Morgunblaðið - 12.04.1986, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 12.04.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. APRÍL1986 25 Albanskur flóttamaður: „Líf fólksins og ástandið í landinu er óbærilegt“ Hvatt til uppreisnar í leynilegri útvarpsstöð Aþenu. AP. ALBANSKUR flóttamadur, sem komst yfir til Grikklands í síðustu viku, segir, að ástandið í föðurlandi hans sé „óbæri- legt“ og hafi versnað stórum síðan Ramiz Alia tók við að stalínistanum Enver Hoxha látnum. „Undir stjóm Ramiz Alia er líf fólksins og ástandið í landinu óbærilegt. Flokkurinn og málgögn hans ljúga að fólkinu og lífskjörin eru jafnvel verri nú en þau vom á dögum Hoxha," sagði Astrit Maiko, 23 ára gamall landbúnað- arverkamaður frá bænum Tepe- lene, á fundi í gær með frétta- mönnum. Tepelene er í 48 km fjarlægð frá grísku landamærun- um og kvaðst Maiko hafa gengið í tvo daga áður en honum tókst að komast yfir gaddavírs- og rafmagnsgirðingamar, sem er þó vel gætt af albönskum hermönn- um. „Þegar Alia tók við bjóst al- menningur við, að hann fengi að njóta meira frelsis og að lífskjörin bötnuðu en síðan hefur flokkurinn tvöfaldað vinnuskylduna án þess að launin hafi hækkað. Nú verðum við að vinna í 15 stundir á dag á vetuma og jafnvel lengur á sumr- in en getum þó ekki brauðfætt okkur," sagði Maiko. „Unga fólkið í landinu gerir sér fulla grein fyrir þessu og og lætur ekki blekkjast en það kemst enginn á brott. Landið okkar er umlukt gaddavír og hermennimir hafa skipun um að skjóta hvem þann, sem reynir aðflýja. Maiko sagði, að í síðasta mán- uði hefði heyrst til leynilegrar útvarpsstöðvar, sem sendi út í fjórar klukkustundir og „hvatti fólk til að rísa upp og steypa Alia“. Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, hefur gert ýmsa samninga við albönsk stjómvöld um samvinnu í efnahags- og menningarmálum og er í þeim kveðið á um rétt gríska minnihlut- ans í Albaníu en hann telur um 120.000 manns. Maiko, sem er af grískum ættum, sagði hins vegar, að aðeins albanska væri kennd í skólum og að litið væri á það sem glæpsamlegt athæfi að tala grísku. Handrit eftir Grieg finnast í New York BRÉF og handrit eftir norska tónskáldið Edvard Grieg, þar á meðal handritið að „Pétri Gaut“, AP/Slmamynd George Bush, varaforseti Bandaríkjanna, er í þann mund að ljúka heimsókn sinni til fjögurra Arabaríkja. Á ferðalaginu staldraði hann við í bandaríska flugmóðurskipinu Enterprise, sem er nú á Oman- flóa. Myndin var tekin er Bush snæddi hádegisverð um borð í Enter- prise ásamt áhöfn skipsins. Bush heimsækir Norður-Jemen: Sat undir gagnrýni við móttökuathöfn Sanaa, Norður-Jemen. AP. ABDEL-Karim Abdullah Arashi,- varaforseti Norður-Jemen, gagnrýndi stefnu Bandaríkja- manna í Miðausturlöndum er George Bush, varaforseti Banda- ríkjanna, kom til Norður-Jemen í gær. Arashi skoraði á Bandaríkjamenn að beita áhrifum sínum til að fá ísraela til að láta af því sem hann kallaði mannréttindabrot gagnvart Palestínumönnum á landsvæðum, sem innlimuð hafa verið í ísraelsríki og í Líbanon. Bush svaraði ekki gagnrýni Arashi, heldur las skrifað