Morgunblaðið - 17.08.1986, Síða 33

Morgunblaðið - 17.08.1986, Síða 33
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. AGUST 1986 33 fÚKgtii Útgefandi nflftftfeife Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 450 kr. á már.uöi innanlands. i lausasölu 40 kr. eintakið. Reykjavík 200 ára Um þessa helgi og sérstak- lega á morgun, 18. ágúst, er þess minnst með glæsilegum hætti, að 200 ár eru liðin síðan Reykjavík og fimm kaupstöðum öðrum voru veitt kaupstaðar- réttindi. Á árinu 1786 hófst saga Reykjavíkurkaupstaðar, saga, sem lýkur ekki, á meðan byggð helst á íslandi. Gildi Reykjavíkur fyrir íslenskt þjóðlíf verður seint metið til fulls. Þegar þéttbýli var að myndast þar og annars staðar, voru þeir margir hér á landi, sem töldu þá þróun af hinu illa og að hún myndi spilla menningu og lífi þjóðarinnar. Þegar grannt er skoðað, er ekki unnt að komast að annarri nið- urstöðu en þeirri, að sterk staða Reykjavíkur sé forsenda fýrir því, að hér þróist samfélag, sem sé samkeppnisfært á alþjóða- vettvangi, ef þannig má að orði kveða. Samdóma álit er, að þá hafí Islendingum farnast verst, þegar einangrun þeirra var mest. Afnám einokunarinnar var mikilvægt skref í þá átt að rjúfa einangrunina. Nú má segja, að framtíð blómlegrar byggðar í landinu ráðist af því, að hér sé unnt að skapa lífskjör í alhliða skilningi, sem standist samanburð við hin bestu kjör í veröldinni. Á sínum tíma urðu margir um kyrrt í Reykjavík, sem ætluðu aðeins að hafa þar viðdvöl á leið sinni til Vestur- heims. Hið sama á við enn þann dag í dag, menn fínna kröftum sínum viðnám í borgarsamfé- laginu og þurfa ekki að leita út fyrir landsteina í því skyni. í raun stenst Reykjavík saman- burð við borgir.miklu fjölmenn- ari þjóða án þess að hafa á sér þá vankanta, sem óneitanlega fylgja lífí í sannkölluðum stór- borgum milljónaþjóðanna. Hér á þessum stað hefur því miður oftar en einu sinni reynst nauðsynlegt, einkum hin síðari ár, að vekja máls á hættunni af því, að í borgarsamfélaginu skjóti rótum illgresi, sem getur vaxið með ótrúlegum hraða. Þær eituijurtir eru hættuleg- astar unga fólkinu, sem veitir götulífínu í Reykjavík glaðastan svip við leik og störf. Gegn ógn af því tagi verður að snúast af festu og einurð. Sameina þarf borgarbúa og raunar lands- menn alia í þeirri baráttu. Sé litið á stjóm Reykjavíkur frá því að flokkaskipan í landinu varð með þeim hætti, sem enn er, kemur í ljós, að Reykvíkingar hafa nær undan- tekningalaust borið gæfu til að sameinast um samhenta stjóm mála sinna. Er ekki vafí á því, að þar með hafa þeir flýtt fyrir öllum framfömm í borginni, stuðlað að ömm og skipulegum vexti hennar og að myndun öflugs alhliða þjónustukerfis, þar sem hvers kyns félagsleg aðstoð er í hávegum höfð. Það em í sjálfu sér ekki lítil með- mæli með höfuðborginni, að þangað leitar fólk af landinu öllu til að njóta ævikvöldsins. í samtali við Morgunblaðið í dag lýsir Davíð Oddsson, borg- arstjóri, þeim umskiptum, sem orðið hafa í Reykjavík á undan- förnum áratugum meðal annars með þessum orðum: „Breyting- ar í Reykjavík hafa verið mjög örar, vissulega ekki ætíð jafnör- ar, en það er ekki margt í Reykjavíkurborg í dag frá fyrri öld. Flestir hlutir í daglegu lífí em í mesta lagi 30-40 ára. Fyrir fimmtíu ámm vom til dæmis 60 dagvistarheimili, sem borgin rekur í dag, óþekkt fyrir- brigði. í dag er ódýr hitaveita tengd í hvert hús borgarinnar, húsakostur hér er betri en í flestum borgum heims. Þá er hlutfallsleg íbúðastærð, í fer- metmm talin á hvem íbúa, meiri en þekkist víðast hvar. Amma mín og afí bjuggu til dæmis í þriggja til fjögurra herbergja íbúð með sjö böm og tvær vinnukonur og þar datt engum í hug að kvarta. Hrein- lætisaðstaða er og allt önnur og þróun í því sem öðm mjög ör.