Morgunblaðið - 03.09.1986, Side 29

Morgunblaðið - 03.09.1986, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986 29 formaður SUF, sagði að hér væri átt við öll samskiptin við Banda- ríkin, en Finnur Ingólfsson, fráfar- andi formaður SUF, sagði, að hér væri fyrst og fremst vísað til þriggja mála: hvalveiðimálsins, kjötinn- flutnings varnarliðsins og einokun- ar Rainbow Navigation á sjóflutn- ingum fyrir varnarliðið. Steingrímur Hermannsson lagði orð í belg í þessum umræðum og taldi vafalaust að kjötinnflutningur varnarliðsins væri lögmætur. Aftur á móti teldi hann rétt að stöðva hann nú, þar sem aðrar aðstæður væru fyrir hendi hér á landi hvað varðaði framboð og gæði kjöts en þegar varnarsamníngurinn var gerður. Kvaðst hann hafa ásamt landbúnaðarráðherra rætt um það við utanríkisráðherra, að heimildin til kjötinnflutningsins í viðbæti við varnarsamninginn yrði felld brott. Steingrímur vakti jafnframt at- hygli ungra framsóknarmanna á því, að Islendingar hefðu mikil- vægra hagsmuna að gæta í Bandaríkjunum. Þar væri mikil- vægasti fiskmarkaður okkar og fyrir sérstaka velvild bandarískra stjórnvalda fengju Flugleiðir að bjóða lág fargjöld, sem væru for- senda fyrir áframhaldandi Atlants- hafsflugi þeirra. í þessu efni yrðum við að láta skynsemina ráða. En um utanríkismálaályktun þingsins almennt sagði forsætisráðherra: „Mér finnst þessi ályktun að mörgu leyti ágæt og geri engar athuga- semdir við hana.“ í drögum að ályktun um utan- ríkismál var klausa, þar sem orðrétt sagði: „Gjalda ber varhug við hvers konar ásælni hersins [þ.e. varnar- liðsins] um aðstöðu úti á lands- byggðinni, sbr. hugmyndir um varaflugvöll á Sauðárkróki." Ungir framsóknarmenn í Norðurlands- kjördæmi vestra sættu sig ekki við þetta orðalag. Guðrún Sighvats- dóttir, sem hafði orð fyrir þeim, sagði að Sauðkrækingar legðu áherslu á að fá þennan flugvöll og væri það mál nú á „viðkvæmu stigi“. Ályktunin gæti truflað þessi áform. Tillagan var borin undir at- kvæði og niðurfellingin samþykkt með öllum þorra atkvæða gegn um tíu. Sagði þá einn ágætur fram- sóknarmaður upphátt: „Bara kommúnistamir á móti“. „Af ávöxtunum ...“ Með þinginu í Hrafnagilsskóla hafa ungir framsóknarmenn sýnt, að þeir em að sækja í sig veðrið. Þeir em ekki aðeins bjartsýnir held- ur fullir eldmóðs. Vandinn er bara sá, að hólmganga þeirra er við eig- in flokksmenn og útlit fýrir að hún geti skapað flokknum nýja erfíð- leika. Staðreyndin er sú, að það em alls ekki allir framsóknarmenn sam- mála skýringum SUF á fylgistapi flokksins eða því, hver leiðin er til „vinsælda og áhrifa". Það er jafn- vel hugsaniegt, að verði hart gengið fram í því að iosna við suma núver- andi þingmenn flokksins, muni koma til sérframboða óánægðra framsóknarmanna. Hitt er þó enn þýðingarmeira í þessu samhengi, að greining SUF- þingsins á vanda Framsóknar- flokksins kann að vera á miklum misskilningi byggð. Ef tii vill er hin „neikvæða fjölmiðlaímynd" Fram- sóknarflokksins á rökum reist og flokkurinn í raun hentistefnuflokk- ur, sem hefur viðurværi sitt af þröngum sérhagsmunum áhrifa- mikiila kjósenda í dreifbýli, þar sem hvert atkvæði vegur meira en at- kvæði í þéttbýli vegna úreltrar kjördæmaskipunar. Þennan skiln- ing á Framsóknarflokknum má sækja í reynsluna af stjórnarþátt- töku flokksins sl. áratug, en á þeim tíma hefur hann starfað með öllum