Morgunblaðið - 23.08.1986, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST, 1986
23
Indland:
Sex deyja
ítrúar-
átökum
Nýju Delhí, AP.
LÖGREGLA skaut á mann-
fjölda í borginni Barodax í gær
og felldi einn mann, að þvi er
fréttastofa Indlands skýrði frá.
Útgöngubanni hefur verið lýst
yfir í borginni vegna átaka
milli hindúa og múhameðstrú-
armanna. Sex hafa látist í
átökuniun síðan á þriðjudag og
yfir 50 særst.
Lögreglan hóf skothríð í gær til
þess að dreifa mannfjölda. Lét fólk-
ið ófriðlega og kastaði í lögregluna
gijóti, brennandi tuskum og flösk-
um, sem það hafði fyllt með sýru.
Baroda er ein stærsta borgin í
fylkinu Gujarat í vesturhluta lands-
ins. Átökin milli hindúa og múslima
hófust í júní síðastliðnum er trúar-
ganga hindúa, sem fór um hverfí
múslima, var grýtt. 60 manns hafa
látist í átökunum undanfama tvo
mánuði.
0 . • W
K * I
5.000 Boeing-þotur
ÞÚSUNDIR manna fylgdust með þvi er Boeing-verksmiðjurnar afhentu fimmþúsundustu far-
þegaþotuna, sem þær hafa smíðað. Þotan var afhent KLM-flugfélaginu hollenzka við athöfn í
verksmiðjunum og var myndin tekin við það tækifæri. Flugvélin er af gerðinni Boeing 737-300.
Skýrsla bandarískrar
rannsóknarstofnunar:
Hagvöxtur
mestur á
Taiwan
Ncw York, AP.
MESTUR hagvöxtur er á
Taiwan, á Ítalíu og í Frakk-
landi ef tekið er mið af
hinum iðnvæddu þjóðum, að
því er skýrsla sjálfstæðrar
rannsóknarstofnunnar í
Bandarikjunum hermir.
Hagvöxtur er minni í Banda-
rikjunum, Kanada og Vest-
ur-Þýskalandi og hefur
stöðvast í Bretlandi, Japan
og Astralíu, segir ennfremur
í skýrslunni.
Að rannsóknarstofnuninni
standa fyrirtæki, verkalýðsfélög
og háskólar. Byggt er á upplýsing-
um um pantanir fyrirtækja,
byggingarleyfí og öðru sem talið
er að segj til um ástand efnahags-
lífsins. Samkvæmt skýrslunni er
hagvöxtur á Taiwan 14% á ári, á
Ítalíu 12% og í Frakklandi 8%.
Bandaríkin eru næst með 4% hag-
vöxt og í Vestur-Þýskalandi er 2%
hagvöxtur. Bretland stendur á
núllinu, þar er enginn hagvöxtur
og í Japan og Ástralíu er spáð
samdrætti efnahagslífsins um 4
og 6%.
Bandaríkin:
Smásöluverð lækkar
Washington, AP.
SMÁSOLUVERÐ stóð i stað í
Bandaríkjunum í júlímánuði
að því er opinberar tölur ríkis-
stjórnarinnar herma. Það er
einkum vegna lækkunar
bensinverðs að smásöluverð i
heildina tekið hækkaði ekki,
þvi að matvara hefur ekki
hækkað jafnmikið í tvö ár og
hún gerði í síðasta mánuði.
Verðlag í Bandaríkjunum hefur
því lækkað um 0,2% það sem af
er þessu ári og verður að fara allt
aftur til ársins 1949 til að fínna
sambærilega lækkun. Hagfræð-
ingar eru þó ekki bjartsýnir á að
þessi þróun haldi áfram. Búast
þeir við að verðlag smám saman
hækkandi síðar á þessu ári. Byggja
þeir það einkum á því að Samtök
olíuútflutningsríkja, OPEC, hafa
komið sér saman um samdrátt olíu-
vinnslu til þess að verð á eldsneyti
unnu úr olíu hækki á ný.
Frá hjálparstarfinu í Suður-Súdan
til að vera viss um að hún sé veitt
þeim sem sárast þarfnast hjálpar."
