Morgunblaðið - 12.04.1986, Qupperneq 54
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR12. APRÍL1986
>
Sund:
Kalottkeppnin
um helgina
Sundlandslið íslands hólt utan
á fimmtudagsmorgun til þátttöku
í Kalott-keppninni sem að þessu
sinni fer fram f Oulu f Finnlandi
nú um helgina. Alls háldu 11
sundmenn utan og er ætlunin að
sigra f þessu móti. ísland varð f
örðu sæti á þessu móti f fyrra
og nú á að bæta um betur.
Þeir sem héldu utan voru: Ingi-
björg, Arnardóttir, Þórunn Krstín
Pótursdóttir, Bryndis Ólafsdóttir,
Helga Sigurðardóttir, Hugrún Ól-
afsdóttir, Eðvarð Þ. Eðvarðsson,
Ragnar Guðmundsson, Magnús
Ólafsson, Tryggvi Helgason, Tóm-
as Þráinsson og Jóhann Björns-
son. Þjálfari landsliðsins er Guð-
mundur Harðarson og Friðrik Ól-
afsson er honum til aðstoðar. Ellen
Ingvadóttir er fararstjóri og mun
hún sitja Kalott fundinn sem hald-
inn er í sambandi við keppnina.
Skíði:
Ása og Jóhannes
Akureyrarmeistarar
Akureyri. *
ÁSA Þrastardóttir og Jóhannes
Baldursson urðu Akureyrar-
meistarar f stórsvigi í 13-14 ára
flokki, en keppni fór fram f Hlfðar-
fjalli um sfðustu helgi.
Úrslit urðu annars þessi, stulk-
urnarfyrst:
Ása Þrastardóttir Þór 1:25,92
Marfa Magnúsdóttlr KA 1:27,38
Ema Kóradóttir KA 1:29,30
Kriatrún Birgladóttir KA 1:31,18
Mundína Kriatinadóttlr KA 1:32,46
Og þá eru það strákarnir:
Jóhannes Baldursson KA 1:21,76
Vilhelm Þorstainsson KA 1:24,21
Viöar Einarsson KA 1:26,37
Erflngur Gudmundsson KA 1:25,59
Svarrir Ragnarsson Þór 1:27,46
Ævar Jónsson KA 1:27,92
Geir Gíslason KA 1:30,65
Eggert Eggertsson Þór 1:31,53
Jóhann Konráð Birgisson KA 1:42,25
Haukur Jónsson Þór 1:54,54
Ársbing ÍBA:
Knútur
áfram
formaður
Akureyri.
KNÚTUR Ottersted var endur-
kjörinn formaður íþróttabanda-
lags Akureyrar á ársþingi banda-
lagsins. Með Knúti í fram-
kvæmdastjórn voru kjörnir Hall-
grímur Skaptason frá íþróttafá-
laginu Þór og Gunnar Kárason
frá Knattspyrnufélagi Akureyrar.
Iþróttir helgarinnar
MIKIÐ verður um að vera f fþrótt-
um þessa helgina. Unglinga-
meistaramótið á skíðum á Isafirði
þar sem tæplega 200 keppendur
eru skráðir til leiks. íslandsmótið
f badminton, fimleikamót ungl-
inga og margt fleira. Hér á eftir
fer það helsta.
Badminton
Islandsmótið í Badminton verð-
ur haldið um helgina í Laugardals-
höllinni. Keppt verður á laugardag
og sunnudag. Fyrri daginn verður
forkeppnin en á sunnudaginn hefst
úrslitakeppnin klukkan 10 árdegis.
Þátttakendur verða um eitt hundr-
aötalsins.
Skfði
Unglingameistaramót íslands á
skíðum fer fram á ísafiröi. Mótið
hófst í gær og lýkur á morgun,
sunnudag. Bláfjallagangan fer
fram í dag og hefst kl. 14.00. Þetta
er þriðja gangan af fimm í trimm-
göngukeðjunni sem nefnist ís-
landsgangan. Keppnin hefst við
Borgarskálann í Bláfjöllum.
Fimleikar
Fyrsta mótið í almennum fim-
leikum verður í dag, laugardag, í
Digranesi í Kópavogi og hefst kl.
14.00. Mikill áhugi er fyrir þessu
móti, fyrsta mótið sem er barna-
og unglingamót í einstaklings-
greinum og hafa 370 keppendur
skráð sig til leiks. Keppendur koma
frá Akureyri, Flateyri, Vestmanna-
eyjum, Keflavík og úr hinum ýmsu
félögum af höfuðborgarsvæðinu.
Þetta er fjölmennasta fimleika-
keppni sem FSÍ hefur haldið.
Frjálsar íþróttir:
Iðnaðarbankahlaupið 1986 fer
fram á morgun, sunnudag og hefst
kl. 14.00. Rásmörk eru víða um
borgina og eru hlaupalengdir allt
frá 1,4 km upp í 20 km. endamark
er í Tjarnargötu fyrir framan Iðnað-
arbankann. Yngstu þátttakendurn-
ir hlaupa með Óskari og Emmu
kringum Tjörnina og fá allir viður-
kenningu sem Ijúka hlaupinu. Þeir
yngstu geta skráð sig klukkustund
fyrirhlaup.
Knattspyrna
Einn leikur verður í Reykjavíkur-
mótinu í meistaraflokki karla. KR
og Þróttur mætast á gervigrasinu
í Laugardal kl. 20.30 á sunnudags-
kvöld.
