Morgunblaðið - 17.08.1986, Qupperneq 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986
+
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA
’*:***?%$'' ■ ■+' ‘‘ ■. +
á4- +:*ií'■ ■ ■ +1+ f.:£■ K:,'.
V*t u
«-í4' >"■<$"■
Morgunblaöið/Einar Falur
• Sigurdur Elvar sést hér bruna upp hægri kantinn en það gerði hann ósjaldan í úrslitaleiknum sem og öðrum leikjum mótsins.
„Þetta er Víkingur“
- hrópaði ánægður Víkingsaðdáandi á úrslitaleik
Víkings og ÍR á Hi-C-Skagamótinu
EKKERT lið kom meira á óvart
á Hi-C mótinu á Akanesi en lið
ÍR. Það keppti um 3-4 sæti B-
liða og til úrslita í keppni A-liða.
í keppni A-liða mættu þeir
Vikingi í úrslitum.
Fljótlega varð Ijóst í úrslitaleik
A-liða að Víkingarnir voru mun
sterkari en ÍR-ingarnir. ífyrri hálf-
leik fór Víkingurinn, Þorbjörn Atli,
á kostum, hann skoraði fyrsta
mark leiksins með laglegu og
föstu skoti af stuttu færi efst í
markhornið fjær. Skömmu
seinna braust hann upp kantinn,
lék á hvern varnarmanninn á
fætur öðrum og renndi síðan
boltanum út á Þröst Helgason
sem átti ekki í vandræðum með
að skora. Þorbjörn skoraði síðan
3 mark Víkinga og var nú útlitið
oröið dökkt hjá ÍR.
• Kristján Jónsson
Breiðholtsstrákarnir voru þó
ekki alveg á því að gefast upp
og Ólafur Sigurjónsson náði að
skora þeirra fyrsta mark af harð-
fylgi og laga stöðuna í 3:1.
Þröstur Helgason sá síðan til
þess að Víkingar héldu þriggja
stiga forskoti þegar hann fékk
boltann frír fyrir framan ÍR-
markið og skoraði af öryggi. Ólaf-
ur ÍR-ingur svaraði strax fyrir lið
sitt, hann lék laglega á markvörð
Víkings, renndi boltanum í netið
og hleypti þar með aftur spennu
í leikinn. Rétt fyrir leikhlé kom
síðan 5. Víkingsmarkið, boltinn
gekk hratt milli manna alveg inn
í markeig ÍR og það var Sigurður
Elvar Sigurðsson sem rak enda-
hnútinn á þessa fallegu sókn
með marki. „Þetta er Víkingur,"
hrópaði ánægður Víkingsáhang-
andi þegar þetta mark leit
dagsins Ijós til að tryggja að það
færi ekki framhjá neinum hvaða
lið væri með þessa knattspyrnu-
sýningu.
Síðari hálfleikur var síðan al-
gjörlega eign Víkinga. Þeir bættu
við 4 mörkum án þess að ÍR
tækist að svara. Þar voru að
verki framlínumennirnir snjöllu
hjá Víking, Sigurður Elvar og
Þorbjörn Atli, sem gerðu sitthvor
tvö mörkin. Leiknum lauk því
með stórsigri Víkings 9:2.
Þrátt fyrir að ÍR tapaði þessum
úrslitaleik með miklum mun var
frammistaða þeirra á mótinu
mjög góð og kom skemmtilega
á óvart. Margir ÍR-inganna verða
áfram í 6. flokk á næsta ári og
eru þeir til alls líklegir næsta
sumar. Bestir þeirra í þessum
leik voru markvörðurinn, Ólafur
Þ. Gunnarsson, sem varði oft á
tíðum stórglæsilega og bjargaði
liði sínu frá stærra tapi, og Ölaf-
ur Sigurjónsson, sem er harð-
fylginn og duglegur framherji.
Víkingarnir hafa sýnt það í
sumar að þeir eru í allra fremstu
röð 6. flokks-liða og spilar lið
þeirra mjög skemmtilega knatt-
spyrnu. í úrslitaleiknum áttu allir
Víkingarnir góðan leik og var
hvergi veikan hlekk að finna, en
Þorbjörn Atli átti stjörnuleik.
Úrslit á
Hi-C-
Skagamóti
ÚRSLIT á Hi-C-móti.