ávarp, sem hann flutti við komuna til Norður-Jemen. Bush er æðsti Bandaríkjamaðurinn, sem kemur til landsins frá því 1972. Hann mun m.a. taka fyrstu skóflustungu að sendiráði, sem Bandaríkjamenn eru að byija að byggja í Norður-Jemen. Norður-Jemen er síðasta landið í heimsókn Bush til fjögurra araba- ríkja. Landið hefur náin sambönd við Moskvu, en einnig við Bandarík- in og þiggur þaðan m.a. hemaðar- aðstoð. Bandaríski sendiherrann í Moskvu: Mótmælir átroðninsi í sendiráðinu Moskvu. AP. SOVÉSKIR sjónvarpsfréttamenn hafa „ráðist inn“ í bandariska sendiráðið í Moskvu og banda- rísku ræðismannsskrifstofuna í Leningrad fimm sinnum í þessari viku. Hefur bandariski sendi- herrann borið fram mótmæli vegna þess við sovéska utanrikis- ráðuneytið. Undanfama daga hefur hópur manna komið í sendiráðið og ræðis- mannsskrifstofuna til að mótmæla kjamorkuvopnatilraunum Banda- ríkjamanna og ávallt í fylgd með sovéskum sjónvarpsfréttajnönnum. Sovésku lögreglumennimir, sem gæta húsanna, eru vanir að gefa sér góðan tíma til að kanna skilríki þeirra, sem vilja þangað inn, en í þessu tilfelli hafa þeir vikið orða- lausttilhliðar. „Sjónvarpsmyndatökur eru bannaðar hér, hveijir sem í hlut eiga, Bandaríkjamenn eða Sovét- menn, en nú er mðst hingað inn daglega," sagði bandaríski sendi- herrann, Arthur A. Hartman. „Sov- étmenn em alltaf að kvarta undan því, að mótmælendur fái að koma of nálægt sovéska sendiráðinu í Washington og næst þegar þeir kvarta vitum við hveiju skal svara.“ komu nýlega í leitimar hjá út- gáfufyrirtæki í New York og hefur safnið allt verið selt til Noregs fyrir 615.000 dollara. Sagði frá þessu í bandaríska blaðinu „Intemational Herald Tribime“ um síðustu helgi. Robert Hinrichsen, )mgsti sonur útgefanda Griegs, flutti safnið með sér frá Þýskalandi á fjórða áratugn- um en í því em handrit að 29 tón- verkum Griegs og 371 bréf frá honum. „Ómetanleg þjóðargersemi, sem talin var að eilífu glötuð, er að koma heim,“ sagði Lars Lang- slet, menningarmálaráðherra Nor- egs, um kaupin á handritunum en þaú verða varðveitt í Björgvin, heimabæ Griegs. Ráðist inn á skrif- stofu í Gullna hofinu Amritear. AP. KLOFNINGURINN meðal herskárra sikha jókst á föstudag er rót- tæklingar réðust inn i skrifstofu í Gullna hofinu í Amritsar á Ind- landi. Harinder Singh Kahlon, leiðtogi Stúdentahreyfingar síkha, og stuðningsmenn hans lokuðu sig inni á skrifstofunni og komu ekki út fyrr en eftir fortölur háttsettra leiðtoga þjóðvarðliða síkha. Ráðist var inn í skrifstofuna eftir að til átaka kom milli ungmenna úr röðum sikha á fimmtudag. Takkhar Singh, leiðtogi Damd- ami Taksal, sem er hreintrúarskóli, brást við þessu með því að setja stjóm Stúdentahreyfíngarinnar af og loka skrifstofum hennar. Damdami Taksal og Stúdenta- hreyfing síkha ráða lögum og lofum i Gullna hofinu, helgasta véi síkha, og hafa stjómvöld ásakað báða aðilja um að styðja hryðjuverka- menn. ERLENT Volvo 240 Volvo 740 VERÐ FRÁKR. 699.000- SUÐURLANDSBRAUT 16 - S[MI 35200 GENGI 01 04.86 MEÐ RYDVÖRN OG8ÁRA RYDVARNARÁBYRGD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.