Morgunblaðið - 03.09.1986, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986
að loknu langstökki
STUTTGART
1986
AUSTUR-ÞÝZKA stúlkan Heike Drechsier, sem varð
Evrópumeistari í langstökki og 200 metra hlaupi er ein
mesta afrekskona ársins í frjálsíþróttum. Hún setti
heimsmet í iangstökki í sumar, stökk 7,45 metra, og í
úrslitahlaupinu í Stuttgart jafnaði hún heimsmetið í 200
metra hlaupi. Hefði heimsmetið örugglega fallið ef að-
stæður hefðu verið hagstæðari, því hlaupabrautin var
^ rennblaut eftir rigningarskúr og auk þess hafði hún vind
í fangið.
• Austur-þýska stúlkan Heike Drechsler er ein mesta afrekskona ársins i frjálsum íþróttum. Hún setti
heimsmet í langstökki í sumar og á Evrópumótinu í Stuttgart jafnaði hún heimsmetið í 200 metra hlaupi.
Drechsler vakti fyrst athygli
þegar hún varð Evrópumeistari
unglinga árið 1981, aðeins 17 ára
gömul, þá með nafninu Heike
Daute. Ári seinna setti hún ungl-
ingaheimsmet, stökk 6,98 metra.
Á heimsmeistaramótinu í Helsinki
1983 var búist við því að aðrar
konur kepptu um verðlaunin, en
óvænt úrslit verða alltaf á stórmót-
um; Heike Drechsler sigraði og
varð yngsti gullverðlaunahafi
mótsins. Pólitík kom hins vegar í
veg fyrir að hún keppti á ólympíu-
leikunum í Los Angeles ári seinna,
en það ár stökk hún lengst allra
V kvenna heimsins, 7,40 metra.
Drechlser setti heimsmet, 7,44
metra, í fyrra og tapaði aðeins
tveimur mótum. Það sýnir yfirburði
hennar í langstökki hvað bezt, að
hún hefur unnið á annan tug móta
með 7,30 metra eða lengra stökki,
en aðeins þrjár konur aðrar hafa
stokkið lengra en 7,30 metra, að-
eins þó einu sinni hver. Galina
Tschistjakowa, Sovétríkjunum,
varð þeirra síðust yfir þann múr,
en hún stökk 7,34 metra í lands-
^ keppni Austur-Þjóðverja og Rússa
í Tjallin í sumar þegar Drechsler
setti heimsmetið. Þess má geta
að síðasta keppni, sem Drechsler
tapaði, var fyrir Tschistjakowu, en
það var í úrslitakeppni Evrópubik-
arkeppninnar í fyrra.
Drechsler þurfti að nauða í þjálf-
ara sínum til að fá að spreyta sig
i 200 metrum. Hann taldi of mikla
hættu á meiðslum, en lét loks
undan í fyrra. Keppti hún einu sinni
og hljóp á 23,19 sek. Framfarirnar
eru því ótrúlegar í ár. Á austur-
þýzka meistarmótinu í borginni
Jena jafnaði hún heimsmet löndu
sinnar Maritu Koch, en það var
aðeins fimmta hlaup hennar á
vegalengdinni frá upphafi. Metið
jafnaði hún aftur í úrslitahlaupinu
í Stuttgart. Ekkert varð hins vegar
úr keppni þeirra Koch því sú síðar-
nefnda einbeitti sér að 400
metrunum á Evrópumeistaramót-
inu.
Þrátt fyrir góðan árangur í 200
metra hlaupi eru spretthlaupin
aukagreinar hennar, langstökkið
hefur forgang. Hún telur litla
framtíð fyrir sig í 200 metra hlaupi.
„Ég er of stór og leggjalöng fyrir
200 metrana,“ sagði Drechsler við
blaðamenn. Þjálfarinn, Peter Hein,
er á öðru máli og telur að með
örlítið betra starti gæti hún hlaup-
ið á talsvert betri tíma, jafnvel
niður undir 21,30 sek.
í sumar hefur Drechsler einnig
sýnt að hún væri til alls líkleg í 100
metra hlaupi. Hún hljóp á 10,97
sek. í sumar og 10,80 og 10,91 í
of miklum meðvindi. Síðarnefnda
hlaupið var á friðarleikunum í
Moskvu þar sem hún veitti heims-
methafanum og ólympíumeistar-
anum Evelyn Ashford frá
Bandaríkjunum harða keppni.
Hlutu þær sama tíma en Ashford
var sjónarmun á undan yfir
marklínuna. Þá varð Drechsler
austur-þýzkur meistari í 100 metr-
um í sumar, en útilokað var fyrir
hana að keppa í þeirri grein hér
vegna tímaseðilsins; langstökkið
fór fram á nær sama tíma og und-
anúrslit og úrslit 100 metranna.
g Hin miklu afrek Heike Drech-
sler í langstökki og spretthlaupun-
um hafa orðið til þess að henni
er nú líkt við afburðamanninn Carl
Lewis. Drechsler sagði blaða-
mönnum í Stuttgart að hún kærði
sig ekki um samjöfnuð af þessu
tagi. „Ég er ég sjálf, Heike Drech-
sler," eins og hún orðaði það, „en
ekki Carl Lewis kvenfólksins."
