Morgunblaðið - 17.08.1986, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986
45
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Framtíðarstarf
Rafvélavirki — rafvirki
Óskum að ráða rafvirkja eða rafvélavirkja.
Aðalstarf verður uppsetning og viðgerðir á
stimpilklukkum og klukkukerfum.
Nánari upplýsingar hjá deildarstjóra Grími
Brandssyni (ekki í síma).
V MlC#/.
&
SKRII FSTI 3FUVÉLAR H.F.
B Hv V erfisgötu 33, Reykjavik.
Verslunarstörf
Vesturbær
Stór deildaskipt verslun í vesturborginni
vill ráða starfsfólk til verslunarstarfa m.a. í
fatnaði, snyrtivörum og gjafavörum.
Um er að ræða bæði heilsdagsstörf og hluta-
störf t.d. frá kl. 9-14 og 14-19.
Lögð er áhersla á lipurð, snyrtimennsku og
góða framkomu. Tilvalið fyrir konur sem
hafa verið heima við. Laun eftir reynslu
hvers og eins. Uppl. á skrifst.
(rtJÐNT ÍÓNSSON
RÁÐCJÖF & RÁÐN l N GARÞJÓN USTA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
Á gervihnattaöld
Við óskum að ráða nú þegar í eftirtaldar stöður:
1. Símvirkja til þess að annast viðhald og
uppsetningar á tölvu- og fjarskiptabúnaði
okkar (NEC gervihnattamóttökubúnaður,
símkerfi og tölvur).
2. Skrifstofumann til almennra skrifstofu-
starfa (símvarsla, vélritun, bókhald og
tölvukeyrsla).
Upplýsingar veittar á staðnum.
Ármúia 23,
2. hæð.
Ljósmyndari
Frjálst framtak óskar eftir Ijósmyndara til
starfa við fyrirtækið.
Leitað er eftir vönum Ijósmyndara sem á
gott með að starfa sjálfstætt, er duglegur
og hugmyndaríkur. Um er að ræða fjölbreytt
starf við þau tólf tímarit sem Frjálst framtak
gefur út og annað sem lýtur að útgáfu fyrir-
tækisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf óskast sendar til Frjáls fram-
taks, Ármúla 38, 108 Reykjavík, fyrir 22.
ágúst.
Nánari upplýsingar veittar í síma 685380.
Frjálst framtak,
Ármúla 38, sími685380.
31 árs fiskitæknir
óskar eftir atvinnu, helst á höfuðborgar-
svæðinu. Hef einnig stúdentspróf, meirapróf
og önn í útgerðartækni. Get byrjað strax.
Tilboð óskast send augld. Mbl. merkt: „Sam-
viskusamur!" helst fyrir 1. september 1986.
0
Valhúsaskóli
Seltjarnarnesi
auglýsir:
Skólasafnvörður
Skólasafnvörð vantar að Valhúsaskóla í hálft
starf. Skólasafnið er vel búið að safnkosti
og húsnæði ágætt. Starfið felst aðallega í
samstarfi við kennara og nemendur skólans,
auk annarra safnstarfa.
Upplýsingar gefur skólastjórinn, Ólafur H.
Óskarsson, í símum skólans 612044 og
612040, auk heimasíma 30871.
Símavarsla
Jöfur hf. óskar eftir að ráða starfsmann til
að annast símavörslu ásamt öðrum almenn-
um skrifstofustörfum frá kl. 9-18. Um
framtíðarstarf er að ræða. Stundvísi og sam-
viskusemi áskilin.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist augld. Mbl.
merkt: „J — 05530“, fyrir 22. þ.m.
JÖFUR HF
NÝBÝLAVEGI2 KÓPAVOGI SÍMI42600
JL húsið auglýsir í
eftirtalin störf
1. Vanan starfsmann í raftækjadeild.
2. Stúlkur í matvörumarkað.
3. Stúlku í gjafavörudeild.
4. Vönum starfsmanni í væntanlega leik-
fangadeild.
Umsóknareyðublöð hjá deildarstjóra.
