Morgunblaðið - 03.09.1986, Qupperneq 1
56 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
196. tbl. 72. árg.
MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Flugslysið í Los Angeles:
Átján létust
á jörðu niðri
Þnðja vélin truflaði flugumf erðarstj órann
^ Cerritos, Kaiiforníu, AP.
ÁTJÁN manns á jörðu niðri fórust í flugslysinu, sem varð
yfir Los Angeles sl. sunnudag, þar af 15 veislugestir í einu
húsanna, sem brakið lenti á. Tala látinna er því komin upp
í 85.
Dagblaðið Los Angeles Times
skýrði frá því í gær, að 18 manns
hefðu farist á jörðu niðri þegar
mexíkanska farþegaflugvélin hefði
hrapað til jarðar í Cerritos-
úthverfínu í Los Angeles. Varð
mikil sprenging í henni þegar hún
kom niður og kveikti logandi brak-
ið í 16 húsum. Brunnu níu þeirra
til kaldra kola. Fundust fljótlega
þrír menn látnir í einu húsanna
en nú hafa fundist í öðru húsi 15
að auki. Höfðu húsráðendur boðið
fólkinu til fagnaðar.
John Lauber, starfsmaður
bandaríska flugferðaeftirlitsins,
sagði í gær, að ljóst væri, að flug-
umferðarstjórinn, sem hafði með
mexíkönsku flugvélina að gera,
hefði iátið þriðju flugvélina trufla
sig. Hefði hann beint athyglinni
að henni litla stund en að því búnu
var allt orðið um seinan. Talsmað-
ur réttarlæknisdeildar lögreglunn-
ar í Los Angeles skýrði einnig frá
því, að nú væri vitað að flugmaður
litlu einkavélarinnar hefði fengið
hjartaáfall rétt áður en áreksturinn
varð.
Sviss:
Skógar-
dauðinn
sækir á
Birmensdorf, Sviss, AP.
NÆSTUM annað hvert tré
í Sviss er sjúkt vegna meng-
unar og ástandið versnar
stöðugt. Hefur opinber
rannsóknarnefnd komist að
þessari niðurstöðu og var
skýrt frá henni í gær.
Við athuganir kom í ljós, að 46%
alls skógar í Sviss eru sjúk og hef-
ur sú tala hækkað um 10% á einu
ári, var 36% í fyrra. Felix Mahrer,
sem stjórnaði rannsókninni, segir,
að menguninni sé fyrst og fremst
að kenna en þar að auki hafí mikl-
ir þurrkar í fyrrahaust flýtt fyrir
skemmdunum. Árið 1984 varð
„skógardauðinn" það mál, sem
Svisslendingar hafa mestar áhyggj-
ur af og er svo enn þótt deilumar
um holskeflu erlendra flóttamanna
setji um stund meiri svip á þjóð-
málaumræðuna.
Mengunin hefur ieikið lauftré og
ban-tré jafn grátt en verst er
ástandið til fjalla, í Alpafjöllunum.
Boðar það ekkert gott fyrir fólk á
þeim slóðum því skógurinn er eina
vörnin fyrir snjóflóðum og skriðu-
föllum.
Siysið á Svartahafi:
Fórst á fimmta
hundrað manna?
Moskvu, AP.
AP/Símamynd
í loftbelg yfir Atlantshaf
„Hollenski víkingurinn," loftbelgur með þremur hollenskum
ofurhugum, lenti i gær í Hollandi, eftir frækilega för þvert
yfir Atlantshaf. Var lagt upp frá Nýfundalandi og það tók loft-
belgsfarana ekki nema 51 klukkustund að leggja að baki 4200
km. Er það nýtt met. Þegar belgurinn lenti lá við, að Ula færi
þvl að körfunni hvolfdi. Meiddist leiðangursstjórinn, Henk Brink,
dálitið á mjöðm en óliappið varð þó ekki til að draga úr
ánægjunni með afrekið.
Sjá bls. 26.
AP/simamynd LÍK 79 manna hafa fundist og I þegaskipinu Nakhimov aðmíráli, I nótt mánudagsins. Eru þessar
Sovéska farþegaskipið Nakhimov aðmíráll í höfninni í Batumi. 319 er saknað af sovéska far- | sem sökk á Svartahafi aðfara- | upplýsingar hafðar eftir embætt-
ismanni í sovéska siglingamála-
ráðuncytinu. 1.234 manns voru
um borð í farþegaskipinu þegar
árekstur varð milli þess og sov-
ésks flutningaskips.
