Morgunblaðið - 03.09.1986, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986
* 1
!
•rm-
Eldri flokkur:
Skagamenn
íslands-
meistarar
• íslandsmeistarar ÍA 1986 í
eldri flokki í knattspyrnu. Efri
röð talið frá vinstri: Leó Jóhann-
esson, Steinn Helgason, Gísli
Gíslason, Halldór Jónsson,
Björn Lárusson, Hjalti Kristó-
fersson, Sigurvin Sigurjónsson,
Eyjólfur Harðarson og Hörður
Jóhannesson liðsstjóri. Fremri
röð talið frá vinstri: Rúnar
Hjálmarsson, Þröstur Stefáns-
son, Jóhannes Guðjónsson,
Karl Þórðarson, Davíð Kristj-
ánsson, Jón Gunnlaugsson,
Matthias Hallgrímsson og
Hörður Ragnarsson.
Morgunblaðið/Þorkell
Svona spáum við
ÞRIÐJA leikvika Getrauna verður
nú um helgina og eins og venju-
lega birtum við spá okkar auk
fjögurra enskra dagblaða um leiki
helgarinnar og er spáin hér á
síðunni. Við ætlum einnig að gera
Irtillega grein fyrir spá okkar og
reyna að útskýra fyrir lesendum
hvers vegna við setjum 1, x eða
2 á einstaka ieiki frekar en eitt-
hvað annað.
Arsenal — Tottenham 1
í fyrra varð jafntefli hjá þessum
liðum á Highbury, en árið áður
vann Tottenham 1:2. Síðastliðin
sex ár hefur Spurs unnið tvo leiki,
Arsenal þrjá og einu sinni marka-
laust jafntefli. Þó svo Tottenham
sé í efsta sæti eins og stendur þá
er greinilegt að Arsenal verður að
fara að taka sig á ef þeir ætla að
komast eitthvað upp eftir stigatöfl-
unni — og þeir munu gera það
núna.
Aston Villa — Oxford 1
Aston Villa vann í fyrra og er
það eini leikur þessara liða síðast-
* liðin ár. Villa er nú á botni deildar-
innar ásamt Manchester United
og leikmenn eru ákveðnir í að
hrista af sér slenið og þeir vinna
því örugglega 1:0 á laugardaginn.
Charlton — Norwich X
í fyrra vann Charlton en að
þessu sinni eru leikmenn liðsins
svo grobbnir yfir þvi að þeir unnu
United á síðasta laugardag að
þeir ná ekki nema jafntefli gegn
Norwich sem hefur komið á óvart
í leikjum sínum til þessa í deildinni.
Chelsea — Luton 1
Chelsea verður að vinna þennan
leik því þeir eru allt of neðarlega
í töflunni eins og er og vilja því
hækka sig og þar sem þeir hafa
unnið heimaleiki sína gegn Luton
síðastliðin tvö ár, spáum við því
að þar verði engin breyting á.
Leicester — Man. United 2
Það hlýtur að koma að því að
þeir rauðu vinni leik og þó svo
Leicester hafi unnið þá 3:0 í fyrra,
spáum við United „óvæntum" sigri
að þessu sinni.
Man. City — Coventry 1
Pottþéttur heimasigur; City
vann 5:1 í fyrra og þeir ætla ekki
að breyta neitt út af þeirri venju
að þessu sinni. Þeir keyptu líka í
vikunni Robert Hopkins frá Brim-
ingham og hann skorar eitt marka
liðsins á laugardaginn.
Newcastle — Sheff. Wed. X
Heimamenn hafa unnið tvær
síðustu viðureignir en þeim hefur
ekki gengið nógu vel að undan-
förnu þannig að við spáum bara
jafntefli og það kæmi manni ekki
á óvart þó það yrði markalaust.
Getrauna- spá MBL. Sunday Mirror Sunday People Sunday Express Sunday Telegraph o ö <0 2 c 3 ? o 2 SAMTALS
1 X 2
Arsenal - Tottenham X 2 X X 1 1 3 1
Aston Villa — Oxford 1 1 1 1 i 5 0 0
Charhon — Norwich 1 X X X X 1 4 0
Chelsea — Luton 1 X 1 1 1 4 1 0
Leicester— Man. Utd. 2 1 2 2 2 1 0 4
Man City — Coventry 1 1 X 1 1 4 1 0
Newcastle — Sheff. Wed. 2 X 2 X X 0 3 2
South. — Nott’m Forest 1 1 X 2 1 3 1 1
Watford — Wimbledon 1 1 1 1 1 S 0 0
West Ham — Liverpool X X X 2 2 0 3 2
Blacburn — Sunderland X 2 2 1 1 2 1 2
Sheff. Utd. — Birmingham X X 1 1 2 2 2 1
Southampton — Nott. Forest 1
Dýrðlingarnir hafa unnið sfðustu
tvær viðureignir liðanna á heima-
velli sínum og á því verður engin
breyting. Clough og félagar verða
að sætta sig við að Southampton
kemst upp fyrir þá í stigatöflunni
að sinni að minnsta kosti.
Watford — Wimbledon 1
Hér er ekki nokkur vafi á heima-
sigri strákanna hans Elton John.
Þeir keyptu í gær Kevin Richards-
son frá Everton og hann er
örugglega orðinn þyrstur í fótbolta
drengurinn sá, því hann hefur löng-
um verið sveltur hjá Everton.
