Morgunblaðið - 23.08.1986, Side 35

Morgunblaðið - 23.08.1986, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST-1986 35 í Hvammi og konu hans Guðbjargar Jónsdóttur frá Skarði. Alls voru systkinin tíu og tveir uppeldis- bræður. Eyjólfur var hreppsnefnd- aroddviti sveitar sinnar í áratugi og frumkvöðull í ræktunar- og sandgræðslumálum. Hann var mik- ið hraustmenni og lýsir Ingólfur heitinn ráðherra á Hellu því í upp- hafi æviminninga sinna. Eyjólfur var einkavinur sumra helstu höfð- ingja landsins um sinn dag. Björn í Isafold gaf honum nafnbótina Landshöfðingi og Tryggvi Þórhalls- son forsætisráðherra var heimilis- vinur í Hvammi. Tryggvi studdi einnig drengilega við stofnun Mjólkurbús Flóamanna. Einar Benediktsson, skáld og sýslumaður, var einkavinur Eyjólfs, en hann aðstoðaði Einar mjög í virkjunar- málunum og hjálpaði honum við vatnsréttindakaup. Þau réttindi runnu síðan öll til íslenska ríkisins og eru grundvöllurinn að hinum miklu virkjunum á Þjórsár- og Tungnársvæðinu. Bæði Landsvirkj- un og Landgræðsla ríkisins eiga því spor í bænum þar sem Gunna fædd- ist, auk hverskonar annarra fram- faramála héraðs og þjóðar. Hversu stoltur hefði gamli maðurinn í Hvammi ekki orðið hefði hann nú mátt sjá undursamlegan árangur landgræðslunnar á eyðisöndum sunnlensku afréttanna og það af völdum stofnana, sem hann dreymdi um í æsku. Hann sem horfði á býlin í Landsveitinni fjúka upp hvert af öðru og bjargaði sjálf- ur heilu fjölskyldunum, sem komnar voru í algjört bjargarleysi og hung- urvofan vofði yfír. Gunna elskaði þjóðlegan fróðleik og hélt því fast að okkur systra- bömunum að ástunda vel þau fræði og alla sögu þjóðarinnar. Sérstak- lega hafði hún gaman af ættfræði og þekkti vel til ótal manna. For- eldrar hennar voru bæði úr Land- sveitinni og móðurafí hennar sjátfur Landshöfðinginn í Hvammi, afí Eyjólfs Ágústssonar, sýslunefndar- manns, sem býr þar nú. Amma hennar í móðurlegg og kona Eyj- ólfs var sem áður segir Guðbjörg Jónsdóttir frá Skarði á Landi, Áma- sonar bónda á Galtalæk, Finn- bogasonar ríka á Reynifelli á Rangárvöllum Þorgilssonar. Vom þetta allt annálaðir góðbændur og sveitahöfðingjar í sinni tíð eins og fleiri af hinni kunnu Bolholtsætt. Bróðir Guðbjargar í Hvammi var Guðni í Skarði, afi Guðna hrepp- stjóra og stórbónda Kristinssonar í Skarði. Kona Árna Finnbogasonar á Galtalæk var Margrét dóttir Jóns bónda og smiðs á Ægissíðu í Holt- um, Jónssonar. Móðir hans var Guðrún á Ægissíðu Brandsdóttir á Felli í Mýrdal, Bjamasonar Hall- dórssonar ættföður Víkingslækjar- ættar. Jón á Ægissíðu var kvæntur Valgerði Guðbrandsdóttur bónda á Geirlandi á Síðu, Eiríkssonar hrepp- stjóra þar Bjamasonar á Geirlandi Eiríkssonar, ættfóður hinnar geysi- fjölmennu Geirlandsættar í Skaft- árþingi. Af henni má nefna Helga Bergs, forstjóra Sláturfélags Suð- urlands, og Jón Helgason í Segl- búðum, landbúnaðarráðherra. Bróðir Guðbrands á Geirlandi