Morgunblaðið - 03.09.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986
43
Kveðjuorð:
Margrét Thoraren
sen, Akureyri
Hinn 18. ágúst sl. lést í sjúkra-
húsi í Reykjavík frú Margrét
Thorarensen, Brekkugötu 35 á
Akureyri. Hún var jarðsungin frá
Háteigskirkju 22. ágúst sl.
Enda þótt Margrét tæki alvarleg-
an sjúkdóm fyrir nokkrum árum,
höfðu vinir hennar og vandamenn
vonað að hún sigraði sjúkdóminn,
en því yrði ekki öfugt farið. Sjálf
barðist hún hetjulegri baráttu og
var alltaf bjartsýn. Hún var reglu-
lega til eftirlits og rannsókna hjá
hinum færustu sérfræðingum, en
allt kom fyrir ekki. „Maðurinn með
ljáinn“ bar sigur úr býtum löngu
fyrr en sanngjarnt gat talist. Bæri
heilsu Margrétar á góma, þegar hún
kom úr eftirliti, sagði hún jafnan
hress í bragði: „Mér líður ágætlega,
ég fékk góða skoðun."
Margrét fæddist í Reykjavík 2.
júní 1931 og var dóttir hjónanna
Theodóru Ellenar Sigurðardóttur
og Ingólfs Gíslasonar læknis frá
Papey. Hún var önnur í röðinni af
4 systkinum. Eldri er Theodór og
yngri eru Steinunn og Gísli.
Margrét ólst upp hjá foreldrum
sínum og systkinum fyrst í
Reykjavík og síðan á Djúpavogi,
þar sem faðir hennar var héraðs-
læknir, meðan heilsa hans leyfði.
Hann fékk lausn frá embætti í jan-
úar 1945 vegna alvarlegs heilsu-
brests. Flutti fjölskyldan þá til
Reykjavíkur aftur og bjó þar síðan.
Ingólfur lést 1981.
Ung að árum eða í nóvember
1952 giftist Margrét eftirlifandi
manni sínum, Oddi C. Thorarensen
lyfsala á Akureyri, og varð þeim
fímm barna auðið. Þau eru: Ellen,
fædd 1952, Gunnlaug, fædd 1956,
Oddur Carl, fæddur 1958, Hildur
Sólveig, fædd 1960 og yngst er
Margrét Steinunn, fædd 1964. Öll
eru börnin gjörvileg og hið mann-
vænlegasta fólk, enda hafa þau
hlotið gott uppeldi og góða mennt-
un.
Margrét var glæsileg kona, há-
vaxin og fyrirmannleg í fasi og
vöktu þau Oddur athygli hvarvetna
fyrir glæsileik og prúðmennsku.
Margrét gekk í Zontaklúbb Ak-
ureyrar 19. janúar 1970 og starfaði
með okkur til hinsta dags. Af þeim
16 árum, sem hún var í klúbbnum,
sat hún 10 ár í stjórn og þökkum
við það samstarf af heilum hug.
Hún tók jafnan jákvæða afstöðu til
allra góðra málefna, sem við börð-
umst fyrir og veitti þeim allt það
lið, er hún mátti. Einni veitti per-
sónuleiki hennar, sem frá stafaði
birtu og gleði, okkur aukna orku
til framkvæmda. Ekki má gleyma
að geta þess, að Margrét var mikil
húsmóðir og bar glæsileg heimili
þeirra hjónanna og frábær gestrisni
þeirra því glöggt vitni'. Oft opnuðu
þau heimili sitt fyrir okkur ásamt
gestum okkar innlendum sem er-
lendum og eigum við margar
ánægjulegar minningar frá slíkum
gestaboðum heima hjá þeim. Við
erum þakklátar fyrir að hafa fengið
tækifæri til að kynnast slíkri konu.
Blessuð sé minning hennar.
Eftirlifandi eiginmanni hennar,
móður, börnum, systkinum og öðr-
um vandamönnum vottum við okkar
dýpstu samúð.
Zontasystur í Z.A.
t
Útför föður míns, bróður og afa,
GUÐJÓNS V. MÝRDALS,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 4. september kl. 15.
Valtýr Ómar Guðjónsson, Júlíana Valtýsdóttir.
t
Eiginmaður minr., faðir og tengdafaðir,
JÓN H. ODDSSON,
Þórunnarstrœti 106,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 5. september
kl. 13.30.
Sigurveig Árnadóttir,
ÁrniJónsson, Sigríður Jónsdóttir,
Ólína Steindórsdóttir, Magnús Stefánsson.
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður og tengdafööur, afa og
langafa,
JÓNS MARGEIRS SIGURÐSSONAR,
Þórufelli 10,
Reykjavik.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og vistmanna á dagvistunarheim-
ili Sjálfsbjargar, Hátúni 12, fyrir kærleik og hlýhug.
Elenora Þórðardóttir,
Helga Ósk Margeirsdóttir,
Ingibjörg Margeirsdóttir,
Margrét G. Margeirsdóttir,
Friðjón Margeirsson,
Kjartan H. Margeirsson,
Hreiðar Margeirsson,
Birna K. Margeirsdóttir,
Anna S. Margeirsdóttir,
barnabörn og
Helga Hjaltadóttir,
Guðmundur Þorkelsson,
Sveinn Pálsson,
Fjóla Jónsdóttir,
Huida Ólafsdóttir,
Sigurbjörg Baldursdóttir,
Árni Jónasson,
Þórir Lúðvíksson,
barnabarnabörn.
\
t
Okkar innilegustu þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og jaröarför móður okkar,
VALFRÍÐAR FRIÐRIKSDÓTTUR.
Ólafur Jón Jossa,
tengdabörn, barnaþörn og barnabarnabörn.
\ Við erum rétt að Ijúka við að bóna gólfin
1 og setja upp gardínurnar í nýja húsnæð-
inu okkar og bjóðum upp á eldhressa
I vetrardagskrá í 2 sölum. Þar er að finna
jazzdans, jazzballet, leikfimi og
/ sérstaka barnatíma fyrirþau litlu, allt frá
2ja ára. Nýjasta nýtt er svo SA-þolþjálfunarkerfið
okkar, sérhannað fyrir hresst fólk á öllum aldri.
í ofanálag bjóðum við upp á frískandi gufu og
y* nuddpott.
Láttu ekki vetrardrungann ná tökum á þér.
Stígðu rétta sporið!
HVERFISGOTU 105
SÍMI 13880
1