Morgunblaðið - 17.08.1986, Qupperneq 61
MOEGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. AGUST 1986
61
Morgunblaöið/Einar Falur
• Þorbjöm Atli og Elmar Sæmundsson í Víkingsgöllunum sínum. '
Vorum kannski
dálítið líklegir
- sögðu Víkingarnir Þorbjörn Atli og
Elmar Sæmundsson eftir að hafa verið
útnefndir bestu varnar- og sóknarmenn
UPPSKERA Víkings á Hi-C-
mótinu var mjög góð auk þess
aö vinna keppni A-liða, lenda i
3. sætið í keppni B-liða voru
tveir Víkingar valdir besti sókn-
armaður A-liða og besti varnar-
maður B-liða. Þetta voru þeir
Þorbjörn Atli Sveinsson sóknar-
maður og Elmar Sæmundsson
varnarmaður.
„Okkur er búið að ganga vel í
sumar við unnum líka A-liðs
keppni Pollamótsins þannig að
kanski erum við með besta liðið
á landinu," sögðu félagarnir.
„Þetta er búið að vera gott mót
en það var ekki raðað nógu vel
í riðla margir leikirnir urðu alltof
ójafnir. Það er líka alltaf skemmti-
legra að taka þátt í mótum úti á
landi en í bænurn," bættu þeir
við.
Þorbjörn og Elmar sögðu að
þeir hefðu stefnt að góðum
árangri á mótinu og fyrir það
hefði veriö æft daglega, „en við
bjuggumst nú ekki við að verða
valdir bestu menn, höfðum
kannski dálitlar líkur en vorum
ekki 100% vissir," sögðu þeir
dálítið feimnir.
Glæsimörk Freys
gerðu útslagið
í úrsiitaleik B-liða á Hi-C-
mótinu á Akranesi mættu
heimamenn Breiðabliki. All-
margir áhorfendur voru mættir
til að horfa á þennan leik, flest-
ir á bandi heimamanna, og urðu
þeir vitni að spennandi viður-
eign.
Jafnræði var með liðunum
lengst af í fyrri hálfleik og var
mikil barátta um að ná tökum á
miðjunni. Skagamenn náðu for-
ystunni um miðbik fyrri hálfleiks
með marki Arnþórs Ásgeirsson-
ar, sending barst fyrir markið þar
sem Arnþór var fyrir og átti ekki
í vandræðum með að renna bolt-
anum í netið. Eftir markið sóttu
Skagastrákarnir mikið án þess
þó að bæta við marki fyrir leikhlé.
Blikarnir komu grimmir til leiks
í seinni hálfleik og ætluðu greini-
lega ekki að láta heimamennina
vaða yfir sig. Þeir sóttu mjög
fyrstu mínútur hálfleiksins og á
5. mínútu hans jafnaði Hreiðar
Þ. Jónsson ieikinn þegar hann
þrumaði knettinum uppí þaknet
Skagamarksins.
Um 5 mínútum fyrir leikslok
var dæmd aukaspyrna á varnar-
mann UBK rétt fyrir utan vítateig
Blikanna. Freyr Bjarnason fram-
kvæmdi spyrnuna og sendi
knöttinn rakleitt í skeytin. Glæsi-
legt mark hjá Frey. Skömmu
seinna gerði Freyr síðan endan-
lega út um leikinn þegar hann
skoraöi 3 mark ÍA með skoti langt
utan af velli sem sveif yfir mark-
vörð UBK og í netið. Lokatölur
þessa leiks urðu því 3:1 ÍA í vil
og fögnuðu heimamenn mjög í
leikslok.
Hi-C-Skagamótið:
Vel
heppnað
- fyrir strákana
sem léku fótbolta frá
morgni til kvölds
Foreldrafélag 6. flokks
íþróttabandalags Akraness
gekkst fyrir knattspyrnumóti
fyrir þann aldursflokk dag-
anna 8.—10. ágúst síðastlið-
inn. Pollarnir úr félögunum 7
sem sendu lið til mótsins létu
ekki rok og rigningu á sig fá
og spiluðu fótbolta alla dag-
ana þrjá frá morgni til kvölds.
Þegar ekki var verið að spila
fótbolta var annaðhvort farið
á bíósýningu, kvöldvöku, skoð-
unarferð eða bara verið uppí
skóla þar sem aðkomuliðin
gistu og spilað við hina strák-
ana í liðinu. Svo er nú líka alltaf
gaman að reyna aðeins á
kraftana í léttum áflogum.
Fasteigna- og skipasala
Vesturlands gaf glæsilega bik-
ara til mótsins auk þess sem
liðsmenn þriggja efstu liða í
keppni A- og B-liða fengu verð-
launapeninga. Allir þátttak-
endur á mótinu fengu
viðurkenningaskjöl til minja
um þátttökuna. Það voru því
ánægðir guttar sem kvöddu
Akranes sunnudaginn 10.
