Morgunblaðið - 12.04.1986, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12«APRÍL 1986
Alþingi—Kristnitaka:
Þúsund ára afmæli
eftírÞorvald Garðar
Kristjánsson
Hér fer á eftir framsaga Þor-
varðar Garðars Kristjánssonar,
forseta Sameinaðs Alþingis, með
tillögu til þingsályktunar um
þúsund ára afmæli kristnitök-
unnar á Alþingi árið 1000.
Samkvæmt tillögu þeirri til
þingsályktunar, sem hér er til
umræðu, er lagt til að forsetum
Alþingis sé falið að vinna að at-
hugun á því með hvaða hætti verði
af hálfu Alþingis minnst þúsund
ára afmælis kristnitökunnar.
Þessi tillaga er flutt af sérstæðu
tilefni og málatilbúnaður með sér-
stökum hætti. Tillagan er flutt af
forsetum Alþingis og formönnum
allra þingflokka. Með þessu er lögð
áherzla á, að efni tillögunnar eigi
að vera samkomulagsmál og hafið
yfír allan ágreining milli þing-
flokka.
Ekki orkar tvímælis að tilefnið
er sérstætt. Ber þar hvort tveggja
til, gildi kristinnar trúar og hvemig
kristnitakan bar að.
Við sjáum fyrir okkur atburða-
rásina á Alþingi á kristnitökuárinu.
Heiðnir og kristnir menn sögðu sig
úr lögum hvorir við aðra. Menn víg-
bjuggust og við lá, að fylkingum
lysti saman. Minni hlutinn bauð
meiri hlutanum byrginn. Kristnir
menn kusu sér lögsögumann. Þá
skeður það sem með ólíkindum er.
Lögsögumaður þeirra, friðsemdar-
maðurinn Síðu-Hallur, fær hlutverk
sitt í hendur lögsögumanni þings-
ins, Þorgeiri Ljósvetningagoða.
Leiðtoga heiðinna manna er ætlað
að segja upp lög kristinna manna.
Og enn gerast meiri undur. Leiðtogi
heiðinna manna segir upp þau lög,
að allir skulu einn sið hafa, allir
skuli kristnir vera og allir játtu því.
Alþingi tekur stjómmálaákvarð-
anir. Svo var þegar kristnin var
lögtekin. Þorgeiri Ljósvetningagoða
er eining ríkisins ofar öllu. „Það
mun verða satt, er vér slítum sundr
lögin, at vér munum slíta ok frið-
inn“. Hlutverk Alþingis er að standa
vörð um einingu þjóðar. Sameinaðir
sigmm við, sundraðir föllum við.
Þorgeir Ljósvetningagoði sá til
þess, að Alþingi brygðist ekki
skyldu sinni á örlagastund. Forysta
hans og fordæmi verður Alþingi
leiðarljós um framtíð alla.
Gildi kristinnar trúar er hið sama
hvemig sem boðskap hennar ber
að. I því efni breyta atburðimir á
Alþingi árið 1000 engu um. íslend-
ingar hefðu undir öllum kringum-
stæðum tekið kristna trú og látið
af hinum foma sið svo sem aðrar
þjóðir í okkar heimshluta gerðu.
Hins vegar verður aldrei ofmetin
þýðing þess hvemig kristnitöku ís-
lendinga bar að. Aðrar þjóðir þurftu
að þola blóðsúthellingar, bræðravíg
og ófrið áður en hinn fomi siður
þokaði fyrir fagnaðarboðskap krist-
innar trúar. íslendingar leystu mál-
ið með þjóðarsátt.
Margt er óljóst um atburði
kristnitökunnar og sífellt rannsókn-
arefni fræðimanna. Margar spum-
ingar vakna. Hve mikil vom kristin
áhrif orðin? Hve mikil brögð voru
að því að innviðir hins foma átrún-
aðar væm að gefa sig? Gerðu hinar
andstæðu fylkingar beint sam-
komulag um lausn málsins? Og
ekki sízt hafa fræðimönnum verið
hugleiknar vangaveltur um þýðingu
þess að leggjast undir feldinn. Tók
Þorgeir ákvörðun sína undir feldin-
um eða var hann að semja ræðu
sína um ákvörðun sem áður var
tekin?
