Morgunblaðið - 23.08.1986, Page 26
^26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28: ÁGÚST1986
A.
*
Félag áhugamanna um
íþróttir aldraðra:
Námskeið fyr-
ir leiðbein-
endur í íþrótt-
um aldraðra
NÁMSKEIÐ fyrir leiðbeinendur
í íþróttum aldraðra stendur yfir
þessa dagana i Árbæjarskóla.
Námskeiðið hófst þann 22. ágúst
og stendur til 24. ágúst.
Námskeiðið er haldið á vegum
Félags áhugamanna um íþróttir
aldraðra, en það félag var stofnað
á síðasta ári og er þetta fyrsta
námskeiðið sem haldið er á vegum
félagsins.
Námskeiðið er hugsað fyrir
íþróttakennara og aðra þá sem taka
að sér að leiðbeina öldruðum í
íþróttum og eru þátttakendur um
50 talsins.
Námskeiðið er sambland af fyrir-
lestrum og leikfimi, dansi og sundi.
Meðal fyrirlesara er sjúkraþjálfari,
læknir, félagsráðgjafi og íþrótta-
kennari.
Formaður félagsins er Guðrún
Nielsen.
Norrænir lista-
menn í Norræna
húsinu
NORRÆNA HÚSIÐ fær næstu
vikur nokkra norræna listamenn
í heimsókn.
Sunnudaginn 31. ágúst verður
opnuð sýning á verkum sænska
myndlistarmannsins Ulf Trotzig,
sem er einn kunnasti núverndi
myndlistarmaður þeirra. Sama dag
heldur sænski listfræðingurinn
Sven Sandström fyrirlestur um
Trotzig. Sýningin stendur til 21.
september.
Einnig kemur til landsins kona
hans, Birgitta Trotzig, sem er
sænskur rithöfundur og var bók
hennar „Dykungens dotter“ lögð
fram til bókmenntaverðlauna Norð-
urlandaráðs í ár. Hún mun lesa upp
og segja frá verkum sínum 2. sept-
ember.
Þá eru einnig væntanlegir norsku
listamennimir Edvin Hoem, rit-
höfundur, sem mun lesa úr verkum
sfnum sunnudaginn 7. september
og Wolfgang Plagge, píanóleikari,
sem mun leika 6. september.
í 4 * I fil mmgmm 'JÍBiíMlk \wWm y í Ip :•
' 4
Félagarnir Alexander Kantzarin, starfsmaður Sovésku friðarnefndarinnar, Pavel Naúmov, varafor-
seti hennar og þingmaður í Æðsta ráðinu, og Haukur Már Haraldsson, formaður íslensku friðar-
nefndarinnar.
Friðamefndir íslands og Sovétríkjanna:
Fagna tillögnm Sovétríkjanna
Segja friðarbaráttuna erfiða
vegna andstöðu Bandaríkjasljórnar
FRIÐARNEFNDIR íslands og Sovétríkjanna héldu í gær blaða-
mannafund i húsakynnum MÍR og var sameiginleg yfirlýsing
nefndanna kynnt. Á fundinum var m.a. staddur Pavel Naúmov
en hann er varaforseti Sovésku friðamefndarinnar og þingmaður
í Æðsta ráði Sovétríkjanna. Hann og aðstoðarmaður hans hafa
dvalist hér á landi að undanfömu og m.a. hitt forseta íslands.
Fundinum stjómaði Haukur
Már Haraldsson formaður ís-
lensku friðamefndarinnar og
kynnti hann yfirlýsingu nefnd-
anna.
í yfirlýsingunni segir m.a. um
friðarbaráttuna: „Baráttan hefur
verið erfíð vegna andstöðu ríkis-
stjómar Bandaríkjanna og þeirra
sem hallir eru undir stefnu Hvíta
hússins." í yfirlýsingunni em
síðan látnar í ljós frekari áhyggjur
af stefnu Bandaríkjanna, sérstak-
lega í ljósi þess að þau „hafna
öllum raunhæfum tillögum um að
draga úr vígbúnaðarkapphlaup-
inu“, en „Sovétríkin hafa að
undanfömu lagt fram ýmsar
raunhæfar tillögur í ftíðar- og
afvopnunarmálum".
