Morgunblaðið - 31.07.1986, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986
27
Thorleif Omtveit skógræktarstj óri
Þelamerkurfylkis:
Gaman að sjá hinn mikla
áhuga Islendinga á skógrækt
SEXTÁN stjórnarmenn Skóg-
ræktarfélags Þelamerkurfylkis
eru meðal þeirra Norðmanna
sem hingað komu. Þeir munu
fara hringferð um landið ásamt
Sigurði Blöndal skógræktar-
stjóra og skoða skógræktar-
girðingar og skóglendi á
Islandi. Morgunblaðið ræddi
stuttlega við Thorleif Omtveit
fylkisskógræktarstjóra á Þela-
mörk.
Thorleif sagðist hlakka mjög til
ferðarinnar og vonaðist til þess að
hún mætti reynast honum lær-
dómsrík. Ástæðan fyrir komu
þeirra er fyrst og fremst sú, að
eftir þrjú ár mun hópur íslendinga
dveljast á Þelamörk við skógrækt-
arstörf.
Að sögn Thorleifs ægir á Þela-
mörk saman ótal fyrirbrigðum
náttúru og er það_ von þeirra, að
þeir megi miðla Islendingum af
reynslu sinni í skógrækt, bæði við
ströndina og upp til fjalla.
300 félagar eru í Skógræktarfé-
Morgunblaðiö/Etnar i'alur
Thorleif Omtveit skógræktarstjóri Þelamerkur: Nauðsynlegt að
skapa vinatengsl við íslenska skógræktarmenn.
lagi Þelamerkur. Á vegum félags-
ins er starfandi garðyrkjuskóli, og
sjá þeir einnig um að útvega fólki
fræ og græðlinga af sérstaklega
góðum tijám.
Thorleif fannst það sérlega at-
hyglisvert, hversu áhugi á skóg-
rækt væri mikill á íslandi, og væri
t.d. ekki laust við að hann öfund-
aði starfsfélaga sína hjá Skóg-
ræktarfélagi Reykjavíkur af
félagatali þeirra, en þeir eru tæp-
lega 1.200.
Kristian Lövenskjold
framkvæmdastj óri
Skógræktarfélags Noregs:
Mikill áhugi á
skógræktarf erð-
um til Islands
MEÐAL Norðmannanna sem til íslands komu er Kristian
Lovenskjold framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Noregs.
Morgunblaðið átti við hann viðtal í tilefni hinnar norsku heim-
sóknar.
Lövenskjold^hefur aldrei komið
til íslands áður og sagðist hann
hiakka mjög til þess að ferðast um
landið, og meðal skógræktar-
manna í Noregi væri mikill áhugi
á þessum ferðum, enda væri nátt-
úra íslands einstök.
Aðspurður um starfsemi félags
síns, sagði hann að félagið teldi
10.000 meðlimi, með 20 undirfé-
lögum í öllum fylkjum Noregs.
Félagið var stofnað 1898 og verður
því bráðlega 90 ára. Upphaflegt
takmark félagsins var að klæða
fjöll landsins skógi, en í seinni tíð
hefur félagið einnig snúið sér að
ýmsum öðrum málum, er tengjast
skógrækt. Framkvæmdastjórinn
vildi leggja áherslu á það, að félag-
ið væri ekki hagsmunafélag
skógareigenda heldur „hagsmuna-
félag skóga", eins og hann orðaði
það.
Til marks um árangur af starfi
skógræktarmanna í Noregi, gat
Levenskjold þess, að um næstu
aldamót yrði fylkið Vestland næst-
stærsta skógfylki í Noregi á eftir
Hedemark, og væri þetta árangur
af starfi skógræktarfélagsins í
Vestland, en það er elsta skóg-
ræktarfélag Noregs, stofnað 1894.
Morgunblaðið/Einar Falur
Kristian Lövenskjold fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags
Noregs: Islendingar hafa sýnt
okkur samstöðu í baráttunni
gegn dauða skóga í Evrópu.
Um norrænt samstarf skóg-
ræktarmanna hafði Lovenskjold
það að segja, að þing skógræktar-
manna fyrir þremur vikum væri
gott dæmi um norræna samvinnu
á þessu sviði, þar sem Islendingar
hefðu sýnt hinum Norðurlanda-
þjóðunum eindregna samstöðu
varðandi mengun í Evrópu og áhrif
hennar á skóga.
Steingrimur Sigurðsson listmálari með tvö nú verk sem verða til sýnis á sextugustu sýningu hans i
Eden. Þetta er jafnframt tíunda sýning hans í Eden. Þau heita „Básendar", sem er málað þar suður
með sjó, og „Skíðaskvísa“.
CircusArena sýnirá
Akureyri á Þórsvellinum
Laugardaginn2.
ágústkl. 16.00 og 20.00.
Sunnudaginn 3.
ágústkl. 16.00 og 20.00.
Forsala aðgöngumiða erí versluninni
Kompunni, Skipagötu 2.
Miðasala erá sýningarsvæði tveim tímum
fyrir sýningu.
LEIÐANDI í VERÖLD TÆKNIÞRÓUNNAR HJÓLBARÐA
WRANGLER
RADIAL
fyrir:
allar árstíðir
allar aðstæður
á og utan vegar
HAGSTÆTT VERÐ
good/year
GOODYEAR
JiPMDEKK