Morgunblaðið - 08.06.1986, Qupperneq 72

Morgunblaðið - 08.06.1986, Qupperneq 72
SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Mikil eftir- spurn eftir saitfiski 25.000 lestir þegar fluttar utan á árinu ÚTFLUTNIN GUR á saltfiski hefur gengið mjög vel og í byijun júní höfðu rúmlega 25.000 lestir verið fluttar utan. Alls hefur verið samið um sölu á rúmlega 30.000 lestum af saltfiski á árinu. Markaðirnir eru sterkir og eftir- spurn eftir saltfiski mikil. Að sögn Magnúsar Gunnarsson- ar, framkvæmdastjóra Sölusam- bands íslenzkra fiskframleiðenda, hafa afskipanir verið óvenju örar undanfarið, en þó settu verkföll hér heima og á Spáni strik í reikninginn. Magnús sagðist búast við örum WB*fskipunum áfram á næstu vikum. Um þessar mundir væri vertíðar- framleiðslan að fara og lítið eftir af henni. Síðan yrði nýrri fram- ieiðslu afskipað jafnóðum og hún yrði útflutningshæf. Mikil eftir- spum væri eftir söltuðum þorsk- flökum og búið væri að semja um sölu á verulegu magni. Tækist að uppfylla þá samninga yrði um metframleiðslu á söltuðum þorsk- flökum að ræða á þessu ári. ^ Morgunblaðið/EFI GROÐ URSETT OG FEGRAÐ Fegrunarvika hófst í Reykjavík í gær og hefst í Hafnarfirði á morgun. Ennfremur var „skógardagur“ í gær og voru landsmenn þá hvattir til að taka höndum saman með skógræktarfélögum í sínum heimahéröðum. Þessar myndir voru teknar er borgarfulltrúar með borgarstjóra í broddi fylkingar gáfu íbúum tré við Gerðuberg í gærmorgun. Seljum „fluglax“ fyrir Fær- eyinga FINNBOGI Kjeld og Hafeldi hf. hófu fyrir tveimur vikum sölu á færeyskum eldislaxi í Bandaríkj- unum. Flogið er með laxinn frá Færeyjum til Keflavíkur og það- ppm fer hann með Flugleiðum til ’ New York. 2 lestir fóru vestur um haf í fyrstu vikuna, 4,5 lestir í þeirri síðustu og búizt er við stöðugri aukingu er á sumarið líður. TF JET, þota Þotuflugs hf., hefur meðal annarra flogið með laxinn milli Færeyja og Is- lands, en Flugleiðir séð um flutn- ingana vestur um haf. Finnbogi Kjeld sagði í samtali við Morgunblaðið, að samvinna um þessa sölu hefði tekizt þar sem Hafeldi hefði náð í kaupendur og hann í laxinn, en Færeyingar ættu mikið af eldislaxi. Nú væri verið að selja fyrir Star Saimon í Funn- ingsbotni, en það fyrirtæki ætti á - miili 400 og 500 lestir af laxi sem slátrað yrði í sumar og haust. Auk þess væru möguleikar á söiu fyrir fleiri færeyskar eidisstöðvar. Fyrst í stað væri flugið notað við flutninga milli Færeyja og Keflavíkur. í Morgunblaðið/Einar Falur fyrstu vikunni hefðu Flugleiðir flutt 2 lestir á milli, en vegna þess, að áætlun þeirra hentaði ekki nægi- iega vel hefði Þotuflug verið fengið til flutninganna í þessari viku og hefði það gengið mjög vel. Búizt væri við vaxandi magni í sumar og yrði laxinn þá fluttur sjóleiðina til Islands með Norrönu. „Við erum að ryðja okkur leið inn á markaðinn í Bandaríkjunum með þessum hætti. Nú styttist í það, að stöðvamar hér fari að þurfa á þessum markaði að halda og þá er mikiivægt að hafa náð fótfestu þar í stað þess að þurfa að eyða dýr- mætum tíma í markaðsleit," sagði Finnbogi Kjeld. Mannaferðir við fálkahreiður Reykjanesi. í FYRRADAG barst lögreglunni á ísaflrði