Morgunblaðið - 12.04.1986, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.04.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR12. APRÍL1986 Hef flutt lækningastofu mína frá Skólabrú í Hafnarstræti 5, (Mjólkurfélagshúsið). Gengið inn frá Tryggvagötu. Viðtalstími óbreyttur. Stefán Ólafsson, háls-, nef- og eyrnalæknir Hluti af Samtökum um heimsmet eða heimsmetaklúbbnum að hafa sett metið. eftir Heimsmet í appelsínu- rekstri með kylfu AkureyrL SAMTÓK um heimsmet eða heimsmetaklúbburinn nefnist hópur krakka á Opnu vikunni í Fjölbrautaskólanum á Sauðár- króki. Eins og nafnið ber með sér er starfið fólgið i því að seta heimsmet og eitt hefur þegar verið sett! Heimsmetið sem hópurinn setti á þriðjudaginn var nokkuð sérstætt. Lagt var upp frá Sauðárkróki og leiðin lá inn í Varmahlíð og til baka. En hvemig var farið? Jú, fótgang- andi og voru appelsínur með í för og einnig „bandýkylfa". Leikurinn fólst sem sagt í því að reka appel- sínu á undan sér með kylfunni alla ieið. Það voru um 30 krakkar sem tóku þátt í að setja metið og tók ævintýrið ekki nema 5 klukku- stundur og 16 mínútur. Vegalengd- in er um 50 kflómetrar. „Nei, ætli það. Ekki nema við tökum okkur til og rekum appelsín- una næst inn á Akureyri," var svarið er blaðamaður Morgunblaðs- ins ræddi við nokkra úr heimsmeta- kiúbbnum — og spurði hvort þeir hygðust nokkuð slá þetta nýsetta heimsmet sitt. Þeir sögðu reyndar ýmsar hugmyndir í gangi um heimsmet, t.d. hefði verið rætt að setja heimsmet í því að ausa vatni með fingurbjörgum! Bæjarstjórn Vestmannaeyja: Fundur um gáma- útflutninginn BÆJARYFERVÓLD I Vest- mannaeyjum inunu í næstu viku boða til fundar með fulltrúum verkalýðs- og sjómannafélaga í Eyjum auk annarra fulltrúa sjáv- arútvegs þar vegna mikils út- flutnings á fiski í gámum frá Eyjum. Akvörðun um fundar- tíma verður tekin af bæjarráði á mánudag. Að sögn Sigurðar Jónssonar, forseta bæjarstjómar Vestmanna- eyja, er útflutningurinn í gámunum verulegt vandamál gagnvart físk- vinnslustöðvum og fískvinnslufólki. Til vinnslu berst minni afli en ella og minni vinna er fyrir fólkið. Hann sagði, að ekki yrði hægt að stöðva útflutning á ferskum físki, þar sem augljóst væri, að hann yki tekjur sjómanna og útgerðar og hefði hreinlega bjargað mörgum. Skýr- ingu yrði að fá á því hvers vegna ekki væri hægt að fá hærra verð fyrir fískinn hér heima, þar sem ljóst væri að mikill hluti útflutts afla færi til vinnslu erlendis. Enn- fremur hefði það komið fram hjá einum bæjarfulltrúa, að þetta breyttist ekki fyrr en komið yrði á fiskmarkaði f Vestmannaeyjum. Stjórnarformaður Byggung: Ljúkum því sem við erum byrjaðir á Hafa afhent rúmlega 100 íbúðir síðan í desember „VIÐ reiknum með því vera að byggja alveg fram á árið 1988 og ljúka þvf sem við erum byijaðir á,“ sagði Arni Þór Araason, sem tók við stjóraarformennsku í Byggung á aðalfundi félagsins í síðastliðnum mánuði af Þorvaldi Mawby, sem fluttur er til Banda- ríkjanna. Flogið hefur fyrir að undanförau, að Byggung verði lagt niður. „Hins vegar höfum við ekki viljað taka nýjar lóðir eins og markaðurinn er. Við viljum sjá hvað gerist á næstunni. Við ljúkum þvf sem við erum með og gerum svo dæmið upp,“ sagði Ámi. Hann bætti því við, að aðalvandinn væri sá, að lán úr Bygg- ingasjóði ríkisins greiddust seint og illa auk þess sem erfiðlega gengi að innheimta hjá mörgum kaupendum. Ámi sagði, að sögusagnir hefðu verið um það, að alit að tvö hundruð íbúðir væru óseldar hjá félaginu, en sannleikurinn væri sá, að um tuttugu íbúðir af 270 væru óseldar í Selási og örfáar á Granda og Seltjamamesi. Þær hefðu verið að seljast ein og ein og reiknaði hann með, að þær seldust á næstu mánuðum. Dálítið væri hins vegar óselt af skrifstofuhúsnæði á Nesinu en samningar stæðu nú yfír um sölu þess. Um þann orðróm, að framkvæmd- um í Selási hefði verið hætt, sagði Guðmundur Karlsson, nýráðinn fram- kvæmdastjóri Byggung, að þær hefðu gengið rólega undanfarið vegna þess, að félagið bauð út frágang á tveimur húsum og nú er verið að fara yfir tilboðin og kanna hvort hagstæðara sé að taka þeim eða halda áfram á sömu braut og hefur verið farin til þessa. „En það er fráleitt að við höfum hætt framkvæmdum í Selási," sagði Guðmundur. „Við skiluðum einu stigahúsi þar í desember og öðru í febrúar og munum svo skila stigahús- um í júní og júlí. Þá afhentum við 29 íbúða hús á Austurströnd á Sel- tjamamesi í desember og 14 íbúðir nú í aprfl. Á Granda afhentum við 15 íbúða stigahús í desember, annað eins í febrúar og síðan munum við enn afhenda nú í aprfl og maí.“ Morgunbladið/Skapti Hallgrfmsaon Hvað er það sem er Svarið er auðvelt, KJÚLLETTUR eru með því ódýrasta á boðstólum í dag ef ekki það ódýrasta. KJULLETTUR eru fitulitlar og því tilvaldar fyrir þá sem þurfa að hugsa um línurnar. Og síðast en ekki síst eru KJÚLLETTURNAR fljótleg máltíð, þú tekur þær úr frystinum og steikir frostnar í ca. 5 - 10 mín. og þá er herra- mannsmáltíð tilbúin. ísfugl Varmá Reykjavegi 36 Mosfellssveit Sími: 666103 Fáðu þér KJÚLLETTUR þú hefur þrjár góðar ástæður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.