Drechsler hefur fengið íþrótta-
hæfileika í arf frá móður sinni, sem
var góður langstökkvari. Annars
sagði hún árangurinn að þakka.
strangri og mikilli þjálfun. „Ég legg
mig alla fram við það sem ég tek
mér fyrir hendur. Fullkomnun er
alltaf takmarkið, hvort sem það er
í langstökkinu, í náminu, eða við
að sjóða kartöflur fyrir manninnn
minn," sagði hún í einlægni.
Áhugamál hinnar glæsilegu
íþróttakonu, sem er 1,81 metrar á
hæð, eru matseld og kvikmyndir.
Hún er fædd í borginni Gera, en
býr nú í Jena, þar sem hún hefur
stundað kennaranám. í sömu borg
er Marita Koch fædd. Keppir hún
með íþróttafélaginu SC Motor í
Jena, en meðal frægra íþrótta-
manna félagsins er Marlies Göhr,
þrefaldur Evrópumeistari í 100
metra hlaupi. Reyndar er miðstýr-
ing íþróttanna mikil í
Austur-Þýzkalandi og frambæri-
legustu unglingarnir „settir" í viss
félög eftir því hvaða greinum þeim
er ætlað að afreka í.
Heike Drechsler var úthlutað
sæti á austur-þýzka þinginu í sum-
ar fyrir frækileg íþróttaafrek sín.
Austur-Þjóðverjar viðurkenna
íþróttafólk sitt gjarnan með þess-
um hætti. Wolfgang Nordwig,
ólympíumeistari í stangarstökki
1972, var einna fyrstur valinn.
Einnig eru afreksmenn gerðir að
fulltrúum á þingi kommúnista-
flokksins, en í þeim hópi eru m.a.
Marlies Göhr og Ruth Fuchs, tvö-
faldur ólympíumeistari í spjótkasti.
Drechsler sagði að sér hefði
verið falin mikil ábyrgð með þing-
sætinu. Fyrst um sinn yrðu stjórn-
málin þó aukaatriði því íþróttirnar
yrðu að njóta forgangs. „Ég tek
pólitíkina hins vegar ef til vill alvar-
lega þegar ég legg skóna á hill-
una,“ sagði hún. Áðspurð sagðist
hún nú myndu taka stefnuna á
ólympíuleikana í Seoul 1988.
• Sovétmaðurinn Igor Paklin var hinn öruggi sigurvegari i hástökki og sagðist hann hafa stokkið enn
hærra ef hann hefði ekki þurft að stytta aðhlaupið vegna þrengsla á vellinum f Stuttgart.
Sjöberg
óheppinn
SÆNSKI hástökkvarinn Patrick
Sjöberg var óheppinn á Evrópu-
meistaramótinu í Stuttgart og
varð aðeins sjötti. Honum hafði
verið spáð verðlaunum.
Sovétmaðurinn Igor Paklin, sem
á heimsmetið, var hinn öruggi sig-
urvegari og sagðist hann hafa
stokkið enn hærra ef hann hefði
ekki þurft að stytta aðhlaupið
vegna þrengsla á vellinum. Landi
hans Maltschenko varð óvænt í
öðru sæti.
Áhorfendum til mikillar gleði
sveif Vestur-Þjóðverjinn Carlo
Tranhardt yfir 2,31 í þriðju tilraun
og nældi í bronzverðlaun. Var það
sárabót fyrir ólympíumeistarann
og Evrópumeistarinn Dietmar
Mögenburg, sem missti rétt áður
af lestinni. Tranhardt náði sínum
bezta árangri í ár.
Sjöberg var aldeilis óheppinn
að fara ekki yfir 2,28 metra. Hann
virkaði mjög öruggur þar til að
þeirri hæð kom. Atrennan gekk
ekki upp í fyrstu tveimur tilraunun-
um og gramdist honum það
greinilega, því í þriðju tilraun setti
hann mikinn kraft í aðhlaupið og
uppstökkið og var 10-15 senti-
metra yfir ránni, en hefur snert
hana hárfínt, því augnabliki eftir
að hann var lentur féll hún öllum
að óvörum niður. Áhorfendur voru
byrjaðir að fagna en urðu allt í einu
felmtri slegnir.
Úrslit:
1. Igor Paklin, Sovótr. 2,34
2. Sergej Maltschenko, Sovótr. 2,31
3. CarloTranhardt, V-Þýzkal. 2,31
4. Dietmar Mögenburg, V-Þýzkal. 2,28
5. Krzystof Krawczyk, Póll. 2,28
6. Patrik Sjöberg, Svíþjóö 2,25
7. Gerd Wessig, A-Þýzkal. 2,25