“ í þessum orðum borgarstjóra fæst staðfesting á þeim fram- farahug, sem er eitt helsta einkenni Reykjavíkur. Á síðustu dögum og vikum, þegar borgin hefur verið að færast í af- mælisskap, hafa hvers kyns aðgerðir til að fegra hana enn frekar sett mikinn svip á torg og stræti. Á það hefíir verið minnt, að í Reykjavík er nú ein- hver mesti og glæsilegasti tijágróður í landinu. Áhugi borgarbúa á öllu því er lýtur að fegmn umhverfís og ræktun hefur aukist jafnt og þétt ár frá ári. Ávöxt þess má sjá hvar- vetna. Þótt vel hafí verið vandað til undirbúnings afmælisveislunn- ar á morgun, ræðst það að vemlegu leyti af vilja veðurguð- anna, hvort hún heppnast eins vel og frekast er kostur. Morg- unblaðið ámar Reykvíkingum heilla í tilefni af 200 ára af- mælinu og óskar landsmönnum öllum til hamingju með höfuð- borgina sína í von um að hátíðin mikla verði glæsileg og öllum til gleði og ánægju. REYKJAVÍKURBRÉF Ekki verður annað sagt en ærið óbyrlega blési fyrir landi og þjóð, er árið 1786 rann upp, enda höfðu næstu árin á undan verið hvort öðru erfiðara og óhag- stæðara fyrir allan landslýð, og svo átakanlega hafði landsmönnum fækkað, að ekki náði fjörutíu þúsund sálum. Að vísu var tíðarfar sunnanlands fremur gott þetta ár og vetur frá nýári tii sumarmála bærilegur. En mjög kalt vor dró tilfínnan- lega úr grasvexti, svo að þótt sumarið mætti allgott heita framan af, þá nýttist heyskapur illa seinni part sumars; því að þá brá til hrakviðra hér syðra, og sum- part vegna ótíðar, en sumpart vegna bólusóttar, er gekk um sveitir lands þetta sumar, styttist heyskapartími sunnanlands um alt að þriðjungi. Þó átti þetta ár að verða merkisár í sögu landsins. Með kgl. auglýsingu dag- settri 18. ágúst um sumarið, var gefið fyrirheit um verzlunarfrelsi, sem lengi hafði verið þráð af landsmönnum. Að vísu var það einskorðað við þegna Danakon- ungs og öðrum þjóðum óheimiluð áfram öll verzlunarviðskifti við landsmenn. En það skiftir mestu máli fyrir oss íbúa höfuð- staðarins, sem nú lifum, og gerir þetta ár að því merkisári í meðvitund vorri, sem það er og verður, að með þessari sömu auglýsingu voru Reykjavík (og fímm kaup- stöðum öðrum) veitt kaupstaðar-réttindi, svo að segja má, að á þessu ári hefjist saga Reykjavíkur-kaupstaðar." Þannig hefst bókin Árbækur Reykjavík- ur 1786-1936 eftir dr. Jón Helgason biskup, sem kom út 1941. Höfundur seg- ist rita verkið í von um, að einhver gæti síðar meir notað þau „drög að Reykjavík- ursögu", sem í ritinu geymdust, við samningu fullkomnari sögu bæjarins. I til- efni af 200 ára afmæli borgarinnar verður nú ráðist í að skrá þessa sögu, hafa þeir Guðjón Friðriksson og Eggert Þór Bern- harðsson verið fengnir til þess. Við ritun sögu Reykjavíkur er unnt að nýta margar heimildir. Fyrsta reglulega Reykjavíkur- sagan, Saga Reykjavíkur, var skráð af Klemenz Jónssyni, landritara og ráðherra, og kom út í tveimur bindum á árinu 1929. Bær Ingólfs Arnarsonar Enginn hefur ritað meira um sögu Reykjavíkur hér í Morgunblaðið en Árni Óla, blaðamaður. Hafa ritgerðir hans og