ 1986_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Saudi-Arabía minnkar ekki olíuvinnslu Riyadh, Saudi-Arabíu og PaHs, lO.mare. AP. SAUDI-Arabar segjast ekki munu minnka framleiðslu sína á olíu þrátt fyrir þrýsting í þá veru, en segja að það verði að leita leiða til þess að stöðva verðlækk- unoliu. Þetta kom fram í upphafi fundar olíumálaráðherra ríkja við Persaflóa og lýstu þeir því yfir að núverandi olíuverð væri óviðunandi. Skoruðu ráðherramir á ríki innan og utan Samtaka olíuframleiðsluríkja (OPEC), að gera það sem nauðsyn- legt væri til þess að snúa verðþróun- inni við. Engar tillögur settu þeir þó fram þar að lútandi. Alþjóðaorkumálastofnunin lýsti því yfír í dag að hún hefði endur- skoðað tölur um olíunotkun í iðn- ríkjunum vestan jámtjalds og gerði ráð fyrir að notkunin yxi um 1% að meðaltali vegna verðlækkunarinnar á hráolíu. Gerir stofnunin nú ráð fyrir því að notkun aðildarríkjanna verði 34,3 milljónir fata á dag í stað 34 milljóna áður. Hryðjuverk- in í Punjab verði stöðvuð Nýju Delhí, Indlandi, 10. mars. AP. ÖFGASINNAÐIR sikhar skutu í dag á háttsettan stjórnmálaleið- toga úr flokki Rajiv Gandhis forsætisráðherra, Mangat Ram að nafni, og særðu hann alvar- lega, að sögn indversku frétta- stofunnar UNI. í kjölfar þessa atburðar fóru leið- togar Kongressflokksins í Punjab og þingmenn sambandsþingsins á fund forsætisráðherrans og kröfðust þess að hann gripi í taumana og stöðvaði endurtekin hryðjuverk í fylkinu. Sögðu þeir að ríkisstjóm hógværra sikha í Punjab skipaði öfgasinna lögreglumenn og hætta væri á að ástandið færi enn versnandi. Engin viðbrögð hafa borist frá fylkisstjóm- inni í Punjab við þessum fullyrðing- um. í síðustu viku réðust öfgasinnar sikha í Punjab með vélbyssuskothríð á trúbræður sína og lögreglumenn, sem gættu þeirra, og felldu sex manns og særðu 15. Em þetta blóð- ugustu átökin í ríkinu, frá því að ríkisstjóm hófsamra sikha tók þar við völdum fyrir fimm mánuðum, en hryðjuverk hafa stöðugt færst í vöxt að undanfömu. Vélin rann stjórnlaust út af brautinni Morgunblaðið/Ami Sæberg FOKKER Friendship-flugvél Flugleiða, Árfari TF FLO, rann út af flugbraut á Reykjavíkurflugvelli og stórskemmdist klukk- an 11.30 í gærmorgun eftir að flugsfjórinn hafði hætt við flugtak. Engin slys urðu á mönnum. Sjá nánar fréttir og myndir á bls. 2, 30, 31, baksíðu og forystugrein í miðopnu. Challenger-slysið: Jarðneskar leifar geimfara fundnar Kanaveralhöfða, 10. mare. AP. LEITARSKIP bandaríska sjó- hersins hefur fundið jarðneskar leifar geimfaranna, sem fórust með geimfeijunni Challenger 28. janúar síðastliðinn, og einnig hluta úr stjórn- og áhafnarklefa ferjunnar. Að sögn hefur tekist að ná hlutum úr klefanum á land og einnig jarðneskum leifum geimfaranna og eru þær nú til rannsóknar hjá sjúkdómafræði- stofnun sjóhersins. Brakið fannst á 30 metra dýpi um 24 kílómetra frá Kanaveralhöfða með aðstoð hljóðbylgjuleitartækis. Talsmaður Geimvísindastofnun- ar Bandaríkjanna (NASA) tilkynnti þetta á sunnudag og sagði að til- kynningunni hefði verið slegið á frest til þess að greina mætti skyld- mennum geimfaranna frá fundin- um. Svo virðist þó sem einhver misbrestur hafi orðið þar á, því að nokkrir nánir ættingjar fréttu fyrst í sjónvarpi og útvarpi að jarðneskar leifar geimfaranna hefðu fundist. Talsmaður NASA sagði að það tæki nokkra daga að ná braki áhafnarklefans upp af hafsbotni og ekki yrði um neinar nánari fréttir af rannsókninni að ræða fyrr en að björgun og rannsókn lokinni. Flug- og hljóðritar í stjómklefa feijunnar gætu varpað ljósi á orsak- ir slyssins, en ekki er ljóst hvort eða að hve miklu leyti hefur tekist að bjarga þeim. Sjá ennfremur frétt á bls. 22. Geimfeijan ChaUenger fer i sina hinstu ferð Sovétríkin: Félagar í friðarhreyf- ingu á geðsjúkrahúsi Moskvu, 10. febrúar. AP. FÉLAGI í einu óopinberu friðarhreyfingu Moskvuborgar, segir að sér hafi verið haldið í stofufangelsi í næstum þijár vikur, á meðan 27. þing sovéska kommúnistaflokksins stóð yfir. Var það gert til þess að koma í veg fyrir að hann tæki þátt í mótmælaaðgerðum, sem hið opinbera hafði ekki lagt blessun sína yfir. Palme minnst með mínútu þögn AP/Sfmamynd Sænska þjóðin minntist Olofs Palme, hins látna forsætisráðherra síns, með mínútu þögn í gær. Á myndinni standa þau hljóð, ekkja hans og synir, við minningarathöfn í sænska þinginu. Sjá ennf remur fréttir á bls. 22. Alexander Rubchenko, 25 ára, sagði að lokað hefði verið fyrir sím- ann í íbúð sinni 19. febrúar og sama dag hefðu óeinkennisklæddir lög- reglumenn tekið upp varðstöðu við íbúð hans 24 tíma í sólarhring. Varðstöðunni var ekki hætt fyrr en í dag. Hann sagði ennfremur að þremur öðrum félögum í friðar- hrejrfingunni væri ennþá haldið föngnum á geðsjúkrahúsi, en þang- að voru þeir fluttir skömmu fyrir upphaf flokksþingsins. Þessir félag- Kovalenko, Ira Pankratova og Vikt- or Smimov. Friðarhreyfingin, sem berst fyrir bættum samskiptum Sovétríkjanna og Bandaríkjanna, hugði á friðsam- lega mótmælastöðu meðan á flokks- þinginu stóð, til að þrýsta á um afvopnun. í opnu bréfí til þingfull- trúa áður en þingið hófst, hafði hreyfíngin látið í ljósi vonir um að samkomulag tækist milli stórveld- anna um afvopnun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.