Morgunblaðið - 11.03.1986, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR ll.MARZ 1986
íslenzk mínni
Gísli Sigurðsson við eitt verka sinna.
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Fyrir réttum fjórum árum hélt
Gísli Sigurðsson málverkasýn-
ingu í Kjarvalssal á Kjarvalsstöð-
um og sótti þá myndefnið í Ijóð
íslenzkra góðskálda.
Nú er hann aftur á ferðinni
með málverkasýningu er byggir á
myndefni er hann hefur að veru-
legu leyti sjálfur séð og upplifað
í sinni æskusveit í Hreppunum.
Allt frá kreppuárunum austur í
Tungum þegar kirkjan í Úthlíð
fauk og kaupakonur komu á
hveiju sumri með pilsaþyt og
fyrirheit. Þá fá þjóðsögurnar sitt
rými og nokkuð er af manna-
myndum, bæði í „portrett“-stfl og
lausbeislaðri mótun. Hér stílar
Gísli á líf og gleði í margri mynd
og víst er það verðugt viðfangs-
efni fyrir nútímamálara.
Að þessu sinni er það Vestur-
salur Kjarvalsstaða sem hýsir
málverkin sem eru 70 að tölu, flest
í meðalstærð en nokkur allstór. —
Það er mikil litagleði sem einkenn-
ir þessa sýningu og litimir eru
af glaðlegri tegundinni í flestum
myndanna og þannig séð nær hún
tilgangi sínum. Þá er samræmið
hér meira en á fyrri sýningum
Gísla, óþvingaðra og markvissara.
Þegar svo formið og skynræn
uppbygging fylgja þessari þróun
nær hann án efa heillegustum
árangri og hér vísa ég til mynda
eins og „Sláturhúsaballið" (31),
„Tvær úr Tungunum" (36), „Af-
mælisveisla" (58) og „Á frumsýn-
ingfu“ (62). Allt eru þetta sterkar
myndir og hér hefur gerandinn
náð mikilsverðum áfanga því að
myndimar taka því stórum fram,
sem hann hefur áður gert í senn
litrænt sem og í listrænni mótun.
Þetta er einnig í heild sterkasta
sýning Gísla Sigurðssonar til
þessa þótt hann hafi ekki sniðið
af sér allra hnökra hvað snertir
formflækjur og ruglingslega
myndbyggingu. Ekki er ég heldur
sáttur við ljúfa og glaðlega liti
þegar lýsa skal voðaviðburðum
líkt og jarðskjálftanum 1896 „Við
hruninn bæ“ (67). Hér hefðu
átakameiri vinnubrögð í lit verið
ineir við hæfi, — gjaman sterkir
og hvellir en síður undurblíðir og
fagrir.
Þá finnst mér fólkið í myndum
Gísla öllu viðkunnanlegra utan
landslagsins en inni í því — ein-
faldlega vegna þess að það er þá
svo miklu betur málað. Þessi leik-
ur með svipmyndir inni í landslagi
er að verða nokkuð útjaskaður
þótt hann eigi fyllsta rétt á sér í
sumum tilvikum. Hér þarf þá iallt
að falla saman og upplifunin að
vera hrein, sönn og sterk — helst
þarf að gneista af henni. Það er
mjög rétt stefna að leita fanga í
umhverfi sitt, vera virkur í því
og sannur uppruna sínum. Þetta
er hægt að gera á ótal vegu og
hér þarf enginn að virka gamal-
dags né „sveitó", því að virkja
má hér byltingarkenndustu fram-
úrstefnu líkt og hvað annað. Hér
gildir að upplifa og uppgötva og
gæða hlutina nýju og safaríku lífi
í ætt við ramma lífskvikuna.
Að sumu leyti minnir þessi sýn-
ing mig á heimsókn í Borgarlista-
safnið í Helsingfors og þá einkum
hvað myndir frá sveitaböllum
snertir svo og sumar þær myndir
er ég nefndi hér áður. Finnar
hafa nefnilega gert þessu mynd-
efni góð skil en bein áhrif sé ég
þó ekki nema að litameðferðin
hefur yfír sér norrænan hugblæ.
— Það er auðséð af þessari
sýningu að Gísli hefur gefíð sér
meiri tíma til málunar en áður og
jafnframt haft til þess meira næði
því að myndimar eru óþvingaðri,
opnari og ferskari en fyrr. Sýning-
in markar dijúgan áfanga fyrir
Gísla Sigurðsson og opnar honum
nýja möguleika til margra átta
og meiri átaka.
Fasteignasalan Hátún
Nóatúni 17, s: 21870,20998
Ábyrgö — reynsla — öryggi
Akurholt Mos.
Einb.hús á einni hæð ca. 138
fm. Bílsk. 30 fm.
Markarflöt Gbæ.
