Morgunblaðið - 03.09.1986, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 03.09.1986, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986 Fóstureyðing’ar gegn frelsi kvenna Kveðja til Veru eftir Huldu Jensdóttur Tímaritið Vera er málgagn Kvennaframboðsins í Reykjavík og Samtaka um kvennalista. I 4. tölu- blaði Veru 1985 er grein, sem ber yfirskriftina „Lífsvon gegn frelsi kvenna". Greinin fjallar um kynn- ingarfund Lífsvonar í ísl. óperunni vorið 1985. Lífsvon er landssamtök til vemdar ófæddum bömum. Eftir að hafa lesið nefnda grein í Vem, hafði ég samband við einn ritstjómarmeðlim Vem og bað um að fá að senda inn svargrein. Málið var lagt fyrir ritstjóm og sam- þykkt. Nokkm síðar var ég beðin að stytta grein mína, sem annars tæki of mikið af rými blaðsins. Að sjálfsögðu kom ég til móts við þá ósk, þótt ekki færi framhjá mér, að stytting greinarinnar átti að gerast á kostnað þess sem að mínu mati var mikilvægast að kæmi fram. Fjórum mánuðum — eftir að ég skila svargrein minni til Vem, fæ ég ódagsett bréf, en póststimpl- að, þar sem segir. „Ritnefndin teystir sér ekki til að birta grein í þessum anda, þar sem við teljum hana vera á skjðn við þá kven- frelsisbaráttu, sem við leitumst við að standa fyrir." Slík meðferð mála hlýtur að telj- ast harla undarleg, ekki síst, þegar haft er í huga, að blaðið segir: „Greinar í Vem em birtar á ábyrgð höfunda sinna og em ekki endilega stefna útgefenda." — Auk þess er sú kvennahreyfing, sem þama á hlut að máli, að útiloka allar þær konur sem em á móti fóstureyðing- um. Varla geta það talist lýðræðis- leg vinnubrögð né jafnréttisleg. Eg undirrituð er að sjálfsögðu í þeim hópi, sem berst fyrir og styð- ur heilshugar frelsisbaráttu kvenna, en fóstureyðing er fyrir mér frek- legt brot gegn lífinu sjálfu og konum. Fóstureyðingar setja konur í hlekki sem undan svíður. Fijálsar fóstureyðingar em flötrar á konur, þvingun, sem óspart er notuð af bamsfeðmm, eiginmönnum eða sambýlismönnum, og því miður einnig af foreldmm ungra stúlkna. Og svo langt gengur vitleysan, að kunningjar og jafnvel nágrannar blanda sér í málið oft með þeim hrikalegu afleiðingum, að viðkom- andi kona fer í fóstureyðingu, þótt forsendur séu engar. Slíkur þrýst- ingur frá samfélaginu setur konu í mjög erfíða aðstöðu. Hún berst við öryggisleysi og sektarkennd gagn- vart fjölskyldu og vinum ef hún gengur með bamið, og hinsvegar sektarkennd gagnvart baminu og sjálfri sér ef hún lætur eyða því. Alein verður konan að stíga skref ákvörðunarinnar, enginn tekur ábyrgðina á sig, né axlar byrðina. Viðurkennd viðbrögð mikils meirihluta kvenna, sem ganga í gegnum fóstureyðingu em í fimm megindráttum: 1) Léttir í fyrstu, 2) miklireftir- þankar og tilraunir til að sannfæra sjálfa sig um að hún hafi ekki gert neitt rangt, 3) sjokk (lost), neitar að trúa því, að hún hafi í raun lát- ið framkvæma fóstureyðingu, 4) mikill sársauki og reiði yfir stað- reyndinni og reiði gagnvart þeim, sem henni finnst hafa ýtt sér út í fóstureyðinguna, 5) „dapurleiki — sorg.