Morgunblaðið - 06.09.1986, Page 13
)8Pi Pr:4>lMa'PcT'i;: MtWAaíIAOtlAJ gIgAJgVH?Q5ieW
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1986
13
Störf dómnefndar um
nýbyggmgii Alþingis
eftir Þorvald S.
Þorvaldsson
Vegna skrifa í tengslum við sam-
keppni um nýbyggingu Alþingis, tel
ég rétt að koma á framfæri eftirfar-
andi upplýsingum um skipun
dómnefndar og störf hennar.
{ inngangi útboðsgagna sam-
keppninnar og áliti dómnefndar um
nýbygginguna gerir Þorvaldur
Garðar Kristjánsson, forseti sam-
einaðs Alþingis, ágætlega grein
fyrir forsögn málsins og störfum
dómnefndar.
Varðandi notkun nýbyggingar-
innar og staðsetningu kemur eftir-
farandi fram:
„Með tilliti til fyrirhugaðra nota
þarf nýbyggingin að vera sem næst
Alþingishúsinu. Þó má nálægð hús-
anna ekki vera til lýta fyrir útlit
Alþingishússins svo að stíll þess
njóti sín eftir sem áður.
Gert er ráð fyrir að nýbygging
sé tengd Alþingishúsinu með neðan-
jarðargöngum. Þó þarf að gæta
þess við staðsetningu nýbyggingar
að möguleikar verði fýrir hendi til
að reisa nýtt Alþingishús á lóðar-
spildum þeim sem Alþingi hefur
yifir að ráða á svæði því sem mark-
ast af Templarasundi, Kirkjustræti,
Tjarnargötu og Tjöminni.
Af framangreindum ástæðum er
gert ráð fyrir að fyrri áfangi ný-
byggingar verði látinn standa við
Kirkjustræti, vestanvert við Al-
þingishúsið, en síðari áfanginn við
Tjarnargötu.“
í inngangi að áliti dómnefndar
segir m.a.:
„í tilefni hundrað ára afmælis
Alþingihússins samþykkti Alþingi
árið 1981 ályktun er varðar húsa-
kost þingsins. í þingsályktuninni
var mælt svo fyrir að efnt skyldi
til samkeppni um gerð og skipulag
nýbyggingar fyrir starfsemi þings-
ins. Snemma árs 1985 var hafinn
undirbúningur að því að koma fram
vilja Alþingis í málinu. Arkitektafé-
lag íslands aðstoðaði við samkeppn-
ina og var ákveðið að dómnefnd
skyldi skipuð sjö mönnum."
í dómnefnd voru skipaðir af Al-
þingi: Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son, forseti sameinaðs Alþingis,
Ingvar Gíslason, forseti neðri deild-
ar Alþingis, Salome Þorkelsdóttir,
forseti efri deildar Alþingis, Þor-
valdur S. Þorvaldsson, forstöðu-
maður Borgarskipulags.
Arkitektafélag íslands kaus á
almennum félagsfundi arkitektana
Helga Hjálmarsson, Hilmar Þór
Bjömsson og Stefán Benediktsson,
sem einnig er alþingismaður.
Arkitektamir eru allir þekktir af
ýmsum verkum, hafa tekið þátt í
samkeppnum og hiotið viðurkenn-
ingu fyrir störf sín. Þeir spanna nær
tveggja áratuga aldursmun og
menntun bæði frá Norðurlöndum
og Þýskalandi og hafa reynslu af
dómnefndarstörfum. Til ráðgjafar
dómnefndinni vom ráðnir Friðrik
Olafsson, skrifstofustjóri Alþingis,
og Garðar Halldórsson, húsameist-
ari ríkisins, sem hefír gert ýmsar
athuganir á byggingarmálum Al-
þingis og úttekt á núverandi
húsakynnum og lóðamálum.
Sátu ráðgjafamir alla undirbún-
ingsfundi dómnefndarinnar og var
húsameistari einnig til ráðuneytis
þingforsetum við dómstöfín.
I áðumefndum formála forseta
sameinaðs þings í áliti dómnefndar
kemur eftirfarandi fram um undir-
búningsstörfin:
„Dómnefndin vann að undir-
„Það er mikið gleðiefni
að ungnr arkitekt skuli
vera höfundur að þeirri
tillögu sem dómnef ndin
stóð einhuga um að
veita fyrstu verðlaun
og taldi skara nokkuð
fram úr.
búningi og gerð keppnislýsingar í
samráði við þingflokkana. Þannig
voru drög að keppnislýsingu, út-
boðslýsingum og verkefnalýsingu
send þingflokkunum til umsagnar
þar sem skýrt var frá öllu fyrir-
komulagi og kröfum sem dóm-
nefndin hugðist gera í sambandi
við lausn verkefnisins. Auk þess
höfðu forsetar þingsins fundi með
formönnum flokkanna til kynningar
og skýringar eftir því sem gerð
keppnislýsingar miðaði áfram. Frá
þingflokkum fékk dómnefndin ýms-
ar ábendingar.
