Morgunblaðið - 12.04.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR12. APRÍL1986
21
Nýi skíðaskálinn í Oddsskarði.
Morgunblaðið/Ævar
Nýr skíðaskáli í
Oddsskarði formlega
tekinn í notkun
Esldfirði.
SÍÐASTLIÐINN föstudag var
formlega tekinn í notkun nýr
skíðaskáli í Skíðamiðstöðinni í
Oddsskarði. í þeim hluta bygg-
ingarinnar ser nú var tekinn í
notkun eru veitingasalur, hrein-
lætisaðstaða og eldhús. Svefnloft
skálans er enn ekki fullbúið.
í tilefni opnunarinnar bauð stjóm
Skíðamiðstöðvarinnar mörgum
gestum frá Neskaupstað, Eskifirði
og Reyðarfirði, en þessi bæjarfélög
eiga Skíðamiðstöðina í sameiningu.
Kristinn ívarsson formaður bygg-
ingamefndar hússins bauð gesti
velkomna og lýsti byggingunni, sem
var byggð af Byggingarfélaginu
Valma í Neskaupstað. Raflagnir
lagði Tómas Zoéga rafvirkjameist-
ari og gaf hann ásamt aðstoðar-
mönnum sínum alla vinnu við verk-
ið. Það gerðu og málarar hússins,
Halldór Ámason og Þorvaldur
Imsland, og færði Kristinn þeim
bestu þakkir byggingameftidar
fyrir. Þá þakkaði hann einnig gjafir
sem borist hafa til hússins. Lions-
klúbbur Norðfjarðar gaf ísskáp,
einstaklingar á Eskifirði gáfu ör-
bylgjuofn, Kvenféiagið Nanna og
Slysavamafélagið í Neskaupstað
gáfu peningagjafir.
Sérstakur gestur opnunarinnar
var Gunnar Olafsson fyrrverandi
skólastjóri i Neskaupstað en hann
er nú brottfluttur úr bænum og kom
gagngert til að vera við opnunina.
Gunnar er, eins og einn ræðumaður
komst að orði, upphafsmaður alls
þessa sem nú er risið í Oddsskarði.
Hafði hann í mörg ár áður en þama
reis skíðamiðstöð ferðast um fjöll
til að leita að besta landi fyrir slíka
starfsemi. Gunnar kveðst fyrst hafa
reift þessu máli um skíðalyftu
Austurlands í Oddsskarði 1976 á
þingi UÍA sem haldið var á Vopna-
firði, en því hafði verið dauflega
tekið hjá UIA. Eftir miklar bréfa-
skriftir og samninga við „kerfið"
hafði tekist samkomulag 1978 milli
þessara þriggja sveitarfélaga um
að reisa Skíðamiðstöðina og var
þegar hafist handa og undirstöður
mastra reistar haustið 1978. Skíða-
lyftan kom til Reyðarfjarðar um
haustið.
„Það var svo í júlí 1979 að eitt-
hvað fór að gerast," eins og Gunnar
komst að orði, „og var unnið af
krafti við lyftuna um haustið og
vom vírar strengdir í blindbyl 15.
september. Lyftan var svo tilbúin
til notkunar 13. janúar 1980. Strax
var mikil aðsókn að skíðalandinu
og var í beinu framhaldi af þessu
ákveðið að láta teikna skíðaskála
árið 1982. Vorið 1983 komst síðan
skriður á þær framkvæmdir og var
steyptur grunnur. Síðan var hafist
handa við að reisa húsið og því lokið
14. ágúst 1983. Nú em liðin um
10 ár frá því að fyrst var reift
hugmynd um skíðalyftu í Odds-
skarði. Aðstaða orðin til fyrirmynd-
ar og sem gamall draumur hafi
ræst og ég er hreykinn og glaður,"
sagði þessi mikli áhugamaður um
útivist og skíðaiðkun „og trúi ég
því að hollvættir vaki yfir staðnum
um tímaog eilífð.“
Færði Gunnar bæjarstjómunum
á Eskifirði og Neskaupstað og
kyeitarstjórninni^_ _áfeyðarfirði
Gunnar Ólafsson fyrrverandi
skólastjóri á Neskaupstað.
þakkir sínar fyrir piýðisgott sam-
starf þessi ár og framkvæmdanefnd
Skíðamiðstöðvarinnar, þeim Boga
Nflssyni sýslumanni á Eskifirði,
sem er mikill áhugamaður um
skíðamál og hefur unnið mikið starf
að þeim málum hér, og Þorvaldi
Aðalsteinsssyni á Reyðarfirði.
Margir fleiri tóku til máls við
opnunina. Má þar nefna bæjarstjór-
ann í Neskaupstað, Ásgeir Magnús-
son, bæjarstjórann á Eskifirði, Jó-
hann Clausen, og sveitarstjórann á
Reyðarfirði, Hörð Þórhallsson.
Þetta föstudagssíðdegi var mjög
fagurt veður í Oddsskarði, glamp-
andi sól og logn og fjöidi manna
naut útiverunnar við lyftumar eins
og flesta daga.
Ævar
Taka sveitarfé-
lög við rekstri
hafnarmála-
skrif stofunnar?