var hins vegar Sverrir bóndi á Segl- búðum, faðir Þorsteins bónda á Uppsölum, sem var afi Jóhannesar Kjarval, listmálara. Annar sonur Sverris í Seglbúðum var Eiríkur sýslumaður á Kollabæ í Fljótshlíð. Af afkomendum hans má nefna Pál Briem, amtmann á Akureyri, Eggert Claessen, banka- stjóra, Gunnar Thoroddsen, forsæt- isráðherra, Eirík Briem, forstjóra Landsvirkjunar, og Þórð Bjömsson, ríkissaksóknara. u Mamma Guðbjargar í Hvammi og kona Jóns í Skarði var Guðrún Kolbeinsdóttir, bónda á Hlemmi- skeiði, Eiríkssonar hreppstjóra á Reykjum á Skeiðum Vigfússonar ættföður hinnar fjölmennu Reykja- ættar. Af henni em t.d. Pétur Sigurgeirsson, biskup yfír íslandi, og bændahöfðinginn Þorsteinn á Vatnsleysu í Biskupstungum Sig- urðsson formaður Búnaðarfélags Islands um langt árabil. Kona Eiríks á Reykjum var Guð- rún eldri Kolbeinsdóttir, prests og skálds í Miðdal, þess er orti Gils- bakkaþulu í orðastað dóttur sinnar, eftir heimsókn hennar til afa síns og ömmu að Gilsbakka í Borgar- fírði. Kona Kolbeins Eiríkssonar á Hlemmiskeiði var Sólveig Vigfús- dóttir bónda á Fjalli á Skeiðum Ofeigssonar, ættföður hinnar kunnu Fjallsættar. Af henni em t.d. Tryggvi Ófeigsson, útgerðarmaður, og bræður hans. Móðir Eyjólfs Landshöfðingja í Hvammi var Guðríður Jónsdóttir bónda að Gunnarsholti á Rangár- völlum, Jónssonar en móðir hans var Guðríður Árnadóttir prests í Steinsholti Högnasonar — Presta- högna. Af þeim víðfræga presti að Breiðabólstað í Fljótshlíð em t.d. Tómas Sæmundsson, Fjölnismaður, skáldin Þorsteinn Erlingsson og Tómas Guðmundsson, Helgi yfír- læknir Tómasson á Kleppsspítala, Jóhann Hafstein, forsætisráðherra, Einar ríki Sigurðsson í Vestmanna- eyjum, Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, og Erlendur Einars- son, forstjóri Sambands íslenskra samvinnufélaga. Þetta var um móðurlegg Gunnu og leyfist okkur enn að ganga í smiðju til Sigurgeirs Þorgrímsson- ar, þess magnaða ættfræðings, sem oft hefur glatt okkur Gunnu svo sem marga aðra með þekkingu sinni. Guðlaugur í Tryggvaskála, pabbi Gunnu, var sonur Guðrúnar Sæ- mundsdóttur frá Lækjarbotnum á Landi og Þórðar í Fellsmúla á Landi, Guðlaugssonar, skálds á Hellum á Landi, Þórðarsonar á Hellum, Stefánssonar á Bjalla á Landi, Filipussonar prests í Kálf- holti. Systir hans var Rannveig F'ilipusdóttir, sú er Bjarni Thorar- ensen amtmaður orti hið und- urfagra ljóð til. Bróðir þeirra var Jón á Brekkum í Holtum, afí Sól- veigar Pálsdóttur ljósmóður í Reykjavík, en hún var amma Ás- geirs Ásgeirssonar, forseta íslands. Kona Guðlaugs á Hellum var Vilborg skátd Einarsdóttir útvegs- bónda á Hólum í Stokkseyrarhreppi Jónssonar. Hann var móðurbróðir Brynjólfs Jónssonar fræðimanns og skálds að Minna-Núpi og systurson- ur Bjarna Sívertsen riddara. Einar á Hólum var víðkunnur happafor- maður, hann eignaðist ellefu böm og ól upp fjölda annarra. Frændi hans var Bergur í Brattholti Stur- laugsson, sá