A-riöill:
ÍBKa-UKBa 1-10
ÍBKa —Vikingura 0-5
(BKa-ÍAb 3-2
ÍBK a — Bolungarvík b 12-0
ÍBKa-ÍRb 6-1
ÍBK a — Vikingur c 8-1
ÍBKa-ÍRc 4-1
UBKa —Víkingura 3-6
UBKa-ÍAb 5-0
UBK a — Bolungarvik b 14-0
UBKa-ÍRb 9-2
UBK a — Víkingur c 3-0
UBKa-ÍRc 11-0
Víkingur a — ÍA b 3-1
Víkingur a — Bolungarvík b 11-0
Víkingura — ÍR b 7—1
Víkingur a — Víkingur c 14-1
Víkingura — ÍRc 10-2
ÍA b — Bolungarvík b 9—0
(Ab-ÍRb 5-0
ÍAb —Vikingurc 1
(Ab-ÍRc 6-0
Bolungarvík b — ÍR b 0-4
Bolungarvík b — Víkingur c 2-2
Bolungarvík b — ÍR c 1—1
ÍR b — ÍR c 1—1
Víkingur c — ÍR c 1-3
B-riðill:
ÍBKb-UBKb 0-8
ÍBK b —Víkingurb 0-2
ÍBKb-lAa 0-4
ÍBK b — Bolungarvik a 3-3
ÍBKb-ÍRa 0-5
ÍBK b — Skallagrimur 3-3
ÍBKb-lAc 4-0
UBK b —Víkingur b 6-0
UBK b — ÍA a 2—1
UBK b — Bolungarvík a 5-1
UBKb-ÍRa 2-3
UBK b — Skallagrímur 10-0
UK b — ÍA c 8-0
Víkingur b — ÍA a 1—7
Vikingur b — Bolungarvik 2-2
Vikingur b — ÍR a 1-4
Víkingur b — Skallagrimur 7-1
Víkingur b — ÍA c 1-0
ÍA a — Bolungarvík a 6-1
ÍAa — ÍR a 1-0
ÍAa — Skallagrimur 11-2
ÍA a — í A c 5-0
Boluhgarvík — ÍR a 0-6
Bolungarvík — Skallagrímur 1-0
Bolungarvík — ÍA c 5-2
ÍA a — Skallagrimur 4-0
ÍRa-ÍAc 12-0
Skallagrímur — ÍA c 1-3
Úrslitaleikir Hí-C Skagamót
A-lið:
3.-4. sæti
ÍAa-UBKa 1-4
1.—2. sæti
VÍKa-ÍRa 9-2
B-lið:
3.-4. sæti
VÍKb-ÍRb 1-0
1.—2. sæti
UBK b — ÍA b 1-3
C-lið:
ÍA c — Vík c 3-0
ÍRc-ÍAd 1-2
Til úrslita léku ÍA c og ÍA d og fóru
leikar þannig að IA c sigraöi IA d með
4 mörkum gegn 1.
rður A-liða:
W
Atti ekki von á
því að leika í marki
'
iC
U
„Ég varð roslega hissa þegar
hann sagði nafnið mitt,“ sagði
Kristján Jónsson, Bolungarvík,
aðspurður um hvernig honum
varð við þegar hann heyrði til-
kynnt að hann hefði verið valinn
besti markvörður A-liða á Hi-C
mótinu.
Útnefningin hefur e.t.v ekki
komið Kristjáni hvað minnst á
óvart vegna þess að upphaflega
átti hann alls ekki að spila stöðu
markvarðar á þessu móti.
„Markmaðurinn okkar meiddist
og ég var látinn í markið af þvi
að ég æfði mark í fyrra. Kannski
fer ég bara að æfa mark aftur
það eru allavega allir að segja
mér það,“ sagði Kristján um til-
drög þess að hann tók stöðu
markvarðar á mótinu.
Að sögn Kristjáns eru flestir
strákar á hans reki á Bolung-
arvík í fótbolta en einnig er
mikill skiðaáhugi þar. Ekki gat
Kristján neitað því að hann
væri spenntur að koma herm
með markmannsviðurkenning-
una „Pabbi og mamma verða
örugglega hissa og fegin,“
sagði hann og vippaði sér uppí
rútuna sem flutti hann heim.