En hvað sem slíkum og þvflíkum
spumingum líður em aðalatriði
kristnitökunnar ljós. Svo er fyrir
að þakka Ara hinum fróða. At-
burðarásin á Alþingi við Oxará er
vörðuð undram og stórmerkjum.
Svo er forsjóninni fyrir að þakka.
Svo var stjómvisku fyrir að fara
að ekki má einungis nú vera til
fyrirmyndar okkur Islendingum
heldur öllum þjóðum til friðsamlegr-
ar lausnar á vandamálum mann-
legra samskipta. Slíkir em þeir
atburðir sem minnast verður að
maklegheitum.
Kirkja landsins hlýtur að minnast
Þorvaldur Garðar Kristjánsson.
kristnitökunnar. Þjóðkirkjan hefír
þegar látið málið til sín taka.
Samkvæmt ákvörðun kirkjuþings
1984 tilnefndi kirkjuráð snemma
árs 1985 nefnd þriggja manna,
svonefnda kristnitökunefnd. Nefnd
þessa skipa herra Pétur Sigurgeirs-
son, biskup, og er hann formaður
nefndarinnar, séra Heimir Steins-
son sóknarprestur og þjóðgarðs-
vörður og séra Jónas Gíslason, dós-
ent. Nefnd þessi skal gera tillögur
um það, hversu haga beri athöfnum
þeim og framkvæmdum, sem efnt
verður til af kirkjunnar hálfu vegna
þúsund ára afmælis kristnitökunnar
á Þingvöllum við Oxará.
Kristnitökunefnd þjóðkirkjunnar
Andrésar Eyjólfs-
sonar minnst á Alþingi
ANDRÉSAR heitins Eyjólfssonar
fyrrv. alþingismanns var minnst
á Alþingi sl. fimmtudag. Hér fara
á eftir minningarorð sem Þor-
valdur Garðar Kristjánsson, for-
seti Sameinaðs alþingis, flutti.
Andrés Eyjólfsson fyrmm al-
þingismaður og bóndi í Síðumúla í
Hvítársíðu andaðist í sjúkrahúsinu
á Akranesi í hárri elli. Hann náði
hæstum aldri þeirra manna sem
setið hafa á Alþingi, skorti sjö vikur
í tírætt.
Andrés Eyjólfsson fæddist á
Kirkjubóli í Hvítársíðu 27. maí
1886. Foreldrar hans vom Eyjólfur
bóndi þar Andrésson bónda í Núps-
túni í Hranamannahreppi, síðar í
Syðra-Langholti Magnússonar og
konu hans, Guðrúnar Brynjólfs-
dóttur, bónda og hreppstjóra að
Selalæk á Rangárvöllum Stefáns-
sonar. Hann lauk búfræðiprófí frá
Hvanneyri vorið 1911, var í vinnu-
mennsku til 1912 er hann hóf bú-
skap í Síðumúla. Þar var hann bóndi
til 1957, átti þar síðan heimili til
æviloka.
Andrés í Síðumúla gegndi margs
konar trúnaðarstörfum jafnframt
búskap. Hann var hreppsnefndar-
maður frá 1913 og oddviti hrepps-
nefndar 1925—1966, í sóknamefnd
Síðumúlasóknar 1912—1967,
lengst af formaður. Hann var í
skólanefnd Hvítárbakkaskóla
1920—1931, formaður skólanefnd-
ar Reykholtsskóla 1930—1962 og
í byggingamefnd bamaskóla Mýra-
sýslu að Varmalandi 1951—1954.
Hann var stöðvarstjóri Landssíma
íslands í , Síðumúia 1921—1965.
Formaður eftirlitsnefndar opinberra
sjóða var hann 1935—1959 og átti
sæti í nefnd við samningu fmm-
varps um eyðingu refa og minka
1956. Hann var þingskrifari á
Alþingi 1921-1924 og 1928-1935
og skjalavörður Alþingis
1935—1951. Sumarið 1951 var
hann í kjöri fyrir Framsóknarflokk-
inn í aukakosningum til Alþingis í
Mýrasýslu. Hlaut hann kosningu
og sat á Alþingi til 1956, á fímm
þingum alls.
