Morgunblaðið - 11.03.1986, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR U.MARZ 1986
Matthías Á. Mathiesen
utanríkisráðherra:
Arangurs-
ríkar við-
ræður í
Portúgal
MATTHÍAS Á Mathiesen utan-
ríkisráðherra, Þórhallur Ás-
geirsson ráðuneytisstjóri, Har-
aldur Kröyer sendiherra og Leif
Dundas ræðismaður íslands í
Lissabon áttu árangursríkar við-
ræður við utanríkisráðherra
Portúgal um toll á innfluttum
saltfiski til Portúgal frá Islandi
meðan þeir dvöldu í Lissabon.
„Við undirstrikuðum þýðingu
þess, ekki síst fyrir Portúgal, að
þeir beittu sér fyrir breytingum á
þessum málum hjá Evrópubanda-
laginu, en utanríkisráðherrann fer
með málefni Evrópubandalagsins,"
sagði Matthías. í gærmorgun fóru
fram viðræður við Barreto land-
búnaðar- og sjávarútvegsráðherra
en Barreto er kunnur þessum mál-
um frá því hann var viðskiptaráð-
herra og heimsótti ísland á síðasta
ári þegar hugmynd Portúgala um
tolla á íslenskan saltfisk kom fyrst
fram. Beitti hann sér fyrir því að
fallið var frá tollahækkuninnni þá.
„Báðir ráðherramir eru á sama máli
og við um að þessu verði að breyta
og munu beita sér í þeim efnum.
Þeir ætla að taka málið upp innan
Evrópubandalagsins, bæði í hópi
utanríkis- og sjávarútvegsráðherra,
en fúlltrúi Portúgal fer með sjávar-
útvegsmál í stækkuðu Evrópu-
bandalagi," sagði Matthías.
Niðurstöðu í máiinu er að vænta
innan tíðar en fljótlega á næstu
vikum mun reyna á með hvaða
hætti málið verður leyst. Verði toll-
ur hækkaður um 10% á saltfiski
hækkar hann jafnframt á mörkuð-
um í Portúgal.
Árfariá Suðurgötunni
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
ÓVENJULEGT sjónarhom á slysstaðnum við Reylqavíkúrflug-
völl í gær. Fiugvélin Iiggur yfir Suðurgötuna þvera og mið-
bærinn í baksýn. Lögreglan kom á vettvang 5—10 minútum
eftir að óhappið átti sér stað og lokaði öllum aðkeyrsluleiðum.
Erfiðlega gekk þó til að byija með að halda forvitnum veg-
farendum frá vélinni, og þegar blaðamaður Morgunblaðsins
kom á vettvang var fjöldi fólks við vélina í aðeins nokkurra
metra fjarlægð.
Enn frekari lækkun
tolla af bifreiðum
Akureyri:
103 atvinnu-
lausir
Akureyri, 10. marz.
UM mánaðamótin síðustu vora
103 skráðir atvinnulausir á
Akureyri, 62 karlar og 41 kona.
í febrúar voru skráðir 1.963
heiiir atvinnuleysisdagar, sem svar-
ar til þess að 98 hafi verið atvinnu-
lausir allan mánuðinn. í febrúar
voru gefin út 259 atvinnuleysis-
bótavottorð með samtals 2.025
heilum bótadögum.
Álagning bifreiðaumboða lækkar í krónum talið
ALÞINGI samþykkti í gær frumvarp um lækkun tolla af
bifreiðum í 10% og jafnframt sérstakt gjald af bifreiðum, sem
fer stighækkandi eftir stærð. Breytingarnar taka gildi frá
og með 1. marz síðastliðnum. Með þessum breytingum er
talið að það markmið kjarasamninganna, að bifreiðir lækki
nm 30% og vísitala framfærslukostnaðar lækki um 1,5%,
náist. Bifreiðaumboðin hafa samþykkt að hækka ekki hlutfall
álagningar sinnar og lækkar hún þvi í raun í krónum talið.
Þorsteinn Pálsson, Qármálaráð- verið í kjarasamningunum.
herra, lagði frumvarpið fram og
sagði að ljóst væri að fyrri aðgerðir
ríkisstjómarinnar hefðu ekki gengið
nægilega langt til að ná settum
markmiðum. Því væri þetta nýja
fmmvarp lagt fram enda því ætlað
að ná því fram, sem ákveðið hefði
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að viðræður vegna þessa
hefðu verið teknar upp við fjármála-
ráðuneytið strax og fjármálaráð-
herra hefði komið heim af Norður-
landaþingi. Embættismenn ráðu-
V ínlandskortið:
Næsta skref að ald-
ursgreina bókf ellið
— segir Richard Schwab prófessor við Kaliforníuháskóla
„EF SANNA á eitthvað eða afsanna frekar um aldur Vinlands-
kortsins verður að aldursgreina bókfellið, sem það er teiknað á,
með kolefnisaðferðinni C-14,“ sagði Richard Schwab, prófessor
í sagnfræði við Kaliforníuháskóla í Davis, í simtali við Morgun-
blaðið.
Sl. sunnudag birti Morgun-
blaðið frétt á baksíðu þar sem
sagt er frá því, að nýjar rannsókn-
ir vísindamanna við háskólann í
Davis hafi leitt í ljós, að Vínlands-
kortið gæti verið ófalsað. Fréttin
var byggð á grein í nýjasta hefti
bandaríska tímaritsins Time.