höfuðflokkunum og fylgt mjög ólíkri stefnu eftir því í hvaða ríkis- stjórn hann hefur setið. Hann hefur verið stjómlyndur í samstarfí við Alþýðubandalag og Alþýðuflokk og fijálslyndur í samstarfi við Sjálf- stæðisflokk. í ljósi þessa kunna fjölmiðlaæfíngar og breytt skipulag að duga skammt, því af verkunum eru menn á endanum dæmdir. Þingfulltrúar voru 130—140 og er þetta liklega fjölmennasta þing SUF um árabil. er hljóta að krefjast aukinna ríkisút- gjalda. Hér, eins og oft áður, virðast framsóknarmenn eiga erfitt með að ákveða í hvorn fótinn þeir eiga að stíga. í drögum að stjórnmálaályktun- inni var að fínna harða gagnrýni á íslenskt viðskiptalíf og því m.a. lýst yfír að þar væri siðleysi ríkjandi. Þessi setning var hins vegar felld brott í endanlegri gerð, enda um stóryrði að ræða sem erfitt yrði að rökstyðja. Þetta gefur hins vegar svolitla vísbendingu um kaldan anda í garð verslunar og viðskipta meðal ákveðins hóps ungra fram- sóknarmanna. Umhverfismála- ráöuneyti? Áður en SUF-þingið kom saman var látið í veðri vaka, að meginefni þingsins yrðu umræður um um- hverfísmál. Tilkynnt var, að von væri á Petru Kelly, fyrrum þing- manni Græningja í Vestur-Þýska- landi, og myndi hún ávarpa þingið. Kelly komst ekki á þingið og hvort sem það var þess vegna, eða af öðrum ástæðum, var þar harla lítið rætt um umhverfísmál, heldur voru það innanflokksmálin sem mestur tími fór í. Hins vegar samþykkti þingið sérstaka ályktun um um- hverfísmál, þar sem m.a. er lagt til að sett verði lög um samræmda heildarstjóm umhverfismála, sem feli í sér að mengunarvarnir, skipu- lagsmál og náttúruvernd verði á vegum sama ráðuneytis í Stjómar- ráði íslands. Má líklega skiija þessa ályktun, sem tillögu um stofnun sérstaks ráðuneytis umhverfismála. Vafalaust eiga ungir framsókn- armenn eftir að láta meira í sér heyra um umhverfísmálin, enda er alls ekki loku fyrir það skotið að Framsóknarflokkurinn geti markað sér einhvetja sérstöðu á því sviði, ef aðrir flokkar vanrækja þau. Kjarnorkuslysið í Chemobyl í Sóv- étríkjunum hefur sett umhverfismál í brennidepil með nýjum hætti og það er bæði eðlilegt og óhjákvæmi- legt að borgaralegir flokkar taki þau upp af festu, en láti þau ekki eftir flokkum yst til vinstri. Ekki á móti vara- flugveili Á þinginu urðu nokkrar umræður um utanríkismál og þar komu ljós- lega fram sárindi og gremja í garð Bandaríkjamanna vegna lykta hval- veiðideilunnar. í ályktun þingsins um utanríkismál er þess krafist, að samskiptin við Bandaríkin verði tekin til gagngerrar endurskoðunar. Þórður Ægir Óskarsson, sem sæti á í stjóm SUF, hreyfði efasemdum við þessu orðalagi og taldi óljóst hvað átt væri við. Eigum við að hætta að selja þeim fisk eða segja upp vamarsamningnum? spurði hann. Gissur Pétursson, hinn nýi Nokkrir þingfulltrúa í Hrafnagilsskóla. Morgunblaðið/Skai.ti Halldórsson opnum, því þar segir að Framsókn- arflokkurinn hafí lagt fram áætlun um að stýra þjóðfélaginu inn á „brautir velmegunar, vaxandi frjálsræðis, félagshyggju og minnk- andi ríkisafskipta“. Sjálfstæðis- menn gætu vafalaust skrifað undir sams konar orðalag, enda má skilja „félagshyggju" mörgum skilningi, svo sem höfundur þessarar greinar hefur áður bent á hér í blaðinu. Því verður ekki mótmælt með neinni sanngimi, að Framsóknar- flokkurinn eigi þátt í því aukna fijálsræði í atvinnu- og viðskipta- lífí, sem skapast