ágúst eftir að hafa verið í fót-
boltaveislu í 3 sólarhringa.
Helgarmót vantar
fyrir 5. flokk
í SUMAR hefur umsjónarmaður
ungtingasíðu veitt því athygli
hve mörg og skemmtileg mót
eru haldin fyrir 6. flokk pilta i
knattspyrnu. Knattspyrnufélög
á höfuðborgarsvæðinu og á
landsbyggðinni hafa skipulagt
glæsileg mót þar sem ekki er
einunggis spilaður fótbolti held-
ur er gífurleg dagskrá önnur í
tenglsum við þessi mót. Þessu
ber að fagna.
Hinu er ekki að leyna að mér
finnst nóg komið og nú ætti ekki
að setja fleiri mót á fyrir þennan
aldur en þegar eru komin heldur
er tilvalið og nauðsynlegt að ein-
hver félög og þá helst á lands-
byggðinni skipuleggi mót sem
þessi fyrir 5. flokk. I þeim flokki
eru líka ungir knattspyrnumenn
sem myndu geisla af ánægju við
þátttöku í móti sem þessu.
Morgunblaðiö/ViP
Heimamennirnir Hallur Þór og Helgi Dan.
„Bókaðir íþetta“
Skagamennirnir Heigi Dan
Steinsson og Hallur Þór Sig-
urðsson höfðu rika ástæðu til
að vera ánægðir með uppskeru
Hi-C-mótsins því Helgi var val-
inn besti markvörður B-liða og
Hallur besti varnarmaður A-
liða.
Blaðamaður truflaði þá þegar
þeir voru að hreinsa íþrótta-
svæðið eftir mótið ásamt félög-
um sínum og spurði þá hvort
þessi verðlaun hefðu komið þeim
á óvart. „Já, við bjuggumst alls
ekki við þessu. Strákarnir í liðinu
voru búnir að segja að við værum
bókaðir í þetta en við trúðum því
nú ekki.“
Helgi á ekki langt að sækja
markmannshæfileika því afi
hans, Helgi B. Daníelsson, var
landsliðsmarkmaður hér á árum
áður og spurði ég Helga hvort
afi hans hefði sagt honum eitt-
hvað til. „Já, afi segir mér
stundum til í markinu en þó
meira í golfi sem við spilum oft
saman," upplýsti hann. Það er
ekki ónýtt að eiga svona afa.
Morgunblaöiö/VIP
• „Taka þetta svo strákar". Helgi Dan markvörður B-liðs Skag-
ans hvetur samspilara sína. Hann er greinilega ákveðinn í að
standa sig og hefur allan nauðsynlegan markmannsútbúnað.
Reynsluleysið
háði okkur í
fyrstu leikjunum
- sagði Halldór S. Sigurðsson Skallagrími
„ÞETTA er fyrsta mótið sem við
tökum þátt í í sumar og þetta
er búið að vera æðislega
skemmtilegt," sagði Halidór
Steinar Sigurðsson,
Skallagrími, þegar hann var tek-
inn tali á Hi-C mótinu.
Halldór sagði að vegna lítillar
keppnisreynslu hefði þeim ekki
gengið nógu vel í fyrri hluta móts-
ins en það hefði lagast þegar líða
tók á mótið. „Við erum eina liðið
í Borgarfirði og getum því ekki
keppt mjög mikið en kannski
gætum við keppt oftar við Skag-
ann, það er ekkert langt hingað,"
sagði Halldór um möguleika þess
að fá fleiri leiki.
Fyrir utan fótbolta fóru strák-
arnir í skoðunarferðir, haldnar
voru kvöldvökur þar sem farið
var í allskonar leiki, skemmtiatriði
sýnd o.fl. og þótti Halldóri greini-
lega mikið til koma. • Halldór S. Sigurðsson
Hef æft vel
- sagði Grétar Már Sigurðsson
besti sóknarmaður B-liða
Grétar Már Sigurðsson UBK
var valinn besti sóknarmaður
B-iiða á Hi-C mótinu og var
hann vel að þeirri útnefningu
kominn því hann er geysilega
skemmtiíegur keppnismaður.
„Ég hef æft vel í sumar og líka
verið í knattspyrnuskóla," sagði
Grétar um undirbúning sinn fyrir
mótið. Grétar var ánægður með
2. sætið í mótinu en gat þó ekki
neitað því að það hefði nú ekki
verið verra að lenda í því fyrsta.
Eins og aðra unga
knattspyrnumenn dreymir Grét-
ar um að feta í fótspor Ásgeirs
Sigurvinssonar og gerast at-
vinnumaður og ekki væri nú verra
ef hann fengi að keppa meö Liv-
erpool.
• Grétar Már Sigurðsson
V