Morgunblaðið - 08.06.1986, Side 1
112SIÐUR B
STOFNAÐ1913
125. tbl. 72. árg.____________________________________SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 1986_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Forsetakosning'arnar
í Austurríki:
Skoðana-
kannanir
Waldheim
í hag
Belgrad, Júgóslavíu, og Vínarborg, Aust-
urríki. AP.
DAGBLAÐ í Belgrad birti í gær
þýðingu á þýskum herskjölum,
sem það taldi leiða í ljós, að
herdeild dr. Kurts Waldheim i
siðari heimsstyrjöldinni hefði
fyrirskipað fjöldaaftökur á júgó-
slavneskum föngum.
I ljósritum af serbo-króatísku
þýðingunni í blaðinu Vecemje
Novosti, er gefíð til kynna, að her-
deild I-C hafí gefið þessa fyrirskip-
un, meðan stóð á árásaraðgerðum
þýska hersins í Kozara-fjöllum
1942.
Waldheim hefur viðurkennt að
hafa gegnt herþjónustu í þessari
deild, en sagt, að starf hans hafí
einungis verið að staðfesta skjöl um
hemaðaraðgerðir. Hann hafí ekkert
umboð haft til að gefa skipanir.
I einu slq'alanna segir: „Eftirfar-
andi 49 skæmliðar, sem vistaðir em
í fangelsi í Banja Luka, skulu skotn-
ir snemma morguns 2. júlí.“
Waldheim var sæmdur heiðurs-
merki eftir aðgerðimar í Kozara-
flöllum sumarið 1942, þegar skæm-
liðar freistuðu þess að veita viðnám
gegn áhlaupi Þjóðveija og banda-
manna þeirra. Segir blaðið, að
Waldheim hafí verðskuldað orðuna,
en hann kveður það hafa verið hefð,
að allir liðsforingjar þýska hersins
í Júgóslavíu fengju slfkt heiðurs-
merki.
Forsetakosningamar í Austurríki
fara fram í dag, sunnudag. Þrátt
fyrir mótmælaaðgerðir gegn Wald-
heim, bæði heima fyrir og erlendis,
sýna síðustu skoðanakannanir, að
hann hefur umtalsvert forskot á
mótframbjóðanda sinn, Kurt Steyr-
er.
Norður-Kórea:
Val á eftir-
manni staðfest
Tókýó. AP.
HATTSETTUR embættismaður,
sem á sæti í stjórnmálaráði
kommúnistaflokks Norður-
Kóreu, staðfesti í gær að eftir-
maður Kims II Sungs, forseta,
yrði sonur hans Kim Jong II.
Fyrmm utanríkisráðherra Norð-
ur-Kóreu, Yomiuri Shimbun, sagði
að sonur Kim II Sungs hefði þá
leiðtogahæfilega og virðingu, sem
þyrfti til að framfylgja stefhu for-
setans að honum látnum.
Þetta er í fyrst sinn sem svo
háttsettur embættismaður staðfest-
ir þetta, enda þótt kunnugt hefði
verið um áhuga Kim II Sungs á
því að sonur hans tæki við völdum
þegar hann félli frá. Ef Kim Jong
II tekur við af föður sínum yrði það
í fyrsta skipti í kommúnistaríki, sem
leiðtogaembættið gengi í erfðir.
Morgunblaoið/Sigurgeir Jónasson
Hofsjökull viðHeimaey
Hofsjökull, eitt stærsta skip íslenska flotans, siglir ina í Vestmannaeyjahöfn við Ystaklett. Nýja
hraunið er í forgrunni. Efni Morgunblaðsins í dag er að mestu leyti helgað sjómannadeginum,
viðtöl eru við sjómenn um allt land.
Áköf leit að kafbát í
sænska skerjagarðinum
Stokkhólmi. AP.
