Morgunblaðið - 08.06.1986, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 08.06.1986, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ1986 Á flótta með morð fjár frá Norður-Kóreu SuÖur-kóreskt kvikmyndafólk flýr átta árum eftir að sonur Kim II Sungs rœndi því. uður-Kóreskur kvikmyndaleikstjóri, Shin San Ok, og kona hans, leikkonan Choi Un Hui, hurfu með dularfullum hætti í Hong Kong fyrir átta árum, en skutu nýlega upp kollinum í Baltimore og sögðu að þeim hefði verið rænt að skipun sonar Kim II Sungs, forseta Norður-Kóreu. Sonur Kim 11 Sungs, Kim Jong 11, er nú talinn valdamesti maður kommúnistaflokksins í Norður- Kóreu og líkiegasti arftaki fðður síns. Hann hefur mikinn áhuga á kvikmyndum, þótt ekki hafí verið kunnugt um það fyrr. Stór sýning- arsalur er á heimili hans og hann á 20.000 kvikmyndir. Suður-kóresku hjónin segja að áhugi Kims yngra á kvikmyndum og eflingu kvikmyndaiðnaðar í Norður-Kóreu hafi valdið því að hann lét ræna þeim með hálfs árs millibili og færa þau til Pyongyang, höfuðborgar Norður-Kóreu, þar sem hann hafí beðið þau um aðstoð við norður-kóreska kvikmyndagerð. Saga Shins og Chois er lygilegri en nokkurt kvikmyndahandrit og því hafa sumir dregið hana í efa. Hjónin eru lítt kunn á Vesturlönd- um, en hafa notið mikillar hylli í Suður-Kóreu og urðu einnig mjög vinsæl í Norður-Kóreu þegar þau komu þangað. Shin var eitt sinn helzti kvikmyndaframleiðandi Suð- ur-Kóreu og framleiddi rúmlega 200 kvikmyndir, þar af nokkrar sem unnu til verðlauna. Þegar Shin og Choi hurfu 1978 töldu ýmsir að þau hefðu flúið vegna fjárhagserfiðleika. shin virt- ist ekki hafa gert eina einustu kvikmynd í þijú ár. Choi, sem er 54 ára og fímm árum yngri en maður hennar, var talin eins fögur og góð leikkona og Elizabeth Taylor þegar hún var upp á sitt bezta. Choi segist hafa neitað að eiga nokkurt samstarf við Kim Jong 11 eftir ránið. Þegar Shin hafði einnig verið færður til Pyongyang var honum sagt að kona hans væri lát- in, en hann neitaði einnig að hjálpa Norður-Kóreumönnum. Shin reyndi tvívegis að flýja og eftir síðari tilraunina var hann hafður í haldi í fjögur ár í „Fang- elsi nr.6“ skammt frá Pyongyang ásamt 2.000 öðrum pólitískum föngum. Þegar hann og kona hans fengu að hittast á ný í marz 1983 samþykktu þau að lokum að taka þátt í starfí Kim Jong Ils, en þau reyndu alltaf að finna einhveija leið til að flýja saman. Skemmtisiglingf Ótrúleg saga Shins og Chois hófst 1977. Shin hafði misst leyfí til að stjóma gerð kvikmynda í Suður-Kóreu vegna þess að hann átti í útistöðum við suður-kóresku leyniþjónustuna. Leyniþjónustan tilkynnti Park Chung Hee þáver- •• Onnur bátsferð Shin sagði að þegar kona sín hefði ekki komið aftur til Suður- Kóreu hefði hann hringt í mann, sem hún hafði gist hjá. „Hann sagði mér að hann gæti ekki talað við mig í síma og bað mig að koma til HongKong." Hann fór til Hong Kong og milli- göngumaðurinn sagði honum að kona hans væri „horfin". Hann varð einskis annars vísari. Shin fór aftur til Hong Kong í júlí 1978, sjö mánuðum eftir að konu hans var rænt. Þegar hann var á leið til kvöldverðar í hóteli við Repulse-flóa ásamt Kóreu- manni, sem seinna reyndist vera norður-kóreskur erindreki, stöðv- uðu nokkrir menn bifreið hans. Einn mannanna var vopnaður hnífi. Þeir settu poka yfír höfuð honum og svæfðu hann með klóróformi, eða einhveiju álíka. Hann var einnig fluttur með bát út í skip, sem sigldi með hann til Norður-Kóreu. Þegar hann spurðist fyrir um konu sína var honum sagt að Suður-Kóreumenn hefðu myrt hana. „Ég trúði því ekki, því að hún þekkti Park forseta mjög vel og hann hafði enga ástæðu til að myrða hana,“ sagði hann. Ekki er ljóst hvers vegna