Leonid P. Nedyak, aðstoðarsigl-
ingamálastjóri Sovétríkjanna, sagði
í gær, að tekist hefði að bjarga 836
manns en miklar björgunaraðgerðir
stóðu þá enn yfir. Var ijöldi skipa
og þyrlna á slysstaðnum og höfðu
kafarar verið sendir niður í skipið
í þeirri von, að takast mætti að
finna þar einhveija á lífi. Sagði
Nedyak, að flutningaskipið hefði
siglt þvert á síðu farþegaskipsins,
sem hefði sokkið á 15 mínútum.
Liggur það nú á 43 metra dýpi um
15 km frá höfninni í Novorossiysk.
Farþegarnir voru allir sovéskir
borgarar, aðallega frá Moldavíu,
Úkraínu, Eystrasaltslöndunum og
Mið-Asíu.
Fréttaflutningur af slysinu hefur
verið lítill þar til nú. Tass-fréttastof-
an sovéska sagði frá því á mánudag
og þá aðeins að áreksturinn hefði
orðið og menn farist.
Washington Post vegna Rainbow-málsins:
Yegið að „heigustu“ fyrirgreiðslu
til bandarískra kaupskipafélaga
„SJÓHERINN, sem hefur lengi haldið því fram, að hann greiði
of há farmgjöld fyrir sjóflutninga til annarra landa, hefur gert
tillögu um nýjar reglur, sem myndu færa milljónir dollara frá
bandariskum skipafélögum til erlendra félaga, sem ódýrara er
að skipta við.“ Með þessum orðum hefst fréttagrein á viðskipta-
síðu bandaríska blaðsins Washington Post síðastliðinn föstudag.
Segir blaðið, að tilraunir sjóhersins að til ná farmi frá fyrirtæk-
inu Rainbow Navigation fyrir íslensk skipafélög, séu kveikjan
að þessum nýju, umdeildu tillögum.
Washington Post segir, að til- stórfé á síðasta ári. Blaðið segir,
laga sjóhersins hafi mætt harðri
andstöðu meðal þeirra, sem gæta
hagsmuna bandaríska kaupskipa-
flotans. Þeir segi, að framkvæmd
hennar hefði hörmulegar afleið-
ingar fyrir útgerðarfyrirtæki, sem
beijast flest í bökkum og töpuðu
að forréttindi bandarískra skipa
til flutninga fyrir sjóherinn, sem
tryggð eru með lögum frá 1904,
séu „helgasta" opinbera fyrir-
greiðslan til þeirra. Á síðasta ári
greiddi flutningadeild sjóhersins
1,8 milljarða dollara (um 80 millj-
arða ísl. króna) til bandarískra
skipafélaga fyrir flutning á vam-
ingi til herstöðva í öðrum löndum.
Þá segir í blaðinu, að sjóherinn
hafi lengi talið, að hann gæti spar-
að stórfé, ef erlendum fyrirtækj-
um yrði heimilað að gera tilboð í
flutninga. Er talið, að erlend
skipafélög gætu boðið 10 til 30%
lægri farmgjöld. Haft er eftir
Mark Young, forstjóra Rainbow
Navigation, að bandarísk fyrir-
tæki gætu alls ekki keppt við
erlend.
Eins og málum er nú háttað
getur Bandaríkjaforseti veitt und-
anþágu frá lögunum frá 1904 ef
krafist er of hárra farmgjalda.
Nýju reglurnar gera meðal annars
ráð fyrir, að flotamálaráðherrann
fái þetta vald. Telja talsmenn
bandarísku skipafélaganna, að
heimild ráðherrans sé of rúmt
orðuð og gefi honum of mikið
vald til að veita undanþágur.
Reglurnar voru sendar til um-
sagnar hagsmunaaðila 28. júlí
síðastliðinn; umsagnarfrestur er
liðinn og er beðið endanlegra
ákvarðana bandaríska varnar-
málaráðuneytisins.
(Sjá forystugrein um Rain-
bow-málið á miðopnu.)