Einlyft einb.hús ca. 245 fm
ásamt tvöf. bílsk.
Laugalækur
Endaraðhús á 2 hæðum auk kj.
með lítilli íbúð. Verð 3,8 millj.
Laugarnesvegur
Parhús á þremur hæðum ca.
110 fm. Mikið endurn. Bílskúr.
Goðheimar
150 fm íbúð á 2. hæð. 28 fm
bílsk. Geta verið tvær ibúðir.
Verð 3,8-4 millj.
Efstasund
Ca. 130 fm sérhæð og ris, 48
fm bílsk. Verð 3,2 millj.
Holtagerði
Ca. 106 fm rúmgóð neðri hæð
ítvíb.húsi. Bílskúrssökklar.
Æsufell
4ra-5 herb. ca. 110 fm íb. á 3.
hæð. 50% útborgun.
Njálsgata
4ra herb. íb. ca. 101 fm á 2.
hæð í fjórb.húsi. Mikið endurn.
Krummahólar
3ja herb. ca. 85 fm íb. á 5.
hæö. Bílskýli.
Kirkjuteigur
3ja-4ra herb. ca. 80 fm kj.ibúð.
Mikið endurn. Verð 1900 þús.
Guðrúnargata
3ja herb. ca. 87 fm lítið niðurgr.
kj.íbúð. Sérinngangur. Verö
1800-1850 þús.
Bergstaðastræti
3ja herb. ca. 80 fm íb. á 1.
hæð. Verð 1600 þús.
Rekagrandi
Mjög falleg 2ja herb. ca. 67 fm
íb. á 1. hæð. Bílskýli.
Blikahólar
2j herb. íb. ca. 65 fm á 4. hæð.
Verð 1650 þús.
Góð matvöruverslun
með 2-2,5 millj. króna veftu.
Uppl. aðeins á skrifstofu.
Hilmar Valdimarsson s. 687225,
Kolbrún Hilmarsdóttir s. 76024,
Sigmundur Böðvarsson hdl.
Afmælissamkeppni 1986
»Álog
notkun þess í
framtíðinni“
Árið 1886 kom fyrst fram vísir að áliðnaði.
í tilefni þessa afmælis efna Samband
svissneska áliðnaðarins (VSAI) og tíma-
ritið Svissneska álhringsjáin (SAR) til
samkeppni meðal þeirra sem kunna að
hafa nýjar hugmyndir fram að færa í
notkunartækni áls.
1. Viðfangsefni
Hægt er að senda inn tillögur sem miðast
við nýjar vörur, hönnun, lausn á tilteknum
vandamálum og aðferðir sem snerta notkun-
arsvið áls, svo sem umbúðir, vöruflutninga,
byggingariðnað, raftækniiðnað, vélsmíði
o.s.frv.
2. Þátttaka
Öllum er heimil þátttaka í samkeppninni.
Þátttökueyðiblöð ásamt fást hjá ÍSAL.
3. Verðlaun í samkeppninni
Sérstök dómnefnd velur fjórar bestu tillögurn-
ar, sem hljóta eftirtalin verðlaun:
1. Verðlaun u.þ.b. kr. 132.000 (Sfr. 6.000)
2. Verðlaun u.þ.b. kr. 88.000 (Sfr. 4.000)
3. Verðlaun u.þ.b. kr. 44.000 (Sfr. 2.000)
4. Verðlaun u.þ.b. kr. 22.000 (Sfr. 1.000)
4. Skilafrestur
Tillögum skal skilað í sfðasta lagi mánudaginn
31. marz 1986 (dagsetning póststimpils) til
ritstjórnar SAR með eftirfarandi heimilisfangi
Ritstjórn
Schweizer Aluminium-Rundschau ^
Postfach 978 ^
CH-8034 Zíirich.
Símanúmer 00411/472410.
1836-1986
AL I HUNDRAÐ AR
Frisenette
snýr aftur
DÁVALDURINN Frisenette
er væntanlegur hingað til
lands og er í ráði að hann sýni
listir sínar á fjórum skemmt-
unurn. Hin fyrsta verður í
Háskólabíói fimmtudaginn
13. mars næstkomandi.
Frisenette hefur löngum verið
vel tekið hér á landi og tilefni
heimsóknar hans að þessu sinni
er 50 ára starfsafmæli hans um
þessar mundir.
Morgunblaðið/RAX
Dávaldurinn Frisenette á
skemmtun í Háskólabíói.
Veistu hvað
er innifalið í fermingar-
myndatökunni hjá okkur?
14 til 16 mismunandi prufur 9x12 sm hver í
sinni möppu.
2 prufur 18x24 sm. Önnur í gjafamöppu og hin
í ramma.
Ljósmyndastof an Mynd,
sími 54207.
Ljósmyndastof a Kópavogs,
sími 43020.