Morgunblaðið - 31.07.1986, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986
„Hátíðisdagar hestafólks á Melgerðismelum“
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Vafi frá Hvassafelli sigraði í A-flokki gæðinga og hér tekur Heiðar Hafdal hann til kostanna.
Tvistur á 21,4 í 250 metrunum
Hestar
Valdimar Kristinsson
Hann gerir það ekki enda-
sleppt hann Tvistur frá Suður-
Fossi en hann jafnaði árangur
Leists frá Keldudal i 250 metra
skeiði frá þvi í vor. Hafa þeir
báðir skeiðað vegalengdina á
21,4 sek. sem er undir gildandi
meti. Árangur Leists hefur ekki
verið staðfestur sem met ennþá
hvað sem seinna verður. Þessum
árangri náði Tvistur á „Hátíðis-
dögum hestafólks“ á Melgerðis-
melum nú um helgina.
Ef frá eru taldir góðir tímar í
skeiðinu þá var þetta frekar til-
þrifalítið mót hjá Eyfirðingum að
þessu sinni og töldu menn að nokk-
ur deyfð ríkti í hestamennskunni
þar nyrðra eftir Landsmótið. Mótið
stóð yfir í tvo daga og voru það
Léttir, Funi og Þráinn sem stóðu
að því. Á dagskrá var gæðinga-
keppni, opið íþróttamót og kapp-
reiðar auk parakeppni.
{ gæðingakeppninni mættu til
leiks nýir hestar sem ekki hafa
komið fram á stórum mótum og eru
menn greinilega famir að end-
umýja. Gömlu brýnin eins og
Kristall, Sámur, Þorri, Jörvi og
Skjanni sem verið hafa áberandi á
síðustu árum voru ekki með að
þessu sinni. Vitað er að Kristall
kemur ekki meira fram í keppnum
enda trónir hann nú á toppnum
eftir Landsmótið eins og menn
muna. Sámur sást reyndar þarna á
mótinu en hann og Reynir Hjartar-
son sigmðu í gæðingaskeiði.
Þeir hestar sem þarna kepptu til
úrslita í B-flokki virtust talsvert
betri en A-flokks hestamir sem
voru ekki sérlega góðir án þess að
hægt sé að segja að þeir hafi verið
lélegir. Aron frá Litlu-Gröf, einn
þeirra sem var meðal tíu efstu á
Landsmótinu, sigraði örugglega í
B-flokki. Einnig mætti minnast á
tvo klárhesta sem vom í úrslitum,
þá Tiygg frá Valiamesi og Frey frá
Kolkuósi. Tryggur er aðeins sex
vetra gamall og vel þess verður að
gefa honum gaum. Engin unglinga-
keppni var að þessu sinni sökum
iélegrar þátttöku og er það merki-
iegt þar sem þrjú félög standa að
þessu móti. Einn viðmælanda blaða-
manns sagði að mikill áhugi væri
hjá yngri kynslóðinni fyrir hesta-
mennsku en svo virtist sem áhuginn
væri meiri fyrir almennum útreiðum
en þátttöku í mótum.
Parakeppni hefur verið stunduð
hjá Eyfirðingum síðustu tvö árin
með góðri þátttöku en nú vom pör-
in aðeins tvö. Að þessu sinni báru
sigur úr býtum þau Sverrir Reynis-
son og Guðlaug Reynisdóttir og var
Guðlaug á Fylki 898 frá Bringu en
Sverrir á Byl frá Bringu en hann
er undan Fylki.
Eins og áður segir var það skeið-
ið sem bar hæst á þessu móti.
Völlurinn á Melgerðismelum hefur
sannað gildi sitt sem ein besta
hlaupabraut landsins og er ekki að
efa að betri tímar hefðu náðst í
skeiðinu ef veður hefði verið hag-
stæðara. Hliðarvindur var og frekar
kalt. Nokkrar vangaveltur áttu sér
stað eftir kappreiðar hvort árangur
Tvists komi til greina sem Islands-
met. í fyrsta lagi ræðst það af hvort
árangur Leists frá því í vor verði
staðfestur. Ef svo fer, er hér um
metjöfnun að ræða en ef ekki, þá
stendur spurningin um samþykkt
sem gerð var á síðasta ársþingi LH
varðandi aukaspretti eftir að kapp-
reiðum lýkur. Ekki náðist í fram-
kvæmdastjóra LH til að fá uppgefíð
hvemig þessi samþykkt hljóðar en
allt mun þetta skýrast í fyllingu
tímans.
