Morgunblaðið - 23.08.1986, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1986
43
Skipulagningin
var frábær
Ragiia Sveinsdóttir hringdi:
„Ég vil nú byrja á að taka fram
að ég er mjög ánægð með hátíða-
höldin vegna 200 ára afmælis
Reykjavíkur. Ég hef aldrei upplifað
annað eins. Skipulagningin var al-
veg frábær og gaman að sjá allt
þetta fólk skemmta sér án þess að
hafa Bakkus með í för.
Það var þó eitt sem mér fannst
vanta tilfinnanlega. Það voru fleiri
salemi. Almennu salemin vom allt-
of stijál og þegar að var komið
voru þar langar biðraðir. Ekki var
ástandið skárra á salemum greiða-
sölustaða, þar komust líka færri að
en vildu.
Einnig hefði ég viljað hafa upp-
lýsingamiðstöðvar á nokkrum
stöðum. Sjálf tók ég leið 4 niður í
bæ og gekk það greiðlega en þegar
kom að heimferðinni vandaðist
málið, ég hafði ekki hugmynd um
hvar ætti að taka vagninn. Á endan-
um þurfti ég að ganga niður á
lögreglustöð og spyijast þar fyrir
um hvar vagninn stoppaði. Að lok-
um hefði mér þótt ráðlegt að
auglýsa betur hvar hægt hefði verið
að fá læknisaðstoð.
Þrátt fyrir þessar aðfinnslur
skemmti ég mér piýðilega. Það var
mikill myndar- og menningarbrag-
ur á allri framkvæmd hátíðahald-
anna. A manudagskvöldið var
eitthvað fyrir alla og var þetta
líklega í fyrsta skipti sem ég hlusta
á popptónlist. Flugeldasýningin var
miklu meira en 500.000 kr. virði.
Það var að vísu leiðinlegt að eitt-
hvað var um ölvun á þriðjudags-
kvöldið en það er víst ekkert við
því að gera.“
Óviðeigandi að
tala um veðurguði
Helgi Elíasson hringdi:
„Undanfarið hefur verið mikið
um að veðurguðunum hefur verið
þakkað gott veður í fjölmiðlum.
Finnst mér það heldur leiðinlegur
kækur.
Samkvæmt skoðanakönnunum
erum við Islendingar mjög trúaðir
og því þykir mér skjóta skökku við
þegar sí og æ er talað um guði á
meðan þjóðkirkjan boðar eingyðis-
trú. Þetta guðatal fer að minna á
ástandið hjá heiðingjum sem hafa
akuryrkjuguði, frjósemisguði og svo
framvegis.
Það var nú ekki ætlunin að hafa
þetta eitthvert nöldur, bara vinsam-
lega ábendingu. Það hlýtur að vera
einfaldast og best að hafa þetta
bara eins og mér, eins og flestum
öðrum, var kennt sem bami, að
þakka guði fyrir það sem gott er,
og þá væntanlega veðrið líka þegar
við á.“
Karlmannsúr týndist
niðri í miðbæ
Þóroddur hringdi:
„Síðastliðinn mánudag var ég
eins og fleiri á ferð um miðbæ
Reykjavíkur og varð þá fyrir því
óláni að tapa Casio-karlmannsúri.
Finnandi er vinsamlega beðinn að
hringja í síma 656489. Fundar-
laun.“
Oþarfa geðvonska
1 góða veðrinu
G.Þ. hringdi:
„Ég var að hlusta á útvarpið sl.
miðvikudagsmorgun og varð meira
en lítið hissa þegar ég heyrði í fólki
sem var að kvarta undan tónleikun-
um á Arnarhóli sl. þriðjudag. Það
er nú varla hundrað í hættunni
þótt ekki takist að svæfa bömin
fyrr en klukkan eitt eina kvöld-
stund.
Þama sáum við heilbrigða æsku
sem kann að gleðjast og skemmta
sér, það sást varla vín á nokkmm
manni. Ég varð hreinlega stoltur
af því að vera Islendingur þegar
ég sá æskuna þarna að skemmta
sér.
Það er alger óþarfi að vera með
svona nöldur og geðillsku núna í
góða veðrinu.“
Ferðafólk
Farið varlega í óbyggðum og fjallaferðum eftir að hausta tek-
ur, hafið með ykkur ljós og merkjabúnað. Fylgist vel með veðri
og farið ekkert án þess að láta aðra vita um ferðir ykkar.
Slysavamafélag Islands.