Morgunblaðið - 17.08.1986, Síða 40
^40
sMÖR'GÚfoBLAÓlö; '§ðífiíUÖAGUfiIí/'.-!®!Í8fé¥ífl$6
Katrín Aðalbjörns-
dóttir — Kveðjuorð
Fædd 17. ágúst 1922
Dáin 10. júlí 1986
í dag, 17. ágúst, hefði amma
Kata, eins og hún var oftast kölluð
af bamabömum sínum, orðið 64
ára, en hún var kölluð frá okkur
10. júlí sl. eftir erfiða sjúkdómslegu.
Mig langar í örfáum orðum að
minnast á ömmu mína sem var mér
svo mikið góð og alltaf tilbúin til
hjálpar ef þess þurfti með.
Það var í litla herberginu þeirra
ömmu og afa á Hvolsvegi 25 sem
ég leit fyrst dagsins ljós og átti ég
þar heima fyrstu 6 árin þar til ég
flutti með pabba og mömmu í nýtt
hús skammt frá, svo ekki var langt
að fara í heimsókn til ömmu sem
þá bjó orðið ein, því Kjartan afa
missti hún 3 mánuðum eftir að ég
fæddist aðeins 38 ára gamlan og
man ég hann því ekki.
Það varð því hlutverk ömmu að
fara að „vinna úti“ eins og það er
kallað og var aðalstarf hennar fólg-
ið í ræstingum á ýmsum stöðum á
Hvolsvelli.
Það var alltaf eftirvænting þegar
amma kom heim úr vinnunni eða
annars staðar frá, því við vissum
alltaf bamabömin og síðar Aðal-
björn minn, að alltaf var eitthvað
í töskunni hennar sem var svo gott
eða gaman að fá. Við vomm varla
farin að tala þegar við þekktum
töskuna hennar ömmu og bjugg-
umst alltaf við einhveiju úr henni.
Ef amma fór að heiman, kom hún
aldrei svo aftur að gefa okkur ekki
eitthvað, því það var henni unun
að gefa og gleðja.
Alltaf var hægt að leita til ömmu
Kötu ef maður þurfti á hjálp að
halda. Eg var mjög ung þegar ég
fór að búa og vantaði þá húsnæði
í 3—4 mánuði svo ég bað ömmu
að leyfa okkur Óskari að vera þann
tíma og var það auðsótt mál. En
mánuðirnir fjórir urðu að 4 ámm
sem em mér einkar minnisstæð.
Óskari tók hún sem nýju barna-
barni og var hann ekki skilinn
útundan frekar en aðrir í fjölskyld-
unni. Aldrei bar nokkum skugga á
sambúðina, því amma Kata var allt-
af svo hress og kát. Stutt var í
hláturinn og þurfti lítið til. Þetta
vom einkenni ömmu Kötu.
„Verið velkomin til mín,“ vom
orð ömmu þegar við þurftum á
húsaskjóli að halda í einn og hálfan
mánuð, tveimur ámm síðar. Vomm
við þá orðin þrjú, því Aðalbjörn
Páll var þá fæddur.
I vetur sem leið tók Óskar að sér
leikfimikennslu í Hvolnum þar sem
amma sá um að krakkamir fæm í
sturtu, en það var hún búin að gera
í mörg ár, m.a. é á allri minni skóla-
göngu svo og Óskar í nokkur ár.
ðskar minnist oft á hvað hann
hlakkaði til ieikfímitímanna, sér í
lagi til að hitta ömmu því þau vom
alltaf eitthvað að gantast. Amma
var mjög samviskusöm í þessu
starfi sem öðmm. Um bömin hugs-
aði hún vel, að þau fæm ekki með
blautt hárið út í kuldann og
gleymdu ekki dótinu sínu. Bömin
sakna nú ömmu Kötu í leikfimitím-
unum en þau minnast hennar nú
með miklu þakklæti og ekki síst
foreldrar þeirra.
Amma var eitt af átta börnum
þeirra Þorbjargar Grímsdóttur Seli
í Reykjavík og Aðalbjöms Stefáns-
sonar prentara. Langafi er látinn
fyrir allmörgum ámm, en lang-
amma er enn á lífi háöldmð, eða
97 ára gömul og við allgóða heilsu.
Býr hún í Reykjavík ásamt elsta
barni sínu, Aðalbimi, sem varð sjö-
tugur í fyrra.
Við útför ömmu fylgdi hún sínu
Ijórða barni til grafar. Sá mikli trú-
arstyrkur sem býr í langömmu er
einstakur og aðdáunarverður og
okkur hinum mikils virði.
Amma átti tvö böm, föður minn,
Aðalbjöm Þór, sem giftur er Krist-
rúnu Kjartans, og Hólmfríði, sem
gift er Bimi Inga Gíslasyni. Pabbi
og mamma eiga tvo syni auk mín
og búa öll á Hvolsvelli. Fríða og
Bjössi eiga 4 syni og búa þau á
Selfossi. Barnabörnin em því 7 að
viðbættu einu bamabarnabarni sem
einnig er strákur eins og áður er
getið. Er ég því eina stelpan í þess-
um 8 ömmubarna hópi, og nærri
má því geta hvort ekki hafi oft
verið glatt á hja.lla á Hvolsveginum
þegar allur hópurinn var þar saman
kominn.
Aldrei get ég fullþakkað ömmu
Kötu fyrir allt sem hún hefur gert
fyrir mig og mína fjölskyldu. Heim-
sóknir mínar til hennar á seinni
ámm vom alltof fáar, því alltaf var
gaman að koma til hennar, og ekki
síður þótti henni vænt um að fá
heimsókn sinna nánustu og gefa
þeim að borða góðan mat og gleðj-
ast og grínast á þann hátt sem
henni einni var lagið.
