Morgunblaðið - 11.03.1986, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR U-MARZ1986
Búnaðarþingi lokið:
Maggisúpa
er góð hugmynd að kvöldverði.
Góð hugmynd að kvöldverði felur í sér að maturinn verður að vera öllum til
hæfis, hollur, bragðgóður, einfaldur í matreiðslu, ódýr og tilbreyting frá
hefðbundnum matseðli. Maggi súpa og meðlæti að óskum
hvers og eins sameinar þetta ágætlega.
Af Maggi súpum eru til 22 tegundir -
þar á meðal uppáhaldstegundin þín.
(frTTTTPdKfrFTlfift.
SÍMI 83788
Ályktað um
f itu o g sölumál
lambakjöts
Morgunblaðið/Ól. K. Mag.
Nokkrir búnaðarþingafulitrúar við setningu búnaðarþings. Vinstra megin við borðið má m.a. sjá 8f.v.)
Hjalta Gestsson, Gunnar Bjamason, Hermann Siguijónsson og Jón Olafsson, og hægra megin (t.v.)
Egil Bjamason, Magnús Sigurðsson, Guttorm V. Þormar, Birki Friðbertsson, Júlíus Jónsson og Jón
Kristinsson.
3Ö mál afgreidd
frá búnaðarþingi
BÚNAÐARÞINGI 1986 lauk á sunnudag. Það stóð yfir í 14 daga og afgreiddi 30 mái af 33 sem fyrir
það voru lögð. Meðal þeirra eru yfirgripsmiklir lagabálkar, það er jarðræktar- og búfjárræktarlög.
Þetta búnaðarþing er það síðasta á kjörtímabili búnaðarþingsfulltrúa. í sumar verða kosnir búnaðar-
þingsfulltrúar til næstu fjögurra ára. í ávarpi sínu við þingslitin þakkaði Ásgeir Bjarnason forseti
búnaðarþings búnaðarþingsfulltrúum fyrir gott starf og lýsti þvi yfir að hann gæfi ekki kost á sér á
næsta búnaðarþing. Ásgeir hefur verið búnaðarþingsfulltrúi í 30 ár og viðloðandi búnaðarþing í 36 ár.
Formaður Búnaðarfélags Islands og jafnframt forseti búnaðarþings hefur hann verið í mörg ár. Vitað
er að fleiri búnaðarþingsfulltrúar munu nú láta af störfum, m.a. Hjalti Gestsson, sem setið hefur 20 ár
á búnaðarþingi, og Teitur Bjömsson, sem setið hefur 24 búnaðarþing.
Hér á eftir verður getið nokkurra máia frá búnaðarþingi.
BÚNAÐARÞING ályktaði um
sölu sauðfjárafurða og kynbætur
með tilliti til fitusöfnunar. Hafði
þingið til meðferðar skýrslu
milliþinganefndar um bætta
verslunarhætti við sölu á lamba-
kjöti, ásamt erindi Magnúsar
Sigurðssonar búnaðarþingsfull-
trúa á Gilsbakka um kynbætur
sauðfjár til minnkandi fitusöfn-
unar á kjöt.
Búnaðarþing tók eindregið undir
það viðhorf sem fram kemur í erindi
Magnúsar, en eftirfarandi kemur
fram í því: „Það er einróma álit
þeirra, sem fást við að selja kinda-
kjöt, að fita sé of mikil á því og
spilli sölu- og samkeppnismöguleik-
um þess á markaði, líklega bæði
hérlendis og erlendis. Ástæða er til
að ætla, að með skipulegu ræktun-
arátaki megi breyta þessu til nokk-
urra bóta. Til þarf að koma: Rann-
sóknir , frumrannsóknir og af-
kvæmarannsóknir á kynbótakind-
um; stefnumörkun af hálfu ráðu-
nauta Búnaðarfélags íslands og
kynbótanefndar, ennfremur stjóma
kynbótastöðva að þvf er varðar val
sæðingahrúta; leiðbeiningar um
flárval til bænda af hálfú ráðu-
nauta; og einbeitt viðleitni ein-
stakra bænda til að þekkja eigin-
leika Qárstofns síns að þessu leyti."
Taldi Magnús að þetta þyrfti að
ganga fyrir öðru í sauðfjárkyn-
bótum á næstunni, án þess að þar
með sé sagt að ekkert eigi að skeyta
um kynbætur á öðrum eiginleikum.
Vegna þessa erindis fól búnaðar-
þing kynbótanefiid sauðfjárræktar
eftirfarandi framkvæmdaatriði: 1)
Að hlutast til um, að komið verði
á nýju og markvissara kjötmati
strax á næsta hausti. 2) Að auka
afkvæmarannsóknir á hrútum,
einkum þar, sem fjárstofnar hafa
náð mikilsverðu ræktunarstigi I
hagrænum eiginleikum, og leggja
þar ríka áherslu á lágt fituhlutfall
kjötskrokkanna. 3) Að leggja aukna
áherslu á notkun hrúta á sæðingar-
stöðvum, sem gefa afkvæmi með
hagstætt vöðvahiutfall en litla fitu-
söfnunareiginleika.
Ennfremur beindi þingið því til
stjómar Búnaðarfélags fslands
ásamt markaðsnefnd og Landssam-
tökum sauðfjárbænda að vinna að
endurbótum á sölu og framboði á
sauðfjárafurðum í samræmi við til-
lögur milliþinganefndarinnar, en
þær eru eftirfarandi:
1. Nýtt kjötmat komi til fram-
kvæmda haustið 1986.
2. Verðlagningu einstakra gæða-
flokka verði þannig hagað, að hún
knýi framleiðendur til að aðlagast
breyttum markaðskröfum.
3. Leitað verði samninga við nokkur
sláturhús um að lengja sláturtíð í
3 mánuði.
4. Verðlagskannanir fari fram
reglulega og til þeirra vandað þann-
ig að borið sé saman verð á sam-
bærilegum vörum.
5. Tryggja stöðugt gæðaeftirlit á
vinnsluvörum.
6. Athuga möguleika á sérstökum
Iambakjötsmatstað, til dæmis með
samningum við aðila í veitinga-
rekstri.
7. Verðlauna skyndibitastaði fyrir
árangur í sölu á lambakjöti.
8. Verðlauna verslanir fyrir fram-
boð og sölu á lambakjöti.
9. Koma á lambakjötsviku á veit-
ingastöðum.
10. Koma á lambakjötskynningum
í verslunum.
11. Gefa út handhæga „dreifipésa"
með uppskriftum og leiðbeiningum
um meðferð og matreiðslu.
12. Auglýsingaherferð í fjölmiðlum,
einkum sjónvarpi.
Undir nefndarálit milliþinga-
nefndarínnar skrifa: Egill Bjama-
son, Sauðárkróki, Hjalti Gestsson,
Selfossi og Sigurgeir Þorgeirsson,
sauðflárræktarráðunautur.
Farymann
Smádíselvélar
5.4 hö viö 3000 SN.
8.5 hö við 3000 SN.
Dísel-rafstöövar
3.5 KVA
StiM[rtia(y®(yr
Vesturgötu 16,
sími 14680.
Kona á aldrinum
15-45?
Þú gœtir þarfnast
Oeöa oo
vHagna B
Lýsi hf. Grandavegi 42, Reykjavík, sími 91 -28777
T