Morgunblaðið - 11.03.1986, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR ll.MARZ 1986
21
Skýrslur nautgriparæktarfélaganna 1985:
Freyja 28 mjólkaði mest
— Efri-Brunná í Saurbæ með nýtt Islandsmet
KÝRIN FREYJA númer 28 á Sólheimum í Staðarhreppi í Skagafirði
mjólkaði mest allra kúa á síðasta ári, 9.059 kOó mjólkur. Tíu kýr
mjólkuðu meira en 8.000 Idló á árinu, og eru það mun fleiri kýr en
áður. Sýnir þetta að þeim fjölgar alltaf afburðamjólkurkúnum, að
sögn Jóns Viðars Jónmundssonar nautgriparæktarráðunautar Bún-
aðarfélags íslands sem tekið hefur saman lista um afurðahæstu
kýrnar og bestu meðaltölin eftir búum og landshlutum.
Fía nr. 153 frá Hríshóli í Eyja-
fírði á íslandsmetið, hún mjólkaði
9.551 kg mjólkur árið 1983. Hér á
eftir fer listi yfír bestu kýmar:
Kýr sem mjólkuðu 8.000 kg af mjólk eða meira árið 1985.
Sturlaugur Eyjólfsson á Efri-
Brunná í Saurbæjarhreppi í Dala-
sýslu átti afurðahæstu kýmar í
fyrra samkvæmt skýrslum naut-
griparæktarfélaganna. Kýmar
hans mjólkuðu 6.207 kg að meðal-
tali og em það mestu afurðin hjá
búi sem sést hafa í skýrslum félag-
anna, að sögn Jóns Viðars. Félags-
búið Baldursheimi í Mývatnssveit
átti fyrra met, 6.019 kíló. Hér á
eftir fer listi yfír afurðahæstu búin,
þar sem vom 10 árskýr eða fleiri.
Kýr:
Freyja28
Véfrétt 5
Líf 17
Bönn 58
Flóra 25
Lukka 153
Fía 153
Skvetta 88
Rósa 27
Kotasæla 48
Bær:
Sólheimum, Staðarhreppi
Kaldbak, Rangárvöllum
Efri-Bmnná, Saurbæ
Stóm-Sandvík, Sandv.hr.
Heiði, Ásahreppi
Dæli, Svarfaðardal
Hríshóli, Saurbæjarhr.
Syðri-Bægisá, Öxnadal
Gmnd, Svínavatnshreppi
Búrfelli, Y-Torfustaðahr.
Mjólk
kg:
9.059
9.014
8.934
8.674
8.478
8.331
8.204
8.102
8.037
8.034
Prófastar landsins
þinga á Akureyri
ÁRLEGUR fundur biskups með
hinum 15 próföstum landsins
verður að þessu sinni haldinn á
Akureyri dagana 11.—13. mars.
Fundurinn mun m.a. fjalla um
þau lagafrumvörp, sem eru á
döfinni, t.d. um kirkjugarða og
ennfremur um framkvæmd
þeirra laga kirkjulegs efnis sem
nýverið hafa tekið gOdi. Fundur-
inn er haldinn i kapeOu Akur-
eyrarkirkju, segir í frétt frá
Biskupsstofu.
Fundurinn verður settur síðdegis
á þriðjudag en síðan flytur sr. Jón
Einarsson prófastur í Saurbæ fram-
sögu um efnið: Héraðssjóðir og
héraðsnefíidir. Slíkir sjóðir em nú
að komast á innan prófastsdæm-
anna og styðja við sameiginleg
verkefni þar.
Á miðvikudag em tvö meginmál
á dagskrá. Sr. Hjálmar Jónsson
prófastur Skagfírðinga fjallar um
framkvæmd nýrra laga um sóknar-
nefndir og fl. og prófastur Vest-
firðinga, sr. Láms Þ. Guðmunds-
son, hefur framsögu um prófasts-
dæmið sem starfsheild, verkstjóm
prófasta og samfélag innan pró-
fastsdæmisins. Starfsháttanefnd
kirkjunnar hefur einmitt lagt ríka
áherslu á prófastsdæmin sem
starfsheildir enda era þau yfírleitt
heppilegar einingar til þess, land-
fræðilega sem tölulega.