“ Mikill grátur (WEBA 0801’85). Það er því alrangt og mikið ábyrgðarleysi að flytja les- endum svo einhliða upplýsingar sem Vera gerir í fyrmefndu blaði, þar sem konur segja sögur af sínum eigin fóstureyðingum og láta sem ekkert sé. Sannleikurinn er annar. Enda er greinilega ekki um auðug- an garð að gresja slíkra sagna, þ.e. Vera verður að notast við gamlar sögur úr blaði hinnar framliðnu rauðsokkahreyfingar, Forvitin rauð. Sögumar birtust fyrir meira en áratug og þvf farið að slá í þær, enda trú mín sú, að sömu konur myndu svara öðruvísi í dag, ef þær væm spurðar. Ég vona hins- vegar af alhug þeirra vegna og vegna allra þeirra kvenna annarra, sem af einhveijum ástæðum hafa fundið sig knúðar af kringumstæð- um til að fara í fóstureyðingu, að þær fyrirgefi sjálfum sér á þeim forsendum, að þær sáu enga aðra útleið á þeim tíma né vissu þær í raun, hvað þær voru að gera. Upp- lýsingamiðlun og raunhæf aðstoð er nauðsyn. Hugarfarsbreytingar er þörf, ekki síst meðal kvenna. í réttmætri baráttu til jafnréttis og frelsis úr viðjum hafta og rangs- leitni gagnvart konum sem mann- eskjum hafa sumar skotið langt yfir mark. Eðli kvenna er og hefur ávallt verið að standa vörð um og hlúa að brákuðum reymum. Þannig eru kynni mín af þeim í gegnum áratuga starf með þeim og í þeirra þágu. Enda ber sagan þeim glöggt vitni í voldugu Grettistaki þeirra í íslensku þjóðlífí. Megi þær halda þeirri stefnu áfram. Nú er kominn nýr og verðugur starfsvettvangur sem kallar — sá, að hjálpa konum, sem eru í neyð eftir fóstureyðingu og hjálpa konum, sem standa aug- liti til auglitis við ógnun fóstureyð- ingar, að þær geti gengið með sitt bam og fengið þá hjálp, sem til þarf svo vel megi takast. Hin hiiðin — Fundur Lífsvonar Fundur Lífsvonar í ísl. óperunni fór í alla staði vel fram og miðað við aðstæður þann dag var hann vel sóttur. En fámennur hópur kvenna hafði safnast saman framan við ópemna í mótmælaskyni og mátti þar sjá bamavagna og bama- kerrur og konur með kornaböm á örmum sér. Konumar dreifðu blaði með yfirskriftinni: „Dæmið ekki, til þess að þér verðið ekki dæmdir." Þessu er til að svara, að hvorki ég persónulega né samtökin Lífsvon munu né hafa nokkra sinni dæmt einstaklinginn, konuna, sem fyrr eða síðar gengst undir fóstureyð- ingu, — það er af og frá, en við fordæmum að sjálfsögðu það réttar- far, sem slær þegna sína blindu með brengluðum og óljósum laga- bókstaf, sem Ieiðir til stríðs gegn lífinu sjálfu og eðlilegri framvindu þess. Við fordæmum að sjálfsögðu einnig þá heilbrigðisþjónustu, sem sniðgengur þann sjálfsagða þátt að fyrirbyggja með eðlilegum og manneskjulegum aðgerðum. A sama tíma sem fjöldaaftökur fara fram í móðurkvði era stofnuð frið- arsamtök, farið í friðargöngur og fjálglega talað um bömin okkar, sem við verðum að bægja kjam- orkuvánni frá. Allt saman gott og gilt, ef öll mannslíf væra jafnmikils metin. Mér er spum. Hvemig geta kjamorkuvopn og stríðsmenn horfið burtu af heimsskjánum, meðan hvorttveggja geisar hið innra með okkur sjálfum, fyllir alla okkar innrivera? Friður er sannarlega ekki aðeins íjarvera vítisvéla og stríðsdáta, heldur friður í okkar eig- in barmi, sem ber umhyggju fyrir öllu sem lifir, einnig litla baminu f móðurlífi. Við, sem stóðum að kynningar- fundi Lífsvonar í ísl. óperanni, voram þar að leggja okkar skerf á vogarskálar lífsins, að öll böm á öllum aldri mættu fá að Iifa og lif- andi sjást í sveitum, bæjum og borgum þessa lands í örmum og umsjá mæðra og feðra, sem álitu þau meira virði en gervifrelsi frjálsra fóstureyðinga. I fyrrnefndu dreifibréfí segir áfram: „Fóstureyðing er alltaf neyðarúrræði." „ísl. konur hafa Hulda Jensdóttir „Frelsi kvenna er í því fólgið að standa vörð um sinn eigin líkama, að þungun eigi sér ekki stað, ef þess er ekki óskað, það er þeirra frelsi. Ef barn verður til, erþað siðferðileg skylda konunnar o g samfélagsins alls að standa vörð um það líf og búa því verðugan stað í móðurlíf i og utan þess.