FJÁRVEITINGANEFND Alþingis
hefur óskað eftir því við samgöngu-
ráðherra að hann láti gera könnun
á því hvort hagkvæmt kunni að
reynast að breyta rekstri Vita- og
hafnarmálastofnunar á þann hátt
að samtökum sveitarfélaga verði
falið að annast rekstur hafnarmála
og Landhelgisgæslunni rekstur vi-
tanna. Reiknað er með að þessari
könnun verðj. lokið fyrir næsta
haust.
Nemendamót
í Skálholti
NEMENDASAMBAND Skál-
holtsskóla gengst fyrir nemenda-
móti i Skálholti laugardaginn 12.
april.
Það hefst með aðalfundi klukkan
15 og síðan hefst hátíðin. í fréttatil-
kynningu sem Morgunblaðinu hefur
borist segir, að vænst sé góðrar
þátttöku eldri nemenda, því að nú
ríði á að efla samband nemenda og
skólans _svo að lýðháskóli megi
þrífast á íslandi.
Hrafnista i Hafnarfirði
Nýtt happdrættisár
að hefjast hjá DAS
Aðalvinningurinn,
húseign að eigin vali
fyrir 3,5 milljónir
króna, dreginn út
aðári
NÝTT happdrættisár er að hefj-
ast hjá happdrætti Dvalarheimil-
is aldraðra sjómanna. Heildar-
verðmæti vinninga verður að
þessu sinni 115,2 milljónir króna.
Dregið verður um aðalvinning
ársins, húseign að eigin vali að
upphæð 3,5 milljónir króna, í
apríl 1987. Einnig verður dregið
um níu aðrar húseignir að eigin
vali. Dregið verður um þijá valda
bila auk annarra vinninga til bíla-
kaupa, ferðavinninga og hús-
búnaðarvinninga.
Vinningum til utanlandsferða að
verðmæti 40.000 krónur hver, íjölg-
ar um 100%, úr 720 í 1440 á árinu
og verður dregið um 120 ferðir í
hveijum mánuði. Dregið verður um
þijá valda bfla á árinu, Ford Sierra
GL 2000 í júní, Toyota Landcruiser
STW station HR í desember og
SAAB 900i árgerð 1987 í febrúar
á næsta ári. Auk þess verða 48
aðrir vinningar til bflakaupa að
upphæð 200.000 hver. í 1. flokki
verður dregið um húseign eftir eigin
vali að upphæð 1.000.000 og síðar
á árinu verður dregið um 8 húseign-
ir og er hver vinningur að upphæð
kr. 600.000.
Húsbúnaðarvinningar á 10 þús-
und krónur hver verða samtals
1440 og lægstu vinningamir, sam-
tals 4259 talsins, eru á 5 þúsund
krónur. Fjöldi vinninga í hveijum
mánuði er 600.
Baldvin Jónsson forstjóri Happ-
drættis DAS sagði á blaðamanna-
fundi þar sem vinningar á næsta
happdrættisári voru kynntir að það
væri von þeirra að stærsti vinning-
urinn, húseign að eigin vali að
upphæð 3,5 milljónir króna, falli til
viðskiptavina, en það hefði þó ekki
gerst undanfarin tvö ár. í máli hans
kom einnig fram að viðskiptavinir
happdrættisins eigi tæp 70% út-
gefinna miða, og happdrættið spili
á rúm 30% miðanna. Verðmæti
aðalvinningsins á síðasta ári var
rúm 3% af heildarverðmæti vinn-
inga. Baldvin sagði að þrátt fyrir
að aðalvinningurinn hafi ekki fallið
til viðskiptavina happdrættisins hafí
síðasta ár verið viðskiptavinunum
lítillega í hag.
Á síðasta ári var heildarhagnaður
Happdrættis DAS tæplega 11 millj-
ónir króna. Þar af runnu 7 milljónir
til byggingar dvalarheimila fyrir
aldraðra á höfuðborgarsvæðinu, en
um fjórar milljónir runnu til dvalar-
heimila út um allt land.
Nú er lokið við endurhæfingar-
deild Hrafnistu í Hafnarfírði með
meðferðarsundlaug og nuddpotti.
Þar er verið að ljúka við 5. hæð í
vistmannadeild og bætast við 13
herbergi fyrir einstuklinga. Nú ligg-
Nennsia netst 24. juli 1986.
Innritun á sama tima.
Hringið og fáið sendan upplýsingabækling í síma
05-62 50 88 eða sendið úrklippuna til:
HORSENS TEKNISKE SKOLE
Slotsgade 11 — 8700 Horsens
Vinsamlegast sendið mér upplýsingabækl-
inginn í landmælingum
Nafn:
Heimiliifang:
Póstnr._______
Borg
Morgunbladið/Emilía
Rafn Sigurðsson, forsfjóri Hrafnistu I Reyjavík, Baldvin Jónsson,
forstjóri Happdrættis DAS, Garðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
Sjómannadagsráðs, Pétur Sigurðsson, formaður Sjómannadagsráðs
og forstjóri Hrafnistu í Hafnarfirði. Grétar Hjartarson, forstjóri
Laugarásbíós og Þórhallur Hálfdánarson, gjaldkeri Sjómannadags-
ráðs. Myndin er tekin á efstu hæð Hrafnistu i Hafnarfirði þar sem
verið er að innrétta vistmannadeild.
ur fyrir að endumýja og endurbæta svokallaðar vemdaðar þjónustu-
Hrafnistu í Reykjavík. Síðar taka íbúðir, við Hrafnistu í Reykjavík og
við framkvæmdir við fleiri smáhýsi, Hafnarfirði.