Samkeppni þessi um nýbyggingu
Alþingis var auglýst 24. febrúar
1986 og var þá gert ráð fyrir skila-
frestu til 12. maí. í samræmi við
samkeppnisreglur gafst keppendum
kostur á að gera fyrirspurn til dóm-
nefndar um ýmis atriði er varðar
keppnislýsinguna. Var fyrirspurn-
um þessum öllum svarað. Þá óskuðu
sumir þátttakendur að keppnistími
yrði lengri og framlengdi dóm-
nefndin skilafrest til 12. júní. Þegar
í desember 1985 hafði Alþingi gef-
ið út fréttatilkynningu þar sem
vakin var athygli arkitekta á hinni
væntanlegu samkeppni. Keppnin
fór fram eftir samkeppnisreglum
Arkitektafélags íslands. Rétt til
þátttöku höfðu allir félagsmenn
Arkitektafélags íslands og þeir sem
hafa leyfi til að leggja aðalteikning-
ar fyrir byggingamefnd Reykjavík-
ur.
Dómnefnd bárust 25 tillögur og
var strax hafist handa að undirbúa
dómstörfin. Dómnefndarmenn gáfu
sér góðan tíma eða á aðra viku til
að kynna sér tillögumar hver fyrir
sig og fleiri eða færri saman. Lásu
allir greinargerðina, skoðuðu teikn-
ingamar og reyndu að mynda sér
skoðanir um tillögumar. Síðan hóf-
ust reglulegir fundir daglega þar
sem dómnefndin öll sat ásamt að-
stoðarmönnum. Á fundum dóm-
nefndar var hver einasta tillaga
tekin til athugunar. Gerð var ná-
kvæm athugun með hliðsjón af
tilteknum atriðum sem lögð vom
til grundvallar við samanburð á til-
lögum. Hafði dómnefndin í huga
að fyrri áfanga hæfði látlaus virðu-
leiki hið ytra og innra, þar sem þar
færi fram starfsemi sem ætti heima
í þinghúsinu sjálfu ef rými hefði
leyft.
Það er álit dómnefndar að tillög-
umar, sem bámst í þessari sam-
keppni, séu almennt í háum
gæðaflokki. „Höfundamir hafi lagt
sig fram við verk sitt og framsetn-
ing þeirra almennt sérlega góð og
skýr.“
f húsrýmisáætlun keppnisgagn-
anna vom tilgreindar nettóstærðir
ásamt prósentum í ganga, anddyri,
tengingar o.fl. Ekki var tilgreind
föst brúttóstærð og taldi dómnefnd-
in að athuguðu máli rétt að líta svo
á að keppendur gætu gert grein
fyrir rýmisþörf á rökstuddan hátt.
Hefir þessi háttur verið gagnrýnd-
ur.
Tillögumar urðu einnig mjög
mismunandi að stærð þar sem sum-
ir lögðu áhersu á samþjappað
húsrými en gerðu þá gjaman mikið
úr tengingu og útirými en aðrir
drógu útirýmið inn í yfirbyggð torg
og forsali. Vom tillögumar frá 5800
m2 í yfirbyggðu húsrými og upp í
á níunda þúsund. Réð dómnefndin
sérfræðing til að stærðarreikna til-
Þorvaldur S. Þorvaldsson
lögurnar og vera til ráðuneytis um
tæknileg atriði. Vom tillögurnar
sem hlutu fyrstu og önnur verðlaun
í meðalstærð innsendra teikninga
en þriðju verðlaun í neðri kanti.
Það er mikið gleðiefni að ungur
arkitekt skuli vera höfundur að
þeirri tillögu sem dómnefndin stóð
einhuga um að veita fyrstu verðlaun
og taldi skara nokkuð fram úr.
Ætti þessi árangur að vera einnig
öllum arkitektum gleðiefni þó auð-
vitað séu sumir vonsviknir og
skoðanir hljóti og eigi að vera mis-
munandi enda gmndvöllur þess að
til samkeppni er efnt að búast megi
við mismunandi og jafnvel óvæntum
lausnum á viðfangsefninu til að
velja á milli.
Alltaf hlýtur því að vera hægt
að deila um faglega niðurstöðu
dómnefndar og getur fagleg um-
ræða um þá hlið aðeins orðið vaki
fyrir byggingarlistina.
Er óskandi að þessi samkeppni
eigi eftir að verða húsagerðarlist í
landinu sá vaki sem samkeppni ber
og að menn dragi lærdóm af henni
og framkvæmd hennar, bæði þátt-
takendur og dómarar í komandi
keppnum.
Höfundur er arkitekt FAÍ og for-
stöðumaður Borgarskipulags.
Tilboð sem erfitt er að hafna!
— stendur til
20. okt.
Frjálst framtak gefur
út 12 vönduð og þekkt
tímarit. Nú hefur verið
ákveðið að gera nýjum
áskrifendum kosta-
boð. Þeir sem gerast
áskrifendur fyrir 20.
október nk. geta valið
sér bók sem þeir fá
senda heim jafnskjótt
og þeir greiða áskrift-
argjöld í fyrsta sinn.
Velja má milli bókanna
Eldur og regn eftir
Vigdísi Grímsdóttur og
Heimsins mestu
furðufuglar eftir Mike
Parker. Þetta er tilboð
sem erfitt er að hafna.
Frjálst framtak
Ármúla 18,
sími 91-82300
Askrifandi: Hfiimili-
Ég óska að fá sent: □ Eldur og regn Rtaði ir
Símanr •
□ Heimsins mestu Nafnnr • Daga •
furðufuglar Undirskrift:
□ ABCbarnablað
□ Áfangar
□ Á veiðum
□ Bíllinn
□ Fiskifréttir
□ Frjáls verslun
□ Gróður & Garðar
□ Iðnaðarblaðið
□ íþróttablaðið
□ Nýtt líf
□ Sjávarfréttir