SÆNSK yfirvöld hafa varað skemmtisiglingamenn við því að sigla
um skerjagarðinn norðaustur af Stokkhólmi, eftir að grunur vaknaði
um, að erlendur kafbátur væri þar á ferli neðansjávar. Jafnframt
var frá því skýrt, að haldið yrði uppi mikilli leit um helgina með
skipum og flugvélum að hugsanlegum kafbátum á þessum slóðum.
Merki komu fram á mælum um
framandi hlut neðansjávar er
sænski flotinn var að æfíngum á
þessu svæði í vikunni. Komu merki
þessi fram nú síðast á föstudag
ekki langt undan eynni Söderarm,
þar sem sænski herinn hefur komið
upp margs konar hemaðarmann-
virkjum og aðvörunartækjum.
Gerðist þetta á svæði ekki fjarri
þeim stað, þar sem sovézkur kaf-
bátur strandaði 1981.
Leit var strax hafín að hugsan-
legum kafbát á svæðinu og sérstök-
um sprengjum beitt til þess að reyna
að hrekja hann upp á yfirborðið.
Enda þótt leitin hafí ekki borið
neinn árangur til þessa er áformað
að halda henni áfram fram yfír
helgi og verða bæði notuð skip og
flugvélar.
„Við eru ekki vissir um hvort
þetta var kafbátur," var haft eftir
H.G. Wessberg, talsmanni sænska
flotans, en „leitinni verður haldið
áfram til öryggis".
Hemaðarsérfræðingar halda því
fram, að sovézkir kafbátar fari inn
í sænska skerjagarðinn til njósna
og í leit að neðansjávarsvæðum þar
sem þeir ættu auðvelt með að felast
á átakatímum. Talið var, að kaf-
bátar hefðu verið þama á ferð í
ágúst í fyrra og var þá m.a. varpað
djúpsprengjum en árangurslaust.
Geta kynhor-
món læknað
krabbamein í
æxlunarfær-
umkvenna?
Boston, Bandaríkjunum. AP.
VÍSINDAMENN hafa ein-
angrað hormón, sem hingað
til hefur reynst erfitt að
henda reiður á. Hormón þetta
stuðlar að því að ákvarða
kynferði einstaklinga, en
kann í framtíðinni að koma
að haldi við að lækna krabba-
mein í æxlunarfærum kvenna.
Vísindamennimir sögðu á
fímmtudag, að þeim hefði tekist
að finna erfðavísinn, sem stjóm-
aði framleiðslu hormónsins. Því
yrði unnt að hefla framleiðslu
þess í stóram stfl. Er þetta í
annað skipti, sem tekst að fram-
leiða sjaldgæf hormón úr
mannslíkamanum með aðstoð
líftæknifræðinnar.
Ef hormónið hefur þau áhrif,
sem vísindamenn vonast til, mun
það bæla niður eða lækna
krabbamein í eggjastokkum,
leghálsi, legi, eggjaleiðuram og
leggöngum.
Dr. Patricia K. Donahue, sem
starfar við Massachusetts Gen-
eral Hospital, sagðist binda
miklar vonir við að hormónið
yrði „mjög góður kostur til lyfla-
meðferðar á krabbameinsvef án
þess að valda spjöllum á öðram
framum“.
Hún sagði, að unnt yiði að
færa tilraunir þar að lútandi út
fyrir veggi rannsóknastofanna
innan tveggja ára. Þangað til
verður efnið ekki fáanlegt á
markaði, ekki einu sinni til til-
raunameðferðar.
Flest þeirra hormóna, sem
framleidd hafa verið hingað til,
hafa haft þau áhrif að örva
ónæmiskerfí líkamans í barátt-
unni við sjúkdóma, en nýja
hormóninu, sem kallað hefur
verið „MIS“, er ætlað að ráðast
gegn ákveðinni ve^artegund.
Donahue sagði, að MIS kynni
einnig að koma að gagni sem
getnaðarvamalyf.