Morgunblaðið - 03.09.1986, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 03.09.1986, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986 17 ast, er skráð lífssaga manns, sem á erindi inn í lífsframvinduna. Þunguð kona hefur ekkert frelsi til að taka líf, fremur en aðrir. Frelsi kvenna er í því fólgið að standa vörð um sinn eigin líkama, að þung- un eigi sér ekki stað, ef þess er ekki óskað, það er þeirra frelsi. Ef bam verður til, er það siðferðileg skylda konunnar og samfélagsins alls að standa vörð um það líf og búa því verðugan stað í móðurlífi og utan þess. Tilvitnun í Veru: „Hvað nákvæmlega á konan við, þegar hún segir, að við þurfum á fötluðum bömum að halda til að læra að elska og án þeirra séum við fátækari?" — Tilvitnun lýkur. Að sjálfsögðu sagði ég þetta ekki, þótt vel geti falist sannleikskom í þessari fullyrðingu Vem. Mín orð vom: „Ef við ættum engin fötluð böm til að lifa fyrir og elska, væmm við fátækari en raun ber vitni." Ég ætla ekki á þessu stigi máls að fara í orðaleik við Vem, því orð mín skýra sig sjálf, en vil benda á, að Lífsvon getur að sjálfsögðu ekki sætt sig við að fólk sé dregið í dilka, — að eitthvað í nafni vísinda ákveði hver á að lifa og hver á að deyja. Slíkt er að margra mati sið- leysi, enda er mér spurn, hver er algjör mælikvarði bæklunar? Allt Iíf hefur gildi, — það fer ekki á milji mála í minni réttarvitund. Á sama tíma og matvælafram- leiðslan í heiminum er einum þriðja of mikil, á sama tíma og einni millj- ón króna er eytt hvetja einustu sekúndu í bijálæðislegan vígbúnað, sem þýðir 60 miljjónir hverja ein- ustu minútu, auk ekki minni upphæða í glómlausar vitleysur, leyfum við okkur að tala um, að fötluð böm séu samfélaginu of dýr. Hafa menn gleymt því að hið vold- uga ríki Rómveija féll og fall þess varð mikið? Heimildir frá þeim tíma sýna, að mikil fólksfækkun átti sér stað. 2 böm á fjölskyldu var há- mark, þrælum gefíð frelsi og þeir gerðir ríkir, ef þeir fyrirfóm börnum sínum. Þegar maðurinn hættir að virða helgi mannlegs lífs, eykst spillingin í margvíslegri mynd með þeim af- leiðingum, sem því fylgja. Nútíma lífsgæðamat lokar dymm á börn. Það er ekki rúm fyrir þau. Menn em svo uppteknir við lærdóm og lífskjarasköpun að kjaminn gleym- ist. Ekkert er fjær lífsgæðum, lífsdýpt og lífstilgangi en lífskjara- mgl. Böm gera engan fátækan. Börn eru ijárfesting hin allra besta, — nú sem fyrr. Ef sú lífssýn, sem þvinguð er inn á nútímamanninn, hefði verið ríkjandi fyrir nokkmm tugum ára, væri ég og fólk á mínum aldri fátt á foldu, — ég tala nú ekki um mæður okkar og feður, ömmur og afa, sem í miklum meiri hluta fædd- ust í heim allsleysis, jafnvel heim örbirgðar, þar sem björg var oft lítil sem engin frá degi til dags. En er það ekki einmitt þetta fólk, sem samkvæmt dagsreglunni hefði aldrei átt að fæðast, sem er gmnn- ótvírætt næsti virkjunarkostur eftir Blönduvirkjun. Sýslufundur N-Múl. fellst á að miðað við orkuþörf landsmanna verði gerð útboðsgagna frestað, unz horfur hafa glæðzt með orkusölu. Fundurinn leggur áherzlu á að þær rannsóknir, sem þegar hafa farið fram, em mjög dýrmætar og þýð- ingarmiklar fyrir þjóðarbúið í heild og bendir á að markaðshorfur á sölu orkunnar geta breytzt á skömmum tíma og sífelldar nýjung- ar ryðja sér braut í flutningi rafmagns jafnvel landa milli. Sýslufundur N-Múlasýslu lýsir yfir mikilli óánægju með nýsam- þykkt sveitarstjómarlög, einkum þau ákvæði laganna, sem lúta að sýslunefndum og væntanlegum hér- aðsnefndum, en þau ákvæði em mjög óljós og allt á huldu um, hvert verður eiginlegt verkefni sýslnanna. Sýslunefndin telur, að þótt fmm- varpið til sveitarstjómarlaganna hafi ekki verið gallalaust, hafi það versnað til muna í meðfömm Al- þingis." urinn sterki, sem öll nútímavelferð byggist á? I þúsundir ára hefur siðfræði lækna byggst á lotningu fyrir lífínu. Læknaeiðurinn kveður á um að vemda líf allt frá getnaði til graf- ar. Margir