Morgunblaðið - 03.09.1986, Síða 23

Morgunblaðið - 03.09.1986, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986 23 Húsavík: Mokafli hjá rækju- skipum norð-norð- austur af Langanesi Húsavík. MIKIL og góð rækjuveiði hefur verið fyrir Norðausturlandi und- anfarið og hafa um 20 skip stundað þessar veiðar. Ný rækju- mið fundust út af Langanesi, nánar tiltekið í svokölluðum Kanti norðaustur af Langanes- inu um 30 sjómílur frá landi. Þrjú aðkomuskip hafa landað afla sínum hér á Húsavík, en það eru: Snæfari frá Reykjavík og Dag- fari og Sjávarborg úr Sandgerði. Öll þessi skip ásamt togaranum Júlíusi Havsteen hafa aflað mjög vel að undanförnu. Dagfari kom til löndunar á fimmtudag með 24 tonn af rækju, ísaðri í kassa eftir aðeins 4ra daga túr, en 11 tíma stím er af miðunum til Húsavíkur. Sjávarborgin er hér einnig til löndunar, hún er með 70 tonn, en hún fór vestur á Dom- banka og tók þar nokkur höl. Þar er stærri rækja og fer hún beint á Japansmarkað fyrir mjög hátt verð. Um borð í Dagfara hitti ég þá Ólaf Karlsson, vélstjóra, og stýri- manninn, Einar Kristjánsson. Þeir voru að vonum kampakátir yfir þessum veiðiskap og töldu að Dag- fari yrði á þessum veiðum a.m.k. í mánuð í viðbót og léti loðnuveiði bíða þar sem mun betra aflaverð- mæti væri í rækjunni við þessar aðstæður, þeir væru nú búnir að vera í 5 vikur á þessum veiðum og fiskað um 150 tonn og má ímynda sér að mikið fé er fólgið í þeim afla, þar sem verð á rækju er mjög gott um þessar mundir. Ætla má að skipið fái um 53 krónur fyrir kílóið af rækjunni og mun þá síðasti túr Dagfara gera um þrettán hundr- uð þúsund fyrir 24 tonnin. Það er verksmiðjan Særún á Blönduósi sem kaupir rækjuna af Dagfara og ekur henni á bílum á milli. Ólafur Karlsson sagði að miðað við veiðar þeirra fyrir 2 árum væru rækjuveiðarnar nú mjög hagstæðar fyrir útgerðina, þá hefðu þótt ágæt- ir túrar að fiska 15 tonn á 5 dögum og þá bæri að líta á það að olíu- verð hefði lækkað mikið síðan þá, þannig að þetta væri eiginlega ekki sambærilegt, þar sem þeir hefðu núna verið 3 sólarhringa að veiðum. Sex menn eru um borð í Dagfara á rækjuveiðunum, en fjölgar í tólf við loðnuveiðamar. Þeir Einar og Ólafur voru vissir um að nóg væri af rækju á þessu svæði, þetta fiskirí kæmi á alveg réttum tíma, rækjuveiðar í Barents- hafi hefðu brugðist og nú byðu Norðmenn mjög hátt verð fyrir rækjuna. Skipaafgreiðsla Húsavíkur sér um löndunarþjónustu úr þessum skipum og hefur það gengið alveg eins og í sögu og má segja að stemmningin við Húsavíkurhöfn þessa dagana minni á síldarárin, en þá var mikið líf og fjör við höfn- ina. Þegar landað var úr Sjávar- borginni færði Skipaafgreiðslan skip frá Eimskip, sem þeir eru jafn- framt umboðsaðilar fyrir, frá hafnargarði að bryggju og hífðu frá borði frystigáma og óku rækjunni beint frá Sjávarborginni yfir í frysti- gámana og fylltu þá. Þeim var síðan skipað um borð aftur og skipið sigldi með rækjuna beint á erlendan markað. Þetta tók lítinn tíma og sparaði mikið fé. Virkilega vel að þessu staðið. í dag er Húsavík miðstöð rækju- veiðanna og verður svo enn um tíma. Rækjuverksmiðjan á Húsavík tekur við öllum afia úr togaranum Júlíusi Havsteen og er von á honum inn á morgun, föstudag, með 70 tonn. I verksmiðjunni er unnið dag og nótt, þar sem svo mikill afli berst nú á land, von er á 2 rækjubát- um inn á laugardag. Þess má geta, að skipin Dagfari og Sjávarborg eru eign barna Þórs Péturssonar útgerðarmanns á Húsavík, sem rak stærsta útgerðar- félagið hér á Húsavík, Barðann, um áraraðir ásamt bróður sínum, Stef- áni, og bömum þeirra beggja. Það var mikil blóðtaka fyrir Húsavík þegar það fyrirtæki flutti starfsemi sína að mestu suður yfir heiðar vegna aflabrests hér og annarra orsaka. Þ.E. Frá Flúðum Morgunblaðið/Sig.Sigm. Flúðir Hrunamannahreppi: Aldrei fleiri ferðamenn Syðra-Langholti. Ferðamannastraumur hér um sveitina hefur verið mjög mikill í sumar. Að sögn Jóhannesar Sig- mundssonar hótelstjóra sumar- hótelsins á Flúðum hafa gestir aldrei verið fleiri. M.a. hafa stærri og smærri hópar dvalið í nokkrar nætur i senn og farið í skoðunarferðir á daginn. En frá Flúðum er stutt til margra sögufrægra og fagurra staða. Gisti- rými er fyrir 60—70 manns en meginhluta þess, þ.e. í skólahúsinu, verður nú lokað um mánaðamótin, en Skjóiborg er aftur á móti opin fallt árið. Margir ferðamenn hafa einnig gist á tjaldstæðinu og notið, svo sem aðrir, þein-ar miklu veður- blíðu sem verið hefur í sumar. Þá stansa fjölmargir áningarfarþegar Flugleiða, sem eru í skoðunarferð- um á svokölluðum Gullfoss — Geysis-hring, á Flúðum til að snæða hádegisverð og verður svo til sept- emberloka. Nú er verið að byggja ný sund- skýli við sundlaugina á Flúðum en þau gömlu voru orðin hrörleg enda tekin í notkun árið 1949. Sundlaug- inni er eðlilega lokað á meðan. Verktakar eru þeir Guðmundur Magnússon og Júlfus Sveinsson byggingameistarar. Á byggingu nýju sundskýlanna að vera lokið í byijun október. Kennsla í Flúða- skóla á að hefjast 8. september. Sig.Signi. Af Dagfara: skipstjórínn Hinrík Þórarínsson lengst til hægri, þá Einar Kristjánsson stýrimaður og Ólafur Karlsson vélstjóri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.