hefur á kjörtímabili núverandi ríkisstjórnar. Að vísu hafa nokkrir þingmenn flokksins verið andvígir þessum breytingum, en Steingrímur Hermannsson hefur stutt þær dyggilega og er líklega reiðubúinn að ganga lengra á þessu sviði, en enn hefur verið gert. í stjómmálaályktuninni segir enn- fremur, að ungt fólk innan Fram- sóknarflokksins hafi unnið og barist fyrir áðurnefndri áætlun flokksins. í ljósi þess er það undrunarefni, að hvergi er annars staðar í sam- þykktum SUF-þingsins vikið að nauðsyn fijálsraeðis og minnkandi ríkisafskipta eða hugmyndir þar að lútandi settar fram, en aftur á móti víða lýst stuðningi við áform nn og tók nokkurn þátt í umræð- Utf lutningsráð: Þriggja ára kynningar- átak um útflutning Lög um Útflutningsráð Islands taka gildi 1. október næstkom- andi. Ráðið tekur yfir starfsemi Útflutningsmiðstöðvar iðnaðar- ins. Það á að veita útflytjendum alhliða þjónustu og ráðgjöf og vera stjórnvöldum til ráðuneytis í málum sem snerta utanríkisvið- skipti. Meðal verkefna sem hið nýja útflutningsráð fær verður þriggja ára kynningarátak í þágu íslenzkrar útflutnings- framleiðslu, sem Útflutningsmið- stöð iðnaðarins befur undirbúið. I nýlegri skýrslu iðnaðarráðherra segir að „harðnandi samkeppni í heiminum og aukin þörf okkar Is- lendinga á sókn á erlenda markaði geri kröfur um sérmenntað fólk á sviði uiflutnings- og markaðsmála". Þar segir og að stofnsamningur við Stjórnunarfélag íslands um útflutn- ings- og markaðsskóla hafí verið undirritaður í janúar sl. og að skól- inn hafi hafið störf í marzmánuði sl. Frumkvæðisnefnd: Áfangaskýrsla væntanleg* Um nokkurt skeið hefur verið starfandi frumkvæðisnefnd á vegum iðnaðarráðherra til að huga að aðgerðum til að auka innlenda og erlenda fjárfestingu í iðnaði hér á landi. Áfangaskýrslu nefndarinnar er að vænta innan tíðar. Meðal tillagna sem nefndin hefur fjallað um má nefna: a) aukið skattalegt hagi-æði af hlut.afjárcign í atvinnufyrirtækj- um, b) tímabundið skattfrelsi fyrir nýjar og vaxandi iðngreinar, c) gerð fríverzlunarsamnings við Banda- ríkin, d) skattalegar aðgerðir til að hvetja starfandi fyrirtæki til að efla markaðsstarf erlendis, vöruþróun og rannsóknir, f) samvinna og sam- starf innlendra og erlendra fyrir- tækja, g) kynning erlendis á tækifærum til iðnrekstrar hér á landi. í nýlegri skýrslu iðnaðarráðu- neytis um verkefni, sem undir ráðuneytið heyra, segir m.a. að ráðuneytið hafí kynnt í ríkisstjóm- inni ýmis grundvallarskjöl frá OECD um alþjóðlegar íjárfestingar og tjölþjóðafyrirtæki. Frumvarp iðnaðarráðherra: Afnám skatta á raforku til iðnaðar Iðnaðarráðuneytið vinnur nú að gerð lagafrumvarpa, sem fela í sér, ef samþykkt verða, „afnám skatta á raforku til iðnaðar til samræmis við nágrannalönd okk- ar“. Frá þessu er greint í yfirliti, „Af vettvangi iðnaðarráðherra“, sem fjallar um verkefni og stofn- anir, er undir ráðuneytið heyra frá október 1985 til og með júlí 1986. í yfírlitinu segir að með lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum hafí verðjöfnunargjald af raforku', sem var 16%, verið fellt niður frá og með 1. marz 1986. Landsvirkjun hafí síðan lækkað verð á raforku til almenningsveitna um 10%. Sam- tals hafí raforkutaxtar lækkað um því sem næst 20%. Hitaveitur hafi og lækkað gjaldskrár um 7% eða hætt við fýrirhugaðar hækkanir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.