sagnaþættir auk þess verið gefnir út í mörgum bókum. Eins og svo mörgum öðr- um, sem um Reykjavík fjalla, var Árna Óla það hugleikið, að fyrsti landnámsmað- urinn settist að, þar sem síðan varð höfuðborg. Síðasta ritsmíð Árna um þetta efni heitir Vemdið helgar tóftir og er frá 1968. Þar segir meðal annars: „Mér hefír löngum verið mikið áhuga- mál, að Reykjavík glataði sem fæstu af minningaarfi sínum. En þar sem ég geri ráð fyrir, að héðan af muni ég leggja fátt til þeirra mála, þá knýr hugur mig nú fast til þess að lokum að eggja Reykvík- inga lögeggjan, að láta ekki helgasta söguarf sinn og minningar fara forgörðum. Hér í hjarta höfuðborgarinnar er helg- asti reitur þessa lands og hefír forsjónin falið hann vemd og umhyggju borgarbúa. Helgi hans er bjartari og meiri en sagn- helgi Þingvalla og menningarhelgi bisk- upsstólanna fomu. Þetta er reiturinn, þar sem fyrsti landnámsmaður Islands, Ingólf- ur Arnarson, reisti hinn fyrsta íslenska bæ að tilvísan guðanna. Fyrir rúmum 100 árum var til félag menntamanna hér í Reykjavik og nefndist Kvöldfélagið. Það hóf fyrst umræður um það 1864 hvemig íslendingar, og þó eink- um Reykvíkingar ættu að minnast þúsund ára byggingar íslands árið 1874. Og þá gaf það út ávarp til Reykvíkinga og lauk því á þessum orðum: Allir erum vér Reykvíkingar leiguliðar Ingólfs og höfum honum mikla landskuld aðgjalda. Nú er komið að skuldadögunum. Annað ávarp sömdu nokkrir merkir menn í desembermánuði 1959, þar sem því var beint til Alþingis og ríkisstjómar, forráðamanna Reykjavíkur og allrar þjóð- arinnar að bæjarstæði Ingólfs Arnarsonar við Aðalstræti verði friðlýst sem þjóðlegur helgistaður (leturbr. mín). I þessu ávarpi segir meðal annars: „Frá höfuðsetri Ingólfs í Reykjavík, á dögum sjálfs hans og nánustu niðja hans og með þeirra ráði, þróaðist hið íslenzka þjóðfélag og lýðveldi, með allsheijarlögum, alþingi við Óxará og allsheijargoða í Reykjavík. Efalaust verður að telja, að bær Ingólfs í Reykjavík hafi staðið við sunnanvert Aðalstræti að vestan, andspænis þeim stað þar sem síðar var kirkjah og gamli kirkju- garðurinn. Öllum má kunnugt vera, hversu það bar til, að höfuðborg landsins var reist á túnum og tóftum hins fyrsta landnáms- manns, þar sem ævafom sögn hermir að guðimir hafi vísað honum til bólfestu. Söguhelgi þessa staðar er sameign allra íslendinga. Engin þjóð önnur kann frá slíkum atburðum að segja úr sinni sögu, þar sem í einn stað koma upphaf og framtíð. Ekki þarf orða við um það, að bæjarstæði Ingólfs á að vera um aldur og ævi friðhelgur þjóðminningarstaður.“ Það var einvalalið, sem ritaði nöfn sín undir ávarp þetta: Bjami Jónsson vígslu- biskup, Einar Ól. Sveinsson prófessor, Guðni Jónsson prófessor, Helgi Hjörvar rithöfundur, Kristján Eldjám þjóðminja- .vörður, Magnús Már Lárusson prófessor, Matthías Þórðarson fyrrv. þjóðminjavörð- ur, Ólafur Lárusson prófessor, Pétur Benediktsson bankastjóri, Ragnar Jónsson forstjóri, Sigurbjöm Einarsson biskup, Sig- urður Nordal prófessor, Tómas Guðmunds- son skáld og Þorkell Jóhannesson háskólarektor. Senn líður að því, að vér eigum að minnast 11 alda afmælis landnámsins, og vér höfum eigi enn goldið Ingólfi land- skuldina, né heldur rækt þá höfuðskyldu, er á oss hvílir, að friða um aldur og ævi stað hinna „helgu höfuðtófta" fyrsta land- námsmannsins. Enginn maður þarf að vera í vafa um, hvar þessar höfuðtóftir voru. Um það höf- um vér einróma