Morgunblaðið - 12.04.1986, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.04.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR12. APRÍL1986 Menntaskólinn í Reykjavík: Stúlkur allsráð- andi í stjórn skólafélagsins „Strákarnir farnir að treysta okkur betur,w segja þær I PYRRADAU gerðist það, að eitt helsta vígi gamalla hefða hérlend- is, Menntaskólinn í Reykjavík, féll fyrir þremur stúlkum. I kosning- um til stórnar skólafélagsins varð það í fyrsta skipti, að stúlkur hlutu kosningu i öll embættin þijú, inspector scolae, scriba scol- aris og questor scolaris. Þá var einnig kosin stúlka í embætti hringjara skólans, inspector platearum. Aðeins tveir mega keppa um embætti formanns skólafélagsins, inspector scolae, og eru þeir valdir úr 5. bekk. Að þessu sinni var í framboði Ragnheiður Traustadóttir og piltur á móti henni. „Þetta var jöfn og skemmtileg kosning, ég hlaut 367 atkvæði en mótframbjóðandi minn 317. Þetta fór allt saman fram í bróðemi og við erum ágætir kunningjar," sagði Ragnheiður og var hógværðin upp- máluð. „Þetta er ekki í fyrsta skipti sem stelpa er inspector, það gerðist líka snemma á kvennaáratugnum, bæði 1975 og 1977. 1975 var quest- orinn rejmdar líka kvenkyns, en þetta er í fyrsta skipti sem stelpur hreppa öll embættin." Til embættis scriba, ritara og questors, gjaldkera, getur hver sem er boðið sig fram, sé hann nemandi í 4. bekk skólans. Fimm buðu sig fram til embættis scriba en kosningu náði Helga Sverr- isdóttir með 30% atkvæða. Þrír vildu taka að sér kassa skólafélagsins en náð fyrir augum kjósenda hlaut Margrét Ásgeirsdóttir, fékk hún 305 atkvæði en sá keppinautur hennar, sem fékk næstflest atkvæði, fékk 160. „Þetta var mjög skemmtilegt," Okurmálið: segir Helga. „Við Margrét erum nánast óaðskiljanlegar vinkonur og fórum hálfpartinn út í þetta saman, svo ég er himinlifandi yfir því, að við hlutum báðar kosningu." En hvaða skýringu hafa þær stjómarstöliur á því, að nú sitja konur einar í stjóm skólafélags þessarar gamalgrónu og formföstu menntastofnunar? „Ætli það sé ekki vegna þess, að stelpur em famar að beita sér meira í félagslífinu — og strákamir famir að treysta þeim betur," segja þær. „Við þekkjum marga stráka sem kusu stelpur í öll embættin. Það er farið að skipta meira máli hvemig fólk stendur sig en hitt, hvers kyns það er.“ Ekki hyggjast embættismennimir breyta miklu, telja þess ekki þurfa, „en við ætlum að standa okkur vel og bregðast ekki þeim sem kusu okkur," segja þær. Og eftir þetta stutta spjall er blaðamaður þess fullviss, að Skólafélagi Menntaskól- ans í Reykjavík verður vel stjómað næsta vetur. -----» ♦ • V er zlunarbankinn: Aðalfundur í dag Aðalfundur Verzlunarbanka ís- lands hf. verður haldinn í dag í Súlna- sal Hótels Sögu og hefst kl. 14. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð fram tillaga um útgáfu jöfnun- arhlutabréfa og nýjar samþykktir fyrir bankann í samræmi við nýja bankalöggjöf. Dæmdur í fjórfalda fjársekt að upphæð 176 þúsund krónur ANNAR tveggja dóma, sem kveðnir hafa verið upp í Sakadómi Akraness í okurmálinu, hefur verið birtur hinum sakfellda og hlaut sá lágmarks sekt, fjórfalda þá upphæð sem hann er talinn hafa hagnast um, umfram hæstu löglegu vexti. Samtals nemur fjár- sektin rúmum 176 þúsund krón- um, en auk þess var ákærða gert að greiða sakarkostnað, og komi fimm mánaða varðhald verði sekt ekki greidd. í forsendum dómsins segir meðal annars að talið sé sannað að ákærði hafi látið Hermanni G. Björgvinssyni í té peninga og jafnframt veitt við- töku peningum, ávísun dagsettri fram í tímann. Vextir af þessum viðskiptum námu rúmum 44 þúsund krónum umfram hæstu lögleyfða vexti á því tímabili er um ræðir, samkvæmt útreikningi Seðlabanka íslands. Með því var talið að ákærði hefði gerst brotlegur við okurlögin frá 1960. Dóminn kvað upp Ásmundur Vil- hjálmsson fulltrúi í Sakadómi Akra- ness. Ákærði tók ekki til vamar 1 málinu og hefur sætt sig við niður- stöðu þannig að hann mun ekki áfrýja til Hæstaréttar. Málið verður nú sent ríkissaksóknara, sem tekur afstöðu til þess fyrir sína hönd, hvort hann sættir sig við niðurstöðuna. Dómur hefur ekki verið birtur hinum aðilanum, sem dæmdur hefur verið í Sakadómi Akraness vegna okurmálsins. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hlaut hann einnig fjórfalda fjársekt, en viðurlög við okurbrotum eru ijársektir sem skulu ekki vera lægri en fjórfaldar og ekki hærri en tuttuguogfimmfaldar af ágóðanum. Vinsældalisti rásar 2 ÞRJÚ ný lög eru á vinsældalista rásar 2 sem valinn var á fimmtu- dagskvöldið. Gaggó Vest er enn á listanum en fellur úr 5. sæti í það 10. 1. (1) La-líf... Smartband. 2. (3) Little Girl... Sandra. 3. (2) Waiting For the Moming ... Bobbysocks. 4. (4) Absalute Beginners ... David Bowie. 5. (7) Move Away... Culture Club. 6. (8) Kiss... Prince. 7. (-) A Different Comer... George Michael. 8. (17) Goodbye Is Forever ... Arcadia. 9. (21) Önnur sjónarmið ... Edda Heiðrún Backman. 10. (5) Gaggó Vest ... Gunnar Þórðarson. jir!: > ; . j Alræði ungmeyjanna. Stjórn Skólafélags MR, talið frá vinstri: Helga Sverrisdóttir scriba scolaris, Ragn- heiður Traustadóttir inspector scolae og Margrét Ásgeirsdóttir questor scolaris. DAIHATSU sýning Frá kl. 1-5 Allir gæðabílarnir frá Daihatsu. Daihatsuumboðið s. 685870-681733
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.