Morgunblaðið - 03.09.1986, Side 50
Jtð
* 50
flMtiMft'H&lí .6 >!Mí)AC!tr4lV'!IM ;C5!VAJ4V1,):>í!OV
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986
Opið bréf til óþekkts ökumanns
Ég hafði boðist til að aka út á
Loftleiðahótel góðkunningja
mínum, amerískum prófessor sem
hér hefur dvalið um skeið á Birki-
mel 10 ásamt konu sinni og ungum
syni.
Ég var kominn þangað vestur
um 20 mínútum fyrir klukkan þijú,
síðdegis laugardaginn 31. ágúst,
en þá gekk á með sunnan skúrum
og hvassviðri og ég ákvað að leggja
bflnum sem næst dyrunum svo
styttra væri að bera farangurinn út.
Fólkið var ekki alveg ferðbúið
þegar ég kom upp að sækja þau,
en þau áttu að vera mætt á hótelið
klukkan liðlega þijú til að ná rút-
unni suður á völl. Ég dokaði
smástund við meðan þau voru að
ganga frá töskum sínum og bar
farangurinn með þeim út í bfl.
En þá kom í ljós að ekið hafði
verið á bíl minn meðan ég var inni.
Hægra brettið var dældað og
stefnuljósabúnaður brotinn, gler-
brot út um allt.
Otrúlegt er að sá sem ók á bílinn
hafi ekki orðið þes var, en hitt
sennilegra eins og hendir því miður
of marga, að hann hafi forðað sér
burt ti! að láta annan bera skað-
ann, sem hann er þó valdur að.
Ég vil nú bjóða þessum sem tjón-
inu olli að ég borgi fyrir hann
bónusinn sem hann missir af
ábyrgðartryggingunni ef hann gef-
ur sig fram við mig. Ég mun ekki
erfa þetta óhapp hans á nokkurn
hátt eða láta nafn hans uppi við
aðra ef hann kemur þarna til móts
við mig.
Það geta verið ýmsar ástæður
til þess að hann brást svona við í
fljótræði og skal ég ekki gerast
dómari í hans sök, en ég trúi ekki
öðru en að drengskaparmaður
bregðist vel við þessum tilmælum
þar sem þetta verður honum algjör-
lega útlátalaust en hans sómi meiri
á eftir.
Með von um að við þessu verði
vel brugðist,
Agnar Þórðarson, Sólheimum
23. Sími 38557.
*
Æi mamma, látt’ann bera
mig yfir þröskuldinn.
HÖGNIHREKKVÍSI
„ VOfZU EINHVER VANDRÆÐI Ap KOMA HONUM
HINGAP?"
Allir komast
til altaris í
Hallgrímskirkju
Hermann Þorsteinsson for-
maður byggingarnefndar
Hallgrímskirkju skrifar:
„Velvakandi birti sl. sunnudag
stóra og fallega mynd af hinum
veglegu hvelfingum Hallgríms-
kirkju, sem nú eru að koma í ljós
eftir margra ára vinnu.
Jakob lýsir þar áhyggjum sínum
af hinum 7 þrepum upp í kór kirkj-
unnar. Af því tilefni er rétt að
upplýsa að séð verður fyrir því
framvegis sem hingað til að allir
sem vilja, fái altarisþjónustu í
Hallgrímskirkju. Til þess eru næg
úrræði. Um það munu Jakob og
aðrir sannfærast er þar að kemur.
Honum er velkomið að hringja í
síma 19958 til að fá frekari upplýs-
ingar.
Að „allt sé á suðupunkti" fyrir
vígslu kirkjunnar er mesti misskiln-
ingur. Aðeins er rösklega unnið,
nú eins og áður, en fjöldi sjálf-
boðaliða, íslendingar og Norðmenn,
létta undir, flýta fyrir og spara
veruleg útgjöld. Og nú í vikunni
verður þörf fyrir enn fleiri til að
handlanga vinnupallatimbur út úr
kirkjunni, naglhreinsa það og raða á hagstæðu verði ættu að koma á
því til sýnis. Skólavörðuhæðina, líta á efniviðinn
Þeir sem vilja kaupa gott timbur og semja við okkur."