tilkynning um grun- samlegar mannaferðir á varp- slóðum fálka í Mjóafirði við ísa- fjarðardjúp. Lögreglan fór á vettvang og gómaði þar þijá Englendinga sem höfðu m.a. í fórum sínum fullkominn útbúnað til bjargsigs. Mennimir höfðu einnig safnað ýmsum fuglafyöðrum, og vísuðu þeir lögreglumönnunum á fálka- hreiður sem þeir kváðust hafa verið að skoða. Sögðust þeir vera nátt- úru- og fuglaskoðarar. Lögreglan lagði hald á búnað mannanna og vegabréf meðan frekari rannsókn fer fram hjá rannsóknarlögreglunni á ísafirði. Björg. Utflutningur SH til Japan: Þegar orðinn meiri en allt síðasta ár - munar mestu um mikla aukningu á loðnu og loðnuhrognum VERULEG aukning hefur orðið á sjávarafurðasölu Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna til Japan á þessu ári. Þegar hefur meira verið selt til Japan en allt árið í fyrra. Mestu munar um mikla aukningu á sölu loðnu og loðnuhrogna. Benedikt Guðmundsson, einn framkvæmdastjóra SH, sagði í samtali við Morgunblaðið, að allt síðasta ár hefði Sölumiðstöðin selt 5.500 lestir af sjávarafurðum til Japan, en 1. júní síðastliðinn hefði salan verið orðin 6.300 lestir. Fyrir næstu mánaðamót væri búizt við að um 7.000 lestir yrðu famar þangað á vegum SH. Mestu munaði um verulega aukningu á framleiðslu og sölu á loðnu og loðnuhrognum. Nú hefðu verið seldar 2.800 lestir af hrognum og 1.800 lestir af heilfrystri loðnu, sem væri miklu meira en á síðasta ári. Þetta væru samtals 4.600 lestir, en auk þessa hefði talsvert verið selt af karfa til Japan og væri þar ennfremur aukning á. Loks mætti nefna það, að talsvert magn af grálúðu væri að fara austur, en Sölumiðstöðin hefði fyrst selt grálúðu til Japan árið 1984. Benedikt sagði ennfremur, að karfinn og grálúðan væru seld heilfryst, hausskorin og slógdregin til Japan og gæfí það sæmilega afkomu, þó auðvitað mætti verðið vera hærra. 75 tillögur frá Norðurlöndum bárust í samkeppni um byggingu tónlistarhúss íslenskur arkitekt hlaut fyrstu verðlaun ALLS bárust 75 tillögur í samkeppni um tónlistarhús á íslandi, þar af 25 frá Svíþjóð, 19 frá íslandi, 15 frá Danmörku, 13 frá Noregi, 4 frá Finnlandi og einn höfundur óskaði nafnleyndar. Dómnefnd var sammála um að fyrstu verðlaun skyldi hljóta Guðmundur Jónsson, arkitekt í Noregi, og aðstoðarmaður hans, Gísli Sæmundsson, arkitekt, ásamt nokkrum Norðmönnum. Fyrstu verðlaun eru 1540 þúsund krónur. Önnur verðlaun hlutu arkitekt- amir Christan Karlsson og Lars Clausen frá Danmörku og komu 830 þúsund krónur í þeirra hiut. Þriðju verðlaun hlutu arkitektam- ir Dan Cristiansen og Kjær & Richter frá Danmörku. Síðast- nefndu arkitektamir hafa teiknað tvö síðustu tónlistarhús Norður- landa, í Bjömeborg í Finnlandi og Arósum í Danmörku. 710 þús- und krónur komu í þeirra hlut. Menntamálaráðherra, Sverrir Hermannsson, afhenti verðlaun við hátíðlega athöfn í Listasafni háskólans í gær fyrir hönd Sam- taka um byggingu tónlistarhúss, að viðstöddum forseta Islands. Að því loknu opnaði Davíð Odds- son, borgarstjóri, sýningu á öllum tillögunum. Dómnefnd var skipuð sjö aðilum frá Bretlandi, Finn- landi, Svíþjóð og Islandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.