Nokkrar blikur em á lofti með
stökkgreinar kappreiða. Margir
spáðu því fyrir þremur ámm að
verið væri að ganga af kappreiðum
dauðum með því að mörg félög lok-
uðu kappreiðum á félagsmótum og
tóku af peningaverðlaun. Nú hefur
Birgir Árnason hlaðinn verðlaunum eftir sigur í B-flokki gæðinga
á Aroni frá Litlu-Gröf.
heyrst að Jóhannes Þ. Jónsson og
Sigurbjörn Bárðarson, sem hafa
verið með mörg hross í stökkinu
undanfarin ár hyggist hætta þátt-
töku í þessum greinum og vera
eingöngu með í skeiðinu.
Vemlega hefur dregið úr þeirri
spennu sem ávallt ríkti í stökkinu
fyrir nokkmm ámm og er nú svo
komið að þátttaka í 800 metra
stökki er sáralítil og fyrir bragðið
lítil skemmtun af því sem af er
sumri.
Urslit urðu sem hér segir í
öllum greinum mótsins:
A-flokkur gæðinga
1. Vafi frá Hvassafelli, Létti. F.: Þymir,
Spói frá Geirshlíð er nú kominn í fremstu röð vekringa. Hann sigraði i 250 metra skeiði á 22,0 sek. og
í aukaspretti skeiðaði hann á 21,7 sek. Knapi er Reynir Aðalsteinsson.
M.: Rós, eigandi Valgeir Asbjarnarson,
knapi Heiðar Hafdal, 8.19.
2. Kátína frá Hömrum, Létti. F.: Fylkir
898, Bringu, M.: Snælda, Hömrum, eigandi
Sigurður Óskarsson, knapi Sigurður Árni
Snorrason, 7.75.
3. Fljóð frá Brávöllum, Funa. F.: Ófeigur
882, Flugumýri, M.: Bleikja 4585, eigandi
Lilja Reynisdóttir, knapi Reynir Aðalsteins-
son, 7.90.
4. Sámur frá Vallamesi, Létti. F.: Fífill,
Vallamesi, M.: Hringja, Vallamesi, eigandi
og knapi Reynir Hjartarson, 7.90.
5. Kmmmi frá Litla-Hóli, Létti. F.: ?, M.:
Tinna, Hofsstöðum, eigandi Svanberg Þórð-
arson, knapi Ólafur Jósefsson, 7.83.
B-flokkur gæðinga
1. Aron frá Litlu Gröf, Létti. F.: Sörli 653,
M.: Grá, Litlu Gröf, eigandi Aldís Bjöms-
dóttir, knapi Birgir Ámason, 8.36.
2. Tryggur frá Vallamesi, Létti. F.: Sindri,
Álftagerði, M.: Fjömga-Bleik, eigandi og
knapi Baldvin Guðlaugsson, 8.33.
3. Gammur úr Ámessýslu, Létti. F.: Þinur,
Reykjum, M.: Perla, eigandi og knapi Ólaf-
ur Jósefsson, 8.16.
4. Freyr frá Kolkuósi, Létti. F.: Hörður
591, Kolkuósi, M.: Rauð, Kolkuósi, eigandi
og knapi Öm Birgisson, 8.23.
5. Safír frá Sauðárkróki, Létti. F.: Sauða-
Rauður, M.: Hrefna, Sauðárkróki, eigandi
Helga Ámadóttir, knapi Bjöm Þorsteinsson,
8.13.
Úrslit í íþróttakeppni
Tölt
1. Sigurbjöm Bárðarson, Fáki, á Gára frá
Bæ, 86.66.
2. Heiðar Hafdal, Létti, á Rauðskjóna frá
Hrauni Öxn. 79.44.
3. Baldvin Guðláugsson, Létti, á Trygg frá
Vallamesi, 77.60.
4. Atli Sigfússon, Létti, á Vöku frá Hömr-
um, Ak., 70.13.
5. Ármann Ólafsson, Funa, á Vilja úr Eyja-
firði, 68.80.
Fjórgangur
1. Sigurbjöm Bárðarson, Fáki, á Gára frá
Bæ, 48.45.
2. Baldvin Guðlaugsson, Létti, á Trygg frá
Vallámesi, 48.61.
3. Atli Sigfússon, Létti, á Vöku frá Hömr-
um, 41.98.
4. Jóhann Olsen, Létti, á Hcrði frá Brávöll-
um, 40.11.
5. Birgir Ámason, Létti, á Sæ frá Akur-
eyri, 41.47.
Fimmgangur
1. Sigurbjöm Bárðarson, Fáki, á Gormi frá
Hjálmsstöðum, 57.60.
2. Heiðar Hafdal, Létti, á Vafa frá Hvassa-
felli, 53.79.
3. BirgirÁmason, Létti, á Fölskvá, 48.90.
4. Rósa Hreinsdóttir, Funa, á Blesa, 47.79.
Skeiðhestamir
í miklum ham