Morgunblaðið - 03.09.1986, Síða 46

Morgunblaðið - 03.09.1986, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986 Að fá nafn sitt skráð á sögunnar spjöld Það er kunnara en frá þurfí að segja að til þess að komast í heims- metabók Guinness detta sumum í hug hin ótrúlegustu uppátæki. Að fá nafn sitt skráð á sögunnar spjöld kostar allt í senn, útsjónarsemi, þolinmæði og þrautseigju. Þetta vissi hinn 19 ára drengur, Bruce Block, sem búsettur er í Banda- ríkjunum, er hann ákvað að setja heimsmet í einhverri listgrein. Hann lagði höfuðið í bleyti og fékk loks þá bráðsnjöllu hugmynd að verða fyrstur til að setja heimsmet í vindlakassa-jafnvægislist. Þar sem það var ekki venja Bruce Block að láta sitja við orðin tóm, hóf hann æfíngar sínar og náði loks settu marki fyrir fáeinum vikum. Þá tókst honum að halda jafnvægi með 73 vindlakassa á höku sér í rúmar fímm sekúndur. Geri aðrir betur! Sammy Davis jr. leiðir dóttur sína upp að altarinu Þrátt fyrir að heldur hafi virðing fólks fyrir hinu heilaga hjónabandi farið þverrandi hin síðari ár njóta brúðarmyndir af frægu fólki sífelldra vinsælda. Hátíðleikinn sem hvílir yfír hjónavígslunum er sá sami og áður þó svo athöfnunum hafí kannske farið fækkandi. Það var líka mikið um dýrðir í Los Angeles á dögunum er dóttir Sammy Davis jr. og fyrrum konu hans, May Britt, Tracey Davis, þrammaði upp að altarínu og hét Guy nokkrum Gamer trú sinni og tryggð. Mörg hundruð manns var boðið í veislu þá, kampavín og kaví- ar eins og hver gat í sig látið. Að sögn viðstaddra var veislan með þeim vegiegri, sem haldnar hafa verið í Hollywood-hverfinu í Los Angeles, enda Sammy Davis jr. ávallt verið glysgjam í meira lagi. Guy Gamer er starfsmaður Col- umbia-kvikmyndaversins og komst hann í kynni við konu sína í gegn um tengdapabbann fyrir tveimur árum. „Þetta var ást við fyrstu sýn,“ fullyrti Guy, er hann kom út úr kirkjunni með brúði sína sér við hlið. „Sennilega hefði ég aldrei lagt í að bjóða henni út, ef ég hefði hugsað eitthvað út í það. En, það er svo skrítið að þegar ástin grípur mann svona gersamlega þá gleymir maður að vera feiminn, maður fer að hugsa með hjartanu í stað heil- ans, sem betur fer,“ bætti hann við. Þau hjónakom ættu heldur ekki að þurfa að hafa neinar gífur- og fyrrverandi frú hans fengu þau legar fjárhagsáhyggjur í framtíð- bæði hús og bíl. Ekki amalegt inni, því í brúðargjöf frá Sammy það... Með heilan haug af vindlakössum á höku sér héit Bruce Brooke jafnvægi í rúmar fimm sek- úndur og setti þar með heimsmet í vindlakassa- jafnvægislist. Það fannst mörgum snobbhönunum að Tracey Davis hefði gifst nið- ur fyrir sig er hún hét Guy Gamer ævarandi trú og tryggð. En þaii segjast bæði alsæl og það er jú það sem máli skiptir. Einka- sam- kvæmi sljarn- anna Þ að eitt að tilheyra hópi hinna fínu og frægu er tímafrekt, allt að því fullt starf. Skyldustörfín í skemmt- analífínu em fjölmörg, skyldumæt- ingar í veglegar veislur og stærðarinnar samkvæmi daglegt brauð. Góðgerðarfélög um víða ver- öld sitja um þessar stjömur, biðja Foreldrar brúðarinnar, Sammy Davis jr. og May Britt, skemmtu sér konunglega í brúðkaupsveislunni veglegu og þótti mörgum undarlegt hversu vel fór á með þeim. Sérstök sjóngleraugu fyrir friðarsinna Samantha Fox, sem fyrst vakti athygli fyrir fyrirsætustörf sín, þar sem hún birtist lesendum ýmissa tímarita æði fáklædd. Samantha hefur hins vcgar nú sagt skiiið við sitt fyrra starf, snúið sér alfarið að því að syngja og gengur bara þokka- lega. Hingað til hafa þeir sem beijast fyrir bættum hoimi, aðbúnaði sjúkra <>g soltinna, friði og farsæld, látið sér nægja að læra barmmerki með slagorðum ýmiss konar eða heyja baráttu sína í hljóði með fjár- HHHjjáijH^lBBk nú Jjykir það hins vegar engan veginn næg sönnun þess að hugsjónirnar H séu bæði sannar og sterkar, því ^HHMK^dP<wH hafín er framleiðsla á gleraugum sem sérstaklega eru ætluð friðar- sinnum. Þessi gleraugu eru prýdd VaH tveimur dúfum, hvítum að lit, sem ' M eiga að hafa tyllt sér á spangirnar sérhönnuðu sjóngleraugu koma á við sitthvort gagnauga þess sem markað hérlendis, er ekki vitað en illa sér. Hvenær þessi sérstöku og við bíðum að sjálfsögðu spennt. Ekki stundlegur friður — Ge- orge Michael og unnusta hans, Cathy, áttu sér einskis ills von er þau komu i veisluna lians Prince en úti fyrir biðu tugir Ijósmyndara og blaðamanna og fylgdust grannt með öllu þvi sem fram fór. fclk i fréttum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.