“ ekki flykkst í fóstureyðingu né not- að þær sem getnaðarvöm." Þessar stóra fullyrðingar fá ekki staðist, og það vita þær konur fullvel, sem að dreifibréfmu stóðu. Ég hlýt því að spyija, hvem er verið að blekkja? Víst era til konur, sem gengist hafa undir fóstureyðingu vegna mikils þrýstings, eins og áður seg- ir, og hver finnur ekki til með þeim, en eigi að síður tala staðreyndimar sínu máli. í Heilbrigðisskýrslum, fylgirit 1985, nr. 2, frá landlæknis- embættinu í Reykjavík, segir, að níu af hveijum tíu fóstureyðingum á íslandi séu af félagslegum ástæð- um einum saman. Og ég vil leyfa mér að fullyrða, að flestar, ef ekki allar þessar ástæður mætti leysa, ef nægileg samstaða væri fyrir hendi og meiri virðing borin fyrir helgi mannlegs lífs. Fullyrðingunni um, að íslenskar konur noti ekki fóstureyðingar sem getnaðarvöm, vísa ég á bug sem staðleysum. I fyrmefndu riti frá landlæknisem- bættinu kemur fram það, sem lengi hefur verið vitað, að 75% þeirra kvenna, sem fara í fóstureyðingu nota alls engar getnaðarvamir. Eg spyr enn, hvem er verið að blekkja? — Að íslenskar konur „flykkist eicki í fóstureyðingu", — hver trúir þvf? Tala ekki tölur sínu máli? Um sl. verslunarmannahelgi sá ég hóp ungmenna „flykkjast" í frí frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík, en það var þó ekkert á við það, sem ég sé fyrir innri sjónum mínum, þegar fyrmefndum rökleys- um er fram haldið, því fjórtán, jafnvel fimmtán fimmtíu manna rútur þyrfti til, ef að líkum lætur, ef allar konur, sem gengu undir fóstureyðingu á árinu 1985 hefðu farið af stað samtímis til aðgerðar- innar. Hversvegna í ósköpunum reynum við að draga dul á stað- reyndir? Væri ekki nær að leita orsaka meinsins og raunhæfra bóta — fyrirbyggjandi aðgerða, þjóðinni allri til heilla. í grein Vera segir orðrétt: „Út frá því er beinlínis gengið, með stofnun Lífsvonar, að ég og þú séum ekki þess umkomnar að ákveða á ábyrgan hátt“ — „að ábyrgjast eig- in gerðir, til að ráðstafa líkama okkar..." Ég spyr, — er það að ábyrgjast og ráðstafa líkama sjálfrar sín á ábyrgan hátt, þegar kona í góðum efnum býður líkama sínum upp á það að láta framkvæma fóstureyð- ingu vegna þess, að hún er að fara í utanlandsferð, eða er að kaupa sér nýjan bíl, eða hefur gleymt að taka pilluna eða hefur sofið hjá „röngum" manni, eins og dæmið, sem Vera segir frá í fyrmefndu blaði. Þar segir orðrétt: „Hvað mundir þú gera, ef þú værir gift og ættir von á bami, en vissir ekki, hvort maðurinn þinn ætti barnið eða einhver annar væri faðirinn?" Til- vitnun lýkur. Mannanna böm hafa ávallt verið breysk og stigið víxlspor og svo mun ávallt verða, en fæstir skrifa um þau í blöðin. Flestir sem betur fer reyna að takast á við sín víxlspor. í annan stað, hvernig er hægt að tala um að ábyrgjast og ráð- stafa líkama sínum, þegar verið er að tala um bam í móðurlífi? Bamið í móðurlífi er ekki likami konunn- ar. Barnið í móðurlífi er þegar frá fyrstu byijun lifandi einstaklingur, ólíkur öllum öðram, sem fyrr eða síðar munu í móðurlífi dvelja og þaðan fara til tortímingar eða til lífs. Skylda okkar allra er að beij- ast fyrir lífsrétti bamsins í móð- urlífi, hvers líffæri myndast nær öll á fyrstu tíu vikum meðgöngunn- ar, eftir það er fyrst og fremst um vöxt að ræða. Á fyrstu 3 vikunum er hjartað farið að slá, æða- og öndunarkerfi þróað, vísir kominn að kynfæram, skynfæram og útlim- um, sem 8 vikna era mótaðir. Á 10. viku beinkjarnar, tær og fing- ur. Bamið í móðurkviði hefur fengið fullkomið mannsútlit, — er einstakl- ingur, sem enginn annar einstakl- ingur mun líkjast að fullu og öllu, einstaklingur með sín séreinkenni, sem enginn og ekkert getur frá honum tekið meðan hann er. Er ekki kominn tími