Morgunblaðið - 12.04.1986, Side 45
145
MORGUNBLAÐIÐ, LA.UGARDAGUR 12. APRÍL1986
Páll, Morten og Magni taka við Silfurhljóðnemanum.
A-ha þrímenningamir
frá enn eina viðurkennin
Norsku þremenningamir A-ha
eiga miklum vinsældum að
fagna í poppheiminum um þessar
mundir. Þeir eru á ferð og flugi um
heiminn eins og við er að búast,
en dvelja nú í London þar sem þeir
eru að vinna að gerð nýrrar plötu.
Þeir segjast vera orðnir þreyttir á
ágangi blaðamanna en gáfu sér þó
tíma til að taka á móti sendinefnd
frá norska blaðinu Det Nye er færði
þeim viðurkenningu, „Silfurhljóð-
nemann". 90% lesenda er höfðu
látið í sér heyra töldu þremenning-
ana best að honum komna. Þeir
félagar hafa hlotið margs konar
titla og verðlaun en sögðu að þeim
þætti sérstaklega vænt um slíkar
sendingar frá föðurlandinu.
Sungið í
Silfur-
hljóð-
Marianne Mj&land nýkomin heim.
COSPER
os
9777
— Ef ég væri fullorðinn fengi ég listamannalaun en ekki
þetta.
— Ungur norskur læknir
nýkominn heim frá hinu
stríðshrjáða landi
Stríðshrjáð lönd forðast flestir,
en Marianne Mjáland, ungur
norskur læknir, er nýkomin heim
frá Afganistan, þar sem hún lagði
líf sitt í hættu er hún reyndi að
liðsinna fómarlömbum stríðsins,
h aðallega konum og bömum. Farar-
™ tæki hennar var reiðhjól og klædd
karlmannsfötum ferðaðist hún um
í 5 vikur, oft í skjóli myrkurs.
Fyrstu tvær vikumar með hjúkr-
unarkonu og skurðlækni en síðustu
þijár vikumar ein, ásamt túlk, leið-
sögumanni og tveimur lífvörðum
er allir vora vopnaðir. Þau fóra á
milli þorpanna og liðsinntu sjúkum
og særðum. Mikil leynd hvfldi yfir
ferðum þeirra og engir aðrir en
leiðtogar skæraliðanna áttu að vita
hvar þau voru niðurkomin. Oft skall
hurð nærri hælum en Marianne
segist reiðubúin til þess að halda
aftur til Afganistan til aðstoðar
þessari þjóð er hún metur svo
mikils.
Faðir hennar starfaði fyrir Sam-
einuðu Þjóðimar um skeið og hún
bjó f Kabúl, höfuðborg landsins í
tvö ár og kynntist þá landi og þjóð.
Aftur kom hún þangað fyrir tveim-
ur árum og svo nú í þriðja skipti.
Marianne er gift skurðlækni er
starfar við sama sjúkrahús og hún
og eiga þau tvær dætur.
Liðsinnti
fómarlömbum
stríðsins
í Afganistan
/■
Nýtt á íslandi
Loksins kominn einn m/öllu.
Alpen Kreuzer tjaldvagninn, 13 tommu dekk,
eldhús m/vaski og eldunartækjum, fortjald, sól-
skyggni, hemlar í dráttarbeisli.
Komið og skoðið frábæran tjaldvagn o.fl.
Sýning um helgina.
Opið 10—16 laugard. og 11 —16 sunnud.
Fríbýli sf.
Skipholti 5
Sámi 622740.
"" .................................................. . ""
Báru
verður haldin í dag laugardag 12. aprfl kl. 14 f
ALLIR
VELKOMNIR
MEÐAN
HÚSRÚM
LEYFIR
Blaðburóarfólk
óskast!
AUSTURBÆR
Þingholtsstræti o.fl.