Naúmov var spurður hvort líkur
væru á því að Kolaskagi yrði lýst-
ur kjamorkuvopnalaus ef Norð-
urlönd gerðu slíkt hið sama og
taldi hann ekki loku fyrir það
skotið, en tók þó fram að rétt
yfirvöld yrðu að semja um slíkt.
Sovéska friðamefndin er mjög
á móti Geimvamaáætlun Banda-
ríkjanna og var Naúmov því
spurður hvort Sovétmenn væra
ekki í raun að viðurkenna gildi
fælingarstefnunnar. Hann tók því
fjarri og sagði að Sovétríkin óttuð-
ust engan.
Þeir félagar vora spurðir hvort
innrásin í Afganistan og kaf-
bátaheimsóknir í sænska skeija-
garðinum væra dæmi um
sovéskan friðarvilja og svaraði
Naúmov því til að sovéskir her-
menn í Afganistan væra að
aðstoða þjóðina gegn glæpamönn-
um og að þeir einu sem stæðu í
styijaldarrekstri væra Banda-
rílcjamenn því að þeir styddu
óaldarhópa í Pakistan sem gerðu
árásir inn í Afganistan. Þrátt fyr-
ir ítrekaðar spumingar sagði hann
ekkert um atvikið í Karlskrona,
en þá strandaði sovéskur kafbátur
búinn kjamorkuvopnum í Svíþjóð.
Aðspurður sagði Naúmov að
friðarvilji Sovétríkjanna væri ekki
síður af efnahagslegum rótum en
pólitískum, því hemaðarappbygg-
ingin væri dýr.
í stjóm Islensku friðamefndar-
innar era auk Hauks þau María
Þorsteinsdóttir varaformaður,
Bergþóra Einarsdóttir, Erlingur
Viggósson og Öm Erlendsson.
Fyrirlest-
ur á Kjar-
valsstöðum
UM HELGINA verða flutt tvö
erindi á Kjarvalsstöðum i flokkn-
um „Reykjavíkurspjall".
Á laugardag klukkan þijú talar
Þórarinn Þórarinsson, fyrrverandi
ritstjóri, um blöð og blaðamenn í
Reykjavík á fyrri tíð og klukkan
þrjú á sunnudag flytur Gerður
Magnúsdóttir kennari erindi um
lífið í Skuggahverfi.
Þá era leiksýningar í tjaldinu
sömu daga klukkan fjögur og
fimmtudags- og föstudagskvöld
klukkan níu. Það er leiksýningin
„Flensað í Malakoff", sem Erlingur
Gíslason og Brynja Benediktsdóttir
tóku saman. Brynja leikstýrir sýn-
ingunni, en Finnur Torfi Stefánsson
sér um tónlistina.
Sögnferð
um Grófina
FÉLAGIÐ í Grófinni stendur
fyrir söguferð um Grófina í dag.
Farið verður frá Grófartorgi kl.
17 og gengið um hluta Hafnar-
strætis, Aðalstrætis og Vesturgötu.
Leiðsögumaður verður Páll Lindal.
GENGIS-
SKRANING
Nr. 157 - 22.ágúst 1986
Kr. Kr. ToU-
Ein.KI. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 40,410 40,530 41,220
Stpund 60,676 60,856 60,676
Kan.dollari 29,086 29,172 29,719
Dönskkr. 5,2506 5,2662 5,1347
Norskkr. 5,5489 5,5654 5,4978
Sænakkr. 5,8838 5,9013 5,8356
Fi.mark 8,2807 8,3053 8,1254
Fr.franki 6,0474 6,0653 5,9709
Belg. franki 0,9570 0,9599 0,9351
Sv.franki 24,5878 24,6608 23,9373
HoU.gyUini 17,5696 17,6217 17,1265
V-þ. mark 19,8151 19,8740 19,3023
ítlira 0,02871 0,02880 0,02812
Austurr. sch. 2,8170 2,8254 2,7434
Portescudo 0,2777 0,2786 0,2776
Sp.peseti 0,3030 0,3039 0,3008
Jap.yen 0,26395 0,26473 0,26280
Iraktpund 54,735 54,898 57,337
SDR(Sérst. 49,0473 49,1926 49,9973
ECU, Evrópum. 41,6668 41,7905 40,9005
Öryggið í fyrirrúmi
hjá Kasparov
Skák
Margeir Pétursson
TIUNDA skákin í einvígi þeirra
Kasparovs og Karpovs fór í bið
í London í gær eftir að leikið
hafði verið 43 leikjum. Biðstað-
an er mjög jafnteflisleg, en
Kasparov, sem hefur hvítt, er
að tefla til vinnings. Snemma
urðu mikil uppskipti í skákinni,
eftir að Karpov kom með nýjan
leik í afbrigði sem hann beitti
einnig í síðasta einvígi.
