Morgunblaðið - 11.03.1986, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR ll.MARZ 1986
49
Leit var erfið vegna vatnavaxta á láglendi og slyddu og snjóflóðahættu á heiðum uppi. Morgunbia««/RAX
Leit að tveimur mönnum í Botnssúlum:
Mikil snjóflóðahætta
var á leitarsvæðinu
Á annað hundrað manns tóku þátt í leitinni
HÁTT á annað hundrað leitar-
menn úr björgunar- og hjálpar-
sveitum á Reykjavikursvæðinu
leituðu í fyrrinótt og gærmorgun
tveggja manna úr Alpaklúbbn-
um, sem saknað var við Botnssúl-
ur. Mjög erfið færð var á leitar-
svæðinu vegna krapaelgs og
mikil snjóflóðahætta var á slóð-
um leitarmanna. Mennirnir tveir
fundust heilir á húfi í skála
Alpaklúbbsins í Súludal um
kiukkan 11.20 í gærmorgun.
Það var Iaust eftir miðnætti í fyrri-
nótt sem Jóhannesi Briem, deildar-
stjóra hjá Slysavamafélagi íslands,
barst tilkynning frá lögreglunni á
Selfossi um að mannanna tveggja
væri saknað. Fjórir meðlimir Alpa-
klúbbsins, þrír karlmenn og ein
kona, höfðu á sunnudag farið á
skíðum upp að Botnssúlum. Tveir
urðu viðskila um eftirmiðdaginn og
er þeir voru ekki komnir fram um
klukkan 23.00 um kvöldið var haft
samband við lögregluna á Selfossi.
Leitarmenn frá björgunarsveitum
SVFÍ, Hjálparsveit skáta og Flug-
björgunarsveitinni voru kallaðir út
og var sérstaklega beðið um vanar
fjalla- og klifursveitir, snjóbfla og
sleða. Um 70 leitarmenn lögðu upp
frá Svartagili um klukkan 4.00 á 5
snjóbflum, 23 sleðum og með 6
hunda. Annað eins lið lagði af stað
í birtingu.
Leitarsvæðið var Súlumar og
svæðin sunnan þeirra frá Svartagili
og vestur á Leggjabijót. Slæmt
veður var á svæðinu í fyrrinótt,
slagveður og rigning. Skyggni var
100 til 200 metrar, krap og ís undir
og því mikil snjóflóðahætta. Miðaði
leitarflokkum hægt áfram. Reynt
var að koma endurvarpa fyrir fjar-
skipti upp á Tjallið en það tókst
ekki. Þá var flugvél Flugmála-
stjómar send á ioft með endurvarpa
og að sögn stjómenda leitarinnar
brá þá til hins betra með íjarskipti.
Var það laust eftir klukkan 10.00
í gærmorgun.
Leitarsvæðinu var skipt í þijár
leiðir. Var grófleitað á þeim öllum
um nóttina og var markið sett á
skála Alþaklúbbsins í Súludal.
Reyndist vestasta leiðin ein fær að
skálanum og fundu félagar úr
Hjálparsveit skáta tvímenningana
heila á húfi um klukkan 11.20 í
gærmorgun. Svæði 2 hafði þá verið
fínleitað í um 800 metra hæð. Þyrla
Landhelgisgæslunar kom á svæðið
um klukkan 11.00 en fékk lítið að
gert vegna dimmviðris. Þá var
varalið tiltækt í bækistöðvum en
ekki þurfti á því að halda.
Svæðisstjóm í Svartagili skipuðu
Amgrímur Hermannsson FBS,'
Engelhart Bjömsson SVFÍ og Jón
Grétar Sigurðsson LHS og sögðu
þeir að lórantæki á snjósleðum og
í snjóbflum hefðu komið í góðar
þarfír og hefðu létt allt skipulag
vegna réttari staðarákvarðana. Jó:
hannes Briem deildarstjóri hjá SVFÍ
sagði aðspurður að ekki væri um
að ræða að menn hefðu talstöðvar
í ferðum sem þessum, og ekki hægt
að átelja mennina tvo fyrir slæman
útbúnað. Það eina sem mætti ef til
vill átelja þá fyrir var að veðurspáin
gerði ráð fyrir slæmu veðri um
kvöldið og þeir hefðu því lagt á
tæpasta vað hvað það snerti.
Við viljum vekja athygli þína á að:
snowcem sem þú ætlar að mála með í júní þarft
þú að panta fyrir 10. apríl.
snowcem sem þú ætlar að mála með í júlí þarft
þú að panta fyrir 10. maí.
snowcem sem þú ætlar að mála með í ágúst þarft
þú að panta fyrir 10. júní.
A
MARKAÐURINN
Mýrargötu 2, sími622422
engin spuming!
Áttþú videotæki? Efekki, kíktu íHLJÓMBÆ
og skoðaðu SHARP videotækin. Þú verðurekki fyrir
vonbrigðum þvíhjá SHARP fara saman
STERKBYGGING, LIPUR HÖNNUN OG ÓTRÚLEG GÆÐI.
En þetta erekkiallt, snillingarnirhjá SHARPhafa haldið
framleiðslukostnaði videotækjanna í lágmarki og
þess vegna getur HLJÓMBÆR boðið SHARP videotæki
á ævintýralegu verði, frá krónum
39,924^- stgr.
Otrulegt verð - hágæða heimilistæki
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
Snowcem
aftur á íslandi
Byggingamarkaðurinn hefur tek-
ið umboð fyrir SllOWCem
og býður þér nú að sérpanta
á húsið þitt.