álit þeirra merku manna, er sendu ávarpið 1959. Verður ávarp þetta að teljast fullnaðarúrskurður um hvar bær Ingólfs Arnarsonar hafí staðið." I fyrrgreindu ávarpi segir meðal annars fyrir utan þau orð, er Árni Óla vitnar til: „Það er og ályktun vor, að friðhelgun þessa staðar sé ekki og skuli ekki vera háð sérstakri húsbyggingu né miklum mannvirkjum á þessum stað, heldur skyldi reisa þar minnismerki í einhverri mynd, eða marka staðinn að sinni, en friðaður gróðurreitur fyrir almenning gerður þar umhverfís. Árið 1974 mætti gefa efni til, að virðu- legum áfanga væri náð í þessu máli, en þá mun verða talið ellefu alda afmæli ís- landsbyggðar og landnáms Ingólfs." Fornleifagröftur Á þeim tíma, sem þetta ávarp var sam- ið, urðu töluverðar umræður um bæjar- stæði Ingólfs Amarsonar. Helgi Hjörvar ritaði á árinu 1961 nokkrar greinar um málið hér í Morgunblaðið. í tilefni af því, að nú rétt fyrir 200 ára afmælisdag höfuð- borgarinnar hefur verið kynnt niðurstaða í samkeppni um nýtt húsnæði fyrir Al- þingi, er forvitnilegt að rifía upp þennan kafla úr einni af Morgunblaðsgreinum Helga (1. febrúar 1961): „Alþing hins íslenzka lýðveldis ætti að reisa hús sitt á bæjartóftum Ingólfs, hins fyrsta landnámsmanns á íslandi, á tóftum Þorsteins Ingólfssonar, sem var sjálfur frumkvöðull að alisheijarríki á Islandi, í sóknarbroddi að stofnun alþingis á Þing- velli, forvígismaður lagasetningar, fyrsti allsheijargoðinn. Hann flutti fómarblóðið til Þingvalla úr hofí föður síns. Hann gerði Þingvöll heilagan frá Reykjavík. Þegar Jón Sigurðsson flutti Alþingi aftur til Reykja- víkur, þá flutti hann þingið með vissum hætti heim aftur, til síns uppruna. Þá voru mönnum þessir furðulegu þræðir örlag- anna ekki svo ljósir sem nú er orðið.“ Vegna Morgunblaðsgreina Helga Hjörv- ar um bústað Ingólfs var eftirfarandi sagt í Reykjavíkurbréfí 15. júlí 1961: „Ætla verður að bær Ingólfs hafi staðið þar sem nú er horn Aðalstrætis og Tún- götu eða þar á næstu slóðum. Með því mæla allar líkur, enda koma beztu fræði- menn sér saman um það. Úr þessu verður sennilega aldrei skorið til fulls, en upp- gröftur sunnan við Herkastalann fyrir nokkmm árum studdi mjög fyrri rök fræði- manna. Helgi Hjörvar hefur með réttu hneykslazt á, að þeim uppgreftri var ekki sinnt sem skyldi. Úr því verður ekki bætt héðan af. En nú er nýlega búið að rífa neðsta húsið við Túngötu, er stóð and- spænis Suðurgötu og mikill hluti Ander- senslóðarinnar er enn óbyggður. Leikmönnum virðist svo sem nú sé ein- stætt tækifæri til að grafa á þessum slóðum og kanna hvort einhveijar fornar minjar fínnist í jörðu. Þó að slíkur upp- gröftur geti líklega ekki eðli málsins samkvæmt skorið úr um það, hvort fyrsta byggð Reykjavíkur var á þessum slóðum, sýnist hvergi fremur ástaeða til fornleifa- graftar hér á landi en einmitt þama. Menn mega því ekki láta þetta tækifæri sér úr greipum ganga.“ Ifyrir ellefu alda afmæli íslandsbyggðar 1974 beitti Reykjavíkurborg sér fyrir forn- leifagreftri á þessum stað. í byijun júlí 1971 hófst fomleifagröftur á horni Aðal- strætis og Túngötu. Var sænskur forn- leifafræðingur, Bengt Schönbeek, ráðinn til að hafa umsjón með verkinu. Vann hann við það ásamt konu sinni, Else Nordahl, sem einnig er fornleifafræðingur. Stjómuðu þau rannsóknum þama í nokkur sumur, og með þeim unnu bæði fornleifa- fræðingar, nemendur í fornleifafræði, jarðfræðingar og ósérhæft fólk. Þorkell