Morgunblaðið - 31.07.1986, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986
V/erslið tímanlega
það borgar sig!
1/1 dílkar niðursagað
x Frá
Coca Cola
Coke Fanta
Sprite Taap
6xlVfe Iftrar
aoeins
^aóoi'/J
llter
Glænýr
Upplagt
í ferdalagið:
í Mjóddinni
Tilbúinn matur:
Grillaðir kjúklingar
Salatdressing
i ÚRVALI
irillkol -GriUbakkar
jrillolía - GrUlkrydd
\J ppkveik j ulögur
Steiktar lærissneiðar
og kótilettur
Soðin svið og hangikjöt
Glóðarsteikt lambalæri
Steikt svínalæri
Steikt svínasíða
Einnota hnífapör, diskar,
bakkar og glös.
Sodastream
Bragðefni - allar tegundir
AÐEINS
Ný uppskera
frá Ameríku!
Sunkist
appelsínur
Safaríkar og sætar
Blábér
Nýkomin í flugi
^ ÓDÝR
Skemmtilega gimilegur
í Mjóddinni
Lambagrillteinn ca. 200 gr.
Grillpinnár
—gríðarlega f
freistandi..
Kryddlegið
lambakjol
Papnka
Kryddlegió lambakjot
Paprika
Papnka
Nautagrillteinn
Svínagrillteinn ca. 200 gr.
Svinakjöt ”, Svinakjöt - Svinakjot Svínakjot - Svinakjot
Papnka
Laukur
Tómatur
Kryddlegió
nautakjot
Kryddlegió
nautakjot
Paprika
Pylsugrillteinn ca 150 gr
Ananas - Ananas - Ananas - Ananas
Lambageiri
Ferskjur | Jarðarber I Perur I Kaffekaffí
69Al 98;S1 l'79;(!lll59"iAI-«
Opið til kl. 19.30 í Mióddinni
Átök harðna
í Afganistan
Samningaviðræður SÞ hefj-
ast á ný en árangur er óvisss
Islamabad, AP.
HUNDRAÐ afganskir stjórnarhermenn létust eða særðust og tutt-
ugn afganskir skæruliðar biðu bana nýlega í mestu átökum sem
orðið hafa í Afganistan undanfarnar vikur. A miðvikudag hófst sjö-
unda lota óformlegra samningaviðræðna milli Pakistan og Afganist-
an i Genf, en óvíst þykir um árangur þeirra.
Þetta er mesta mannfall í röðum
skæruliða um langt skeið. Skæru-
liðamir gerðu árás nærri Kabúl,
höfuðborg Afganistans, til að hefna
fyrir sprengjuárásir afganska flug-
hersins nærri Lowgar, suður af
Kabúi, 22. júlí. Orrustan stóð í fimm
klukkustundir og var hún mjög
hörð.
Skæruliðar ráða nú yfir rúmlega
helmingi borgarinnar Kandahar í
suðausturhluta Afganistans og hafa
ekki verið jafn öflugir á því svæði
í mörg ár. Þeir hafa einnig veginn
milli Kandahar og Herat að mestu
leyti á sínu valdi. Stjómarherinn
ræður yfir um tíu km svæði við
borgina Herat.
Heimildarmennimir segja að
tvær sovéskar herflutningalestir
hafi sést yfirgefa Kabúl í síðustu
viku, líklega til að efla aðgerðir
Sovétmanna í grennd við höfuð-
borgina. Nýir skriðdrekar voru í
annarri lestinni.
Svartsýni virðist gæta um árang-
ur viðræðna þeirra, sem Sameinuðu
þjóðimar hafa gengist fyrir milli
Afganistan og Pakistan, en sjöunda
lota þeirra hófst í Genf á miðviku-
dag. Talsmenn beggja stjórna segja
hana verða þá síðustu.
Mörg ríki, þ.á m. Kína hafa kraf-
ist tafarlausrar brottfarar sovéska
hersins frá Afganistan og telja
5.900 manna fækkun í loftvama-
sveitum Sovétmanna lítils virði,
þegar þess er gætt að um 118.000
hermenn eru nú í landinu.
Séð inn eftir Bödalsjökli. Myndin var tekin á björgunaræfingu
þar i síðustu viku.
Noregur:
Sex jöklafarar láta
lífið á tæpri viku
Ösló. Frá fréttaritara Morgunblaóains.
TUTTUGU og níu ára gamall Norðmaður lét lífið á mánudags-
kvöld eftir 15 metra fall úr Jostedalsjökli á Sogni. Höfðu þá
sex manns farist á jöklinum á jafnmörgum dögum.
Hinn 22. þ.m. fórst dönsk kona
ásamt dóttur sinni á Nigardsjökli,
sem er útjökull Jostedalsjökuls.
Stór ísflykki brotnuðu úr meg-
inísnum og lentu á mæðgunum.
Þjóðveijar, sem vora með í för-
inni, vora hætt komnir.
Hinn 27. júlí fórast hollensk
hjón ásamt 16 ára gömlum syni
sínum á Baklijökli, sem einnig er
útjökull frá Jostedalsjökli. Að
sögn sjónarvotta varð fólkið fyrir
jakaskriðu, sem féll um 700 metra
ieið ofan af jökultindinum. Óslóar-
blaðið Verdens Gang hafði eftir
sjónarvottum, að Hollendingamir
hefðu verið að feta sig áfram
meðfram fossgljúfri í lægri hluta
jökulsins og greinilega ekki heyrt
í skriðunni vegna gnýsins frá foss-
inum.
„Þau áttu sér enga lífsvon,"
hafði blaðið eftir einum sjónar-
vottanna, „og það var hræðilegt
að horfa upp á þetta slys án þess
að geta svo mikið sem lyft fíngri
til hjálpar."
Það var svo á mánudagskvöld-
ið, 28. þ.m., að Norðmanninum
skrikaði fótur, er hann var að
klifra í Bödalsjökli, enn einum
útjökli Jostedalsjökuls. Hann féll
15 metra niður í gijóturð við jök-
ulrætumar og beið þegar bana.
Þrír vom með honum í ferðinni
og vom ailir vel búnir, en notuðu
ekki öryggisfleyga.