Morgunblaðið - 08.06.1986, Page 9
awr fyfOiwjnAomwj? .öKLAjgMupaoíí
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 1986
§
HUGVEKJA
Kvöldmáltíðin
mikla
- eftir ÓSKAR JÓNSSON
I„Eftir að Jesús kom inn í lífhans ákvað
hann að gefa fátœkum helming eigna
sinna og borga fjórfalt þeim er hann
hafði prettað. Hann þráði að fá að
eignast hlutdeild í Guðsrtki. “
Lúk. 14,16-24
Jesús var í mat hjá fariseahöfð-
ingja og það á hvfldardegi. Það
voru sjálfsagt ekki allir vinveittir
honum, sem voru við máltíðina,
því það stendur skrifað: „og höfðu
þeir gætur á honurn". Þeir voru
alltaf að leita að tækifæri til að
kæra Jesúm. Það kom þama sjúk-
ur maður og Jesús læknaði hann,
þó svo að það væri hvfldardagur.
Jesús vissi hvað fariseamir hugs-
uðu og segir við þá: „Nú á einhver
yðar asna eða naut, sem fellur í
bmnn, mun hann ekki óðara
draga það upp, þótt hvíldardagur
sé?“ Þeir gátu engu svarað þessu.
Jesús neytti matar með mörgu
mismunandi fólki. Honum var
boðið í hús fariseanna og hann
fór inn til tollheimtumanna og
syndara, sem kallaðir vom. Það
var mun auðveldara að hjáipa
þeim. Til dæmis gjörbreyttist
Sakkeus yfírtollheimtumaður.
Aður hugsaði hann mest um að
græða fé og var hann orðinn einn
af ríkustu mönnum bæjarins. Eftir
að Jesús kom inn í líf hans ákvað
hann að gefa fátækum helming
eigna sinna og borga flórfalt þeim
er hann hafði prettað. Hann þráði
að fá að eignast hlutdeild í Guðs-
ríki.
Þegar Jesús var í boði hjá Sím-
oni farisea kom bersyndug kona
og féll til fóta Jesú og smurði
fætur hans með dýrmætu smyrsli
og vætti fætur hans með támm
sínum og þerraði með hári sínu.
Þegar fariseinn sá þetta, sagði
hann við sjálfan sig: „Væri þetta
spámaður, mundi hann vita, hver
og hvflík sú kona er, sem snertir
hann, að hún er bersyndug."
Jesús vissi hvað Símon hugsaði
og segir við hann: „Símon, ég hef
nokkuð að segja þér.“ Hann segir
honum ýmislegt sem honum er
ábótavant, en við konuna sagði
hann: „Syndir þínar em fyrirgefn-
ar, trú þín hefur frelsað þig, far
þú í friði.“
Jesús sagði við gestgjafa sinn,
fariseann, að hann ætti ekki að
bjóða í veislu til að fá endurgjald:
„Þegar þú gjörir veislu, þá bjóð
þú fátækum og örkumla, höltum
og blindum, og munt þú sæll
verða, því þeir geta ekki endur-
goldið þér. En þú færð það endur-
goldið í upprisu réttlátra."
Þegar einn þeirra, er að borði
sátu, heyrðu þetta, sagði hann við
Jesúm. „Sæll er sá, sem neytir
brauðs í Guðs ríki.“ Jesús sagði
við hann: „Maður nokkur gjörði
mikla kvöldmáltíð og bauð mörg-
um. Er stundin kom, er veislan
skyldi vera, sendi hann þjón sinn
að segja þeim, er boðnir vom:
„Komið, nú er allt tilbúið." En
þeir tóku allir að afsaka sig einum
munni og sögðust ekki geta komið
og það olli veitandanum sámm
vonbrigðum.
Þegar Jesús talar um boðs-
gestina, sem höfnuðu boðinu, á
hann sjálfsagt við gyðingaþjóðina,
að hluta, og leiðtoga hennar. I
upphafi Jóhannesarguðspjalls
stendun „Hann (Jesús) kom til
eignar sinnar, en hans eigin menn
tóku ekki við honum." Jóh. 1,11.