Norð- ur-Kóreumenn leyfðu honum ekki að hitta konu sína um leið og hann var kominn til Norður-Kóreu, en saga hans varð margslungin þegar hann reyndi tvívegis að flýja. andi forseta að hann væri þátttak- andi í samsæri gegn ríkisstjóminni ásamt ungum kvikmyndaleikstjór- um. Um þetta leyti var Choi sagt að kínverskur kaupsýslumaður í Hong Kong vildi fjármagna kvikmynd fyrir hana. Hún bjó ekki með manni sínum um þær mundir og stjómaði leikskóla í Seoul. Hún fór til Hong Kong og 14. janúar 1978 sagði henni einhver, sem hafði starfað fyrir mann henn- ar, að kaupsýslumaðurinn væri ekki í nýlendunni, en hún skyldi bíða. Kóresk kona, sem seinna reyndist vera erindreki Norður-Kóreu- manna, fór með hana í skemmtiferð um borgina. Þegar þær voru við Repulse-flóa hittu þær hóp manna, sem virtust kannast við Choi og lögðu til að hún færi með þeim í „stutta" báts- ferð. Choi var því andvíg í fyrstu, en lét til leiðast. „Ég var ókunnug og rataði ekki aftur á hótelið," sagði hún._ „Ég gerði mér grein fyrir því að báturinn stefndi beint á haf út,“ sagði Choi. „Ég varð óróieg. Ég hugsaði með mér að mér hlyti að hafa verið rænt. Ég hugsaði um peningana í handtöskunni. Ég spurði konuna hvað væri á seyði, en hún sagði ekkert og keðju- reykti." Einn mannanna, sem virtist vera leiðtogi þeirra, sagði við Choi: „Við förum beint í flasið á Kim 11 Sung.“ „Ég skildi ekki alveg hvað hann átti við,“ sagði hún. „Hann endur- tók setninguna. Mér leið illa, mér fannst eins og ég væri að missa allan mátt. Ég féll í ómegin." Hún vaknaði við það að mennim- ir báru hana um boiö i flutningaskip á rúmsjó. Hún var færð í skipstjóra- klefann og hafðist þar við unz skipið kom til Nampo, hafnarborgar skammt frá Pyongjang. Þegar hún kom þangað, snöktandi og að yfir- liði komin, beið Kim Jong II hennar á bryggjunni. Hún fékk að dveljast í húsi, sem hann hafði búið í, og var hvað eftir annað beðin um að vinna fyrir Norður-Kóreumenn, en hún neitaði því alltaf. Choi og Shin segja frá reynslu sinni: Utlagar semstruku. „Hinn ástsæli leiðtogi“ Kim Jong II: vildi efla kvikmyndaiðnaðinn í Norður-Kóreu. Samvinna Shin var hafður í herbergi með um 60 öðmm pólitískum föngum í „Fangelsi nr.6“ Meirihluti fang- anna, sem voru 2.000 talsins, vann við námagröft, en 60-menningamir, sem vom í herberginu með honum, þurftu ekki að vinna líkamleg störf. Matur var skorinn svo við nögl að við lá að fangamir syltu. Þeir fengu aldrei kjöt nema á nýársdag og virka daga fengu þeir gras, salt og skál með hrísgijónum og maís. í marz 1983 batnaði fæði Shins allt í einu og farið var með hann í veizlu í aðalstöðvum miðstjómar- innar, þar sem hann frétti í fyrsta skipti að kona hans væri á lífi. Hún hafði spurzt fyrir um hann og alltaf fengið þau svör að hann mundi koma til Norður-Kóreu, en henni var aldrei sagt að hann væri í raun og vem þangað kominn. „Kim Jong II bað mig að vera kvikmyndaráðunaut sinn og sagði: Við biðjumst velvirðingar á því sem gerzt hefur til þessa," sagði Shin. Seinna sagði Kim Shin og konu hans að hann hefði fyrirskipað brottnám þeirra. Choi sagði að hún hefði aldrei sætt líkamlegum misþyrmingum og aldrei verið neydd til að vinna, en hún varð að mæta tvisvar í viku á „heilaþvottafundi". Þegar þau samþykktu að lokum að hjálpa Norður-Kóreumönnum við kvikmyndagerð 1983 fengu þau að senda vini sínum í Suður-Kóreu hljóðritun með skilaboðum um að þau væm á lífi. Þau gerðu sjö kvik- myndir fyrir Norður-Kóreumenn og Kim Jong II útvegaði allt nauðsyn- legt fé til kvikmyndagerðarinnar. Shin segir að þau hafi gert kvik- myndimar í þeim eina tilgangi að öðlast tiltrú Kims og fá tækifæri til að flýja.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.