Grímsson vann þama í umboði Þjóðminja- safns. Reykjavíkurborg kostaði verkið. Því miður hefur ekki enn verið lögð fram end- anleg greinargerð um niðurstöður þessara rannsókna, þótt leikmönnum sýnist, að tími til að vinna þær sé orðinn meiri en nægur. Hitt er vitað, að fomleifagröfturinn leiddi í Ijós órækar sannanir fyrir því, að þarna var byggð á landnámsöld. Eða svo vitnað sé til orða dr. Kristjáns Eldjám á Reykjavíkurráðstefnu 1974: „Ég undir- strika það að lokum, að engin sýnileg fomfræðileg ástæða virðist til að rengja að landnám hafí hafizt á þeim tíma sem Ari nefnir, nefnilega 870 eftir burð Krists, heldur benda fomleifar hér á landi miklu fremur til þess að það geti verið laukrétt og um leið að líta megi á það sem sögu- lega vissu að þá hafí Reykjavík byggzt.“ Reykjavík höfuðstaður Þegar minnst var 150 ára afmælis kaup- staðarréttinda Reykjavíkur, kom út ritið Þættir úr sögu Reykjavíkur. Var félagið Ingólfur útgefandi þess. Félagið starfaði á ámnum 1934-42 og var Georg Ólafsson, bankastjóri, formaður þess til 1940 en síðan Bjarni Benediktsson, þáverandi borg- arstjóri. Gaf félagið út 26 ritverk, stór og smá. Félagið Ingólfur var endurreist á fundi 14. nóvember 1981 og hafði dr. Bjöm Þorsteinsson, prófessor, forgöngu um það, en Steingrímur Jónsson er formaður fé- lagsins. Tilgangur þess er að gefa út rit er heiti: Landnám Ingólfs og hafa verið gefín út tvö bindi í safninu frá endurreisn félagsins. í fyrrgreindu afmælisriti, sem félagið Ingólfur gaf út 1936, er ritgerð eftir Vil- hjálm Þ. Gíslason, útvarpsstjóra, sem heitir: Hversu Reykjavík varð höfuðstaður. Þar er skýrt frá því, að Skúli fógeti Magn- ússon „varð til þess sjálfrátt og ósjálfrátt, að leggja gmndvöll hins íslenzka höfuð- staðar í skjóli stjórnar- og viðskiptastefnu hins upplýsta einveldis. En hmn og hrak- farir erlendrar einokunar urðu til þess að lyfta undir trúna á tilraunimar til að þess að bæta ástandið á íslenzkum gmndvelli. Á þeim gmdvelli reis Reykjavík sem höfuð- staður nýs lífs í nýju landi.“ Segir Vilhjálmur að nú fínnist mönnum það máske ekkert merkilegt, hvað Skúla fógeta og fylgismönnum tókst þegar þeir lögðu í hina þjóðlegu íslensku viðreisnar- baráttu nýjan þátt, baráttuna fyrir efna- legri endurreisn atvinnulífsins í landinu. Laugardagur 16. ágúst En þá hafi þetta verið „það merkilegasta, sem fyrir þjóðina hafði komið í mörg hundmð ár og það svo, að mikill hluti ís- lendinga þumbaðist á móti þessu, á meðan hann gat. Það, sem um var að ræða, og það, sem stórhugur og framkvæmdaþrek Skúla fógeta vildi koma hér á, var nýtt íslenzkt þjóðfélag, verklega og fjárhags- lega séð, ný íslenzk verzlun, peningaverzl- un, og ný íslenzk sjósókn og íslenzkur iðnaður. Hið sýnilega tákn þessarar nýju íslenzku menningar var Reykjavík." í ritgerð sinni segir Vilhjálmur Þ. Gísla- son, að sú almenna skoðun hafí legið í loftinu, að Reykjavík hafi verið valin sem tilraunastöð hins nýja atvinnulífs, áf því að hún var bær fyrsta landsnámsmanns- ins. Hann bendir á, að í Reykjavíkursögu sinni telji Klemenz Jónsson, að þetta muni að minnsta kosti með fram hafa ráðið staðnum. „En þetta er eflaust ekki rétt,“ segir Vilhjálmur og minnir á þau orð Egg- erts Ólafssonar í ferðabókinni, að enginn hafí hugsað um það, að í Reykjavík var elsti bær landsins og bústaður fyrsta land- námsmannsins, þegar innréttingunum var valinn þar staður. Sama segi Eggert í