Um íbúa Jerúsalems sagði Jesús:
„Jerúsalem, Jerúsalem! Þú, sem
líflætur spámennina og grýtir þá,
sem sendir em til þín! Hversu oft
vildi ég safna bömum þínum eins
og hænan ungum sínum undir
vængi sér og þér vilduð eigi.“ Lúk.
13,34.
Þegar boðsgestimir vildu ekki
koma í kvöldmáltíðina miklu sagði
húsbóndinn við þjón sinn: „Far
þú fljótt út á stræti og götur
borgarinnar og leið inn hingað
fátæka, örkumla, blinda og
halta... Far þú um brautir og
gerði og þrýstu þeim að koma
inn, svo að hús mitt fyllist."
Haltir, blindir, þreyttir, þjáðir,
þungum syndum blaðnir menn,
öllum boðið eríJesú opinn faðm.
Snert sem konan fald hans fata,
færíst allt þí skjótt / lag.
Fallna menn afflokkum öllum
frelsa vill hann enn í dag.
(Sigurfajðra Sveinsson þýddi.)
Það mun verða mikill fagnaður
á himnum. Jesús segir í sambandi
við það: „Þá munu menn koma
frá austri og vestri, frá norðri og
suðri og sitja til borðs í Guðs ríki.“
Lúkas 13,29.
Guðs ástvinir innan skamms
sér una við Jesú hlið.
Úr sérhverri átt þeir safnast til Hans
ogsitja þar borð Hans við.
Þeir horfa á augtit Hans
íhimneskrí morgundýrð,
taka þáttísælum söng,
þar sorg ei finnst né rýrð.
(Amanda Sandberg)
Enn er biðtími og hann eiga
kristnir menn að nota til að bjóða
í veisluna.
Á síðasta blaði Biblíunnar
standa þessi orð: „Og andinn
(heilagur andi) og brúðurin (söfn-
uður Krists) segjæ „Kom þú!“ Og
sá sem heyrir segi: „Kom þú!“
Og sá sem þyrstur er, hann komi.
Hver sem vill, hann fær ókeypis
lífsins vatn.“
^ FJÁRFESriNCARFÉlACIÐ
VERÐBREFAMARKAÐURINN
Genqiðidaq Markaósfrettir
AHar tölur miðast við ávöxtun spamaðarfomia sem stóðu til boða 17. maí 1985, og hafa staðið
óhreyfð síðan. Ávöxtun er í öllum tilfellum án innlausnargjalds eða endursöluþóknunar.
fjármál þín - sergrein okkar
Fjárfestingarfélag íslands hf., Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík. © (91) 28566, © (91) 28506 slmsvari allan sólarhringinn
Dæmi um ávöxtun. Helstu spamaðarform. Frá 17. maí 1985 — 17. maí 1986.
Kjarabréf Bankabréf Ríkisskuldabréf Bundin bankabók
Ársávöxtun 54% 42% 37% 33%
Ávöxtun umfram verðbólgu 21% 11% 7% 4%
Veðskuldabréf - verðtryggð Veðskuldabréf - óverðtr.
Sölugengl m.v. Lánst. Sölugengl m/v.
mlsm. ávöxtunar- 1 afb. mism. nafnvexti
2 afb. á árl vextir HLV kröfu áári 20% HLV 15%
12% 14% 16% 1 ár 89 84 85
4% 95 93 92 2 ár 81 72 76
2 ár 4% 91 90 88 3ár 74 63 68
3 ár 5% 90 87 85 4 ár 67 56 61
dÁr *;% 82 5ár 62 50 56
5 ár 5% 85 82 78 KJARABRÉF
5% 83 79 76
7 ér 5% 81 77 73 Gengi pr. 6/6 1986 = 1,590
8 ár 5% 79 75 71 Nafnverö Söluverð
9ér 5% 78 73 68
10 ár 5% 76 71 66 5.000 7.950
50.000 79.500