Morgunblaðið - 03.09.1986, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986
v
Erfiður
blýantur
Iþessum blýanti
eru falin fimm orð
sem öll minna okkur
á skóla. Reyndu að
finna hver þau eru.
Orðin eru á ská, upp
og niður, en þó alltaf
í röð. Sendu okkur
svarið um leið og þú
svarar myndagát-
unni.
Brosum
að eru ekki bara María og
Ólöf sem eru fastir pennavin-
ir bamasíðunnar. Guðný Einars-
dóttir, Ásvallagötu 40, sendir
Bamasíðunni bréf öðm hvom. Um
daginn sendi hún okkur þennan
brandara:
Pétur gamli átti níræðisaf-
mæli. í tilefni dagsins átti að taka
myndir af honum. Myndasmiður-
inn var mættur til verks: Nú
brosum við dálftið og sýnum tenn-
umar. Nei, nei, ekki taka þær út.
Upplýsingar um
Eyrarbakka
Hvar er Eyrarbakki: Á Suður-
landi, í Ámessýslu.
íbúa§öldi: 539.
.* Atvinna: Aðailega fiskveiðar og
-vinnsla.
Samgöngur Hægt er að aka
þangað. Áætlunarferðir frá
Reykjavík með rútu þrisvar á dag.
1 Ekkert áætlunarflug.
\ Engar feijuferðir.
Ef þú ætlar að keyra þangað þá
má geta þess að fjarlægð frá
Reykjavík er um 70 km, frá
ísafirði 599, frá Akureyri 492 og
frá Egilsstöðum suður um 673
km.
Póstáritun: 820 Eyrarbakki.
Svæðisnúmer síma: 99.
Einkennisstafur bíla: X eins og í
allri Ámessýslu.
Nítján í árgangi!
Um daginn hitti Bamasíðan
unga fEí’ega stúlku. Þegar
hún var spurð kom í ljós að þetta
var 12 ára stelpa frá Eyrarbakka.
Það er alltaf gaman að hitta og
kynnast nýju fólki. Við spyrjum
þessa stelpu því um hagi hennar
og fyrst hvað hún heiti.
— Ég heiti Stefanía Þóra Jóns-
dóttir.
Hefurðu alltaf átt heima á Eyr-
arbakka?
— Já, næstum alltaf, ég flutti
þangað þegar ég var eins árs.
Hvað gera krakkar á Eyrar-
bakka?
— Við förum í fótbolta og ýmsa
aðra Ieiki.
Segðu okkur meira frá fótbolt-
anum.
— Þær sem eru fimmtán ára
og yngri keppa saman í flokki.
Við emm með þjálfara og æfum
tvisvar í viku á sumrin. Svo kepp-
um við við Stokkseyri.
Fá krakkar á Eyrarbakka ein-
hveija vinnu á sumrin?
— Þau elstu em í fiski. Við
fáum að vera í unglingavinnu.
Ég sjálf passa böm. Ég passa
yngri bróður minn sem er eins
árs og svo passa ég tveggja ára
stelpu. Ég sel Helgarpóstinn aðra
hveija viku.
Ertu ánægð með sumarvinn-
una?
— Já, mér finnst ég hafa gott
upp úr þessu.
Hvað með sumarfrí?
— Við emm núna í sumarfríi.
Ég á tvo bræður og við emm með
pabba og mömmu í sumarhúsi
sem við fengum lánað í viku.
Hvað er hægt að gera í sumar-
húsinu?
— Það er mjög gott veður héma
og er búið að vera það þann tíma
sem við emm búin að vera hér.
Það er hægt að vera í sólbaði,
fara í sundlaug í nágrenninu, fara
í göngutúra og beijamó. Og auð-
vitað er hægt að slappa af og
hafa það gott.
Þú ert elst þriggja systkina.
Hvemig er það?
— Stundum er gott að vera elst,
en oft er það líka erfítt.
Nú líður senn að því að skólam-
ir byiji. Hvað em margir krakkar
í þínum bekk?
Stefanía Þóra í sveitinni.
— Við emm 19 í árgangi.
Hvemig er skólinn hjá ykkur?
— Það er mikið að gera í skól-
anum. Við emm fyrir hádegi.
Eftir hádegi er síðan sund og leik-
fími.
Fer öll kennsla fram á Eyrar-
bakka?
— Nei, við verðum að fara til
Selfoss til að fara í leikfimi og
sund. Við fömm með rútu.
Hvernig er með félagslífið?
— Það er ágætt. Stundum er
diskótek sem skólinn heldur og
ungmennafélagið heldur það
stöku sinnum.
Hafið þið mikið samband við
krakka á Stokkseyri?
— Ég sagði áðan að við keppum
við þau í knattspymu og svo för-
um við einu sinni á ári með
skólanum þangað. Það er líka
auðvelt að hjóla þangað og ganga.
Fylgist þú með íjölmiðlunum?
— Eg les Moggann. í sjón-
varpinu er það Fame og Fyrir-
myndarfaðir sem em skemmtileg-
ustu þættimir. í útvarpinu em það
aðallega vinsældalistinn og lög
unga fólksins sem ég hlusta á.
Um hvað talið þið vinkonumar
þegar þið hittist?
— Margt, t.d. um föt og hljóm-
sveitir.
Hefur þú einhveijum skyldum
að gegna heima við?
— Já, en engar fastar, stundum
vaska ég upp og tek til.
Þessu spjalli við Stefaníu er
lokið. Á Éyrarbakka búa ekki
mjög margir en þar em greinilega
hressir og skemmtilegir krakkar.
Bamasíðan sendir þeim öllum
bestu kveðjur.
MYNDAGÁTAN 11
Svarið við myndagátu 10 var
frímerki. Mörg rétt svör bár-
ust. Ur svarbréfunum kom upp
nafn systra. Þær heita Ingibjörg
og Gréta Hilmarsdætur, Fögm-
brekku 11, Vopnafirði. Við
þökkum ykkur fyrir bréfin sem
þið sendið okkur krakkar.
Héma er ný myndagáta. Til að
gera hana erfiðari er myndin
klippt niður og þið eigið að reyna
að geta hvað á henni er. Ef þið
finnið það ekki út öðmvísi má
klippa hana úr blaðinu og reyna
að raða henni saman. Svörin send-
ið þið til okkar sem fyrst. Heimilis-
fangið er:
Barnasíðan
Morgnnblaðinu,
Aðalstræti 6,
101 Reylgavík.
Rétt svar við „Tvö eins“ var H
ög B. Rétt svar hafði m.a. Katrín
Sif Sigurgeirsdóttir í Hafnarfirði.