Morgunblaðið - 11.03.1986, Side 16

Morgunblaðið - 11.03.1986, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR ll.MARZ 1986 SPARISJÓDUR VÉLSI7ÓRA wmmmmmmmmmmmmmmmmi borgartúnmssimi 28577 ■■■■■ DITIMI 12 MANUDIR HAIR VEXTiR _______2Ql Þetta eru einmitt höfuðkostir nýju bókarinnar sem einungis er fáanleg í Sparisjóði vélstjóra. Bundin sparibók heitir hún, bókin sem bindur fé þitt í hóflegan tíma en veitir þér um leið rífiega ávöxtun. Gauksl Athuga útvarps- rekstur á Akranesi Akranesi, 6. mars. BÆJAJRSTJÓRN Akraness hefur samþykkt að kjósa fimm manna nefnd tíl að kanua leiðir til rekst- urs útvarpsstöðvar og boðveitu til móttöku á gervihnattasjón- varpi og dreifingu myndbands fyrir Akranes. Nefndinni er ætl- að að kanna m.a. hvort rétt sé að stofna félagsskap með ein- staklingum í þessum tilgangi. Fjölmiðlamál hafa um nokkurt skeið verið til umræðu hér á Akra- nesi og þá sérstaklega hlustunar- skilyrði rásar 2 sem voru afleit til skamms tíma. Nýr sendir sem komið var fyrir í sambandi við svæðisútvarpið breytti miklu og eru skilyrði nú viðunandi að öðru leyti en því að á þeim tíma sem svæðisút- varpið sendir út er nær óhugsandi að hlusta á rás 2 og þótt svæðisút- varpið sé ágætt vilja sumir frekar hlusta á góða þætti á rás 2 eða að minnsta kosti að hafa möguleika á að velja á milli. Þykir mörgum hér vera undarlega að málum staðið því fyrstu tvö árin sem útvarpað var á rás 2 heyrðist mjög illa til Akraness og svo þegar því hefur verið kippt í liðinn er ekki nema hluti af dagskrá rásar 2 sem fólk getur notið. JG Vestmannaeyjar: Opinber þjón- ustugjöld og útsvar verða lækkuð Vestmannaeyjum, 7. mars. Á bæjarstjómarfundi fyrr í vikunni var samþykkt að lækka útsvarsálagningu í Vestmanna- eyjum úr 10,8% i 10,2%. Þessi ákvörðun bæjarstjómar kemur í kjölfar samninga aðila vinnu- markaðarins. Þá var og sam- þykkt að lækka verð á heitu vatni Fjarhitunar Vestmannaeyja og rafmagni. Heita vatnið lækkar úr 56 krón- um tonnið f 52. Bæjarsjóður greiðir niður heita vatnið sem nemur 3 krónum á tonnið og helzt sú niður- greiðsla óbreytt. Grunnverð raf- magns lækkar um 10% en auk þess fellur niður 16% verðjöfnunargjald. Þá var einnig ákveðið að lækka dagvistargjöld um 5%. Allar þessar lækkanir komu til framkvæmda frá ogmeð 1. mars. Lækkanir þessar voru samþykkt- ar af öllum 6 bæjarfulltrúum Sjálf- stæðisflokksins og fulltrúa Alþýðu- flokks, en bæjarfulltrúar Alþýðu- bandalags og Framsóknarflokks sátu hjá við afgreiðslu málsins. Vegna efnahagsráðstafana þeirra sem fylgdu í kjölfar kjarasamning- anna, lækkunar vaxta og skerðing- ar á tekjum jöfnunarsjóðs, verður að endurskoðá flárhagsáætlun bæjarins, þar sem ljóst er að tekjur og gjöld munu lækka frá því sem áður var gert ráð fyrir, þegar fjár- hagsáætlun var lögð fram. Síðari umræða um hana verður 12. mars næstkomandi. hkj Leiðrétting í GREIN minni „Opið bréf til heim- spekideildar" 7. og 8. mars, hefur orðið „snfða" breytzt f snúa. Þetta kemur fyrir í sfðara hluta greinar- innar, 8. marz, bls. 18, 4. dálk frá vinstri, 25. línu að neðan. Með þökk fyrir birtinguna. Jón Kristvin Margeirsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.