einu kvæði sínu, Mánamálum, að enginn hafí munað, að í Reykjavík væru „helgar tóft- ir“ hins fyrsta landnámsmanns. Vilhjálmur segir, að Reykjavík hafí vantað virðuleikann. Um þetta hafí Skúli fógeti ekki hugsað í fyrstu eða ekki tekið eftir því. En hér hafí Eggert Ólafsson, einn helsti aðdáandi Skúla, komið til sög- unnar. Hann hafí gert sér grein fyrir því, að til að hin nýja atvinnumálastefna bæjar- menningarinnar í Reykjavík ætti að heppnast, þyrfti hún ekki einungis að vera reist á rökum hagfræðinnar og hinnar nýju náttúrufræði um hagnýtingu lands- gæðanna, heldur þyrfti Reykjavík einnig að tileinka sér þann þjóðlega, sögulega grundvöll, sem eldri sveitamenning og stórbýlaskipulag hvíldi á og verða þjóðleg- ur framtíðarbær á sögulegum grundvelli. „Þann grundvöll fann Eggert í þeirri stað- reynd, að Reykjavík var einhver elzti sögustaður landsins og helgur staður hins fyrsta landnámsmanns. Þannig varð Egg- ert Ólafsson höfundur hinnar nýju Ingólfs- helgi í landinu og hvatamaður hinnar þjóðlegu Reykjavíkur, eins og Skúli er stofnandi Reykjavíkur sem verzlunar- og atvinnubæjar." Alþingi í Reykjavík Hér verður ekki rakin saga byggðar- þróunar í Reykjavík eða lýst reiptogi milli embættismanna og kaupmanna. Smám saman safnaðist valdið í þjóðfélaginu á hendur manna, sem bjuggu í bænum. Menn skiptust í flokka um það, hvar skóli og biskupsstóll ættu að vera, en deildu laust fyrir miðja 19. öld enn ákafar um það, hvar þingstaður þjóðarinnar ætti að vera. í konungsauglýsingunni frá 1840 um endurreisn Alþingis var hugmyndinni um að þingið skyldi endurreist á Þingvöll- um gefíð undir fótinn. Jón Sigurðsson beitti sér fyrir því af festu og rökvísi, að Alþingi yrði í Reykjavík. Um þetta segir Vilhjálmur Þ. Gíslason: „Jón Sigurðsson er að vísu engu ómælskari en Þingvallamennirnir sjálfír, þegar hann er að tala um hinn forna al- þingisstað: „Hvergi væri því hátíðlegri staður en við Öxará til að byija starf það, sem vekja skal oss og niðja vora til foður- landsástar og framkvæmdarsemi, slíkra sem sæmir siðuðum og menntuðum mönn- um á þessari öld,“ segir hann og enn fremur: „Sá mætti vera tilfinningarlaus Islendingur, sem ekki fyndi til föðurlands- ástar eða nokkurra djúpra hugsana, þegar hann kemur á þann stað, sem Alþingi feðra vorra hefír staðið. Náttúran hefír í fyrstu sett þar á merki sitt, eitthvert hið stórkost- legasta, sem hún á til ... sá staður hefír verið vitni til hins bezta og ágætasta, sem fram hefír farið á landi voru: til heitrar trúar og sambands hinnar fyrstu kristnu, til margra viturlegra ráðstafana, til að halda við góðri stjórn og reglu í landinu, til baráttu feðra vorra fyrir frelsi sínu...“ Hvað á nú Reykjavík á móti þessu öllu? Jón Sigurðsson telur sjálfur fram ýmsa Moiyunblaðið/Árni SælxT(t kosti Reykjavíkur — „ekki ófagurt bæjar- stæði“, nóg rými til bygginga, góða höfn og víða, stutt til aðdrátta á sjó og landi frá beztu héruðum og samgöngur jafn- hægastar til alls landsins og til útlanda, og loks telur hann það, að töluverður stofn sé í þeim embættis- og lærdómsmönnum, kaupmönnum og iðnaðarmönnum, sem þar séu. Þess vegna telur Jón Sigurðssom, að „þótt hugur og tilfinningar mæli fram með Þingvelli, þá mælir að minni hyggju skyn- semi og forsjálni með Reykjavík“. Þótt menn hafí hatazt við Reykjavík af því að hún væri danskt óræsti og mótsnúin öllu þjóðerni íslendinga, þá telur hann, „að það standi í