Morgunblaðið - 11.03.1986, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR ll.MARZ 1986
5
Vímulaus æska:
Kosið í 16 manna und-
irbúningsnefnd að
stofnun landssamtaka
LAUGARDAGINN 8. mars efndu SÁÁ, Lionshreyfingin og áhugahóp-
ur foreldra til almenns fundar foreldra um vímulausa æsku. Á þriðja
hundrað manns sótti fundinn sem haldinn var í húsakynnum SÁÁ
og var húsfyllir þannig að hiuti fundarmanna varð að sitja í hliðar-
sölum.
í ályktun sem samþykkt var á
fundinum kemur fram, að nú í vor
skuli stefnt að stofnun landssam-
taka foreldra fyrir vímulausa æsku.
Tímabært sé að foreldrar á íslandi
taki höndum saman um að spoma
við vímuefnaneyslu unglinga m.a.
með einbeitni, skynsamlegri um-
hyggju og fordómalausri fræðslu á
heimavelli. Slík samtök gætu í því
skyni stuðlað að fræðslu meðal
foreldra um einkenni vímuefna-
neyslu og verið hvetjandi og mót-
andi fyrir hönd foreldra um fyrir-
Félagsfundur
hjá BI í dag
BLAÐAMANNAFÉLAG íslands
boðar til félagsfundar um samn-
ingamálin á Hótel Borg í dag,
þriðjudag, klukkan 17.
Áríðandi er að allir félagsmenn
mæti, segir í frétt frá stjóm félags-
ins.
byggjandi aðgerðir og forvamir af
hálfu stjómvalda.
Á fundinum var kosin 16 manna
undirbúningsnefnd til að undirbúa
stofnun landssamtaka foreldra og
í henni eiga sæti: Bogi Amar Finn-
bogason formaður Sambands for-
eldra og kennarafélaga í skólum í
Reykjavík, Ragnheiður Guðnadóttir
stjómarmaður SÁÁ, Ómar Ægis-
son ráðgjafi SÁÁ, Þórarinn Tyrf-
ingsson yfirlæknir, Einar Kristinn
Jónsson framkvæmdastjóri SÁA,
Hendrik Bemdsen formaður SAA ,
Amar Jensson yfirmaður fíkniefna-
deildar lögreglunnar í Reykjavík,
Jón Bjami Þorsteinsson í vímuefna-
vamamefnd Lions, Þórhildur Gunn-
arsdóttir í vímuefnavamamefnd
Lions, Friðrik Theodórsson fram-
kvæmdastjóri, Ingunn Sturlaugs-
dóttir læknir, Halldóra Jónsdóttir
húsmóðir, Sigurbjörg Magnúsdóttir
húsmóðir, Lísa Wium húsmóðir, Jón
Guðbergsson starfsmaður Félags-
málastofnunar og Ragnar Lárusson
ráðgjafí.
Morgunblaðíð/Ami Sæberg
Húsfyilir var á fundinum og varð hluti fundargesta að sitja í hliðar-
sðlum.
Háskólatón-
leikar á morgun
SJÖTTU Háskólatónleikarnir á
vormisseri verða haldnir í Nor-
ræna húsinu miðvikudaginn 12.
mars.
Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleik-
ari og Hrefna Eggertsdóttir píanó-
leikari flytja verk eftir G. Fauré og
B. Martinu.
Tónleikamir hefjast kl. 12.30 og
standa í u.þ.b. hálftíma.
(Fréttatilkynning.)
Sparisjóður vélstjóra:
Sparibók með 12 mánaða
bindingu og 20% ársvöxtum
SPARISJÓÐUR vélstjóra, Borg-
artúni 18, hefur ákveðið að bjóða
sparifjáreigendum nýja Spari-
bók, með tólf mánaða bindingu
og 20% ársvöxtum, miðað við
vaxtakjör eins og þau eru nú.
Sparibókin tekur gildi frá og með
morgundeginum, 11. mars 1986.
Sparibókin er boðin til að mæta
kröfum sparifjáreigenda, sem vilja
binda sparifé sitt um tíma, gegn
betri vöxtum, en almennt gerist.
Um nýju Sparibókina gilda afar
einfaldar reglur. Þegar innborgun
hefur t.d. staðið í tólf mánuði er
hún laus til útborgunar næstu 30
daga, en binst þá á ný í ellefú
mánuði.
Vextir af innistæðu Sparibókar-
innar em færðir árlega 31. desem-
ber og eru lausir til útborgunar
strax eftir færslu.
Það má einnig geta þess, að
vaxtakjör Sparibókarinnar eru
tvisvar á ári borin saman við kjör
sex mánaða verðtryggðu reikning-
anna. Ef ávöxtun á þeim reynist
hærri, hækkar ávöxtun Sparibókar-
innar, sem nemur mismuninum.
Það er stefna sparisjóðsins að
gefa viðskiptavinum sínum kost á
bestu ávöxtun sparifjár sem völ er
á hveiju sinni.
Sparisjóður vélstjóra býður einn-
ig áfram hinn vinsæla Trompreikn-
ing sparifjáreigenda.
(Fréttatilkynning.)
COROLLA er hönnuð til að vera fremst meðal jafningja og gœðaflokki ofar en
verðið segir til um.
Hún er framhjóladrifin, með fyrsta flokks fjöðrunar- og stýrisbunaði. Léttbyggð 12 ventla
vélin er í senn kraftmikil og sparneytin.
Farþega- og farangursrýmið stenst allan samanburð á nýtingu, þœg-
indum og hagkvœmni.
COROLLA DX SPECIAL SERIES er sérbúinn bíll, þar sem saman fara
aukin þœgindi og útlit sem vekur athygli.
nndu við í reynsluakstur og þú sannfœrist
um að COROLLA DX SPECIAL SERIES er hverrar krónu virði.
TOYOJA^r