Á fímmtudag mun sr. Ólafur
Skúlason dómprófastur kynna
fmmvarp til laga um kirkjugarða,
sem væntanlega verður lagt fyrir
Alþingi.
Bæjarstjóm Akureyrar býður
próföstum til hádegisverðar og
sóknamefndir hafa einnig boð inni
og munu kynna prófostum kirkju-
legt starf í höfuðstað Norðurlands,
m.a. byggingu Glerárkirkju.
Á miðvikudagskvöld 12. mars kl.
20.30 verður föstuguðsþjónusta í
Akureyrarkirkju með þátttöku pró-
fastanna. Þar predikar sr. Fjalar
Siguijónsson.
Þetta er í 8. sinn sem prófasta-
fundur er haldinn og í fyrsta sinn
sem efnt er til hans utan Reykjavík-
ur.
Afurðahæstu bú áríð 1985 þar sem voru 10 árskýr eða fleiri,
Bú:
Sturlaugur Eyjólfsson, Efri-Bmnná, Saurbæ
Jón og Sigurbjörg, Búrfelli, Y-Torfustaðahr.
Félagsbúið, Baldursheimi, Mývatnssveit
Sverrir Magnússon, Efra-Ási, Hjaltadal
Guðmunda Tyrfíngsd., Lækjartúni, Ásahreppi
Kristján B. Pétursson, Ytri-Reistará, Ámeshr.
Guðlaugur Jónsson, Voðmúlast. A-Landeyjum
Guðbj. Ingvas., Arabæjarhjál., Gaulverjab.hr.
Viðar Þorsteinsson, Brakandi, Skriðuhreppi
Guðmundur Guéjónss., Brekkukoti, Reykholtsdal
Árs- Mjólk Kjarnf.
kýr: kg: kg:
27,5 6.207 958
21,9 5.974 1.400
15,5 5.739 1.146
27,5 5.681 921
17,3 5.654
13,8 5.612 1.112
24,6 5.570
20,9 5.546 910
25,6 5.351 634
24,8 5.310 843
Meðaltal árskúa hefur aldrei
verið betra en á árinu 1985, sam-
kvæmt skýrslum nautgriparæktar-
félaganna, eða 3.948 kg mjólkur.
Mestar hafa afurðimar áður verið
1983, 3.872 kfló.
Siglufjörður:
Skarphéðinn
efstur hjá fram-
sóknrmönnum
Siglufirði, 10. mars.
UM HELGINA fór fram prófkjör
hjá framsóknarmönnum á Siglu-
firði vegna bæjarstjórnarkosn-
inganna í vor. Urslit urðu sem
hér segir:
1. Skarphéðinn Guðmundsson,
kennari.
2. Ásgrímur Sigurbjömsson, um-
boðsmaður.
3. Freyr Sigurðsson, forstjóri.
4. Guðrún Hjörleifsdóttir, húsfrú.
5. Ásdís Magnúsdóttir, skrifstofu-
maður.
BODY FORMING
Ný snyrtilína fyrir líkamann frá
TBiodroqa
BodyForminfr\>ygg\r upp, styrkir, mýkirogveitirafslöppun.
Body Forming snyrtilínan samanstendur af:
1) IMuddkrem
fyrir appelsínuhúð og þurra
bletti.
!) Skrúbbkrem
til að mýkja stíflaða fitukirtla,
fílapensla og hreinsa upp dauð-
ar húðfrumur.
3) Styrkingarkúr
fyrir bringu, brjóst og háls.
4) Sápa
fljótandi í sturtu eða í afslapp-
andi karbað.
Dekraðu við sjálfa þig og veittu þér Body | Vinsamlegast sendið mér í póstkröfu Biodroga Body Forming sett á tilboðsverði
Forming-tilboðssettið frá Biodroga strax kr. 760,00... stk. + póstkröfugjaid.
<cS/
Nafn:
fella
Heimili:
I
Póstnr:
Staður:
Bankastræti 3,
sími 13635.
Póstsendum. | Tilboðið gildir til 15. marz 1986
FAG
kúlu-og
rúllulegur
SUÐURLANDSBRAUT 8
jgfsÍMI 8467°^^