er Bergsætt er kennd við. Meðal afkomenda Guðlaugs og Vilborgar á Hellum er Árný Filipus- dóttir skólastjóri í Hveragerði og Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri í Reykjavík. Sæmundur faðir Guðrúnar í Fellsmúla var Guðbrandsson bónda á Lækjarbotnum Sæmundssonar, ættföður Lækjarbotnaættarinnar. Sæmundur bjó á Lækjarbotnum og var hreppstjóri Landmanna um ára- tugaskeið. Hann sat margar jarðir samtímis í Landsveit og notaði áveitur fyrstur manna til að hefta sandfok. Þá var Landsveitin því sem næst að fjúka upp, t.d. hvarf allt skógarflæmið fyrir ofan Galtalækj- arskóg upp að Búrfelli í samfelldu hálfsmánaðar norðanofsaáhlaupi um 1880. Bróðir Sæmundar var Ampi sá er reyndi búsetu inni í Veiðivötnum. Annar var Sigurður, sem einn afkomenda hans, Guð- mundur Daníelsson, stórskáld og snillingur á Selfossi, hefur tileinkað heila bók og gert ódauðlegan. Kona Sæmundar á Lækjarbotn- um var Katrín Brynjólfsdóttir frá Þingskálum á Rangárvöllum Jóns- sonar. Hún var ljósmóðir sveitarinn- ar í áratugi og tók á móti 700 bömum, því síðasta þegar hún var karlæg. Móðurforeldrar hennar voru Bárður á Heiði á Rangárvöll- um Sigvaldason í Hvammi í Skaft- ártungu og Katrín Sigurðardóttir í Kálfafellskoti í Meðallandi Brynj- ólfssonar að Klauf í Fljótshverfí í Skaftárþingi Þorsteinssonar. Þau Bárður og Katrín á Heiði höfðu flúið úr Skaftártungu undan eldhrauni Skaftáreidanna með allt sitt upp á einu hrossi um örbjarga sveitir,. allt þar til þau fengu jarð- næði á Rangárvöllum. Meðal afkomenda þeirra Katrín- ar Ijósmóður og Sæmundar hrepp- stjóra á Lækjarbotnum, af hinni samheldnu Lækjarbotnaætt, má nefna Katrínu Pálsdóttur, borgar- fulltrúa í Reykjavík, Sigríði Theó- dóru Sæmundsdóttur, húsfreyju í Skarði, Magnús Kjartansson, bónda á Hjallanesi á Landi, Guðrúnu Er- lendsdóttur, hæstaréttardómara, Kára Þórðarson, rafveitustjóra í Keflavík, Sverri Haraldsson, bónda í Selsundi á Rangárvöllum, Sæ- mund Jónsson í Búnaðarbankanum, Runólf Sæmundsson í Blossa, Hauk Morthens, söngvara, og Guðlaug Bergmann í Kamabæ. Nokkm áður en Gunna fæddist sviptist nýbyggður bær afa hennar, Landshöfðingjans í Hvammi, af undirstöðum sínum í landskjálftun- um miklu 1896 og sér þess merki enn. Fjallið fyrir ofan bæinn, Skarðsfjall, hristi sig eins og hund- ur og um allt héraðið hmndu niður bæir eins og hráviði. Þegar Gunna var átta ára bar eldinn og Þórs- drunumar úr Kötlu um allt land. Aldarfjórðungi síðar sendi Hekla gamla, höfuðtign Landsveitarinnar, gosmökkinn upp um tug kílómetra eins og hún hefur reyndar gert nokkrum sinnum síðan. þetta er ísland, landið okkar, sem býr yfír svo miklum töfmm, fegurð og un- aði að hinar ægilegustu hamfarir hafa ekki náð að rýra trú þjóðarinn- ar á landið. „Landið sem aldrei skemmdi sín böm.