Hjálparstofnun Sameinuðu þjóð-
anna keypti 4.500 tonn af komi í
Kenýa fyrr á þessu ári til að flytja
til Súdan en aðeins helmingur þess
hefur komist á leiðarenda. Fimmtíu
fullir komvagnar hafa beðið á
landamæmm Kenýa og Súdan í
tæpan mánuð eftir herfylgd til
borgarinnar Juba þar sem 20.000
manns líða mikinn matvælaskort
en herliðið hefur enn ekki látið sjá
sig.
Fréttir herma að agaleysi og
óánægja ríki innan stjómarhersins.
Árás SPLA á farþegavélina sýndi
að skæruliðar hreyfingarinnar eru
nær Malakal en áður var talið.
Líklegt þykir að þjóðfrelsisherinn
ætli sér að hrekja stjómarherinn
út úr borgunum með því að ein-
angra þær. Ef það tekst ekki kann
hann að reyna að fá óbreytta íbúa
borganna til að yfírgefa þær svo
það verði auðveldara að hertaka
þær þegar stjómarherinn verður
eftir en færri óbreyttir borgarar.
Þúsundir manna af landsbyggð-
inni hafa flúið til borganna það sem
af er þessu ári og bæst í hóp þeirra
sem fyrir vom í leit að mat og
skjóli. Ófriðurinn hefur aukið hung-
ursneyðina í landinu en langvarandi
þurrkar hafa valdið uppskembresti
þar undanfarin ár eins og víða ann-
ars staðar í Afríku. Nýjustu
aðgerðir þjóðfrelsishersins auka
enn böl íbúa suðurhluta Súdan.
—111 1 "'im
JERÚSALEM Kairó
Ferð til ísraels og Egyptalands dagana 27. okt. til 19. nóv.
Takið þátt í einstakri ferð um söguslóðir Biblíunnar.
Sögur hennar fá nýtt líf. Margt sem áður var illskiljan-
legt verður nú augljóst.
„Jerúsalem, borgin
helga, iætur mig ekki í
friði, hún heldur hugan-
um föngnum um daga
og vitjar hans í draumi
um nætur. Svo sterk eru
áhrifhennaraóþau
sleppa ekki tökum
sínum, þótt annríki
hversdagsins í heima-
högum taki við og fylli
allar stundir.“
Ólöf Ólafsdóttir
“Að koma til ísraels var
eins og að verða hiuti
af sögunni. Allt í einu
var ég staddur þar sem
sögur gerðust sem ég
þekki svo vel. Það eitt
að sjá landslagið gæddi
þær lífi og skýrði margt.
Þá er landíð og þjóó-
félagið svo furðulegt
biand af nútið og fortíð,
Israelsmenn virtust
standa með annan fót-
inn í fortíðinni og hinn
í framtíðinni.“ (Sigfús
Nikulásson)
„Egyptaland heiliaði
mig með dulúð fortíðar
sinnar; pýramídamir,
musterin og Egypta-
landssafnið.
Þá var ys og þys nútíma
arababorgarinnar Kairo
ógleymanleg, iyktin,
spennan og fjölbreyti-
leikinn. Það var eins og
að stíga inn í Þúsund
og eína nótt. Ég hefói
alls ekki viljað fara á
mis við Egyptalands-
ferðina.“ (Eva Péturs-
dóttir).
Upplýsingar og verö
Fcrðasl vcrrtur um isracl og
Egyptaland ( loftkældri Uixus-
rútu, 15 daga i ísracl og 5 daga
fcrð unt Egyptaland. Lciðsögu-
maður vcrður valinn israclskur
Iciðsögumaður. en fararstjðri
Hróbjartur Árnason scm hcfur
stundað guðfræðinám undan-
farin ár. einnig i hdskóla i
Jerúsalcm. Hann þckkir því vel
staðha-tti. sögu og mcnningu
svæðisins. Vcrð cr kr. 64.790.
lnnifalið er: Flugferöir, gisting
ú góðum hötelum mcð hálfu
l'æði. Allar fcröir skv. áætlun. 2
nsrtur i London. hölcl. V: fxði.
(aðgangseyrír aó söfnum). farar-
stjórn og lctðsögn.
Bæklingur og myndband
Ba'kilngur mcð fcrðatilhögun cr
fáanlcgur á fcrðarskrifslofu Far-
anda, cinnig VHS-myndbands-
spóla unt lsracl svo og allar
nánari upplýstngar.
lÉ
F ev&astiriiatoían
arancli
VESTURGATA 5, SÍMI 622420.