„ Time tók heldur dýpra í árinni
en við gerðum sjálfír. Kjami máls-
ins er sá, að niðurstöður okkar
hér í Davis leiða í ljós, að ekki
er hægt að dæma Vínlandskortið
falsað á þeim forsendum sem gert
var 1974,“ sagði Schwab, sem er
einn þeirra er rannsökuðu kortið.
„Títanið í blekinu var allt of lítið
til þess að sanna nokkuð um aldur
þess. Hins vegar sanna niðurstöð-
ur okkar ekkert um það hvort
kortið er ófalsað. Til þess að finna
út aldur þess verður að taka ræmu
úr bókfellinu og greina það með
C-14-aðferð. Okkar þætti er lokið.
Ég er hins vegar á því, að
kortið sé falsað," sagði Schwab,
„en nokkrir félaga minna í rann-
sóknarhópnum telja, að það geti
verið ósvikið. Að mínu mati hafa
verið færð nokkuð sannfærandi
rök fyrir því, sagnfræðileg og
kortfráeðileg, að kortið sé fremur
ungt; t.d. er Grænland teiknað
þar sem eyja löngu áður en það
er gert á nokkru öðru korti og
svo em útlínur Vínlands, Græn-
lands og íslands svo nákvæmar,
að mér finnst ótrúlegt að kortið
sé eins gamalt og sumir vilja vera
láta. Þá finnst mér það hafa
varðveist grunsamlega vel.
En skoðun mfn eða annarra
skiptir ekki máli í þessu efni. Ef
finna á aldur kortsins verður að
beita kolefnisaðferðinni við ald-
ursgreiningu bókfellsins," sagði
Richard Schwab prófessor.
Vfnlandskortið er nú í vörslu
Bginecke-bókasafnsins í Yale.
neytisins hefðu síðan unnið að leið-
réttingu þeirra mistaka, sem orðið
hefðu við fyrri útreikninga. Verð-
lagsstjóri hefði einnig rætt við bif-
reiðaumboðin og full ástæða væri
til að treysta því, eftir þau samtöl,
að öll bifreiðaumboðin héldu sig við
sama hlutfall álagningar og áður,
sem þýddi í raun að hún lækkaði í
krónutölu. Þetta þýddi í raun 30%
verðlækkun á ódýrari bifreiðum og
að staðið væri við samkomulagið.
Verðlagsstofnun hefur eftir þetta
borið saman verð og álagningu á
§órum tegundum bifreiða fyrir og
eftir lagabreytingamar og sam-
kvæmt þeim lækkar álagning í
krónum talið um 12.000 til 17.000
krónur. Daihatsu Charade kostaði
áður 401.000 krónur, áiagning
36.000, en kostar nú 280.000 krón-
ur, áiagning 24.000. Volkswagen
Golf kostaði 585.000 krónur, álagn-
ing 41.000, kostar nú 403.000,
álagning 27.500. Nissan Cherry
kostaði áður 510.000, álagning
49.000, kostar nú 355.000, álagn-
ing 33.000. Mazda 323 kostaði áður
490.000 krónur, álagning 51.000,
kostar nú 341.000, álagning
34.000. Álagning á bifreiðir er
frjáls.
Verðlagsstjóri, Georg Ólafsson,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að í kjölfar þessa yrðu verðkannanir
auknar verulega og myndi áherzlan
á næstunni meðal annars verða lögð
á verðlagningu heimilistækja.
Sjö millj. horfðu
á Hólmfríði
New Haven, 10. mars. Frá Jóni Ásgeiri
Sigurðssyni.
Ungfrú heimur, Hólmfríð-
ur Karlsdóttir, kom afar vel
fyrir í sjónvarpsþættinum
TODAY í morgun. Hólmfríð-
ur var fijálsleg og glaðvær í
framkomu. Um það bil sjö
milljónir manna horfðu á
þáttinn.
Hún var kynnt sem Ungfrú
heimur „from the top of the
world". Stjómandinn, Jane
Pauley, spurði margs og Hólm-
fríður svaraði í léttum tón.
Aðspurð um þessa norrænu
fegurð svaraði hún þvl til að
ómengað land og vötn, ásamt
hollu fískmeti væru meðal helstu
ástæðna.
Hólmfríður Karlsdóttir kom
fram á besta tíma f morgun, en
NBC-sjónvarpið sendir TO-
DAY-þáttinn út milli kL sjö og
níu virka daga. Blaðafulltrúi
þáttarins, Cathy Graham, sagði
fréttaritara Morgunblaðsins að
þetta væri vinsælasti morgun-
þátturinn í Bandaríkjunum.
Félag starfsfólks í veitingahúsum:
Kjarasamningar felldir
FÉLAG starfsfólks í veitingahús-
um felldi nýgerða kjarasamn-
inga með 45 atkvæðum gegn
tvcim, þrír sátu hjá, á almennum
félagsfundi i gær. Um 600 manns
eru í félaginu.
„Á fundinn komu fyrst og fremst
þeir sem eru með mánaðarlaun á
bilinu 18 til 20 þúsund og fínnst
að vonum erfitt að lifa af þeim
launum," sagði Sigurður Guð-
mundsson formaður félagsins
Hann sagði að atkvæðagreiðslai
hefði komið sér nokkuð á óvart
Að vísu hefði verið ljóst að óánægji
hefði gætt með nýgerða samningi
meðal félagsmanna en vegna já
kvæðrar umfjöllunar í öllum Qöl
miðlum og þeirrar staðreyndar ai
samningamir hefðu verið sam
þykktir í öðrum verkalýðsfélögum
þá kom svo afgerandi niðurstaði
sem þessi, honum á óvart.