Morgunblaðið - 17.08.1986, Side 9
aæi TgtraÁ t i aui)Aau'/;wK aMP'jsmnmM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. AGÚST 1986
§
„Leið oss ekki
í freistni“
eftir EINAR J. GÍSLASON
„Leið oss ekki í freistni." Vana-
lega stoppa ég við þessa bæn og
spyr, „leiðir Guð mig í freistni?"
Það finnst mér óhugsandi. í Jak-
obsbréfí 1. kapítula stendur svo í
13. versinu: „Enginn má segja er
hann verður fyrir freistingu: Guð
freistar mín, því að Guð getur
ekki orðið fyrir freistingu, af hinu
illa, enda freistar hann sjálfur
einskis manns." í versinu á undan
stendur svo: „Sæll er sá maður
er stendst freisting, því þegar
búið er að reyna hann, þá mun
hann öðlast kórónu lífsins, sem
Guð hefir heitið þeim er elska
hann.“ „Guð er trúr, sem ekki
mun leyfa að þér freistist yfir
megn fram heldur mun hann
ásamt freistingunni einnig sjá um
að þér fáið komist út úr henni og
fáið staðist..."
Hvað ei’ freisting og hvaðan
kemur hún? Jesú var freistað af
Djöflinum greina guðspjöllin frá.
Sá er lendir í freistingu lendir í
reynslu. Bænin er beðin til Guðs
um að við komumst hjá reynsl-
unni. Því er sá maður sæll, sem
stenzt freistingu. Jesús sagði eitt
sinn við Símon Pétur: „Símon,
Símon, sjá Satan krafðist yðar til
að sælda yður eins og hveiti. En
ég hefi beðið fyrir þér til þess að
trú þín þijóti ekki.“ Um Jesús er
sagt að: „hans var freistað á allan
hátt, eins og vor, en án syndar."
„Því að með því hann hefír liðið,
þar sem hans sjálfs var freistað
er hann fær um að fulltingja þeim
er verða fyrir freistingu."
Spænsk Biblíuþýðing þýðir
þessa grein Faðirvorsins: „Þú sem
leiðir oss ekki í freistni." TheJeru-
salem Bible, sem er í eigu minni
prentuð árið 1968, hefir Matt. 6.
13. versið á eftirfarandi hátt: „og
leið oss ekki í reynslu.“ Árið 1976
kom út á vegum Stofnunar Áma
Magnússonar bók er nefnist á
ensku máli Biblical quotation in
old Icelandic-Norwegian Religious
litterature, höfundur Ian J. Kirby.
Eru það eins og nafnið bendir til
“GuÖ leiöir oss ekki í freistni, en
hann getur leyft aÖ við göngum í gegn-
um reynslu. “
Biblíutextar úr fornbókmenntum
íslenskum og norskum. Talið var
og að Biblíuþýðingin „Stjórn“
hafí verið til í handriti um árið
1100. Fyrir áhugasaman Biblíu-
lesara, þá er marga fjársjóðu að
fínna í þessari bók, m.a. um Faðir-
vorið, á bls. 152, er tilvitnað til
Matthesusarguðspjalls 6. kap. 13
v. „Oc eige leiþer þu oss í freistne,
heldr leys þv oss frá illo.“ Þarna
finnst mér hugsunin ná mark-
miði. Guð leiðir oss ekki í freistni,
en hann getur leyft að við göngum
í gegnum reynslu. Jósef fékk
mikla reynslu, fyrst neikvæða í
fangelsi, síðar sem forsætisráð-
herra í öllu Egyptalandi. Job fékk
mikla reynslu og þar kemur fram
mjög sterk upprisutrú og vissa
um handleiðslu Guðs. Abraham
var reyndur á vegi trúarinnar.
Gjörðist hann styrkur í trúnni, þvi
að um fyrirheit Guðs efaðist hann
ekki og sá að Guð efnir það sem
hann hefir heitið og lofað. Mesti
andans maður þjóðarinnar fyrr
og síðar gekk í gegnum reynslu
ástvinamissis og sjúkdóms-
reynslu, Hallgrímur Pétursson.
Enginn getur kallað slíkt freist-
ingu. En í þjáningunum mótast
hann svo að perlur Passíusálm-
anna eru okkar eign í dag.
Guð freistar einskis manns,
enda getur hann ekki orðið fyrir
freistingu frá hinu illa. Ég trúi á
þann Guð, sem eigi leiðir oss í
freistni, heldur leysir, frelsar frá
hinu illa.
Bílastillingar
— verkstæði
Vel staðsett á Stór-Reykjavíkursvæðinu og tæki og
aðstaða. Nánari upplýsingar gefur:
FASTEIGNA ^
MARKAÐURINN
Óftinsgötu 4, símar 11540 — 21700.
ión Guðmundsson sölustj.,
Leö E. Löve lögfr., Ólafur Stefánsson viftskiptafr.
I —---------------------s
starfsgreinum!
Opið kl. 1-3
Til leigu — góð kjör
Ca 280 fm gott húsn. á 2. hæð við Dugguvog. Getur
hentað fyrir ýmiss konar starfsemi — skrifstofu, léttan
iðnað o.fl. Mjög hagstæð kjör í boði.
EicnníTVÐLunin
raHD
ÞINGHOLTSSTRÆTI 3 SIMI 27711
| SMutliörl: Svarrir KrislinMon
Þorlwtur QuömuiHiMan, rólum. I
UnnilMnn B*ck hrl., nimi 12320 ]
Þóróllur Halldórnnon, löglr.
FJARFESTINGARFELAGIÐ
VERÐBREFAMARKAOURINN
Genqiðidaq
17. ÁGÚST 1986
| Veðskuldabréf - verðtryggð Veðskuldabréf - óverðtr.)
Lánst. 2 afb. óári Nafn- vextir HLV Sölugengi m.v. mism. ávöxtunar- Lánst. 1 afb. óári Sölugengi m/v. mism. nafnvexti
krölu 20% HLV ! 15%
12% 14% 16% 1 ár 89 84 85
1 ár 4% 95 93 92 2 ár j 81 72 I 76
2ár 4% 91 90 88 3ár ! 74 63 ! 68
3 ár 5% 90 87 85 4 ár 67 56 61
4 ár 5% 88 84 82 5ár 62 50 56
5 ár 5% 85 82 78 KJARABRÉF
6 ór 5% 83 79 76
7 ár 5% 81 77 73 Gengi pr. 15/8 1986 = 1,655
8ár 5% 79 75 71 Nafnverð Söluverð
9 ár j 5% j 78 73 ! 68 — — —
10 ár 5% 1 76 71 66 5.000 8.275
| 50.000 | 82.750
Markaðsfréttir
Ávóxtun íslenskur fjármagnsmarkaður
í ágúst 1986
' óverðtryggð
veðskuldabréf
Kjarabréf
Ver»bróf..|óa,ln^/Ver8tryggS
Skuldabréfaútboð
fyrirtækja
veðskuldabréf
Óskum eftir öilum
tegundum verdbréfa
í umboðssölu.
Ahætta p
f jármál þín - sérgrein okkar
Fjárfestingarfélag íslands hf., Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík. © (91) 28566, © (91) 28506 símsvari allan sólarhringlnn
VJS/VSQ