Andrés Eyjólfsson átti heimili í
Hvítársíðu ævilangt, bjó lengi stór-
búi í Síðumúla en gaf þó kost á sér
til tímafrekra starfa innan héraðs
og utan, svo sem æviferill hans, sem
hér hefúr verið rakinn, sýnir ljós-
lega. Hann var höfðingi í héraði og
rækti með vandvirkni og gjörhygli
hvert það starf sem honum var
falið. Innan veggja þessa húss starf-
aði hann vel og lengi, lengst sem
skjalavörður, en lauk störfum sínum
hér með setu í þingsölum fram til
sjötugs. Var hann þá öllum málum
hér gjörkunnugur og því vel búinn
undir þingmannsstörf.
Ég vil biðja háttvirta alþingis-
menn að minnast Andrésar Eyjólfs-
sonar með því að rísa úr sætum.
hefír þegar unnið gott starf. Þar
hafa komið fram margháttaðar
hugmyndir um athafnir og fram-
kvæmdir af hálfu kirkjunnar í tilefni
af þúsund ára afmæli kristnitök-
unnar,- Miða þessar hugmyndir
mjög að trúarlegri vakningu í
landinu. Þessar hugmyndir vom
ræddar á kirkjuþingi sl. haust og
skulu ekki gerðar að umræðuefni
hér.
Við þinglausnir í júní sl. vék
forseti sameinaðs þingis að kristni-
tökuafmælinu. Var þess þá getið,
að forsetar þingsins myndu taka til
athugunar með hveijum hætti
mætti af hálfu Alþingis minnast
þúsund ára afmælis kristnitökunn-
ar. Var þá gert ráð fyrir að forsetar
hefðu samráð við ríkisstjóm og
Þingvallanefnd um málið og sam-
vinnu við þjóðkirkjuna.
Síðan hafa forsetar Alþingis
hugað að því með hvaða hætti
Alþingi megi fyrir sitt leyti minnast
kristnitökunnar. Hafa þeir m.a.
tekið upp sameiginlega viðræðu-
fundi með kristnitökunefnd þjóð-
kirkjunnar um kristnitökuafmælið.
Eins og þjóðkirkjan mun minnast
kristnitökunnar með sínum hætti
svo hlýtur Alþingi að minnast þessa
atburðar á sinn hátt. Kirkjan mun
nota þetta tilefni til trúarvakningar
og eflingar kristni í landinu. Hver
verður þá hlutur Alþingis? Hvemig
ætlar Alþingi að nota tilefni þessa
merkisafmælis? Hafa ber í huga,
að ekki er aðalatriðið að halda há-
tíð í tilefni afmælis heldur nota
afmælið sem tilefnið til varanlegra
framkvæmda. Því er spurt.
Einkum hefír komið til tals, að
Alþingi noti tilefni þúsund ára
afmælis kristnitökunnar til ráðstaf-
ana og framkvæmda sem efla
mættu tengsl þess við hinn foma
þingstað. Slíkt mætti í senn treysta
Alþingi í þjóðarvitund og auka á
reisn þess.
Þá hefur m.a. komið fram sú
hugmynd, að reist verði á Þingvöll-
um hús Alþingis. þar væri þingsal-
ur, þar sem halda mætti hátíðafundi
í Alþingi þegar sérstök tilefni væm
til. Mætti hugsa sér að þingsetning
og þinglausnir fæm þar að jafnaði
fram. í byggingu þessari væm
húsakynni til guðsþjónustuhalds.
Þannig yrði á ný Alþingi og kirkja
samofín á Þingvöllum svo sem áður
var í 800 ár. Þar væri hús sem
hæfði Alþingi, sögu og náttúm
Þingvalla við Öxará, arfleifð íslend-
inga og þjóðmenningu. Margs þarf
að gæta áður en Alþingi ákveður,
hvort slíkt hús skuli reisa, hvar það
skuli standa, hverrar gerðar það
skuli vera og hveiju hlutverki það
skuli gegna.