til að menn viðurkenni þá vísindalegu stað- reynd, að um ieið og fijóvgun á sér stað, er líf. í hvert egg, sem fijóvg- Ályktanir sýslufundar Norður-Múlasýslu: Bættum samgöngum við Austurland fagnað Geitagerði. SÝSLUFUNDUR N-Múlasýslu 1986 var haldinn á Borgarfirði dagana 6. og 7. júní. Meðal margra samþykkta, sem gerðar vora, má nefna eftirfarandi: „Sýslufundur fagnar bættum samgöngum milli Austurlands og Norðurlanda, svo og Norður- Evrópu. Kemur þetta fram í aukn- um ferðamannastraumi og beinum innflutningi. Til þess að fylgja þess- ari þróun eftir ítrekar fundurinn þá áskorun á Alþingi og ráðherra að staðsettur verði tollvörður á Austurlandi með aðsetur á Seyðis- firði. Sýslufundur skorar á Alþingi, samgönguráðherra, vegamálastjóra og stjóm SSA að gangast fyrir að gera svofellda breytingu á reglu- gerð nr. 62/1964: Felld verði úr reglugerð þeirri, sem nú gildir, ákvæði um óakfæra vegi merkta bókstafnum Ó, en í þess stað verðí haldið eftir 25% af ríkisframlaginu til ráðstöfunar fyrir ófyrirséð. En að öðru leyti verði reglan óbreytt, svo og önnur ákvæði. Sýslufundur ítrekar fyrri sam- þykkt sína um að skora á stjóm vegamála og Alþingi að gerður verði aðalfjallvegur um Snæfell, Hrafnkelsdal, Brúaröræfi, Kreppu- tungur og tengist þar við Gæsa- vatnaleið. Nefndin leggur til að fjallvegur þessi beri nafnið Snæ- fellsleið. Sú leið liggur þá um brýr á Jökulsá á Brú, Kreppu og væntan- lega brú á Jökulsá á Fjöllum. Sýslufundur ítrekar fyrri sam- þykkt um að skora á Alþingi, samgönguráðherra og vegamála- stjóra að vinna markvisst að því að lagður verði vel uppbyggður vegur um Hellisheiði milli Vopna- fjarðar og Fljótsdalshéraðs. Núver- andi vegarraðningur er fær 1—2 mánuði á ári en er þó mjög fjölfar- inn. Væri þetta eðlilegust tenging hringvegar milli Norður- og Austur- lands. Gera þarf núverandi Ó-veg að sérverkefni. Á það skal bent, að Austurland var hlunnfarið við ráð- stöfun hafísvegafiár og er hér gott tækifæri til veralegra úrbóta. Sýslufundur skorar á Veiðimála- stjóra og Alþingi að sjá til þess, að á Austurlandi verði starfandi fiski- fræðingur eins og lög mæla fyrir, til leiðbeiningar fyrir bændur og almenning, hér á Áusturlandi, sem taka vill þátt í uppbyggingu þessar- ar nýju atvinnugreinar. Sérstaklega er lögð áherzla á að bændum verði kynntar nýjungar í silungsræktun og ræktun regnbogasilungs. Sýslufundur skorar á iðnaðarráð- herra að gera framhaldsrannsóknir á perlusteini í Loðmundarfírði, með það í huga, hvort aðstæður hafi breytzt varðandi vinnslu perlusteins og kannað verði til hlítar magn og gæði efnisins, en aðeins hluti þessa svæðis hefur verið kannaður. Sér- staklega er ástæða til þess að kanna þetta betur, ef kísilmálmverksmiðja verður reist á Reyðarfírði, þar sem þá myndu skapast nýir möguleikar ogódýrir varðandi flutning efnisins. Sýslufundur skorar á Hafrann- sóknastofnun að halda áfram rannsóknum á fískstofnum fyrir Austurlandi, og þá sérstaklega er varðar skelfiskmið á Héraðsflóa og víðar. Einnig verði könnuð mið út- hafsrækju fyrir Austurlandi. Sýslufúndur skorar á iðnaðarráð- herra og Orkustofnun að láta fara fram frekari rannsóknir á gasi og jörðu á Héraði. Þýðingarmikið sé að fá úr því skorið, hvort hér geti verið um veralegt magn að ræða, sem gagnlegt væri að hagnýta. Sýslunefnd N-Múlasýslu leggur mjög ríka áherzlu á að haldið verði markvisst áfram rannsóknum, vatnamælingum og vegagerð við Fljótsdalsvirkjun sbr. lög nr. 60 frá 1981 um orkuver. Samkvæmt nefndum lögum er Fljótsdalsvirkjun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.