Morgunblaðið - 17.08.1986, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986
4<-
Fleiri kaupa
skilvindur
og strokka
Á MÖRGIJM sveitabæjum
er verið að skilja mjólk og
strokka smjör úr umfram-
mjólk eins og fram hefur
komið í blaðinu. Mest er um
að fólk dusti rykið af göml-
um handsnúnum skilvind-
um og noti síðan
rafmagnshrærivélarnar til
að búa til smjörið, en fólk
á einnig kost á að fá keypt
nýtískulegri tæki, svo sem
rafknúnar skilvindur og
strokka.
Ágúst Schram, sem er með
umboð fyrir frönsk mjólkur-
vinnsluáhöld, segist hafa selt
talsvert af rafknúnum skilvindum
og smjörstrokkum til heimilisnota
að undanfömu. Auk þess hefði
mikið verið spurst fyrir um þessi
áhöld.
Skilvindumar kosta 25—35
þúsund krónur og rafknúnu
strokkamir um 15 þúsund. Hann
hefur einnig á boðstólum
handsnúin áhöld og eru þau held-
ur ódýrari.
Pétur Guðmundsson, sölumað-
ur hjá búnaðardeild SÍS, sagði
að þar hefðu lengi verið skilvind-
ur á boðstólum en lítið selst. Að
undanfömu hefði þó verið tals-
vert spurt um þær.
Skilvindumar kosta tæpar 30
þúsund krónur hjá Sambandinu.
Líf í tuskunum á Grófartorgi
\
Morgunblaðið/EFI
Mikið var um að vera á Grófartorgi á föstudag og notaði orðs fyllstu merkingu er óhætt að segja að líf hafi verið i
fólk sér óspart þjónustu verzlana í Grófinni, sem sett höfðu tuskunum.
upp sölubása á torginu. Veðurblíðan var einstök og I þess
„ .. .varla að ég kæmi miðanum í kassann," Einar Magnússon
rakari við starf sitt á Rakarastofunni Dalbraut 1.
Getraun Landsbankans:
„Mig dreymdi töluna“
- segir Einar Magnússon sem gisk-
aði á svo til alveg rétta upphæð
hver sambönd í bankanum því
svona nærri sanni væri ólíklegt
að einhver gæti giskað og þegar
ég tók við verðlaunum sögðu þeir
líka í bankanum: „Mikið erum við
heppnir að það var enginn af
starfsfólkinu sem fékk þetta." En
það var alls ekkert svoleiðis held-
ur dreymdi mig upphæðina
nákvæmlega daginn áður en ég
fór á sýninguna en rúnnaði hana
svo af þegar ég fyllti út seðilinn.
Ég ætlaði í raun alls ekkert á
sýninguna en fór svo með vina-
fólki mínu rétt fyrir lokun síðasta
daginn og ákvað að nota draum-
töluna í getrauninni. Kassinn var
orðinn troðfullur og var varla að
ég kæmi mínum miða í hann.“
„JÁ, ÞAÐ er rétt, mig dreymdi
töluna,“ sagði Einar Magnús-
son rakari, er Morgunblaðið
hafði samband við hann í gær,
en honum tókst að giska á rétta
upphæð í getraun Landsbank-
ans svo aðeins munaði þrjátíu
aurum. Forsaga máisins er að
á 100 ára afmælissýningu bank-
ans var komið fyrir plastsúiu
fuliri af smápeningum og var
fólki gefinn kostur á að spreyta
sig við að finna hver upphæðin
var. Einar giskaði á að upp-
hæðin væri 22.510 krónur og
reyndist rétt svar vera 22.509,
70 krónur. Fékk Einar upp-
hæðina í verðlaun.
„Fólk hélt ég hlyti að hafa ein-
Að sjálfsögðu bundn-
ir af sammngum SH
segir Jón Páll Halldórsson á ísafirði
„SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús-
anna hefur gert samning við
ákveðinn kaupanda í Banda-
ríkjunum um afgreiðslu á
ákveðnu magni af þorskflökum
í fimmpunda pakkningum á einu
ári. Að sjálfsögðu eru Sölumið-
stöðin og einstök frystihús
hennar bundin af samningnum.