Tími ákvarðana er ekki enn
kominn. Tillaga þessi til þingsálykt-
unar felur ekki í sér ákvarðanir um
aðgerðir eða framkvæmdir vegna
þúsund ára afmælis kristnitökunn-
ar. Tillagan er efnislega um það,
að Alþingi sé samþykkt, að forsetar
þess haldi áfram athugunum sínum
og viðræðum um kristnitökuaf-
mælið. Er þá gert ráð fyrir, að
forsetar hafí samráð við ríkisstjóm,
þingflokka og Þingvallanefnd um
það er málið varðar.
Jafnframt er þessi þingsályktun-
artillaga flutt til að leggja áherzlu
á, að Alþingi hafí mikilvægu hlut-
verki að gegna og megi ekki láta
sinn hlut eftir liggja, þegar minnst
verður merkustu löggjafar þess. Til
framkvæmda kepiur hins vegar
ekki fyrr en málið er af athugunar-
stigi og Alþingi hefír ákveðið, hvað
gera skuli af þess hálfu í tilefni
þúsund ára afmælis kristnitökunn-
ar.
Þó að Alþingi og þjóðkirkja noti
tilefni þúsund ára afmælis kristni-
tökunnar sitt með hvomm hætti
hljóta þessir aðilar að standa saman
að margs konar undirbúningi að
sameiginlegum hátíðarhöldum á
kristnitökuafmælinu. Við gemm
ráð fyrir að þjóðhátið verði árið
2000.
Flutningsmenn þessarar þings-
ályktunartillögu, forsetar og for-
menn þingflokka, leggja áherzlu á
mikilvægi þess að full samstaða
megi vera á Alþingi um það er
varðar þúsund ára afmæli kristni-
tökunnar. Tillaga þessi til þings-
ályktunar er til komin og undirbúin
með það í huga. Með tilliti til þess
er ekki lagt til að tillagan gangi til
nefndar að umræðu þessari lokinni.
Frumvarp um starfsmenn
þjóðkirkju:
Þrjú biskupsdæmi
— Fjölgiin starfsmanna
Fram hefur verið lagt frum-
varp til laga um starfsmenn þjóð-
kirkju íslands. Frumvarpið er í
fimm köflum og fimmtíu og niu
greinum. Fyrsti kaflinn fjallar um
presta, annar um starfsmenn
kirkjunnar og þjóðkirkjusöfnuði,
þriðji um prófasta, fjórði um bisk-
upa og biskupsdæmi og loks kafli
um stjórnvaldsreglur, gildistöku
og niðurfellingu eldri laga.
Fmmvarpið gerir ráð fyrir því að
biskupsdæmi verði þijú: Reykjavík-
urbiskupsdæmi (Reykjavík, Reykja-
nes, Vestfírðir), Skálholtsbiskup-
dæmi (Austurland og Suðurland) og
Hólabiskupsdæmi (Norðurland).
Biskup íslands fer síðan með yfír-
stjóm sameiginlegra mála þjóðkirkj-
unnar.
Meginefni frumvarpsins fjallar
um embættisgengi, störf og starfs-
hætti presta, prófasta og biskupa,
sem og annarra starfsmanna þjóð-
kirkju. Það er samið af kirkjulaga-
nefnd. Það hefur fengið umfjöllun
hjá ýmsum kirkjulegum stofnunum.
Það er lagt fram, óbreytt, að ein-
dreginni ósk kirkjuráðs, til kynning-
ar. I athugasemdum við fmmvarpið
segir þó að „ríkisstjómin geti ekki
samþykkt það óbreytt".
í rökstuðningi kirkjunnar manna
segir að „rökin fyrir fjölgun biskupa
með sjálfstæðu biskupsvaldi séu
bæði reist á sögulegum ástæðum
og mati á raunhæfum þörfum“.
Fmmvarpið gerir og ráð fyrir
því að kirkjan geti ráðið fleiri starfs-
menn en nú er heimild til, svo sem
ellimálafulltrúa, prest til sjúkra-
húsaþjónustu og fréttafulltrúa þjóð-
kirkjunnar.