Nýliðar Wimbledon eiga ekki
möguleika þó svo þeim hafi gengið
vel það sem af er.
West Ham — Liverpool 2
Hörkuleikur og best hefði verið
að sleppa því að tippa á hann.
Jafntefli varð í fyrra, 2:2, en þar
áður vann Liverpool tvívegis þann-
ig að við höldum því og segjum
að þeir vinni leikinn.
Blackburn — Sunderland 1
Heimasigur því í fyrra unnu þeir
2:0 og líklega endar þessi leikur
einnig 2:0.
Sheff. Utd. — Birmingham 2
Siðast léku liðin árið 1984 og
þá vann Birmingham 3:4 í hörku-
leik. Þrátt fyrir að þeir hafi selt
aðal sóknarmann sinn til Man. City
í gær verður liðið bara betra fyrir
bragðið þvi Hopkins var og er
svoddan röflari og eyðilagði meira
fyrir liðinu en hitt. Þess vegna 2.
Undankeppni Ol:
Fyrsti leikurinn
úti gegn Ítalíu
I GÆR var gengið frá niðurröð-
un leikja í undankeppni
ólympíuleikanna í knattspyrnu
en lokakeppnin fer fram á sum-
arleikunum i' Seoul árið 1988.
Eins og kunnugt er mega þeir
leikmenn sem tekið hafa þátt i'
heimsmeistarakeppninni ekki
leika með í þessari keppni og
því eru flestir okkar bestu menn
útilokaðir frá þessari keppni.
ísland er í riðli með ítölum,
Hollendingum, Austur-Þjóðverj-
um og Portúgölum í riðli og hefst
riðlakeppnin strax í desember
með leik Hollands og Austur-
Þýskalands en keppni okkar liðs
hefst ekki fyrr en 15. apríl á
næsta ári og lýkur 29. maí árið
1988.
Fyrsti leikurinn er gegn ítölum
á Ítalíu þann 15. apríl 1987 en
26. maí leika íslendingar hér
heima við Hollendinga og 2.
september leika þeir við Þjóð-
verja, einnig hér heima. Síðasti
leikurinn á næsta ári verður síðan
við Portúgal þann 7. október.
íslenska liðið heimsækir Hol-
lendinga 27. apríl árið 1988 og
30. sama mánaðar leikur liðið við
Þjóðverja en tveir síðustu leikir
liðsins i undankeppninni verða
hér heima. Fyrst leika Portúgalir
hér 24. maí og þann 29. sama
mánaðar leika ítalir hérna.
2. deild kvenna:
Stórsigur
Akureyri.
KA-STÚLKURNAR sigruðu stöllur
si'nar i Skallagrími frá Borgarnesi
13:0 í síðasta leik 2. deildar
kvenna í knattspyrnu á iaugar-
dagsmorguninn á Akureyri. Hér
var um að ræða leik sem frestað
hafði verið fyrr í sumar.
Úrslit leiksins segja allt um gang
hans — yfirburðir Akureyrarstúlkn-
anna voru alveg í samræmi við
þau. Anna Gunnlaugsdóttir skor-
aði 5 mörk fyrir KA, Hjördís Úlfars-
dóttir gerði 3, Valgerður Jónsdóttir
einnig 3, og Erla Sigurgeirsdóttir
14 með 11
ÞAÐ var enginn með 12 rétta í
2. leikviku Getrauna að þessu
sinni enda kannski ekki nema von
þvi' mikið var um óvænt úrslit.
Manchester United tapaði enn
eina ferðina og að þessu sinni
fyrir nýliðum Charlton. Svo gæti
farið að það yrði að sleppa leikj-
um United af seðlum á næstunni
þvi' það er að verða öruggur leik-
ur og það er ekki æskilegt að
hafa of marga leiki sem eru gull-
tryggðir.
í síöustu viku komu fram 14
raðir með 11 réttum og fær hver
um sig 35.915 krónur í vinning.
Fyrir 10 rétta fær hver röð 957
krónur því að það voru alls 225
raðir með tíu róttum. Alls seldust
299.332 raðir að þessu sinni og
knattspyrnudeild Fram var sölu-
hæsti aöilinn en þeir seldu rúm-
lega 21.000 raðir.
Þess má geta hór til gamans
að af þeim 14 röðum sem fengu
11 rétta í síðustu viku voru sjö
þeirra með réttan leik Manchester
United og Charlton.
og Tinna Óttarsdóttir skoruðu 1
mark hvor.
Hopkins
til City
Frá Bob Hennessy fréttaritara Morg-
unblaðsins í Englandi.
í GÆR var gengið. frá sölu
Kevin Richardson frá Everton
til Watford eins og við sögð-
um frá fyrir viku að stæði til.
Kaupverðið var 250.000
pund.
Richardson er 23 ára gam-
all og hefur leikið með Everton
í sjö ár en ekki tekist að vinna
sér fast sæti í liðinu og kaus
því frekar að verða fastamaður
hjá Watford en varaskeifa hjá
Everton.
Manchester City keypti
einnig leikmann í gær og heit-
ir sá Robert Hopkins og kemur
frá Birmingham. Hopkins er
24 ára gamall og hefur skorað
mikið af mörkum um ævina
en hann hefur ávallt verið til
vandræða og má sem dæmi
nefna að í fyrra var hann
„spjaldahæsti" leikmaður
deildarinnar er hann náði sér
í 13 gul spjöld.