Kasþarov tefldi þessa skák ekki
af sömu dirfskunni og síðustu
tvær skákir sem hann hafði hvítt
í. Hann beitti sömu leikaðferð
gegn drottningarbragðsvöm
Karpovs og í næstsíðustu skák
einvígisins í fyrra. Þá var
Kasparov sáttur við jafnvægi og
af síðustu tveimur skákum af
dæma, óttast skákáhugamenn nú
að heimsmeistarinn ætli að láta
öryggið sitja í fyrirrúmi.
Það var aldrei nein veraleg
barátta í skákinni í gærkvöldi.
Upp kom róleg staða þar sem
hvítur, Kasparov, var í engri tap-
hættu, en vinningsmöguleikar
hans vora einnig afskaplega tak-
markaðir. Karpov varðist fimlega
með þvi að skipta upp á hveijum
manninum á fætur öðrum og nú
era aðeins eftir á borðinu biskup
gegn riddara, auk peðanna.
10. einvígisskákin:
Hvítt: Gary Kasparov
Svart: Anatoly Karpov.
Drottningarbragð.
1. d4 - d5 2. c4 - e6 3. Rc3 -
Be7 4. Rf3
Uppskiptaafbrigðið 4. cxdö —
exd5 og síðan 5. Bf4 hefur verið
í hávegum haft hjá báðum að
undanfomu. Val Kasparovs bend-
ir ekki til þess að hann sé í miklum
baráttuhug. Skákin tekur fljót-
lega sömu stefnu og 23. skák
einvigisins í fyrra.
4. - Itf6 5. Bg5 - h6 6. Bxf6
- Bxf6 7. e3 - 0-0 8. Hcl -
c6 9. Bd3 - Rd7 10. 0-0 -
dxc4 11. Bxc4 — e6 12. h3 —
exd4 13. exd4 — c5!
í áðumefndri skák fékk hvítur
betra tafl eftir 13. — Rb6 14. Bb3
- He8 15. Hel - Bf5 16. Hxe8+
— Dxe8 17. Dd2. Ef hvítur vill
forðast enn frekari uppskipti á
miðborðinu verður hann nú að
leika 14. d5, en þá fær svartur
virka stöðu eftir t.d. 14. — Rb6
15. Dd3 - g6 og síðan 16. - Bf5.
14. Bb3 - cxd4 15. Rd5 - b6!
Góður vamarleikur hjá Karpov.
Hann tryggir riddara sinum afnot
af c5—reitnum og hleypir Bc8 í
spilið.
16. Rxd4 - Bxd4 17. Dxd4 -
Rc5 18. Bc4 - Bb7 19. Hfdl -
Hc8 20. Dg4.
Að reyna að koma hrók í kóngs-
sókn með 20. Hc3 er meira í stíl
Kasparovs, en svartur virðist
mega vel við una eftir 20. — He8
21. Hg3 - Re6 því 22. Rf6+ -
Kh8 kemur engu til leiðar.
20. - Bxd5 21. Hxd5 - De7 22.
Hcdl — De4!
Drottningauppskipti létta
svörtum vömina.
23. Dxe4 - Rxe4 24. Ba6 - Rf6
25. Bxc8 - Rxd5 26. Ba6 - Rf6
27. f4 - He8 28. Kf2 - Kf8
29. Kf3 - He7 30. Hd8+ - He8
31. Hxe8+ - Rxe8 32. Ke4 -
Ke7 33. Bc4 - Rc7 34. Ke5 -
f6+ 35. Kf5 - Re8 36. Ke4 -
Rc7 37. h4 - Kd6 38. Kf5 -
Ke7 39. Kg6 - Kf8 40. Kf5 -
Ke7 41. Ke4 - Kd6 42. g4 -
Ke7 43. b4 - Kd6.
Hér fór skákin í bið. Aðeins
kraftaverk getur komið I veg fyr-
ir jafntefli, því hvíti kóngurinn
kemst ekki í gegn um svarta vam-
armúrinn.