Enn sem komið er hefur stjórn
SH ekki séð ástæðu til þess að
úthluta einstökum frystihúsum
ákveðnu framleiðsiumagni og
vonandi þarf ekki til slíks að
koma. Meðan svo er, þá er frá-
leitt að tala um brot einstakra
fyrirtækja," sagði Jón Páll Hail-
dórsson, framkvæmdastjóri
Norðurtanga hf. á ísafirði, í sam-
tali við blaðamann Morgunbiaðs-
væru aðstæður svo ólíkar hjá ein-
stökum frystihúsum, að ekki væri
mögulegt að alhæfa um arðsemina
af Evrópusölunni. Nefndi Jón mis-
munandi aflasamsetningu, orma-
tíðni í fískinum og kostnað við
snyrtingu, sem væri afar misjafn.
Væri t.d. kostnaður við ormatínslu
óvenju mikill í tilteknu frystihúsi,
þyrfti verðið erlendis að vera mjög
hagstætt, til þess að viðkomandi
frystihús hagnaðist á vinnslunni.
{ Morgunblaðinu á föstudag var
haft eftir Gísla Konráðssyni, fram-
kvæmdastjóra Útgerðarfélags
Akureyringa, að þar teldu menn sig
bundna af samningum Sölumið-
stöðvarinnar og áleit Gísli, að sumir
frystihúsamenn sýndu skort á þegn-
skap með því að brjóta samningana.
Jón Páll Halldórsson sagðist alls
ekki vilja ræða þessi mál við Gísla
á síðum Morgunblaðsins, en hafa
yrði í huga gífurlega erfiðleika fisk-
vinnslufyrirtækja við að láta enda
ná saman. Undanfarin ár hefði þessi
atvinnuvegur fyrirvai-alaust orðið
að aðlaga sig nýjum og óhemju
erfiðum aðstæðum, en skilningur á
þörfum hans væri í lágmarki. Við
slíkar aðstæður væri óhjákvæmi-
legt, að skammtímasjónarmið yrðu
þung á metunum, þótt öllum væri
ljóst, að Ameríkumarkaðnum væri
stefnt í stórhættu.
„Sem stendur hefur atvinnuveg-
urinn í heild því miður ekki bolmagn
til þess að taka fullkomið tillit til
langtímasjónarmiða,“ sagði Jón
Páll Halldórsson að lokum.
ins.
Jón bætti því við, að einstökum
frystihúsum væri því fijálst að
vinna þorsk t.d. á Evrópumarkað,
ef þau teldu hann hagkvæmari en
Bandaríkjamarkaðinn. Hins vegar
Kórverk frum-
flutt við hátíðar-
guðsþjónustu
VIÐ hátíðarmessu í Dómkirkjunni
klukkan 14 í dag prédikar biskup
íslands, herra Pétur Sigurgeirs-
son. Dómkirkjuprestar þjóna fyrir
altari ásamt dómprófasti, séra Ól-
afi Skúlasyni, vígslubiskupi.
Prestar borgarinnar koma í skrúð-
göngu til kirkju úr Aiþingishúsinu.
Við guðsþjónustuna verður frum-
flutt kórverk eftir dómorganist-
ann, Martein H. Friðriksson, við
sálminn númer 8 S sálmabókinni
„Tunga mín vertu treg ei á“. Dóm-
kórinn flytur verkið, einsöngvari
Svala Nielsen.
Við messur í kirkjum borgarinnar
klukkan 11 koma borgarfulltrúar
fram sem prédikarar eða lesarar.
Ný ljóðabók „Borg-
arljóð“ komin út
ÚT ER' komin ný yóðabók, „Borg-
arljóð“, eftir Gunnar Dal og er
það Víkurútgáfan sem gefur bók-
ina út.
Bókin er 55 blaðsíður með tuttugu
ljóðum, sem öll eru tengd Reykjavík.
Aður hafa komið út 37 bækur eftir
Gunnar Dal, frumsamdar skáldsög-
ur, heimspekirit og ljóð. Siguijón
Jóhannsson leikmyndateiknari hann-
aði útlit bókarinnar og kápumynd.
Prentsmiðja Árna Valdemarssonar
hf. sá um setningu og offsetprentun
og Bókbandsstofan Örkin hf. um
bókband.
Gunnar Dal
Færir eða bærir
Það er með ólíkindum, hvemig telja sig bæra um að ráðska með
blaðið mitt misstfgur sig, þegar þjóðarauðinn. Ef þeir væru ekki
ég kem þar við sögu. Þannig læt- meðal færustu manna landsins
ur það mig segja í gær, að of- væru þeir gjörsamlega skaðlausir
stjómarmenn Islands séu ekki í Kerfinu og ekki umtalsverðir.
færir menn, þegar ég sagði þá Eyjólfur Konráð Jónsson