Víkverji skrifar
Fram hjá þeirri staðreynd verður
ekki gengið, að málið breytist
eins og annað og einstök orð fá
nýjan svip eða merkingu í tímans
rás. Fyrir skömmu ræddi Víkveiji
um orðið bætingur, sem var notað
í íþróttafréttum Morgunblaðsins um
það að bæta sig í keppni eða að
ná betri árangri en áður. Hvort
þetta orð festist í málinu í þessari
merkingu er ógerlegt að segja fyrir
um á þessari stundu. Enn má líta
á orð, sem skýtur nú alloft upp
kollinum í blöðum meðal annars í
þeim dálki Morgunblaðsins, sem ber
yfirskriftina Fólk í fréttum. Þetta
er orðið skötuhjú.
Á fimmtudaginn í síðustu viku
var rætt um skilnað Rods nokkurs
Stewart og konu hans Alönu og
komist þannig að orði, að skilnaður
þeirra skötuhjúa hafi ekki vakið litla
athygli á sínum tíma. Og á sunnu-
daginn var í sama dálki sagt frá
því, þegar Sylvester Stallone hitti
núverandi eiginkonu sína, Birgitte,
og komist þannig að orði: „Fundum
þeirra skötuhjúa bar fyrst saman
fyrír tveimur árum . . .“
í orðabók Menningarsjóðs segir
um orðið skötuhjú: (ógiftj karl og
kona (fremur niðrandi). I orðabók
Sigfúsar Blöndal er orðinu skötuhjú
meðal annars lýst með þessu dæmi:
áður en skötuhjúin, Svarti-dauði og
Stóra-bóla, lögðu lag sitt saman og
heijuðu landið. Verri gestir hafa
varla komið hingað en þeir, sem
þetta dæmi lýsir, þannig að orðið
skötuhjú hefur sannarlega haft nei-
kvæða merkingu í málinu fyrr á
tímum. Víkvetji hefur orðið var við,
að svo sé enn, því að glöggur les-
andi Morgunblaðsins kvartaði
undan því á dögunum, að það væri
notað um fólk í fréttum. Getur
Víkveiji tekið undir það með lesand-
anum, að með hliðsjón af hefð-
bundinni merkingu þessa orðs sé
það niðrandi og eigi ekki við um
þau Rod Stewart og Alönu eða
Sylvester Stallone og Birgitte, enda
virðist ekki ætlun þess, sem ritar
um þau í dálkinn Fólk í fréttum,
að líkja þeim við Svarta-dauða og
Stóru-bólu.
XXX
Verndun tungunnar er mikils-
vert viðfangsefni. Hið sama
má segja um vemdun náttúru
landsins. Valdsvið Náttúi-verndar-
ráðs er á hinn bóginn mun betur
skilgreint og markað í lögum en
þeirra, sem eiga að stuðla að varð-
veislu tungunnar. Raunar má segja,
að það sé miklu auðveldara að fylgja
fastmótaðri stefnu í náttúruvernd
en málvemd.
Þótt allir séu sammála um nauð-
syn náttúmvemdar, er það að
mörgu leyti vanþakklátt og vanda-
samt starf að hafa forgöngu um
hana af hálfu hins opinbera.
Víkveija var til að mynda skýrt frá
því, að á stað nokkmm hafi tjarnir
myndast, þar sem vegagerðarmenn
tóku efni í veg. Þegar náttúmvernd-
armenn komu á staðinn til að sinna
skyldum sínum og friðlýsa svæði,
vom þessar tjarnir friðaðar sem
náttúmminjar.
Ferðir manna í Skaftafell aukast
jafnt og þétt. Leggja flestir þar
land undir fót og kynna sér fegurð
náttúrunnar. Slasist einhveijir þar
eða veikist er leitað til heilsugæslu-
stöðvarinnar á Kirkjubæjarklaustri
um aðstoð, en þar starfar einn
læknir. Björgunarsveitin Kyndill
rekur sjúkrabíl á Klaustri og er
hann sendur í Skaftafell, ef nauðsyn
krefur, en vegalengdin milli stað-
anna er 70 km. í Vík í Mýrdal er
flugvél, sem notuð er til sjúkra-
flugs. Getur hún lent á velli við
Kirkjubæjarklaustur. Tillaga var
lögð fram um það, að braut fyrir
vélina yrði mdd í nágrenni Skafta-
fells. Náttúravemdarráð lagðist
gegn tillögunni á þeirri forsendu,
samkvæmt heimildum Víkveija, að
flugvélin myndi tmfla fuglalíf.