líta svo á að læknaeiður- inn sé lögum meiri. Nægir í því sambandi að benda á PRO-VITA- samtökin, sem vom stofnuð á læknaþingi í Niðurlöndum árið 1947, byggð á gmnni gerðum af franska erfðafræðingnum, læknin- um, prófessor J. LeJeune, sem margoft hefur verið nefndur í sam- bandi við Nóbelsverðlaunin í læknisfræði. Prófessor J. Lejeune er sá sem fann aukalitninginn Tri- somi 21, sem orsakar mongólisma og vinnur nú að því hörðum höndum að lækna mongólisma m.m. — í PRO VITA-samtökunum em nú þegar yfir 130.000 læknar. Það hlýtur því að teljast gróft brot gegn öllu velsæmi og mannréttindum, þegar Alþingi setur lög, sem þving- ar lækna og aðrar heilbrigðisstéttir til að vinna gegn heiti, sem verið hefur homsteinn læknisfræðinnar frá örófi alda. Á sama hátt og ójafnvægi í líkama mannsins leiðir til sjúkdóma og skertra viðbragða, hlýtur ójafn- vægissamfélag að verða sjúkt með skerta dómgreind. Eitt af sorgleg- um dæmum þessa ójafnvægis- ástands í nútíma samfélagi er einmitt sú staðreynd að vamarlaus böm í móðurlífi eiga þar ekki griða- stað lengur. Með lögum má taka líf þeirra, þótt þau hafi ekkert til saka unnið, nema það eitt að verða til, fyrir tilverknað annarra. Lífið krefst réttlætis. Lögum er ekki ætlað að brjóta niður siðgæðisvit- und fólks og þann þroska, sem því fylgir að takast á við vanda. Lög hvers lands hljóta að hafa það markmið að styrkja og efla sið- gæðis- og réttarvitund fólks, enda nauðsyn, ef viðhalda á menningu og lífskrafti þegnanna. Ég skora því á alla íslendinga að fylkja sér undir fána lífsins, að samtökin Lífsvon megi verða voldugt verk- færi til bjargar hundruðum íslend- inga ár hvert. Okkur vantar stuðningsfjölskyldur og góðar hug- myndir. Margar hendur vinna létt verk. Trú mín og von er sú að ritstjóm Veru, ásamt þeim öðrum, sem álíta fijálsar fóstureyðingar frelsi, muni innan tíðar, mjög skjótt, sjá fjar- stæðuna. Fijálsar fóstureyðingar em blekkingarfjötrar þess tíðar- anda, hvers verðmætamat er hlutasöfnun. Hlutir em góðir til síns brúks, en hlutir gefa ekki það, sem mannlegu lífi er nauðsyn til þroska og lífs. Ef þetta gleymist er vél- mennið á næsta leyti. „Hin mesta ógnun við heims- friðinn er hróp hins ófædda bams.“ Systir Teresa. „Að vera móðir er ekki starf, það er ekki einu sinni skylda. Það em aðeins ein af mörgum réttindum konunnar____“ Oriana Fallaci. „Bam gerir þig að manneskju og hjálpar þér að sjá hlutina í réttu ljósi og réttri röð.“ Meryl Streep. Böm em það dýrmætasta, sem við eigum. Án bama ekkert líf. Án morgundags engin framtíð. Skrifstofa Lífsvonar er í Auð- brekku 2, Kópavogi, sími 44500 og pósthólf Lífsvonar er 5003, 101 Reykjavík. Höfundur er forstödumaður Fæð- ingarheimilis Reykjavikur og formaður Lífsvonar. Gullin horn 16 stk. 250 g Munka-hveiti 200 g smjör eöa smjörlíki 'h dl mjólk eöa rjómi 1 e99 2 stk lyftiduft 1 tsk vaniiludropar Fylling: 150 g sveskjumauk Til penslunar: 1 egg, þeytt, grófur strásykur, möndluspænir, ef vill. Ölíu efni er blandað saman og þaö hnoöaö i samfellt deig. Skiptiö deiginu í tvennt, mótiö 2 kúlur og tátiö þær bíöa í 5 mín. Fletjiö kúlurnar út í kringlóttar kökur, u.þ.b. 30 sm i þvermál. Skerið hvora um sig í 8 hluta. Setjið 1 tsk af sveskjumauki ofan á hvern bita og rúllið upp inn aö miðju. Leggiö hornið á smurða plötu, snúið endanum niður. Pensliö homin meö egginu, stráiö sykri og möndlum yfir. Bakiö í miöjum ofni viö 200° C i u.þ.b. 20 min. Svona kræsingar bakar þú með nýja Munka-mjölinu frá Danmörku Nú fæst Munka-hveitimjölið óviðjafnanlega loksins á íslandi. Munka-mjöl er uppáhald danskra húsmæðra enda er það malað úr dönsku gæðahveiti. Kauptu poka af Munka-mjöli í dag. Reyndu uppskriftina að gullnu hornunum og uppskriftirnar á pokanum. Þá geturðu hlakkað til að bera fram heimabakaðar kræsingar. Úr Munka-mjöli! Heildsöludreifing: Nathan og Olsen hf. Sími 681234. - G.V.Þ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.