voru valdi að gera hana íslenzka, ef vér viljum". Jón Sigurðsson var samt ekki með Reykjavík sem alþingisstað, af því að þingið ætti að vera Reykjavík til framdráttar, þvert á móti af því „að þing- ið getur betur orðið það, sem því er ætlað í Reykjavík en á Þingvöllum". Þessar og þvílíkar röksemdir Jóns Sigurðssonar og hans manna urðu ofan á, eins og kunnugt er. Þar með var Reykjavík í sannleika orð- in höfuðstaður, og af Alþingi fékk hún nýjan virðuleik, vegna þeirrar helgi, sem hvíldi á hinni foniu stofnun, sem gekk í endumýjun lífdaga sinna, og Reykjavík varð þá einnig Alþingi gott hæli.“ Mikil saga í tilefni af 200 ára afmæli Reylgavíkur hefur hér verið staldrað við þá þætti úr sögu hennar, sem lúta að Ingólfshelginni og þeirri ákvörðun að endurreisa Alþingi hér á þessum stað. Saga mannlífs, at- vinnu, menningar og lista er ekki síður merk. Þar er af mörgu að taka eins og sést af öllu því, sem um Reykjavík hefur verið ritað og á eftir að rita. Árið 1967 bundust Reykjavíkurborg og Sögufélagið samtökum um að heíja útgáfú á Safni til sögu Reykjavíkur. Ac.ta Civitatis Reykia- vicences. í þeim flokki hefur Lýður Bjömsson annast útgáfu á tveimur bókum, Kaupstaður í hálfa öld 1786-1836 og Bæjarstjórn í mótun 1836-1872. Auk þess hafa komið út fjögur verk önnur í ritröð- inni; tvö ritgerðasöfn: Reykjavík í 1100 ár og Reykjavík miðstöð þjóðlífs; og Ómag- ar og utangarðsfólk. Fátæktarmál Reykjavíkur 1786-1907 eftir Gísla Ágúst Gunnlaugsson og nú í tilefni 200 ára af- mælisins Sveitin við sundin. Búskapur í Reykjavík 1870-1950 eftir Þóranni Valdi- marsdóttur. Þegar þessi rit eru lesin og annað, sem um Reykjavík hefur verið skrifað, kemst lesandinn fljótt að raun um, hve breyting- ar og framfarir í borginni hafa verið örar á þessum 200 áram og þá ekki síst á síðustu áratugum. Borginni hefur verið vel stjómað og af sama framfarahug og einkenndi upphaf hennar. Hér hafa á ör- skömmum tíma verið tekin svo stór stökk að með ólíkindum er. Á slíkum breytingar- tímum er sú hætta ávallt fyrir hendi, að menn gleymi því sem áunnist hefur i kröfu- gerð um enn meiri framfarir. Reykjavík er borg er býður allt það, sem miklu fjölmennari borgir í milljónaþjóð- félögum veita. Þeirri þróun verður ekki snúið við og henni á ekki að snúa við. En því aðeins viðurkenna menn þau stórvirki, sem unnin hafa verið, að þeir meti þau í réttu ljósi. Þá birtu veitir rannsókn á for- tíðinni. Nú á tímum hættir okkur til að leggja efnislegt mat á alla hluti, en eins og hér hefur verið leitast við að draga fram, er það eldmóður hugsjónanna, þrótt- ur skáldanna, virðingin fyrir fortíðinni ásamt með skynsemi og forsjálni, sem hefur veitt íslendingum þann kraft, er einn dugði til að gera Reykjavík að þeirri höfuð- borg, sem nú fagnar 200 ára afmæli sínu. „Efalaust verður að telja, að bær Ingólfs í Reykjavík hafi staðið við \ ■%, sunnanvert Aðal- stræti að vestan, andspænis þeim stað þar sem síðar var kirkjan og gamli kirkjugarð- urinn. Ollum má kunnugt vera, hversu það bar til, að höfuðborg landsins var reist á túnum og tóftum hins f yrsta land- námsmanns, þar sem ævaforn sögn hermir að guðirnir haf i vísað honum bólfestu. Sögu- heigi þessa staðar er sameign allra Islendinga. Engin þjóð önnur kann frá slíkum atburð- um að segja úr sinni sögu, þar sem ^ á einn stað koma upphafog framtíð.“ (Úrávarpi frá 1959)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.