“ Fyrst og síðast elskaði Gunna landið sitt, þjóðina, tunguna og menninguna og hún boðaði þessa trú heils hugar. Sálarþrekið sem hún sýndi til hinstu stundar í veik- indum, ástvinamissi og sorg var borið uppi af þessari ást og um- hyggju fyrir þeim sem henni vom kærir. Náttúmöflin máttu hafa sinn gang, landið og bros bamsins vom helgidómurinn. Eigin hagur skipti engu máli. Nú drúpum við höfði og þökkum fyrir þessa yndislegu frænku, syst- ur og vinkonu. Hún verður lögð til hinstu hvílu í kirkjugarðinum á bökkum elfunnar miklu, þangað sem hún átti svo margar ferðir að huga að látnum ástvinum. Algóður miskunnsamur Guð geymi Gunnu mína. Guðlaugur Tryggvi Karlsson Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavik og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á I miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Megin- regla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birt- ar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegár eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrit- uð og með góðu línubili. t GUÐRÚN SVEINSDÓTTIR, Fjólugötu 6, er látin. Herdfs Vigfúsdóttir, Valgeir Pótursson, Líney Pálsdóttir. t Frænka okkar, KRISTBJÖRG INGÓLFSDÓTTIR, Framnesvegi 16, Reykjavík, lést í Borgarspítalanum 16. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Dóm- kirkjunni mánudaginn 25. ágúst kl. 15.00. Arnþrúður Arnórsdóttir, Indriði Sigurðsson. t Móðir okkar og fósturmóðir, SIGURBJÖRG B. STEPHENSEN, Ljósheimum 6, Reykjavík, andaöist i Landakotsspítala fimmtudaginn 21. ágúst. Sigríður M. Stephensen, Steinunn M. Stephensen, Guðrún Magnúsdóttir, Magnús Þorleifsson. t Eiginmaður minn,. SIGURÐUR JÓNSSON flugmaður, Álfheimum 40, lést í Borgarspítalanum aðfaranótt 22. ágúst. Guðbjörg Sigurjónsdóttir. t Sonur okkar og bróðir, GUÐMUNDUR PÉTUR GYLFASON, Laufskógum 2, Hveragerði, lést 21. ágúst sl. Sigriður Guðmundsdóttir, Gylfi Hallgrímsson og systkini. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, FRIÐBERGUR EINARSSON frá Klyppstað f Loðmundarfirði, veröur jarösunginn frá Eskifjarðarkirkju mánudaginn 25. ágúst, kl. 14.00. Ingibjörg Friðbergsdóttir, Einar Friöbergsson, Hildur Friðbergsdóttir, Magnús Friðbergsson, Sólrún Friðbergsdóttir, Eyþór Friðbergsson, Sigfriður Friðbergsdóttir, Haraldur Friðbergsson, Berglind Friðbergsdóttir, Hreggviöur Friðbergsson, tengdabörn og barnabörn. t Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS MARGEIRS SIGURÐSSONAR, Þórufelli 10, Reykjavík, fer fram frá Hvalsneskirkju laugardaginn 23. ágúst kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Sjálfsbjörg. Elenora Þórðardóttir, Helga Hjaltadóttir, Helga Ósk Margeirsdóttir, Guðmundur Þorkelsson, Ingibjörg Margeirsdóttir, Sveinn Pálsson, Margrót Margeirsdóttir, Friðjón Margeirsson, Kjartan H. Margeirsson, Hreiðar Margeirsson, Birna K. Margeirsdóttir, Anna S. Margeirsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Hulda Ólafsdóttir, Sigurbjörg Baldursdóttir, Árni Jónasson, Þórir Lúðvfksson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.