Já, söknuðurinn er mikill og
sannast nú máltækið, að enginn
veit hvað átt hefur fyrr en misst
hefur.
Eg vona að þessi fátæklegu orð
mín séu einhver þakklætisvottur
fyrir allt sem amma Kata gerði
fyrir mig og mína.
Amma mín sem alltaf var okkur
svo trygg og trú og tekin var frá
okkur svo allt of fljótt.
Megi algóður Guð varðveita hana
í nýjum heimkynnum.
Kata Björg
Blómastofa
Fnöfinm
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
tll kl. 22,-elnnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
+
Útför eiginmanns míns, fööur okkar og tengdafööur,
EINARS MAGNÚSSONAR,
fyrrverandi rektors,
fer fram frá Dómkirkjunni miövikudaginn 20. ágúst kl. 13.30.
Rósa Guðmundsdóttir,
Helga M. Einarsdóttir, Ólafur Guðnason,
Sigriöur Einarsdóttir, Guömundur Ingólfsson.
t
Útför móöur okkar,
GUÐBJARGAR VILHJÁLMSDÓTTUR,
Skeiðarvogi 22,
fer fram frá Langholtskirkju þriöjudaginn 19. ágúst ki. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á þau félög sem voru
henni kærust, Kvenfélag Langholtssóknar og Slysavarnafélag (s-
lands.
Bergþóra Ólafsdóttir, Hallveig Ólafsdóttir,
Úlfhildur Úlfarsdóttir, Magnús Ólafsson.
+
Útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og systur,
LAUFEYJAR ELÍASDÓTTUR,
fer fram frá Nýju kapellunni í Fossvogi þriðjudaginn 19. ágúst kl.
13.30.
Kristin Pétursdóttir,
Eva og Ingi Pétursson,
barnabörnin,
Elsa Elfasdóttir.
+
Móðir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
GUÐMUNDA KRISTJÁNSDÓTTIR,
veröur jarðsungin frá ísafjarðarkirkju þriðjudaginn 19. ágúst
kl. 14.00.
Guömundur Hermannsson, Herborg Júniusdóttir,
Ása Hermannsdóttir,
Ingibjörg Hermannsdóttir, Guðmundur Halldórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegustu hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúö
og vinarhug við andlát og útför sonar mins og bróöur okkar,
KRISTJÓNS VIÐARS HELGASONAR,
Lambastöðum.
Guö blessi ykkur öll.
Katrín Magnúsdóttir,
María Blöndal, Björn Blöndal,
Guðrún Helgadóttir, Þorgils Axelsson,
Jónfna Helgadóttir, Sigurður Hafsteinn Björnsson,
Magnús Helgason, Hildur Johnson
og frændsystkini.
+
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug viö andlát og jaröarför móö-
ur okkar, tengdamóöur og ömmu,
ÖNNU MARGRÉTAR ÓLAFSDÓTTUR
frá Brautarholti, Akranesi.
Sigrún Sigurjónsdóttir, Jóhannes Árnason,
Sveinn Sigurjónsson, Erna Sigþórsdóttir,
Guðbjörg Sigurjónsdóttir, Daði Guðbjörnsson,
Arnheiður Sigurjónsdóttir
og barnabörn.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 681960
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug viö andlát
GUNNARS KLÆNGSSONAR.
Jóna Sigurgeirsdóttir, Klara Klængsdóttir,
Gunnar Klængur Gunnarsson, Móeiður Gunnlaugsdóttir,
Sigurður Haraldsson,
og afabörnin.
+
Innilegar þakkir fyrir sýnda samúö og hlýhug við andlát og jarðarför
RAGNHEIÐAR SCHEVING,
Hraunbæ 116.
Dóra Petersen,
Svava S. Jónsdóttir,
Lárus Scheving,
Rut Petersen,
Gunnar Petersen,
Guðrún S. Jónsdóttir,
Hannes Petersen.
+
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför mannsins míns, fööur, tengdafööur og afa,
KARLS THEODÓRS JÓNSSONAR,
Kleppsvegi 74,
Sérstakar þakkir færum viö læknum og starfólki gjörgæsludeildar
Landakotsspitala.
Hrefna Hannesdóttir,
börn.tengdabörn og barnabörn.
+
Innilegar þakkir færum viö öllum sem sýnt hafa okkur samúö og
hlýju við andlát
HELGA BIRGIS MAGNÚSSONAR.
Guðrún Sveinsdóttir,
Sveinn Sævar Helgason, Sigríður Helgason,
Ólafur Guðmundsson, Reynir Guðmundsson,
María Magnúsdóttir, Gerður Magnúsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
jaröarför dóttur okkar, móöur minnar, systur og mágkonu,
KRISTÍNAR ÞORGERÐAR JÓNSDÓTTUR,
frá Setbergi,
Kambaseli 85, Reykjavík.
Ólavía Þorsteinsdóttir,
Málfríður Mjöll Finnsdóttir,
Ómar Jónsson,
Jón Bergmann Jónsson,
Ólafur Jónsson,
Þorsteinn Jónsson,
Sigurður Þór Jónssons.
Jón Jónsson,
Eygló Sigurðardóttir,
Bryndís Olafsdóttir,
Sigþóra Björnsdóttír,
Hallveig Lárusdóttir,
Legstelnar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
_______um gerð og val legsteina._
Ífi S.HELGASON HF
I STEINSmlÐJA
n,
SKEMMUVEGI 48 SiMI 76677