JIB
Jón Loftsson hf.
A A A A A A
Hringbraut 121
... _J lJ _1 l.lj
I _J * I I 1.1 i
- I I' 1 J I I I i I
ar
T1« I III
Vanur
afgreiðslumaður
Rótgróna sérverslun í miðbænum vantar
ábyrgan og laghentan mann til afgreiðslu-
starfa frá og með 1. september nk.
Hér er um framtíðarstarf að ræða.
Tilboð sendist augldeild Mbl. merkt: „Ábyrgur
— 1050“ fyrir 23. ágúst nk.
Skrifstofustarf
Rótgróið, meðalstórt fyrirtæki, sem er stað-
sett miðsvæðis í Reykjavík, óskar að ráða
stúlku vana skrifstofustörfum. Starfið fellst
meðal annars í því að færa fjárhags- og við-
skiptabókhald í tölvu, og að sjá um ýmsar
bókhaldsafstemmingar.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra
fyrst. Laun eftir samkomulagi.
Umsóknir með upplýsingum um fyrri störf
óskast sendar Mbl. merkt: „Skrifstofustarf —
123“.
Verkfræðingar
Staða forstöðumanns tæknideildar hjá Vita-
og hafnarmálaskrifstofunni er laus til um-
sóknar.
Starfið felur í sér að hafa yfirumsjón með
áætlanagerð, hönnun og framkvæmdum við
hafnargerð. Við mat á umsækjendum verður
því m.a. lögð áhersla á reynslu og hæfni í
áætlanagerð og stjórnun.
Skrifleg umsókn þar sem fram komi upplýs-
ingar um aldur, menntun og fyrri störf
sendist samgönguráðuneytinu.
Vita- og hafnarmáiaskrifstofan,
Seljavegi 32.
Textahöfundur
Auglýsingastofa leitar að textahöfundi í um
það bil hálft starf. Vinnutími er eftir hádegi.
Ásamt textagerð felst starfið í umsjón með
verkefnum á öllum stigum vinnslu.
Við leitum að manni með mjög góða þekk-
ingu á íslensku máli og sem þar að auki á
auðvelt með samskipti við annað fólk og býr
yfir skipulagshæfileikum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist augldeild Mbl. sem allra
fyrst og ekki síðar en 20. ágúst merktar:
„Textahöfundur — 3018“.
Meiri sala kallar á
meira fólk!
Vegna ört vaxandi sölu á Völu sælgæti vant-
ar okkur gott starfsfólk í vinnu strax. Bæði
unnið á dagvakt og á vöktum. Eftirvinna.
Þeir sem ráða sig í fulla vinnu strax ganga
fyrir með hlutastarf í vetur með námi eða
þess háttar .
Upplýsingar í dag sunnudag að Súðarvogi 7
eftir kl. 15. Sími 687959.
Sælgætisgerðin Vala.
Tölvunarfræðingur
sem lokið hefur námi frá Háskóla íslar\ds
óskar eftir hlutastarfi.
Þeir sem áhuga hafa vinsamlegast leggi
uppl. inn á augldeild Mbl. fyrir 23. ágúst
merktar: „t — 1001“.
Ungur maður
með háskólagráðu í bókasafnsfræðum auk
margs konar starfsreynslu óskar eftir at-
vinnu. Hef góða enskukunnáttu. Margt
kemur til greina. Tilboð eða vísbendingar
sendist augldeild Mbl. merkt: „B — 393“.
Laust starf
Laust er til umsóknar starf á Skattstofu Vest-
urlandsumdæmis, Akranesi. Æskilegt er að
umsækjendur hafi viðskiptafræðimenntun
og/eða bókhaldsþekkingu ásamt reynslu af
skrifstofustörfum.
Umsóknarfrestur ertil 1. september nk. Laun
samkvæmt launakerfi opinberra starfs-
manna.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri
störf skulu sendar til Skattstjóra Vestur-
landsumdæmis, Kirkjubraut 28, Akranesi.
Skattstjóri Vesturlandsumdæmis.
<_