Keila
Um helgina verða úrslit í páska-
móti KVR. í dag hefst parakeppni
kl. 9 árdegis og einstaklingskeppn-
in kl. 1 eftir hádegi. Á sunnudag
kl. 16 verður síðan liðakeppni meö
þátttöku fimm liða. Búist er við
spennandi og jafnri keppni í öllum
greinum.
Ballskák
íslandsmótið í öðrum flokki
verður haldið í dag og á morgun
á Klapparstíg.
Matthías Matthíasson kemurfrá Bandaríkjun-
um til að leika með körfuknattleikslandsliðinu:
„Vona að ég standi mig“
í ÍSLENSKA körfuknattleiks-
landsliðinu sem leikur á Evr-
ópumeistaramótinu hár í
Reykjavík í næstu viku verður
einn leikmaður sem fslenskir
körfuknattleiksunnendur
þekkja lítið sem ekkert til. Hann
heitir Matthías Matthíasson, er
21. árs og afar hávaxinn — 2.02
m á hæð.
Matthías er Reykvíkingur og
lék sem unglingur með Val. Eftir
fyrsta ár í menntaskóla fór hann
til náms í Bandaríkjunum, eins
og svo margir hávaxnir körfu-
boitamenn á undan honum.
Hann nemur nú tölvu- og við-
skiptafræði við St. Cioud State
University í Minnesota. Yngri
bróðir hans, Magnús Matthías-
son, sem leikur með unglinga-
landsliðinu er einnig viö nám í
sama skóla.
„Já, ég hef æft vel undanfarin
ár“, sagði Matthías í spjalli við
Morgunblaðið. „Ég leik með liði
skólans, og æfi með því að sjálf-
sögðu, og í vetur hef ég einbeitt
mér að æfingunum. Hef setið af
mér þetta keppnistímabil, eins
og sagt er, þ.e. óg hef ekkert
spilað á opinberum mótum
vegna þess að samkvæmt regl-
um ytra varð ég að sleppa úr
einu keppnistímabili á þeim
þremur árum sem ég átti eftir
af náminu. Eg og þjálfari minn
töldum best að sleppa þessum
vetri úr í stað þess að þurfa að
sleppa öðru hvoru keppnistíma-
bilinu sem eftirer."
„Veturinn hefur því að miklu
leyti farið í að ná upp krafti og
úthaldi hjá mér. Æfingaprógram
þessara háskólaliða er geysilega
strangt, við æfum nánast dag-
lega í 11 mánuði á ári. Aðeins
einn mánuður er tekinn í frí, og
það var einmitt síðasti mánuður.
Ég þurfti því að æfa einn sfðustu
vikurnar, og fæ væntanlega ekk-
ert frí fyrr en eftir ár næst," sagði
Matthías hinn hressasti.
En þekkir hann nokkuð til
samherjanna í íslenska landsliö-
inu eftir 5 ár á erlendri grund?
„Já, ég lék með þessu liði í
Austurríki í fyrra og var svo hérna
heima um jólin og gat æft svolítið
með þeim þá. En það er óneitan-
lega alltaf erfitt að koma inn í lið
sem ekki þekkir leikstíl minn, og
þegar ég þekki ekki leikstíl hinna
leikmannanna. Þeir eru heldur
ekki vanir að vera með stóran
mann á miðjunni og þess vegna
er þetta ef til vill enn erfiðara.
En ég vona bara að ég standi
mig vel og standist þær kröfur
sem til mín eru gerðar."
Hvað tekur svo við? Ætlar
Matthías að reyna að komast að
hjá atvinnumannaliðum í Banda-
ríkjunum? „Ég efast nú um það.
Ég er kannski stór, en engir
tveir, og átján eins og Pétur. Eg
býst við að Ijúka mínu námi og
• Matthías á æfingu
koma svo heim. Námið er aðalat-
riðið. Ef til vill leik ég mér í körfu-
bolta þegar ég kem heim. Ég á
frekar von á því".
íslenska landsliðið leikur fjóra
leiki í C-riðli Evrópumeistara-
mótsins sem hér fer fram - við
Norðmenn, íra, Portúgali og
Skota. Keppnin hefst á þriðju-
daginn.
Pétur ekki með
á móti Houston
Frt Gunnari Valgeirsaynl, fréttamanni Morgunblaðsins I Bandarik)unum.
PÉTUR Guðmundsson kom ekk-
ert inná f leik Los Angeles Lakers
og Houston Rockets í Los Ange-
les á fimmtudagskvöldið. Leikur-
inn var mjög jafn og spennandi,
en lauk með naumum sigrl Lakers
117:113.
Ástæðan fyrir því að Pétur kom
ekkert inná í leiknum er án vafa
sú að nú er Mitch Kupchak aftur
kominn í slaginn eftir að hafa verið
meiddur um nokkurt skeið. Hann
lék mikið með á móti Houston.
Mitch Kuphak þessi er gamal-
reyndur jaxl, hann varð meistari
með Washington fyrir átta eða níu
árum og hefur feiknarlega reynslu.
Ekki er við öðru að búast en að
Kupchack verði notaður sem vara-
maður nr. 1 fyrir Kareen Abdul
Jabbar í úrslitakeppninni sem hefst
eftir rúma viku, og að hinir mið-
herjarnir tveir, Lucas og Pétur
Guömundsson verða að láta sér
nægja að sitja á bekknum í flestum
leikjanna sem eftir eru, nema í
þeim tilfellum sem Lakers ná alveg
öruggri forystu.