Morgunblaðið - 17.08.1986, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 17.08.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR J7. ÁGÚSX 1986 o43 ið tengist þó Reykjavík umfram öðmm stöðum á íslandi. Á þetta er ekki minnt vegna þess að Reykjavík er fjöl- mennust byggða heldur af því að þar stendur vagga Ferðafélagsins. Fyrir 59 ánim hvatti Sveinn Björnsson, fv. þingmaður og forseti bæjarstjórnar Reykjavíkur og síðar forseti ís- lands, til stofnunar Ferðafélags. Sveinn var þá sendiherra í Kaupmannahöfn og fékk Bjöm Ólafsson, er síðar varð þingmaður Reykvíkinga og ráðherra, til að breyta hvatn- ingarorðum í veruleika. Ferðafélag íslands var stofnað 27. nóvember 1927 og varð Jón Þorláksson, þingmaður Reykvíkinga, fv. forsætisráðherra og síðar borgarstjóri í Reykjavík, fyrsti forseti þess. Verður ekki annað ályktað en þessir forystumenn Reykvíkinga hafi veitt félaginu gott brautargengi þar sem þetta félag áhugamanna kemst brátt á sextugasta árið og hefur eflst svo að nú eiu fá félög í landinu fjölmennari. Ferðafélagið hefur lagt nokkuð af mörkum til að kynna Reykvíkingum umhverfi sitt og fegra og bæta útivistar- svæði borgarbúa. Langflestar gönguferða félagsins eru um svæði í nágrenni Reykjavíkur og eni ferðirnar á Esju þekktastar þessara gönguferða. Árbækurnar 1936, 1984 og 1985 fjalla um Reykjavík og nágrenni og má þar sérstaklega geta kaflanna um Heiðmörk, Bláfjöll og Esju ogjarðsögu þessa svæðis sem birtust í Árbókinni 1985. Árið 1950 var félaginu úthlutað spildu í Heiðmörk til skógræktar. Hafa félagsmenn gróðursett þar um 100 þúsund plöntur. Á vori hveiju fer félagið í þrjár ferðir í reit sinn til áburðardreifingar og til að hlúa að gróðri. Þessi iðja hefur borið þann ávöxt að Skógræktarfélagi Reykjavíkur þótti ástæða til að heiðra Ferðafélagið á þessu 200 ára afmæli Reykjavíkur fyrir að hafa ræktað þann reit sem nú þykir fegurstur félagsreita í Heiðmörk. Skógræktarfélagið hefur lagt stíg um spilduna og hvet ég Reykvíkinga sem og aðra landsmenn til að leggja leið sína um þá lundi sem nú vaxa upp í þessu landi. Ferðafélag íslands á þá ósk Reykvíkingum til handa að áfram verði að því unnið að piýða borg þeirra og hlúa að útivistarsvæðum hennar. Hverogeinn borgarbúi leggi sitt af mörkum til að halda borg okkar og landi hreinu og þannig á sig komnu að endurkoma á áningarstað verði jafnan til ánægju. Höfundur er forseti Ferðafélags Islands. Opnun nýs göngustígs í Heiðmörk. Jón Þorláksson, fyrsti forseti Ferðafélags íslands. I Þrefalt afmæli hjá Eskfirðingum Fjölbreytt afmælisdagskrá í heila viku 4 Eskifirði. ÁTJÁNDA ágúst 1786 undirrit- aði Kristján konungur sjöundu auglýsingu um kaupstaðarrétt- indi fyrir Eskifjörð. Á þeim tíma voru á Eskifirði aðeins þrír bæir og má því segja að þessi auglýs- ing haf i markað upphaf þéttbýlis á Eskifirði. Næstkomandi mánu- dag fagna Eskfirðingar því ekki aðeins 200 ára afmæli fyrstu kaupstaðarréttinda. Einnig er haldið upp á 200 ára verslunar- °g byggðarafmæli. í tilefni hátíðarhaldanna hefur mikið verið unnið við að snyrta og fegra bæinn. Búið er að helluleggja torg í miðju bæjarins og gagngerar endurbætur hafa farið fram á fé- lagsheimilinu Valhöll. Þá hafa einstaklingar og fyrirtæki lagt sitt af mörkum við að hreinsa og snyrta hver hjá sér. Dagskrá hátíðarhald- anna hefur nú verið gefin út. Frá mánudeginum 18. ágúst verður gefið út dagblað á Eskifirði, auk þess sem staðarútvarp verður með útsendingar daglega frá kl. 15 til 19 á FM 90,4. Að öðru leyti er dagskráin þannig: Laugardagur 16. ágúst: Útitónleikar og hljómsveitar- keppni. Sunnudagur 17. ágúst: Brenna. Mánudagur 18. ágúst: Hátíðarguðsþjónusta í Eskifjarðar- kirkju og hátíðarfundur bæjar- stjórnar þar sem kjömir verða heiðursborgarar. Opnun sýningar í gmnnskólanum, þar sem verður málverkasýning frá Listasafni ASI, málverkasýning Einars Helgasonar og Steinþórs Eiríkssonar, ljós- myndasýning byggðasögunefndar auk bókasýningar og sýningar á handunnu postulíni. Um kvöldið verður síðan kvöldvaka í félags- heimilinu Valhöll. Þriðjudagur 19. ágúst: Jasstónleikar í Valhöll. Á miðvikudag 20. ágúst fer fram knattspymumót, þar sem keppa munu lið Austra frá Eskifirði, Völs- ungs frá Húsavík, Þróttar frá Neskaupstað og Hattar frá Egils- stöðum. Þá fer fram víðavangs- hlaup, þar sem keppt verður í öllum aldursflokkum og síðan útitónleikar um kvöldið. Fimmtudag 21. ágúst mun forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, heimsækja Eski- flörð og um kvöldið verður kvöld- vaka í Valhöll þar sem fram koma Lúðrasveit Neskaupstaðar, Rögn- valdur Siguijónsson, Róbert Am- finnsson, Ásdís Skúladóttir, Gísli Magnússon, Einar Bragi, Esjukór- inn og fleiri. Föstudaginn 22. ágúst verður helgistund með forseta ís- lands í Eskifjarðarkirkju. Síðar um daginn standa Slysavarnafélagið og kvenfélögin á staðnum fyrir sölu- og skemmtimarkaði í miðbænum. Laugardaginn 23. ágúst hefst opna Mazda-mótið í golfi þar sem keppt verður um vegleg verðlaun og er meðal annars bifreið í verðlaun fyr- ir þann sem fer holu í höggi á 5. braut. Hátíðarhöldunum lýkur síðan með dansleik í félagsheimilinu Val- höll þar sem hljómsveitin Bumburn- ar mun leika fyrir dansi fram eftir nóttu. — Ingólfur Fríkirkjan: „Undrið að heyra og sjá“ í DAG, sunnudaginn 17. ágúst, hefjast aftur guðsþjónustur í Fríkirkjunni i Reykjavík að afloknum sumarleyfum. Þá verður guðsþjónusta og altar- isganga í kirkjunni, auk þess sem tvö börn verða skírð. Athöfnin byij- ar klukkan 14.00. Séra Gunnar Björnsson Frikirkjuprestur flytur prédikun, sem hann nefnir: „Undrið. að heyra og sjá.“ Ágústa Ágústsdóttir, sópran- söngkona, syngur stólvers, Lofsöng eftir Beethoven. í Qaiveru Pavels Smíd annast Kjartan Siguijónsson organslátt og kórstjórn að þessu sinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.